Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 28
UMRÆÐAN 28 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Á SÍÐUSTU áratugum hafa orðið verulegar breytingar á því þjóð- félagi sem við lifum í. Sá efnahags- legi veruleiki sem blasir við okkur gerir það að verkum að báðir for- eldrar eru nú við vinnu utan heim- ilis. Samfélagið hefur þurft að finna leiðir til þess að bregðast við þess- um breytingum og er stofnun leikskóla dæmi þess. Leikskólinn hefur frá stofnun hans tekið margvíslegum breyt- ingum. Margar for- sendur hafa verið gefn- ar fyrir því að hafa leikskóla lokaða hluta úr sumri. Má þar nefna viðhald, erfiðleika með afleysingar og að skóla- starfið þurfi að hafa upphaf og endi. Kostir þess að hafa leikskóla opna yfir sumarið hafa lítið verið í umræðunni. Öll umræða hlýtur að vera af hinu góða og eflaust engin ein skoðun sú eina rétta. Saga leikskólans Árið 1925 er fyrsta dagheimilið á Ís- landi stofnað. Átti stofnun þess sér fyrst og fremst félagslegar skýr- ingar. Til að draga upp mynd af uppeldisaðstæðum barna í Reykja- vík á fyrri hluta aldarinnar vitna ég hér í ræðu sem Katrín Thoroddsen alþingiskona flutti á Alþingi 1946, er hún var að fylgja úr hlaði frumvarpi sínu um „Dagheimili fyrir börn“. Þar segir hún m.a: „… uppeldisskil- yrði víða í kaupstöðum, en þó eink- um í Reykjavík, eru orðin svo slæm, að með öllu er óviðunandi og ekki annað sýnna en stefnt sé í voða, ef ekki er að gert. Um orsakir þessa óheillaástands er óþarfi að orð- lengja, þær eru margvíslegar, en mestu valda vafalaust breyttir lifn- aðarhættir þjóðarinnar og hinn öri vöxtur bæjanna á síðustu áratug- um“. Telur Katrín síðan upp ástæð- ur eins og breyttir atvinnuhættir foreldra og leikskilyrði barna. Segir hún að miðað við þær aðstæður sem fjölskyldunni sé boðið sé „engu lík- ara en alls ekki hafi verið búist við börnum í kaupstöðum landsins og því láðst að búa að þeim á mann- sæmandi og heilbrigðan hátt. Börn- um er, það því best verður séð, ofaukið bæði inni og úti“. Samfélagsleg ábyrgð Til að barnið geti sem best notið bernsku sinnar og þroskað hæfi- leika sína, verður samfélagið að mynda stuðningsnet um fjölskylduna og barnið. Uppbygging leikskóla í landinu hef- ur ekki verði eins hröð og fjölskyldur hafa þurft á að halda og op- inberir aðilar ekki brugðist nægjanlega vel við breyttum þjóð- félagsaðstæðum þar sem báðir foreldrar eru útivinnandi allan daginn. Það tók margra ára baráttu fyrir hjónafólk að fá aðgang að leikskólum landsins fyrir börn sín í þann tíma sem þörf var á. Baráttan um heitan mat í hádeginu fyrir leikskólabörn var jafnlöng og baráttan fyrir því að leikskólabarnið og fjölskylda þess fái að njóta sumarleyfis saman verð- ur eflaust einnig löng. Ávallt hefur verið lögð áhersla á samstarf leik- skóla og heimila og eitt meginmark- mið leikskólastarfs er að „í sam- vinnu við heimilin efla alhliða þroska barnsins“. Sumarleyfi ætti að falla undir það samstarf og sam- vinna er lykilorð í því samstarfi. Hagsmunir leikskólabarnsins Það er mikilvægt að gengið sé út frá hagsmunum leikskólabarnsins og fjölskyldu þess í allri umræðu um þá þjónustu sem leikskólinn veitir. Leikskólinn sem stofnun þarf í upp- eldis- og þjónustuhlutverki sínu að endurspegla það samfélag sem við búum í og taka mið af þeim breyt- ingum sem þar eiga sér stað. Mark- mið okkar sem berum hag ungra barna fyrir brjósti hlýtur að vera að stuðla að því að barnið geti notið sumarleyfis í faðmi fjölskyldu sinn- ar, en ekki á gæsluvelli eða á tóm- stundanámskeiði. Leikskólinn þarf að starfa í sátt við fjölskyldur og at- vinnulífið. Lokanir vegna viðhalds teljast ekki til faglegra forsendna og eru ekki haldbær rök, þar sem þeim leikskólum sem eru opnir allt árið er ágætlega við haldið. Afleys- ingar og aðrir stjórnunarlegir þætt- ir falla heldur ekki undir faglegar forsendur enda er sumarið heppi- legur tími til undirbúnings og skipu- lags vetrarstarfs. Leikskólakenn- arar og annað starfsfólk leikskólans getur frekar valið sér sumarleyf- istíma þegar leikskólinn er opinn yf- ir sumarið. Skólaárið getur haft upphaf í september ár hvert og end- ir í maí, en þá tekur við svokallað sumarstarf leikskólans sem er ann- ars eðlis en vetrarstarfið. Opnir leikskólar Það er á herðum hvers sveitarfélags eða þess aðila sem rekur leikskóla að ákveða hvernig þjónustu þeir veita yfir sumarið. Leikskólar í Garðabæ hafa verið opnir yfir sum- arið síðastliðinn áratug og er það stefna bæjaryfirvalda þar að fjöl- skyldan geti valið sér þann tíma í sumarleyfi sem hún vill. Ávallt er þó lögð áhersla á að barnið taki sér samfellt sumarleyfi í a.m.k. fjórar vikur. Þarfir leikskólabarnsins og fjölskyldu þess eru þar hafðar í fyr- irrúmi. Höfum hugleiðingar John Dewey í huga þegar börn eru ann- ars vegar „Það sem hið vitrasta og besta foreldri óskar barni sínu ætti samfélagið að óska öllum sínum börnum“. Lok, lok og læs og allt í stáli … Anna Magnea Hreinsdóttir skrifar hugleiðingar um sum- arlokanir leikskóla ’Það er á herðum hverssveitarfélags eða þess aðila sem rekur leik- skóla að ákveða hvernig þjónustu þeir veita yfir sumarið.‘ Anna Magnea Hreinsdóttir Höfundur er með meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræðum frá Kennaraháskóla Íslands, er leik- skólastjóri leikskólans Kjarrið og sit- ur í fjölskylduráði Garðabæjar fyrir Samfylkinguna í Garðabæ. MEÐ LÖGUM sem sett voru í Bretlandi árið 1998 fengu Skotar og Walesverjar þing. Þessi lög hafa verið kölluð „yfirfærslulög“ þar sem þing Breta í Westminster var að færa ákveðna málaflokka yfir til heimamanna. Þó nokkur valdamun- ur er á þingunum. Í stuttu máli má segja að Skotar hafi lög- gjafarvald, þeir geta lagt skatta á fólk og þeir hafa eigin fram- kvæmdastjórn. Wal- esverjar hafa ekki löggjafarvald, geta ekki lagt skatta á fólk og eru ekki með framkvæmdastjórn í líkingu við Skota. Ráðherra Wales er í Westminster í London og er hluti af ríkisstjórn Breta þar sem Tony Blair er forsætisráðherra. Skotar eru þó ekki allsráðir, þar sem þjóðþing Breta í Westminster get- ur breytt eða neitað Skotum að setja lög, jafnvel í málaflokkum sem Skotar eiga að stjórna. Breytingar framundan? Nefnd sem kennd er við Ríkarð lávarð mun birta skýrslu á næstu vikum þar sem lagðar verða til breytingar á núverandi „yf- irfærslum“. Búist er við að Rík- arður lávarður leggi til að fjölga þing- mönnum á velska þinginu úr 60 í 80 og að það fái stærra lög- gjafarhlutverk. Peter Hain, ráðherra Wales, hefur farið í hringi síðustu vikurnar í fjölmiðlum, þegar leit- að er álits hans á væntanlegum breyt- ingum. Hann sagði í blaðaviðtali hinn 13. janúar sl. að velska þingið myndi ekki fá völd á við það skoska, í yfirlýsingu tveimur dögum síðar sagðist hann hins vegar ekki útiloka neitt. Skaut sig í fótinn Peter Hain skaut sig síðan í fótinn í viðtali við Western Mail fyrir stuttu þegar hann sagði að breyt- ingar á velska þinginu í átt að því skoska myndu ekki gagnast Wal- es. Svo bætti hann við að efna- hagsmál Skota væru verri en í Wales. Þar með gaf hann í skyn að félagar hans í skoska Verka- mannaflokknum stæðu sig ekki. Auk þess að „yfirfærslan“ mikla árið 1998 hefði ekki gengið sem skyldi. Fyrir vikið tók Tony Blair hann á beinið og varð Peter Hain að biðjast afsökunar á orðum sín- um. Tony Blair hefur hins vegar sjálfur sagt að efnahagsmál Skota hafi gengið mjög vel síðustu ár, þrátt fyrir þá staðreynd að efna- hagur þeirra versnar sífellt í sam- anburði við Englendinga og Wal- esverja. Þótt Wales kunni að hafa betri stjórn á sínum efnahagsmálum þýðir það ekki að allt hafi gengið upp síðan 1998. Um 40% aukning hefur orðið á framlögum til Skota og Walesverja til heilbrigðismála á síðustu árum, þrátt fyrir það hafa biðlistar í Skotlandi ekki styst og í Wales hefur biðtíminn lengst um helming. Leiðir á að skríða! ,,Ef Skotar vilja gera eitthvað, þá geta þeir það. Við þurfum hins vegar að biðja um leyfi, þar sem svarið er oftast nei,“ segir þing- maður Plaid Cymru-flokksins í Wales um stjórnmálaástandið. Þessi orð einkenna mjög þá til- finningu sem margir þingmenn Wales hafa og þeir vilja breyt- ingar. David Melding, meðlimur í velska Íhaldsflokknum, hefur ver- ið harður í gagnrýni sinni. Hann telur að annaðhvort eigi að auka völd þingsins eða leggja það niður. ,,Stefnumótun er í molum í Wales þar sem enginn í Westminster hefur áhuga á málefnum lands- ins,“ segir Melding í nýlegu við- tali. Framtíð Wales hangir í loft- inu en stuðningur landsmanna við breytingar hefur aukist. Kosning um „yfirfærsluna“ árið 1997 í Wales var samþykkt með naum- indum, nú er hins vegar um 75% stuðningur við breytingar í átt til skoska líkansins. Wales vill völd á við Skota Pétur Berg Matthíasson skrifar um stjórnmál á Bretlandseyjum ’Skotar eru þó ekkiallsráðir, þar sem þjóð- þing Breta í West- minster getur breytt eða neitað Skotum að setja lög, jafnvel í mála- flokkum sem Skotar eiga að stjórna.‘ Pétur Berg Matthíasson Höfundur er stjórnmálafræðingur og býr í Skotlandi. „ALLT er mér leyfilegt, en ekki er allt gagnlegt“. Þessi fornkveðnu biblíusannindi minna á, að við glepjumst af villu- ljósum, sem leiða yfir okkur ýmsa óáran, svo sem til dæmis alvarlega sjúkdóma og ótímabæran dauða. Við gerum ekki þann greinarmun á gagn- semi og gagnsleysi sem vert væri. Offita er einn skæðasti menningarsjúkdómur okkar tíma. Ekki vantar þó ráðlegg- ingar í baráttunni gegn þessum vágesti; heilar ríkisstofnanir uppfræða okkur um eðli matvæla og ekki vantar að spjótum sé beint að ,,óhollum“ fæðutegundum eins og sykri og fitu. Mannskepnan er alæta. Það er að vissu leyti rangnefni því að maðurinn lifir ekki á sellulósa, sem er í flestum grænum plöntum, hann hefur ekki græjur til að melta hann. Hann gerir sér hins vegar að góðu kolvetni í formi sterkju og sykurs, sem hann fær úr ávöxtum plantna. Úti í náttúrunni eru þessi matvæli í boði takmarkaðan tíma á ári hverju. Á þeim árstíma er gjarnan ofgnótt þessara fæðuefna. Það hentar því vel að safna saman þessum ávöxtum í stórar hrúgur að hausti og gæða sér síðan á þeim þegar vetrar og fæðufram- boð minnkar, en megnið af þeim hundruðum þúsunda ára sem mað- urinn hefur verið að laga sig að fæðuframboði í náttúrunni kunni hann engar aðferðir til þessa. Hann brá því á það ráð að safna þessum kolvetnaforða utan á lík- ama sinn í formi fitu, sem síðan var hægt að ganga á þegar harðn- aði á dalnum. David Attenborough sýndi okkur í sjónvarpsþætti um alætur meðal spendýra hvernig grábirnir í Alaska hafa aðlagast hörðum aðstæðum með því að háma í sig ber á haustin af slíku hamsleysi að þeir bæta á sig yfir 100 kílóum af fitu áður en þeir leggjast í vetrardvala. Fitan hefur vissulega nokkra ókosti: Hún þyngir lífveruna, gerir hana svifa- seinni og þar með óhæfari til und- ankomu ef á hana er ráðist, en það háir að vísu lítt grábjörnum, sem eiga fáa náttúrlega óvini. Aukin þyngd gerir líka að verkum að erfiðara er að elta uppi mat sem er hreyfanlegur í náttúrunni svo sem villigelti og dádýr. En ekki verður á allt kos- ið og berin halda áfram að bíða sallaró- leg eftir því að verða etin og reyna ekki að nýta sér hvað etand- inn er seinn í svifum. Þau vita sem er að þau munu verða borin til grafar á ein- hverjum hentugum stað af etandanum, hugsanlega með yf- irsöng. Þegar grábirn- irnir koma svo úr híð- inu á vorin, hafa brennt allri fitunni og eru orðnir grannir, byrja þeir að hlaupa uppi önnur dýr til að gæða sér á, en þótt mikið framboð sé á slíkri bráð fitna þeir ekki af henni, heldur haldast grannir allan veiðitímann. Nú eru grábirnir auðvitað ekki menn, en aðstæðurnar sem þeir hafa aðlagast í Alaska eru ekki annað en ýkt mynd þeirra að- stæðna sem menn hafa þurft að glíma við á undanförnum tugþús- undum ára og lengur. Er nú komið að þeirri spurn- ingu sem borin er upp í fyrirsögn þessa litla greinarkorns: Er það æskilegt að neyta ávaxta allt árið? Það er hluti af rétttrúnaði þess- arar yfirstandandi aldar að hall- mæla ekki ávöxtum. Þeir eru svo svakalega ,,hollir“. Þessi skoðun þykir afar fín jafnvel þótt hið skelfilega efni, sykur, sem er í gosdrykkjum og talið er ein- staklega ,,óhollt“, sé nánast sama efnið og það sem finna má í mikl- um mæli í appelsínum og eplum. Þessi rétttrúnaður stafar senni- lega af því, að á fyrri tímum var stundum skortur á ýmsum þeirra snefilefna, sem finna má í ávöxtum og ávextir voru af skornum skammti, ekki nema rétt svo að það væri epli til hátíðabrigða um jólin. Svo svæsinn er þessi rétt- trúnaður, að meira að segja Atk- ins heitinn, hinn svarni andstæð- ingur kolvetna, vildi endilega að fólk neytti berja og annarra ávaxta í nokkrum mæli, jafnvel meðan það væri á fullu í hinum al- ræmda Atkinskúr, sem næring- arfræðingarnir eru allir á móti, en einkenni á þessum kúr er að menn grennast með því að eta aðallega fitu og eggjahvítu, efnin, sem eru í villigöltum og dádýrum. Ef maður etur mikið af villigöltum og dádýr- um eru það skilaboð til líkamans um að maður þurfi að hlaupa hratt til að afla sér fæðu og líkaminn bregst við með því að skera óþarfa þyngsli utan af sér. En ef maður etur mikið af berjum og ávöxtum eru það skilaboð um að í umhverf- inu sé allt fullt af ávaxtatrjám og berjalyngi krökku af berjum, sem bíða eftir að verða etin, skilaboð um að yfirvofandi sé kaldur vetur með skelfilegum fæðuskorti, skila- boð um að breyta fæðunni sem mest í fitu í líkamanum. Það skyldi þó ekki vera helsti veikleikinn á Atkinskúrnum hvað Atkins heitinn var snokinn fyrir kolvetni í formi ýmislegra ávaxta vegna þess hvað þeir þykja fínn matur, hvað hann var mikið barn síns tíma þrátt fyrir allt. Það skyldi þó ekki vera. Ber allt árið? Baldur Pálsson skrifar um mat- aræði Baldur Pálsson ’Það er hluti afrétttrúnaði þessarar yf- irstandandi ald- ar að hallmæla ekki ávöxtum.‘ Höfundur er kerfisfræðingur.DILBERT mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.