Vísir - 21.04.1981, Blaðsíða 22

Vísir - 21.04.1981, Blaðsíða 22
.Þvingandi fórn og svo mátum viö kónginn..” Mátum kónginn Kötturinn Patterson kann ýmislegt fyrir sér og m.a. er hann afburða snill- ingur í skáklistinni. Patterson er heimiliskött- ur hjá Þráni Lárussyni, starfsmanni Visis, og á meðfylgjandi myndum, sem Þráinn tók af honum, sjáum við hvernig skák- meistarinn fer að því að máta kónginn. „Ha, er ég fallinn á tima...?” ,,Ég trúi þessu ekki..." t hópnum er rúmlega 30 manns og hér sjáum viö nokkra söngvar- anna. Þekktir skemmti kraftar koma til Islands — ,,The Young Ambassadors” skemmta um helgina á vegum körfuknattleiksdeildar Vals Bandarisku skemmtikraft- arnir „The Young Ambassa- dors”, eru væntanlegir hingaö til lands nú um helgina og munu þeirhalda hljómleika i Háskóla- bfói á föstudaginn og i Keflavik og á Selfossi á laugardaginn. Eru sýningarnar hér á landi upphaf á ferð hópsins til Dan- merkur, Sviþjóðar, Finnlands og Noregs. t hópnum er 31 maður þar á meðal: söngvarar, dansarar hljómlistamenn, ásamt tækni- mönnum, en þau eru öll nem- endur i Brigham Young Uni- versity i Provo, Banarikjunum. The Young Ambassadors komu fyrst fram á Expo ’70 i Osaka, Japan og siðan hefur hópurinn verið á ferðalögum viðs vegar um heim t.d i Sovétrikjunum, Póllandi, Þýskalandi, Astraliu, Sviss, Kina, Taiwan, Hong Kong, Filipseyjum, Suður - Afriku, Grikklandi, Egypta- landi og Norður og Mið- Ameriku. „The Young Ambassadors” hafa alls staðar fengið frábæar- ar móttökur enda um að ræða skemmtiatriði fyrir fólk á öllum aldri. Hópurinn skemmtir með alþýðutónlist frá ýmsum lönd- um og dönsum, gamanþáttum og þvi besta sem er að gerast i nútimatónlist i Bandarikjunum í dag. Það er körfuknattleiksdeild Vals sem hefur haft milligöngu um komu skemmtikraftanna og sagði Halldór Einarsson for- maður deildarinnar, að þeir Valsmenn hefðu frekar kostið að leggjaút i þetta fyrirtæki til fjáröflunar, og gefa fólki um leið kost á að njóta góðrar skemmtunar, en að fara út i happdr ætti eða betlistarfsemi til að bæta fjárhaginn. Ol og ham- borg- ari — I morgunmat hjá ráöherrunum Ef einhverjir halda að ráð- herrar sitj i ávallt við veisluborð ætti meðfylgjandi mynd að sannfæra þá um að svo er ekki alltaf. Myndin var tekin á þingi Norðurlandaráðs i Kaupmanna- höfn nú nýverið og þar hittust þeir við morgunverðarborðið, Ráöherrarmr viö morgunveröarboröiö, f.v. Ingvar Gislason, Jan-Erik Wikström, Dorte Bennedsen, Einar Förde og Pár Stenback. ráðherrarnir Ingvar Gislason frá íslandi, Jan-Erik Wikström frá Sviþjóð, Dorte Bennedsen frá Danmörku, Enar Förde frá Noregi og Par Stenback frá Finnlandi, sem allir fara með menntamál i rikisstjórnum landa sinna. Ogekki var veislu- kostinum fyrir að fara þar, — þeir létu sér einfaldlega nægja hamborgara og öl i þetta skipt- ið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.