Vísir - 15.07.1981, Side 28
wtsnt
Miðvikudagur 15. júlí 1981
síminner86611
veöurspá
dagsins
Skammt út af Austfjörðum er
1000 mb lægð, sem þokast aust-
noröaustur. Kólna mun í veðri á
norðanverðu landinu.
Suðurland til Breiðafjarðar
Norðan og norðvestan gola.
Skýjað i fyrstu en léttir heldur
til þegar liður á daginn.
Vestfirðir
Nffl-ðaustan gola, skýjað og dá-
h'til silld norðantil.
Strandir og Norðurland vestra
til Austuriands að Glettingi
Norðaustan gola eða kaldi, viöa
súld eða rigning.
Austfirðir
Hæg breytilegátt og siðar norð-
austan gola eöa kaldi. bokuloft
og siíld.
Suðausturland
Vestan gola, skýjaö og sumstað-
ar þokuloft i fyrstu en léttir sið-
an til með norðan enln
Veðriö hér
og par
Akureyririgning 7 Bergenskýj-
aö 9 Helsinki skýjað 15, Kaup-
mannahöfnskýjað 14, Oslórign-
ing 11 Reykjavík skýjað 9,
Stokkhólmur skýjað 14 Þórshöfn
rigning 10. Aþena léttskýjað 27,
Berlfnskýjað 19, Feneyjarhálf-
skýjaö 27, Frankfurt skýjað 22,
Nuuk 4, London rigning 21,
Luxemburg hálfskýjað 19, Las
Palmas heiðskirt 26, Mallorka
heiöskfrt27, Parlsléttskýjaö 21,
Róm þokumóöa 25, Malaga
heiöskirt 26, Vín skýjað.
LOKI
segir
1 leiðara Vilmundar I Alþýöu-
blaðinu í morgun segir aö
fréttamaöur dtvarps hafi ráöist
á ,,EiöGuönason, alþingismann
jafnaöarmanna á tslandi".
Fyrir hverja sitja þá hinir þing-
menn Alþyðuflokksins á þingi?
Ríkið hlíóp enn undir bagga með Sementsverksmiðiunnl:
LANAÐI milljon til
AB FORÐA STÖÐVUN
„Við fengum um eina milljón
króna að láni til bráðabirgða hjá
rikissjóði fyrir skömmu og er ætl-
unin að greiða það lán mjög fljót-
lega, ef það veröur hægt. Fyrir
fundi Verðlagsráðs i dag liggur
beiðni frá okkur um 29% hækkun
á veröi” sagði Gylfi Þórðarson
framkvæmdastjóri Sementsverk-
smiðju rikisins i samtali við Visi I
morgun.
Verksmiðjan hefur átt I miklum
fjárhagserfiðleikum undanfarna
mánuði og að sögn Gylfa eru
bankar tregir að lána meira
nema rekstrargrundvöllur verði
tryggður. Rikissjóður hefði
hlaupið undir bagga með stórlán i
vor upp á nokkrar milljónir
króna, en sú aðstoð dugað
skammt. Þá fékkst 19% hækkun á
verði sements ivor, en sótt hafði
verið um 30% hækkun.
„Siöan hefur þetta hlaðiö upp á
sig með dráttarvöxtum og kostn-
aði vegna vanskila verksmiðj-
unnar og þessi beiðni um 29%
hækkun sem nú liggúr fyrir var
miðuð við að það tækist að ná
hallalausum rekstri yfir árið i
heild. Hins vegar hefur verðlags-
ráð ekki komið saman vikum
saman og beiðnin legið óafgreidd.
Nú erum viö búnir að selja um
40% af árssölunni og þótt 29%
hækkun yrði samþykkt I dag þá
kæmi hún okkur ekki til góöa
strax þvi menn eru hér i mánað-
arviðskiptum,” sagði Gylfi Þórð-
arson ennfremur.
i
isvagninn á Akureyri setur svip sinn á bæjarllfiö. Um sföustu helgi þegar bærinn skartaði sinu fegursta
og tók vel á móti hinum f jölmörgu gestum á landsmóti U.M.F.i. voru margir sem stöldruöu viö hjá Is-
vagninum, enda is vel þeginn ibrakandi þurrki. Visismynd/ÞG
Þúsund kr.
fyrir snún-
ingspyrlu!
„Ég býð þeim þúsund krónur,
sem getur visað mér á sláttuþyrl-
una, en á sunnudagsmorguninn
tók einhver hana i traktorsskóflu
og hvarf með hana”, sagði Jó-
hannes Þ. Jónsson i Þjöppuleig-
unni, er hann óskaði liðsinnis
Visis i' leit að tækinu. Snúnings-
þyrlan er rauð af gerðinni Kuhn,
model 62, með fjórum stjörnum
og nýjum ljósrauðum örmum á
tveim þeirra — og á hjólum.
Þyrlan var á geymslusvæði
Þjöppuleigunnar við Súðarvog,
við innakstursbrautina i Iðnvoga.
Nýttsvona tæki kostar 16—17 þús-
und, svoað einhver hefur ætlað að
spara sér skilding.
Liklegt er að einhverjir hafi séð
traktorinn fara út Elliðavoginn
um niuleytið á sunnudaginn eða
hafi næga vitneskju um afdrif
þyrlunnar til þess að vinna sér inn
þúsund krónurnar.
HERB
Ei yfirverö á aðföngum reynist réit:
Skuldar ISAL rfkinu
tugi miujðna ke?
Framleiðslugjald Islenska álfé-
lagsins i' Straumsvik á timabilinu
frá ársbyrjun 1974 til miðs árs'
1980 nam 64.8 milljónum króna,
reiknað á gengi I árslok 1980, en
þá var búið aö draga frá endur-
greiðslu á um 40 milljónum
króna, sem rikiö skuldar Isal enn
og stendur sú skuld á hæstu
bandariskum vöxtum. Ef það
hins vegar reynistrétt að yfirverð
á aðföngum Isals þetta timabil
hafi numið 200-250 milljónum
króna, gefur auga leið aö félagið
skuldar rikinu tugi milljóna ný-
króna — eða milljarða gamalla
króna.
Um þetta snýst athugun iðnað-
arráðuneytisins, þar sem fram-
leiðslugjaldið er eini skatturinn,
sem Isal greiðir. Lengst af þenn-
an tima, eða frá 1975, hefur sú til-
högun verið I gildi, samkvæmt
breytingum á aðalsamningum
þaö ár, að framleiðslugjaldið má
ekki fara undir 35% af hagnaði Is-
als og ekki yfir 55%. Aðeins 1979
og 1980 skilaði rekstur Isals um-
talsveröum hagnaði, en hin árin
stóð reksturinn i jarnum nema
1975 þegar tap varð mikið.
Hjörleifur Guttormsson iðnað-
arráðherra afhenti fulltrúum
stjórnarandstöðuflokkanna gögn
súrálsmálsins i gær og fjalla þeir
um þau i dag. Var ekki unnt að fá
álitþeirra á gögnunum i morgun.
Ragnar Halldórsson, forstjóri Is-
als, haföi ekki enn fengið gögnin i
hendur I morgun. Rikisstjórnin
fjallar i annað sinn um þau á
fundi I fyrramálið.
HERB
ALLIR GETA
LEIKIÐSÉR
MEÐ
SVIFDISK