Vísir - 06.06.1981, Page 12
vtsm
Paul
Laugardagur 6. júní
Sting
Verðlaun
Bretar veita að sjálfsögðu eins-
konar Oscarsverðlaun fyrir tón-
list og nefnast þau Ivor Novello”
verðlaunin. Ar hvert eru popp-
arar útnefndir og afhending verð-
launa fer fram við mikla viðhöfn,
glys og glaum. Þessi hátið er á
vegum hinna bresku STEF og
FIH sambanda en það eru mjög
öflug sambönd einsog gefur að
skilja. Meðal verðlaunahafa i ár
voru m.a. bassaleikari Police,
Sting, sem fékk verðlaun sem
lagahöfundur ársins, en á hæla
honum komu Bee Gees, Terry
Britten og B.A. Robertson. Sting
var hógværðin uppmáluö og gerði
likt og Jóhn Lennon forðum daga,
þ.e. hann .þakkaði 4 áragömlum
syni sinum, Joseph að nafni,
andagiftina þegar hann semur
bestu texta sina.
Hins látna meistara John
Lennon var minnst sérstaklega
fyrir hið mikla starf sem hann
vann i þágu tónlistar i heiminum.
Jona Lewie fékk verðlaun fyrir
lag ársins „Stop the Cavalry”.
Jeff Lynne, ELO-foringi fékk
verðlaun fyrir besta kvikmynda-
lag ársins, „Xanadu” og Roger
Waters forsprakki Pink Floyd
fékk verðlaun fyrir lagið
„Another Brick in the Wall”, sem
var útnefnt alþjóðlegt metsölulag
ársins.
annad
Adam
Miles Davis snýr aftur
Djassgeggjarar ættu að gleðj-
ast i hjörtum sinum þessa dagana
þvi fréttir hafa nú borist um að
Miles Davis sé búinn aðtaka sig
saman i andlitinu og ætli að troða
upp og blása i trompetinn á tón-
leikum i júli nk. Miles kemur
fram á tveimur tónleikum á Kool
Jazz festivalinu i New York 5. júli
en hann hefur ekki komið fram
opinberlega i nokkur ár. né sent
frá sér nýtt efni á plötu frá þvi
platan „Get Up With It” kom út
1974. Til þess að öðlast gamla
styrkinn og tilfinninguna aftur i
blásturinn, þurfti Miles að leggja
mikið á sig, en veikindi hafa hrjáð
hann mjög undanfarin ár. „Nú er
hann orðinn jafn kraftmikill og
áður og hann er tilbúinn” segir
George Wein sem fylgst hefur
með Miles. „Og hann er tilbú-
inn”. segir George jafnframt.
Miles Davis er tilbúinn að leika
á ný og einnig er hann tilbúinn
með plötu sem hann van’n ásamt
gamla upptökustjóranum sinum.
Teo Macero.
Any Trouble
Trouble
Miles Davis
Videó plötur
Videó bylgjan ryður sér nú
mjög til rúms einsog við Islend-
ingar höfum kynnst. Það eru ekki
bara kvikmyndir og sjónvarps-
efni sem njóta vinsælda. Hljóm-
sveitin Blondie gerði videopró-
É>ram sem byggir á siðustu plötu
þeirra „Autoamerican” og getur
hver sem er keypt tón- og mynd-
listina á videóspólu i verslunum
erlendis. Slikt hið sama hefur
Jethro Tull gert, en tónleikar
þeirra i New York sem sendir
voru i gegnum gervihnattarsendi,
eru nú fáanlegir á videói. Videó-
diskar eða-plötur eru að ryðja sér
til rúms smám saman og innan
nokkurra ára getur fólk keypt sér
videóplötur með tón og mynd. Að
sögn kunnugra eru tóngæði þess-
ara videó-plata mun betri en
gömlu góðu plastplatanna.
Breska hljómsveitin Adam& the
Ants undirbýr nú að gefa út
spólu jafnhliða næstu breið-
sinni og sú mun einnig vera
raunin með fleiri hljómsveitir.
Yoko-sóló
Yoko Ono er nú að leggja siö-
ustu hönd á sólóplötu sina sem
hlotið hefur 'nafnið „Season of
Glass”. Upptökustjórinn, Phil
Spector, sem vann að hljóð-
ritunum með Yoko er horfinn á
braut og nú hljóðblandar hún á
fullu með aðstoð Ray Caviano, en
hann er þekktari fyrir störf sirr f
tengslum við þekkta diskó- og
rokkdanshópa.
t
%
tl
Frank Zappa — Tinsel
Town Rebellion CBS
88516
Þar sem ég er gamall Zappa
aðdáandi, þá hef ég ætið sætt
mig á endanum við allt sem
kappinn hefur verið að gera i
gegnum tiðina. Samt tel ég
þær plötur sem hann hefur
sent frá sér undanfarin ár alls
ekki jafn merkilegar og fyrstu
Mothers plöturnar voru og
reyndar fyrstu sólóplötur
Zappa einnig. Zappa vill sjálf-
ur meina að timarnir hafi
breyst og smekkur manna
þróast i átt aö tónlist hans, en
ekki öfugt eins og flestir gagn-
rýnendur vilja halda fram.
Hvað sem þvi liður þá gleðst
eg yfir útkomu þessarar
plötutvennu sem sannar enn
einu sinni hversu frábært vald
Zappa hefur á tónlist sinni á
hljómleikum. Það er valinn
maður i hverju rúmi eins og
ætið áður og allt er gert af
kunnáttu og leikni. Zappa
virðist hljóðrita alla sina tón-
leika og helv.... hlýtur karlinn
að semja mikið. Hann er sann-
kallaður „workaholic” eða
vinnuþræll. Tónlistin er að
visu poppaðri eða aðgengi-
legri en áður og áé það álitinn
galli, þá er það annar helsti
galli plötutvennunnar. Hinn
gallinn er sá að Zappa er ó-
neitanlega nokkuð farinn að
endurtaka sig.
Jónatan Garðarsson skrifar:
Nick Mason's Fictious
Sports Harvest/EMI
SHSP 4116
1 rauninni má það teljast
undarlegt að þessi plata skuli
talin sólóplata Nick Masoa
trommara Pink Floyd, þar
sem djasspianistinn Carla
Bley er höfundur tóna og texta
auk þess sem það var hljóm-
sveit Cörlu sem annaðist
spilamennskuna að mestu
leyti er platan var hljóðrituð
1979. Nick Mason ber að visu
bumbur og önnur slagverks-
tæki og á þátt i verkstjórninni.
En Carla og eiginmaður henn-
ar, Mike Mantler, eiga bróð-
urpartinn i plötunni. Þetta er
kannski aukaatriði þvi tónlist-
in skipar að sjálfsögðu höfuð-
sessinn á plötunni og sá sess er
i hærra lagi. Að minu mati er
þetta með bestu plötum sem
ég hef heyrt á þessu ári. Þeim
tekst að blanda vel saman
framsæknum djassi og rokki
og útkoman er sérlega athygl-
isverð. Samspilið er mjög gott
og gaman að heyr'a hve blást-
urshljóðfærin koma vel út,
enda ekki nema von, þetta fólk
er vant að vina saman. Auk
þessa eru textarnir margir
hverjir þrælgóðir.
„Fictious Sports” er plata
sem leitar átóninfi hjá mér
aftur og aftur.
Tónleikar Any Trouble, Start,
Taugadeildarinnar og Bara--
Flokksins verða i Höllinni i dag
kl. 4.00 Um tima var útlitið ekki
gott þvi tónleikarnir sem hefjast
áttu kl. 21.00 samkvæmt upphaf-
legu skipulagi fengu ekki grænt
ljós hjá lögreglustjóraembættinu.
Vegna þess að hvitasunnan er
helgur dagur má enginn halda
skemmtun eftir kl. 18.00 daginn
fyrir helgidaginn. Þetta eru
gömul lög frá heittrúarskeiðinu
og löngp úrelt þvi fólk gerir ná-
kvæmlega það sem þvi dettur i
hug á þessum degi, enda trúfrelsi
i landinu og fæstir sem taka slika
hátiðisdaga of alvarlega. En mál-
unum var bjargað fyrir horn á
siðustu stundu og verða tónleik-
arnir þvi haldnir i dag og hefjast
kl. 16.00 eða fjögur, með pompi og
pragt.
Vængstífður
Ef það hefur farið framhjá ein-
hverjum, þá er Paul McCartney
vængjalaus þessa dagana.
Hljómsveitin leystist upp eftir að
Denny Laine ákvað að yfirgefa
hljómsveitina. Plata, sem þeir
höfðu unnið að á eyjunni Mont-
serrat þar em George Martin
ræður rikjum i Air stúdióinum er
að mestu tilbúin. Paul McCartney
hafði ekki áhuga á að fara i
hljómleikaför trúlega af ein-
skærri hættu á að vera fyrir skot-
árás á tónleikum.
Denn}^L,aine kvaðst ekki hafa
viljað starfa með Wings ef tón-
leikahald yaði aflagt.