Vísir - 06.06.1981, Side 11
Laugardagur 6. júnl 1981
11
,,Set þá í |
sparibaukinn,, |
Ert þú
hringnum?!
--------------------1
Þá ertu 200 krónum efnaðri I
----------|
I
Hver er i hringnum ?' Mvndin j
var tekin fyrr í vikunni, í I
glampandi sólinni slðla dags f ■
Austurstræti þar sem mannlifs- 5
blóminn hcfur heldur betur |
sprungið út þessa siðustu daga. |
Snáðinn i hringnum er 200 kr. J
rikari án þess að vita það. Og |
þegar hann veit það, er honum ■
óhætt að koma rakleiðis upp á •
ritstjórn Visis, Siðumúla 14.
I Reiðhjólakappinn Bjarki Már
| Elíasson var I hringnum i sið-
ustu viku. Hann var nú aldeilis
I kátur yfir 200 kr. en vissi þó
| varla hverju hann átti að svara
þegar við spurðum hann til
I hvers hann myndi nota pening-
■ ana.
,,Ég legg peningana mina inn
■ á banka, Fyrst fara þeir i spari-
i baukinn og þegar hann er orðinn
1 fullur þá legg ég innihaldið i
| bankann. Ég á tvo sparibauka,
■ einn Tinnabauk og einn er eins
' og svin”. Er ekkert sérstakt
| sem þing langar i?
— „Nei, mig langar ekki i
I neitt. Ég ætla að geyma pening-
I ana þangað til ég er orðinn
. stór”. Og Bjarki Már verður nú
I bráðum stór, þvi hann verður 9
| ára þ. ll.ágúst n.k.
1.______________________________
vlsm
_
.VOO-S í oKf7
1. i viðtali dagsins í Vísi
á mánudaginn var rætt
við einn af þremur
ba llettdönsurum, sem
hlutu styrk úr Listdans-
sjóði Þ jóðleikhússins.
Viðmælandi Visis var eini
karlinn úr þeim hópi.
Hvað heitir sá?
2. Hver var kjörinn for-
maður Blaðamanna-
félags Islands á aðal-
fundi félagsins um síð-
ustu helgi?
3. EÓP mótið í frjálsum
iþróttum var haldið um
siðustu helgi. Tvö is-
landsmet voru sett, af
þeim Sigurði T. Sigurðs-
syni og Guðrúnu Ingólfs-
dóttur. i hvaða greinum
frjálsra keppa þau?
4. Óperan La Boheme
kom aftur á fjalir Þjóð-
leikhússins i vikunni.
Kristján Jóhannsson
hefur nú tekið við hlut-
verki því sem Garðar
Cortes söng og Sieglinde
Kahmann hefur leyst
Ólöfu Harðardóttur af
hólmi. En hver kemur nú
i stað Ingveldar Hjalte-
sted?
5. í vikunni var tilkynnt
hver hefði verið valinn
iþróttamaður mánaðar-
ins af Vísi og Adidas og
birt mynd frá þvi er hann
tók við verðlaununum.
Maðurinn heitir Jón Páll
Sigmarsson og er lyft-
ingamaður, en í hvaða
iþróttafélagi er hann?
6. Vísir gerði skoðana-
könnun um fylgi flokk-
anna, í vikunni. Sam-
kvæmt henni myndu tveir
stjórnarf lokkanna tapa
fylgi ef kosið yrði á næst-
unni. Hvaða stjórnmála-
flokkar eru þetta?
7. Spánska veikin var til
umræðu i vikunni. Land-
læknir ráðleggur fólki að
fara ekki til Spánar, for-
maður Félags ísl. ferða-
skrifstofa segir það sé
óhætt, „þetta er einfalt
kvef" segir hann í viðtali
við Vísi. Hvað heitir for-
maðurinn?
8. Að öllu forfallalausu
fær BÚR afhentan nýjan
togara í dag. Togarinn
mun bera nafnið Otto N.
Þorláksson, hann er
smíðaður i Stálvík og
hvað skyldi hann kosta?
9. Einn um skoðanakönn-
un Visis: Afar mjótt var á
mununum milli Geirs og
Gunnars þegar spurt var
um hver ætti að vera for-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins. 20.8% sögðust styðja
Gunnar, 20.3% vildu Geir.
Afar margir höfðu alls
ekki gert upp hug sinn,
hversu há var prósentu-
tala þess hóps?
10. Landstjórinn yfir
Kanada kom í opinbera
heimsókn til Islands í vik-
unni. Hvað heitir hann?
11. Þekkt bresk popp-
hljómsveit kom til lands-
ins á fimmtudaginn og
heldur tónleika í Laugar-
dalshöllinni í dag. Hvaða
heitir þessi hljómsveit?
12. Dýrasti vinningur í
blaðagetraun hérlendis,
var afhentur í vikunni,
Vísisbústaðurinn. Nú er
sumargetraun Vísis
komin í fullan gang og
vinningarnir glæsilegir
að venju. Hverjir eru
vinningarnir?
13. Síðustu áskriftartón-
leikar Sinfóníuhl jóm-
sveitarinnar á þessu
starfsári voru á fimmtu-
daginn. Aldrei þessu
vant, lék þar íslensk
stúlka einleik með hljóm-
sveitinni. Hún heitir
Unnur María Ingólfs-
dóttir en hvaða hljóðfæri
leikur hún á.