Vísir - 21.04.1981, Blaðsíða 15

Vísir - 21.04.1981, Blaðsíða 15
úlatur Dan. aftur í raðir FH-inaal - sem hafa fengið 9 nýja leikmenn að undanförnu ÓLAFUR DANtVALSSON. FH-ingum hefur borist góður liðsstyrkur. Ólafur Danivalsson, landsliðsmaður hjá Val, hefur að nýju gengið til liðs við Kapla- krikaliðið, eftir tveggja ára dvöl hjá Val. Ólafur lék með FH þar til 1979, að hann gekk i raðir Valsmanna. ólafur skoraði alls 13 mörk i 1. deild með FH-ingum, en 3 mörk með Valsmönnum og þar af 2 gegn sínum gömlu félögum sl. sumar. Ólafur er niundi leikmaðurinn, sem hefur gengið til liðs við FH- inga i vor — hinir eru Ingi Björn Albertsson, fyrrum leikmaður Vals, Gunnar Bjarnason (Fram), Hreggviður Agústsson, mark- vörður úr Eyjum, Tómas Pálsson (Vestmannaeyjum), Andrés Kristjánsson (Isafirði) og þrir leikmenn frá Ólafsvik — þeir Sig- þór Þórólfsson, Magnús Stefáns- son og Arnljótur Amarson. -SOS Jön Páll með nýtt Evrópumet lyfti 252.5 kg í rétlstöðu- lyttu í Borgarnesl Lyftingakappinn sterki úr KR — Jón Páll Sigmarsson, setti nýtt glæsilegt Evrópumet I réttstöðu- lyftu á kraftlyftingamóti I Borgarnesi á laugardaginn, þeg- ar hann bætti sitt gamla met um 2.5 kg. Jón Páll lyfti 352.5 kg. Þá setti Jón Páll tslandsmet i hnébeygju — lyfti 330 kg. Hann lyfti 210 kg I bekkpressu og þvi samanlagt 892.5 kg, sem ereinnig Islandsmet. Sverrir Hjartarsonúr KR setti Islandsmetiréttstöðulyftu — lyfti 322.5 kg i 100 kg flokki. Hann lyfti 182.5 kg i bekkpressu og 290 kg i hnébeygju. Samanlagt lyfti hann 804 kg, sem er nýtt íslandsmet. Þá setti Akureyringurinn Kári Elisson Islandsmet I réttstöðu- lyftu i 67.5 kg flokki — hann lyfti 237.5 kg. -SOS • JÓN PALL SIG- MARSSON ...lyft- ingamaðurinn | sterki. Nörðuríánda- met hjá Skúla Skdli Óskarsson, lyftingakappinn knái, setti nýtt Norðurlandamet I hnébeygju I léttþungavigt 1 Borgarnesi. Skúli lyfti þá 110 kg. I — SOS Pátur kjörinn maður mðtsins - Og hann og Jón Sigurðsson háðir valdír í 5 manna úrvalslið úr hópi 60 leikmanna Pétur Guðmundsson var kjörinn besti Ieikmaður körfu- knattleiksmótsins, sem lauk f Sviss á skfrdag, en á þvi móti léku fimm þjóðir i Evrópu- keppni iandsiiða um eitt laust 'sæti I B-keppninni að ári. Pétur átti stórleiki i mótinu, skoraöi grimmt og var óstijðv- andi I fráköstum. Það var þvi enginn spurning um það að hann yrðikosinn „maður mótsins” og kom engúm á óvart, þegar þaö var gert kunnugt i iokahófi mótsins, þar sem honum voru afhent verðlaun af þvi tilefni. Þá var einnig valiö 5-manna úrvalslið úr hópi allra þeirra 60 leikmanna sem þátt tóku i mót- inu, og þar átti Island tvo menn, þá Pétur og Jón Sigurösson, sem sjaldan eöa aldrei hefur léikið betri landsleiki en einmitt i þessari fer. gk —. • PÉTUR GUÐ- M UNDSSON. • JÓN SIGURÐS- SON. Framarar skutu Ármennlnga bólakaf... - unnu 9:0 á Melavellínum * Framarar unnu stórsigur (9:0) yfir Armenningum I Reykjavik- urmótinu i knattspyrnu á Mela- vellinum. Það var nýliðinn Lárus Grétarsson sem - skoraði „Hat—trick” — þrjú mörk, fyrir Fram. Guf|mundur Steinsson skoraöi 2 mörk — bæði með skalla og þeir Marteinn Geirsson, Trausti ' Haraldsson, Arsæll Kristjánssón og Baldvin Eliasson skoruðu sitt markið hver. Valsmenn...unnu sigur 1:0 yfir Þrótti og skoraöi Jón Gunnar Bergs sigurmárk Valsmanna. Fylkir...vann sigur á, Vikingi 4:1 i „Bráðabanakeppni”. Þeir Hörður Antonsson, Gunnar Bjarnason, Ogmundur Kristins- son og Anton Jakobsson skoruðu fyrir Fylki. — SOS • TOM RITCHIE. Ritchie með„Hal- trick”... Tom Ritchie skoraði „Hat—tric” — þrjú mörk, fyrir Sunderland, sem lagði Birming- ham að velli á laugardaginn. Mike Docherty, sonur Tommy Docherty, stjórnaði leik Sunder- land og fögnuðu 20.158 áhorf- endur á Roker Park honum og Ritchie, eftir leikinn. Manchester United fékk óska- byrjun, þegar Joe Jordan skor- aði eftir aðeins 2 min. og siðan bætti Lou Macarimarki viö, áð- ur en Cyril Regis minnkaöi muninn fyrir W.B.A. • Dómarinn meiddist Það urðu 11 min, tafir á leik Everton og Middlesbrough á Goddison Park, þvi að dómar- inn Don Sha meiddist á ökkla eft ir aðeins 43 sek. og þurfti linu- vörðurinn Norman Riley að taka við flautunni. Aöeins 15.706 áhorfendur sáu leikinn — minnsti áhorfendafjöldi frá. seinni heimsstyrjöld. Asa Hart- ford skoraði 2 mörk og þeir Peter Eastoe Og Garry Megson sitt hvor , en David Shearer skoraði fyrir „Boro” — 4:1. JOHN GREGORY...skoraði 2 mörk fyrir Brighton gegn Palace og Gordon Smith bætti þvi þriðja við — 3:0 á Selhurst Park, þar sem 18.972 áhorfend- ur voru. •Lék kjálkabrotinn Gary Daly og Gary Tompson skoruðu mörk Coventry, en þeir Lee Chapman og Paul Maguire skoruðu fyrir Stoke 2:2. Peter Fox, markvöröur Stoke lék sið- ustu 40 min. leiksins kjálkabrot- inn. JOHN RICHARDS,..náði for- ustunni 1:0 fyrir Úlfanna, en þeir Dennis Tueart og Dave Bennet (2) svöruðu fyrir City, sem vann sigur 3:1. 17.371 áhorfendur. ALAN YOUNG... og Steve Lynex skoruðu mörk Leichester, en Graham Baker og Steve Moran skoruðu mörk Dýlinganna frá Southampton — 2:2. • Tap hjá Tottenham 34.413 áhorfendur voru á White Hart Lane, þar sem Norwich vann góðan sigur 3:2 yfir Tottenham. Martin O’Neill, sem Norwich keypti frá Forest á 250 þús. pund skoraði fyrst eft- ir 8 min., en Glenn Hoddle jafnaöi 1:1 úr vltaspyrnu, áður en David Watson skoraöi að nýju fyrir Norwich — 1:2. Paul Miller jafnaði fyrir Tottenham 2:2á 31. min., en það var svo Graham Roberts sem varö fyrir þvi óhappi að skora sjálfsmark og tryggja Norwich sigur. JIMMY NEIGHBOUR.. og Geoff Pike skoruðu fyrir West Ham gagn Orient. Alan McCulloch skoraði „Hat—trick” fyrir Sheffield Wednesday. Kevin Wilson og Ray McFarland skoruðu fyrir Derby, en David Moss skoraði mark Luton. — SOS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.