Vísir - 21.04.1981, Blaðsíða 9

Vísir - 21.04.1981, Blaðsíða 9
*'*’• 111‘‘ ■ ■ ............. urártí'.......................................... Þriðjudagur 21. april 1981. WÁQÍJJÍi J ------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------ ! Hðir skaltar lama tekjuöflun fyrirlækja i Oft er kvartaö undan þvi að kynslóöaskipti gangi illa i islenskum fyrirtækjum, og aö þau séu almennt illa rekin. Þvi er þá gjarnan haldiö fram að halla fari undan fæti, þegar syn- ir taka viö af feörum, sem hafa kannski stofnaö til rekstursins og séö um hann af myndarskap meöan kraftar leyfðu. Hér eru minnisstæö tvö dæmi Iþessu sambandi. 1 annaö skipt- iö var ályktaö i skýrslu, sem Borgarhagfræöingur gaf út fyrir nokkrum árum um at- vinnulif I Reykjavik, aö kyn- slóöaskipti heföu tekist illa i fyrirtækjum I höfuöborginni, og þetta væri mikilvægur þáttur i vandamálum atvinnulifsins I borginni. 1 hitt skiptiö var framsóknar- þingmaður nokkur aö segja álit sitt á erföafjárskatti og skatti á söluhagnaö af eignum fyrir- tækja. Taldi hann sanngjarnt aö skattleggja verulega fólk, sem erföi fyrirtæki og seldi þau eöa hætti rekstri þeirra, meöan eöli- legt og sjálfsagt væri aö veita Ivilnanir héldu erfingjarnir rekstrinum gangandi. 1 skýrslu borgarhagfræöings var ekki gerö nein sérstök til- raun til aö finna orsakir fyrir þvi, aö kynslóðaskiptin gengju svo illa sem haldiö var fram, aö raunin væri. Helst fékk lesand- inn þaö á tilfinninguna aö þetta væri aöeins einn af vanköntum einkareksturs, sem erfitt væri aö sniöa af. En ef viö hugleiöum ofurlitiö suma þætti fyrirtækjareksturs og skattamála, þá má auöveld- lega gera sér grein fyrir aöal- skýringunni á þvi, hvaö gerir kynslóöaskipti i islenskum fyrirtækjum svona erfiö og af hverju hætt er viö að mörg fyrirtæki veröi verr rekin en þau þurfa að vera. Fáir fjárfesta vegna beinnar arðsvonar, Það er vel þekkt staöreynd aö fáir fjárfesta I islenskum fyrir- tækjum vegna beinnar arösvon- ar. Flestir þeir, sem fjárfesta i islenskum atvinnurekstri, hafa ýmist i huga aö hagnast óbeint á rekstrinum meö viöskiptum milli fyrirtækja, aö vinna viö reksturinn, eöa gera þaö af hreinum hugsjónaástæöum. Þaö, aö fólk fjárfestir ekki i at- vinnurekstri til aö ávaxta fé sitt, kemur einfaldlega til af þvi að skattar á arö af hlutafé eru nán- ast tvöfaldir. Fyrstfá hlutafélög ekki aö draga nema heiming arögreiöslna frá tekjum meöan arðgreiöslur eru lægri en 10% af hlutafé. Arögreiöslur fram yfir þaö eru ekki frádráttarbærar. Siöan eru arögreiöslur umfram eitthvaö smáræöi aö fullu skatt- skyldar hjá einstaklingum. Litil hlutafélög hafa forskot. Tekjuskattur er lagöur einu sinni á vinnulaun og i litlum hlutafélögum meö einum aöal- eiganda eöa örfáum eigendum er auövelt aö telja tekjur af rekstrinum fram sem vinnulaun eiganda eöa ættingja þeirra frekar en sem tekjur hluta- félagsins og arö. Hlutafélög i þessari aöstööu borga þvi eðli- lega litinn tekjuskatt og miöa skattgreiöslur kannski helst viö þaö aö losna viö aöfinnslur skattyfirvalda og leiöindaaö- dróttanir i fjölmiölum um þaö leyti sem skattskrá kemur út. Þessi möguleiki, sem litil hlutafélög með fáum eigendum hafa til aö telja ágóöa af rekstr- inum fram sem launatekjur eig- enda og ættingja þeirra, gefur þeim visst forskot i samkeppn- inni viö stærri fyrirtæki þar sem ekki er unnt aö koma þessu fyrirkomulagi vel viö. Þaö vill eölilega brenna viö, aö þegar fleiri eiga i hlut, verður erfiöara aö ná samkomulagi um, hvernig skipta skuli kökunni og hvernig meta skuli raunverulegt vinnu- framlag, þar sem slikt á viö. Tekjuskattur ákveður tekjusköpun. En tekjuskatturinn hefur ekki einungis áhrif á þaö, hvernig tekjur af atvinnurekstri eru taldar fram og hvernig þeim er skipt, heldur hefur hann einnig áhrif á það, hve miklar tekjur veröa til I rekstrinum. Astæöurnar fyrir þvi eru, aö fólk, sem rekur eigin fyrirtæki hefur miklu meira út úr þvi heldur en bara peningana. Flestum þykir variö i aö taka ákvaröanir, vera eigin herrar, öðlast vissa stööu i samfélaginu, njóta vissrar aöstööu og annars þess, sem taliö er fylgja þvi aö eiga og reka fyrirtæki. Sumir hafa til dæmis mikla ánægju af þvi aö skipa öörum fyrir og vilja þess vegna eiga fyrirtæki, þótt þaö borgi sig ekki fyrir þá pen- ingalega. Aðrir fyrirtækjaeig- endur eru aö hugsa um framtiö og lif barna sinna og fela þeim ábyrgö og störf I fyrirtækjum sinum langt fram yfir þaö, sem til dæmis synirnir eru menn fyrir i von um aö einhvern tima rætist úr þeim. Aöalatriðiðiþessum efnum er aö skilja, aö sérhver einstakl- ingur reynir aö bæta sinn hag samkvæmt sinu gildismati og aðstööu og enn fremur veröur aö skilja, að hægt er að minnka peningalegan arö, en auka i staöinn allt annaö sem eigendur fyrirtækja geta haft úr þeim. Fyrirtæki eru sem sagt ekki rekin eingöngu til aö fá sem mest út úr þeim peningalega heidur verður aö lita á alla þé þætti, sem eigendum fyrirtækj- anna þykir variö I, bæöi pen- ingalega og aöra. eftir tekjuskattinum. Hár tekju- skattur þýöir lágt verö á laxa- simtölum og lágur tekjuskattur þýöir hátt verö á laxasimtölum. Viö hverja tekjuskattshækkun bæöi á einstaklingum og at- vinnurekstri má þvi búast viö aö tvenns konar áhrif veröi: I fyrsta lagi telja hlutafélög fram minni tekjur, en laun eig- enda og ættingja þeirra hækka. i öðru lagi skila fyrirtæki svo minni peningalegum ágóöa vegna þess, aö friöindaágóöinn er aukinn á kostnaö hins pen- ingalega ágóöa. (A ytra boröi viröist sem fyrirtækin séu verr rekin. Auðvitaö veröur ódýrara aö reka fyrirtæki illa, þegar tekjuskattur er hár, en meira er um, aö menn einbeiti kröftunum aö þvi aö auka fríöindaágóöann og reki fyrirtækin vel i þeim skilningi.) Hærri skattar geta minnkað skatttekjur rikisins. Viö hverja hækkun tekju- skatta á einstaklingum og fyrir- tækjum veröur þess vegna aö hafa I huga, aö tekjur rikisins af sköttunum minnki ekki, og fyrirtæki hafi hvatningu til aö skapa tekjur. Gætnir stjórn- málamenn hafa þetta jafnan i huga og hafa tekjuskatta hóf- lega. En þeir stjórnmálamenn, sem nú ráöa feröinni I okkar sam- félagi og halda þaö, aö jafnrétti felist i þvi, aö allir hafi þaö jafn slæmt, þeir hafa sannarlega ekki sýnt neina gætni viö þaö aö hækka tekjuskattana bæöi á at- vinnurekstri og einstaklingum. Fólk hefur ekki efni á að selja. I upphafi þessarar greinar var þvi haldiö fram, aö skatta- legum þáttum væri um aö kenna, að kynslóöaskipti gengju illa i islenskum fyrirtækjum. Af þvi sem aö framan hefur veriö sagt er vel ljóst, hvernig sú niöurstaöa er fengin. Litum á mann, sem erfir fyrirtæki eftir fööur sinn og er litt hæfur til aö reka þaö. Þaö, sem skiptir máli um, hvort maöurinn ræöur sér hæfan framkvæmdastjóra og kemur ekki nálægt daglegum rekstri en hiröir bara peningalegan ágóöa fyrirtækisins, er aöallega tvennt: Annars vegar veröur maöur- inn aö áætla, hvaö hann getur fengiö i tekjur annars staöar meö vinnu sinni, og hve miklum tekjum reksturinn muni skila. Hins vegar veröur hann aö meta þaö, hvaö hann geti látiö fyrir- tækiö skila, þótt hann sé óhæfur til aö reka þaö og ennfremur hvaöa friöindi fylgja þvi aö reka fyrirtækiö. Háir tekjuskattar og tviskött-. un arös af hlutafé gera þaC miklu dýrara fyrir manninn aö ráöa sér hæfan framkvæmda- stjóra og auka þvi stórum lik- urnar á þvi aö hann taki óhæfur aö sér rekstur fyrirtækisins. Kynslóöaskipti I fyrirtækjum eru þess vegna mun liklegri til aö mistakast, þegar fólk getur ekki nýtt sér nema meö ærnum kostnaöi þær eignir sem fyrir- tækin eru, án þess aö vinna þar sjálft og gera allt mun verr en aörir gætu gert. Þaö, aö kyn- slóöaskiptin skuli vera likleg til aö mistakast svona, þegar tekjuskattar eru háir, gerir þaö vitaskuld aö verkum, aö háir tekjuskattar og tvöfaldur skatt- ur á arö af hlutafé skila ennþá minni tekjum til rlkisins þegar til lengri tima er litiö Ennfremur er þaö fullvist aö meira og minna óhæfir stjórn- endur eru náttúrlega ekki til þess fallnir aö veröa aö miklu liöi i sókn til bættra lifskjara og betra þjóöfélags. Ekki meiri fram- sóknarmennsku. Og varöandi hugmynd fram- sóknarþingmannsins, sem getiö var i upphafi greinarinnar, þá er hún dæmigerö framsóknar- hugmynd. Ef fólk þarf aö borga miklar fjárfúlgur i skatta, þeg- ar það selur fyrirtæki, sem þaö hefur erft, þá selur það miklu siöur fyrirtækin. Fleiri óhæfir stjórnendur veljast til forystu 1 islenskum atvinnurekstri, og rikiö fær miklu minni skatttekj- ur af fyrirtækjunum. Þaö er nauösynlegt aö hvetja þá, sem ekki geta rekiö sin eigin fyrir- tæki til aö selja þau sem fyrst eöa ráöa sér hæft fólk til aö sjá um reksturinn. A meöan þetta gerist ekki, eru litlar likur til þess, aö lifskjör batni á Islandi. I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I i I I I I I I I I I I I I I i I I I I I I I I ■ Hærri tekjuskattar lækka verð á laxasim- tölum. Tekjuskatturinn hefur þau áhrif m.a. aö þegar hann er hár, Vilhjálmur Egilsson viðskiptafræðingur fjallar um tekjusköpun fyrirtækja og þau áhrif sem skattalög hafa á rekstur þeirra, sér- staklega út frá þeim sjónarhóli, þegar fyrir- tæki erfast. Grein Vil- hjálms er fróðleg hug- leiðing um raunhæft vandamál i islenskum atvinnurekstri. veröur tiltölulega ódýrt aö nota fyrirtæk-' til aö skapa eigendun- um þjóöfélagsaöstööu, tækifæri til aö taka ákvaröanir, skipa öðrum fyrir og vera eigin herr- ar, meðan þaö veröur tiltölulega dýrt aö auka peningalegan af- rakstur rekstursins. Maöur, sem rekur eigið fyrir- tæki og hringir viöskiptasimtal i kunningja sinn, veröur til dæm- is aö taka ákvöröun um þaö, hvort hann eigi að eyöa tima i aö rabba viö kunningann um annaö en þaö, sem viöskiptunum viö- vikur, til aö mynda um laxveiö- ar siöasta sumars og væntan- legar laxveiöar næsta sumar. Veröiö á laxasimtölunum fer

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.