Vísir - 21.04.1981, Blaðsíða 1

Vísir - 21.04.1981, Blaðsíða 1
Högni Torfason og Hólmsteinn Steingrimsson úr móttökunefndinni koma með Korchnoi aö Loftleiöahótelinu i gsrdag. (Visism. Friöþjófur) Viktor Korchnoi siaOheittur við komuna til Reykjavikur: „Ekkl í vafa um að ég slgra Karpov" Telur Sovétmenn muni reyna að beita nýjum vopnum Viktor Korchnoi, skákmaöur- inn mikli, sem keppa mun viö Anatoli Karpov, núverandi heimsmeistara í skák, um heimsmeistaratitilinn, kom hingaö til lands I gær, i boöi Taflféiags Reykjavikur i tilefni 80 ára afmælis félagsins. „Ég er ekki i nokkrum vafa um aö ég mun sigra Karpov við skákborðið, *’ sagði Korchnoi i samtali við blaöamann Visis við komuna til Loftleiðahótelsins um klukkan 17 i gær. „En Sovetrikin eru mjög iðin við gerð nýrra vopna og þau lita á fyrirhugaö einvigi milli min og Karpovs, sem einn þátt i hinu pólitiska striði. Þvi verða örugglega fundin upp ný vopn gegn mér, en það sem gildir er að ég nái að átta mig á hvers eðlis vopnin eru. Nái ég þvi er ekkert vafamál hvor verður sigurvegarinn i fyrirhuguðu einvigi”, sagði Korchnoi. Aðspurður, sagðist hann ekki hafa fengið neinar nýjar upp- lýsingar, um það hvort fjöl- skyldu hans verði leyft að fara frá Sovétrikjunum. Að þessu sinni mun Korchnoi tefla hérlendis þrjú fjöltefli. Hið fyrsta verður i kvöld i sjón- varpssal, en þar munu átta helstu skákmeistarar okkar fyrrverandi og núverandi etja kapp við hann. Á miðvikudags- kvöldið teflir Korchnoi við 35 bankamenn og á sumardaginn fyrsta verður teflt við skák- menn frá Taflfélagi Reykjavik- ur. Þá hefur Korchnoi veriö boöið til forseta Islands og utan- rikisráðherra, en auk þess heldur borgarstjórn Reykja- vikur Taflfélaginu boð i Höfða, þar sem stjórn Taflfélagsins og nokkrir aðrir gestir munu mæta. Korchnoi heldur utan á föstu- daginn 24. april. —AS. Súr miólk á páska- borðlnu „Við eigum mjólk hérna merkta 18. þessa mánaðar og 21. og það reyndist vera i lagi með hana. Hins vegar höfum við heyrt af kvörtunum frá nokkrum út- sölustöðum,” sagði Oddur Magnússon mjólkurbússtjóri hjá Mjólkursamsölunni, er Visir innti hann eftir þvi hvort mikið hefði boristaf kvörtunum vegna súrrar mjólkur i fernum en nokkuð virð- ist hafa borið á þvi, að svo væri með fernur merktar 21. april, sem ættu að endast til dagsins i dag. Oddur taldi.að málið lægi fyrst og fremst i geymsluaðferðum á útsölustöðum, auk þess sem svo virtist vera að eitthvert magn mjólkur merktri 21. virtist hafa þolaðlitinngeymslutima. Vinnsla á mjólk hjá Mjólkursamsölunni féll niður aðeins einn dag i siðustu viku, fimmtudag,en unnið var á föstudaginn langa, að sögn Odds. Það sem stimplaö var 21. fór frá Samsölunni seinnipartinn á þriðjudaginn 14. april. —AS. Hoilendlngur slasast: Féll nlöur hamra I Hllðar- llalli Hollenskur ferðamaður hlaut slæma höfuðáverka.er hann féll niður hamra i Hliðarfjalli, þar sem hann hafði verið að göngu á skirdag. Staður þessi er fjarri skiöabrautum og óhentugur til gönguferða. Hamrarnir sem maðurinn féll i eru ofan við Skiða- hótelið i Hliðarfjalli. Syllur ganga út úr berginu svo hamraveggur- inn er ekki samfelldur. Maðurinn hafðináð að klifa upp klettana og var á niðurleið er slysið átti sér stað. Hann mun hafa fallið nokkra metra, en auk höfuð- áverkanna hlaut hann áverka á upphandlegg og brjósti. Hann var þegar fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann lá enn i gær. —AS. Lésl ettir álök viö 19 ára pilt Sigurður Sævar Jóns- son, þrjátíu og átta ára gamall maður, lést á skírdag eftir átök, sem hann hafði lent í kvöldið áður. Á miðvikudags- kvöldið hafði komið til átaka milli hans og 19 ára gamals pilts, er þeir sátu að drykkju í íbúð við Bakka í Breiðholti. | Sigurður heitinn missti ■ meðvitund í átökunum og " lést morguninn eftir. Pilturinn, sem valdur | varð að dauða Sigurðar, | situr nú f gæsluvarðhaldi . og er gert að sæta geð- ■ rannsókn. — ÁS | MIKIL LQÐNA VIÐ BOTN ÚT AF VESTFJÖRÐUM? ..Sérlræðingarnir viija ekki kannast við dað”. segir Baldvin K.Þorsteínsson „Þetta var sýnd veiði en ekki gefin”, sagöi Baldvin K. Þor- steinsson, skipstjóri og hafnar- vörður á Akureyri, i samtali við Visi i morgun — en hann var spurður um loðnuna, sem vart varð á Pollinum um páskana. „Þetta varekkert að gagni frekar en veriö hefur mörg undanfarin vor. Loönan er striöin núna og ég hef spurnir af henni i miklu magni Ut af Vestfjörðum, alveg við botninn. Þetta er aldeilis óvenjulegt og sérfræöingarnir vilja ekki kannast við fyrirbær- ið.” Fréttamaður Visis, sem er hreinræktaður landkrabbi, fylgd- ist ásamt fleirum með loönutorfu við Torfunefsbryggju um miðjan skirdag, og þótti nokkuö til koma. Þar voru strákar meö þrlkrækjur og fengu vel á pönnuna. Aðrir voru með spæni og fengu þorsk eða ufsa i nærhverjukasti, og það engin smásíli. En þetta reyndist svo eftir allt vera einungis sýnis- horn! „Hér áður fyrr fengu menn hér i beitu fýrir allar Eyjafjarðar- hafnimar á hverju vori, en núna er þetta varla nema fyrir tvo-þrjá róðra hjá trillukörlunum hérna á Akureyri”, sagði hafnarvörður- inn. „En það var góður fiskur hérna ú ti i Firðinum fyrir pásk- ana, þeir róa einn og einn má) Ló- fótlinu og voru með 1.000-1.500 kilö eftir daginn, stórfallegan fisk, sem er ekki miklu lakara en I þá gömlu góöu daga”, sagði Bald- vin að lokum. HERB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.