Vísir - 21.04.1981, Blaðsíða 8

Vísir - 21.04.1981, Blaðsíða 8
vtsm Þriöjudagur 21. aprll 1981. VÍSIR Otgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Fréttastjóri: Saemundur Guðvinsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð- mundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Arni Sigfússon, Frfða Astvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, AAagdalena Schram, Páll AAagnússon, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaðamaður á Akureyri: GísliSigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés- son. Útlitsteiknun: Gylfi Kristjánsson, AAagnús Olafsson. Safnvörður: Eiríkur Jónsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Síðumúla 14, simi 86611, 7 linur Auglýsingarog skrifstofur: Síðumúla 8, slmar 86611 og 82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4, sími 86611. Askriftargjald kr. 70 á mánuði innanlands og verð I lausasölu 4 krónur eintakið. Vfsir er prentaður I Blaðaprenti, Síðumúla 14. ÞEGRR SOLIN SKlN Einstök veðurbliða hefur rikt um páskana. Hiti hefur komist upp í átján stig og það hef ur verið eins um okkur mennina eins og veðurguðina/ — við höfum ekki kunnað okkur læti. I skíðalöndum hafa þúsundir manna riotið útivistar og enn aðr- ir hafa refiðá hestbaki, spókað síg í göróum eða á götum úti, brosandi framan í vorið og ver- öldina. Það er skrítið hvað gott veður hefur jákvæð áhrif á lundarfar, hegðan og reyndar allt umhverf i. Ungir foreldrar spígspora með barnavagnana, yngismeyjar draga fram sumartískuna og karlmennirnir snúa sér í heila hringi af einskærum fögnuði yfir öllum hinum nýútsprungnu blómarósum. Horf inn er drungi og leiðindi og menn takast á við verkefnin með fangið fulltaf krafti. En kannske er þettaekkert skrítið. Birtan og ylurinn þ íðirog vermir, náttúran vaknar af vetrarblundi og lífið tekur við sér. Gróður vex, blóm springa út og sjálf springum við einnig út og finnum til þess hversu gott er að vera til. Það er gaman að fylgjast með því, hversu útilíf hef ur orðið vin- sælt með þjóðinni. Hesta- mennska, gönguferðir, fjall- göngur, skíðaiðkan, sund og hverskonar trimm er að verða fastur þáttur í daglegu lífi. Þjöðin byrgir sig ekki lengur inni, sjónvarpið má missa sig, brauðstritið yfirbugar engan svo hann megni ekki að lyfta sér upp. Og nú finnur fólk lífsfyll- ingu í annarskonar skemmtan en áfengisdrykkju og ballferðum. Fólk eyðir ekki frítíma sínum, heldur ver honum. Þettaer gíf urleg breyting á að- eins örfáum árum. útilíf og iþróttir eru jafnframt farin að höfða til hárra sem lágra. Akademískir uppskafningar töluðu gjarnan um sportidíóta með fyrirlitningu, og enginn var í þeirra augum maður með mönnum, sem ekki kunni latínu upp á tfu eða dragnaðist náfölur með gáfumannasvip á milli kaff ihúsa. Slíkur hégómi er ekki lengur á borð borinn. Fólk er frjálsara, það lifir ekki eftir því hvað aðrir halda að sé fínt, heldur hvað þvi sjálfu finnst skemmtilegt. Það hefur uppgötvað.aðheilbrigðsál i hraustum líkama er ekki frasi fyrir íþróttamenn heldur lífs- kenning fyrir fjöldann. íslendingar vinna mikið. Starfsdagurinn getur verið lang- ur, enda eru þeir ófáir í þessu fá- menna landi, sem vinna tvöfalt starf á einni ævi. En eftir þvi sem okkur auðnast að stytta vinnudaginn, þá eru tómstundir ekki tími iðjuleysis. Þær eru auð- vitað til hvíldar, en hvíld er ekki ætíð fólgin í því að liggja uppii sófa, heldur í tilbreytingunni, öðru umhverfi, áhugamáli. Sjáum við stoltari mann en knapa á gæðingi? Er það ekki ómældur þroski að finna mátt sinn aukast við líkamsrækt? Lít- um við fallegri einstakling en hraustanog heilbrigðan ungling? Er ekki hvíld í þeirri þreytu, þeg- ar komið er heim að kvöldi eftir daglanga útivist á f jöllum uppi? Hafa augu þín opnast fyrir fegurð fjallanna, sólbráðnum snjónum eða glampanum á haf- f letinum? Sá,sem ekki vaknar við vorið.er dauður maður úröllum æðum og skilur ekki tilgang lífsins. I veðri eins og því, sem ríkt hef- ur um páskana, er land, veður- guðir og náttúra að bjóða okkur upp á þessar gersemar. Við meg- um þakka fyrir þau forréttindi. Þrátt fyrir óáran í veraldlegu vafstri, verðbólguog vandamál á virkum dögum, þá verður sú gjöf aldrei frá okkur tekin að hvergi er betra að búa en á (slandi — þegar sólin skín. r--—--------------------------------------------------- Ný reglugerð um skyldusparnað: „Hagstæöara en að fjár- festa í steinsteypu” - seglr féiagsmálaráðherra „Þaö er ekki nokkur vafi á þvi, aö meö nýju reglugeröinni veröur skyldusparnaöurinn hagstæöasta form sparnaöar. Þaö er til dæmis mikiö skyn- samlegra aö geyma peningana meö skyldusparnaöi, en aö festa þá i steinsteypu”, sagöi Svavar Gestsson, félagsmálaráöherra, er hann kynnti nýja reglugerö um skyldusparnaö fyrir frétta- mönnum. Skyldusparnaöurinn veröur fullkomlega verötryggöur og auk þess eru tvö prósent vextir. Þessar ávöxtunarreglur gilda frá og meö 1. júli 1980. önnur veigamikil breyting hefur oröiö á ávöxtun skyldu- sparnaöar. Veröbætur eru reiknaöar út mánaöariega og veröbæturnar siöan lagöar viö höfuöstólinn, þannig aö einnig veröbæturnar eru veröbættar. Til þessa hafa veröbæturnar ekki bæst viö höfuöstólinn, heldur hafa þær veriö lagöar á sér reikning. Getur reiknings- hafa munaö verulega um þessa breytingu. Sem dæmi um þessa breytingu má taka reikning, sem ekki hefur veriö hreyföur i ein þrjú ár. Höfuöstóllinn er 5.128 krónur, en þegar veröbót- um fyrri ára er bætt viö, er höfuöstóllinn kominn upp i 12.451 krónu 1. júli 1980, þegar nýju reglurnar taka gildi. A þá upphæö reiknast siöan veröbæt- ur 1. júli, i staö þess aö reikna veröbæturnar á upphaflega höfuöstólinn, 5.128 krónur. Sem fyrr er aldur skyldu- sparenda 16-26 ára, en helstu breytingar um undanþágur frá skyldusparnaöi má telja, aö fólk, sem veriö hefur i óvigöri sambúö I eitt ár eöa meira, eöa á fyrir barni aö sjá, er undan- þegiö skyldusparnaöi. Þaö er þvi ekki nauösynlegt lengur fyrir sambýlisfólk aö giftast til þess eins aö ná út sparimerkj- unum. Eina sem þarf er vottorö frá skattstjóra um aö sambúö hafi staöiö yfir i ár eöa meira. Eitt þeirra málefna, sem nefndinni er samdi reglugeröina var faliö aö kanna, voru kostir og gallar þess aö flytja skyldu- sparnaöinn til Póstgiróstof- unnar og samræma þannig in- heimtu orlofs og skyldusparn- aöar. Niöurstaöan varö sú, aö þessi sameiginlega innheimta myndi leiöa til betri og öruggari skila á skyldusparnaöi en tíl þessa hefur veriö unnt aö ná. Staðalíbúðir Á fundi félagsmálaráöherra meö fréttamönnum voru einnig kynntar svokallaöar staöalibúö- ir, sem notaöar voru viö undir- búning laga aö miöa upphæöir Húsnæöismálastjórnarlána viö fjölskyldustærö umsækjenda. Teiknaöar voru fjórar geröir staöalibúöa. Sú fyrsta var miö- uö viö aö umsækjandi væri ein- staklingur. önnur viö 2-4 manna fjölskyldu, sú þriöja viö 5-6 manna fjölskyldu og sú fjóröa viö fjölskyldur, sjö manna eöa stærri. Gerö var könnun á þvi hversu dýrar viökomandi fbúöir yröu i byggingu, og út frá þeirri tölu var lánsupphæö ákveöin. Þetta kerfi auöveldar Húsnæöismála- stjórn aö framreikna lánin miö- aö viö hækkandi verölag. Lán til einstaklinga, sem geröu fokhelt á fyrsta ársfjórö- ungi þessa árs hafa samkvæmt þessu veriö ákveöin 84 þúsund krónur, 107 þúsund til 2-4 manna fjölskyldna, 127 þúsund til 5-6 manna fjölskyldna og 147 þúsund krónur til fjölskyldna, sjö manna og stærri. Þess má geta, aö viömiöunar- Ibúöirnar voru hannaöar i par- húsum eöa raöhúsum, þannig aö ekki er miöaö viö ódýrasta byggingarmáta. Annaö nýmæli, sem vert er aö geta I þessari reglugerö, er aö heimilt er aö taka aldraö fólk, sem þarf umönnunar viö, inn i fjölskylduna og þannig öölast umsækjandi rétt á hærra láni. —ATA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.