Vísir - 20.07.1981, Blaðsíða 25

Vísir - 20.07.1981, Blaðsíða 25
Mánudagur 20. júli 1981 VlSIR 15 Þagmælska Larry Hagman hefur þai\n einkennilega sið að mæla aldrei orð af vörum i fjölmenni á sunnu- dögum. Honum var nýlega boðið i brúðkaup, — á sunnudegi, og i sta& þess að halda ræðu k yfir brúðhjónunum blés hann sápukúlum á yfir salinn við mikinn fögnuð viðstaddra.^^ Var meðf\lgjandi mynd tekin vi(T þaö tækifæri.... Systurnar i St.. Jósephs-regl- unni i Brentwood i New York þurfa ekki að hafa áhyggjur þótt bilarnir sem reglan hefur til um- ráða, bili, þvi ein þeirra, systir Joan Marese, kippir þvi i lag á augabragöi. Og auk þess að gera við bila sins eigins klausturs, hefur hún ánægju af aö hjálpa til við viðgeröir á bifreiðum annarra nærliggjandi klaustra. Systir Joan er læröur bifvéla- virki og þykir mjög fær i sinu fagi. Hún hefur meðal annars verið fengin til að kenna á nám- skeiðum á vegum Renaultverk- smiðjanna i Bandarikjunum og segir það sina sögu af hæfileikum hennar á þessu sviði. Systir Joan tekur yfirleitt ekkert fyrir viö- gerðir, nema þá fyrir verðinu á varahlutunum og ósjaldan hefur hún hjálpað ráöþrota bilstjórum á vegum úti, endurgjaldslaust. — „Ég er ekki að þessu til að græða peninga”, — segir hún. — „Þetta er þjónusta sem mér er ánægja af að inna af hendi”. Hér er Gary kominn á loft á minnstu flugvél I heimi. Að hafa heppn- ina með sér Það kannast eflaust margir við þá skemmtilegu tilfinningu þegar spilakassar bila og smámyntin „Ef ég verð heppin fæ ég kannski eina kúlu... gusast út á gólf i óstöövandi straumi. Cindy litlu Hamori, sem við sjáum á meöfylgjandi mynd- um, hefur eflaust verið svipað innanbrjósts, þegar hún setti smápeninginn i „tyggjóvöelina” og góðgætið fór að streyma út úr vélinni, enda leynir ánægjan sér ekki i svip hennar. Gary Watson við „Windwagon" vélina sem hann teiknaði og smiðaði sjálfur. Liótækur vélvirki „Þetta er þjónusta sem mér er ánægja aö inna af hendi”, — segir systir Joan um bifvélaviðgerðirnar. Gary Watson frá Texas hefur smiðað flugvélina á meðfylgj- andi myndum og samkvæmt heimildum okkar er hún sú minnsta i heiminum. Garry kallar hana „Windwagon” en vænghaf hennar er rúm 17 fet og lengdin frá skrúfu aftur á stél er rúm 12 fet. Flugvélin er um 145 kiló að þyngd og að sögn hins 36 ára gamla hönnuöar, tók það rúm tvö ár að smiða vélina og- kostnaðurinn var rúmir þúsund dollarar eða um átta þúsund isl. krónur. Heimsins minnsta f lugvél

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.