Vísir - 20.07.1981, Blaðsíða 6

Vísir - 20.07.1981, Blaðsíða 6
6 ■ f f ♦ I *Mt I* I VÍSIR mm' Fornleifagrðftur við Þíngnes viö Elliðavatn: Rústir frá lyrstu öldum íslandsDyggðar Út i Elliöavatnið sunnanvert gengur litiö nes, sem heitir Þingnes. Þar hafa menn frá Þjóðminjasafninu tekiö til viö gröft meö skóflum sinum og spööum i þeim fróma tilgangi aö auka enn viö þekkingu okkar á háttum forfeöranna. A Þingnesi eru greinileg merki þess að þar hafi verið ýmsar byggingar. Guðmundur Ólafsson fornminjafræðingur, sem stjórnar uppgreftrinum segir, að stærð, eða öllu heldur smæð, flestra rústanna bendi frekar til að þarna hafi verið búðir en bær. Þar eru einnig nokkur greinileg merki um nokkuð stóra hringlaga bygg- ingu, sem álitið er að geti hafa verið dómhringur. En það sem nú er verið að grafa i, er stærsta rústin, hún er miklu stærri en hinar, og nógu stór til að geta verið eftir bæ. Guðmundur vill þó engu halda fram um þetta efni, enda hefur aðeins verið unnið þarna i eina viku. Það er ekkert nýtt að menn velti fyrir sér hvaða saga liggi hulin i Þingnesi. Árið 1841 var Jónas Hallgrimsson að leita sannleikans þarna og gróf þá i rústirnar. Hann vakti raunar athygli á staðnum og taldi að þarna hafi Kjalnesingaþing verið háð til forna. Um 1870 var svo hér á ferðinni skoskur maður, Angus Smith, og hann gróf i rústirnar á Þing- nesi. Hann skrifaði siðan um þetta verk sitt i skoskt timarit, árið 1874, og ferðabók um þessa ferð sina til íslands. Þar mun hann segja mikið frá Þingnesi. Þegar nálgast aldamótin verða umtalsverðar deilur um þennan stað. Allt til þess tima að Jónas kom með sina kenn- ingu um að þetta væri þing- staður Kjalnesinga, var haldið að Kjalnesingaþing hefðu verið þar sem heitir Leiðvöllur, skammt frá Mógilsá á Kjalar- nesi. Þar styðjast menn fyrst og fremst við nafnið og töldu sig sjá þar ummerki búða. Sigurður Vigfússon fornfræðingur, sem skoðaði staðinn um 1880, fann þó engin slik merki þar. Um aldamótin urðu býsna harðar deilur um þetta, og kannski hefur það flækst einna mest fyrir mönnum að átta sig á hvað Kjalnesingar voru að gera með að fara alla leið suður að Elliðavatni, til þess að halda þing. Til eru þeir, sem álita að á Þingnesi kunni að hafa verið háð fyrsta þing á Islandi. Mönn- um hefur dottið i hug að Þor- steinn Ingólfsson, Arnarsonar, hafi staðið fyrir þingi þar. Á dögum Þorsteins hefur án efa verið orðið vel fundarfært hér á landi, þvi landið byggðist mjög „Fyrir framan mennina á myndinni er rask, þar sem taliö er aö Jónas Hallgrimsson hafi erafiö 1841. Næst sér i þar sem nú er veriö aö grafa, en báöu megin viö þaö eru tvær dældir (sjást ekki á mynd- inni) þar sem Angus Smith hefur sennilega leitaö fyrir sér. L.__________________________________________________ Myndirnar sem teknar voru af sýnum ofan á kistunni sem fannst á Skaröi. Stærn myndin er röntgen- mynd af sniði af jarövegi þar sem gullofna stykkiö fannst en innfellda myndin er af jarövegssýni sem rótast haföi til. Stærri myndin sýnir bryddingar á boöungi einhverskonar klæöis en á báöum myndunum má greinilega sjá munstriö á viravirkinu. (Mynd: Ásmundur Brekkan, röntgendeild Borgarspitalans) Röntgenmyndir ai lornmlnlunum frá SKarðl: Sýna gullofinn DráO með Iðtusblðmamunstri ,,Ég hlýt að draga þá ályktun aö þetta sé mjög gamalt viravirki á boðungi”, sagöi Asmundur Brekkan læknir á Borgarspital- anum I samtali við Visi en hann hefur tekið röntgenmyndir af sýnum úr gullofnu stykki sem var ofan á kistu sem fannst I grunni Skarðskirkju á Skarösströnd fyrr i þessum mánuði. Getum hefur veriö leitt aö þvi aö þetta sé kista Ólafar riku sem uppi var seint á 15 öld. Asmundur sagði að hann hefði tekið myndir af tveim sýnum. A öðru þeirra sérstaklega mætti sjá uppistöðuþráð vafinn með mjög finum gullþræði i spiral og mynd- aöi þetta einhverskonar lótus- blómamunstur. Likast til væri þetta boðungur úr hálsmáli ein- hverskonar mussu. „Þetta er með þvi merkilegasta sem ég hef fengist við fyrir þá”, sagði Ásmundur en hann hefur oft áöur tekið röntgenmyndir af forn- minjum fyrir Þjóðminjasafnið. Við þessar myndatökur beitir hann sérstakri tækni umfram röntgenmyndatökuna til bess að ná moldinni betur frá þvi sem verið er að mynda. Guðmundur Ólafsson fornleifa- fræðingur sagði i samtali við Visi að sér virtist eftir þessum mynd- um að dæma að þetta væru bryddingar á einhverju klæði. Sýnin sem tekin voru eru i bein- um tengslum við kistuna. Hins vegar á eftir að rannsaka gull- þráðinn betur. Guðmundur sagði að ekki væri nákvæmlega vitað um aldur hans nema að hann væri nokkuð gamall, sennilega 300— 400 ára gamall eða eldri. — KS • '^JánudagifT' 20. júli 1981 „Þarna niðri er gólfiö”, sagöi Guömundur ólafsson fornleifafræð- ingur og benti á rönd djúpt i skurðinum. Texti: Sigurjón Valdimarsson Myndir: Þráinn Lárusson fljótt, og fundagleðin hefur snemma sagt til sin. Fátt hefur komið i ljós við uppgröftinn ennþá. Þó er ljóst að rústirnar eru mjög gamlar að þvi er Guðmundur segir. Nokkuð ofarlega i greftrinum er lag af eldfjallaösku, sem Guð- mundur giskar á að geti verið frá 1490 eða 1721. Aldur þess verða þó jarðfræðingar að ákveða. En miklu neðar kemur svo gólf hússins. Af þvi dregur Guðmundur þá ályktun að rúst- irnar muni vera frá fyrstu öld- um tslandsbyggðar. En hann leggur á það mikla áherslu, að enn sé of snemmt að gefa út nokkuð álit, þvi rannsóknirnar eru rétt að hefjast þarna. — SV '1 I I I I I I I I I I I I i I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I J Heimsmet I hopDi Nýtt heimsmet var sett á Is- landi á laugardaginn og verður fært í heimsmetabók Guinnes. Þaö voru47 unglingar á aldrinum 13—17 ára, sem hoppuðu á öðrum fæti frá Þróttheimum i Reykja- vík, á réttum fimm klukkutimum til Hveragerðis. Unglingarnir vildu leggja fötluðum lið á ári fatlaðra og völdu að styðja við bakið á blind- um. Hoppið var auglýsingin á söfnuninni, en sjálf söfnunin fór fram i vikunni á undan. Ekki voru öll kurl komin til grafar þegar Visir hafði samband við Skúla J. Björnsson, forstöðumann Þrótt- heima, sem stjórnaði aðgerðum, en þá voru komnar inn um 50 þús- und krónur. Peningarnir verða lagðirá bok i nafni Blindrafélags- ins og hún sfðan afhent þvi i haust. Það er að ósk félagsins að afhendingin verði ekki fyrr, þvi að þá fyrstgetur það tekið á móti öllum hoppurunum. Hoppið hefst við Þróttheima klukkan 9 á laugardagsmorgun með þvi' að Halldór Rafnar, for- maður Blindrafélagsins, afhenti SkUla hvita stafinn, sem var not- aður sem boðkefli i hoppinu. SkUli hóf siðan hoppið. Hver hoppari hoppaði 50 metra i senn, og varð að hoppa 20 sinn- um. Siðasta spottann hoppaði allur skarinn og endaði við Hótel Hveragerði. Veðrið var afar óhagstætt, þoka,rigning og rok á móti. Þrátt fyrir það voru hoppararnir um það bil helmingi fljótari i förum en þeir reiknuðu upphaflega með. SkUld vildi láta koma fram að þeirsem að þessu stóðu voru stór- hneykslaðir á framferði þriggja ökumanna, sem leið áttuum veg- inn meðan á hoppinu stóð. Þeim þrem ökumönnum lá svo mikið á , að komast áfram að þeir gripu til stórhættulegra — allt aö þvi glæp- samlegra athafna, að mati Skúla, Þaö gerir enginn annaö á meöan hann er aö baksa á öörum fæti á móti roki og rigningu, og þaö er eins gott að vera sæmilega klæddur. En hvað má ekki lcggja á sig fyrir góðan málstað. Blindrastafurinn var boökefliö i þessu einstæða hoppi. Visismynd ÞL tilað komast framhjá. Þeiróku Ut i miaina og þeyttust framUr krökkunum, hægra megin. Ýmsir aðrir sýndu óþolinmæði en margir voru kurteisin upp- máluð. SkUli vildi einnig koma þakk- læti á framfæri til þeirra sem hjálpuðu til og liðkuðu fyrir hoppurunum. — SV

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.