Vísir - 20.07.1981, Side 7

Vísir - 20.07.1981, Side 7
Verkamannabústaðir tiu ára: Mánudagur 20: júli 1981 Þrir ættliðir úr fjölskyldu Sveins Ingvarssonar voru mættir viö afhend- ingu fyrsta raðhússins og leist þeim vel á. A myndinni sést Sveinn ásamt konu sinni fjórum börnum og ömmunni á heimilinu. Það var Guðjón Jónsson sem lyklana afhenti, en aörir á myndinni eru m.a. Guðmundur Vigfússon, Svavar Gestsson og Eyjólfur K. Sigurjónsson. (Visismynd EÞS) Þrír ællllðlr í lyrsta raðhúsið Fyrsta raðhiisaiböðin af þeim sexti'u sem Verkamannabústaðir i Reykjavik hafa reist i Hóla- hverfi var afhent nú fyrir skömmu. Það var sjö manna fjölskylda Sveins Ingvarssonar sem fékk lyklána að Hólabergi 72 afhenta að viðstöddum félagsmálaráð- herra, stjórnarmönnum Verka- mannabústaða Húsnæðismála- stjórnar og fleiri. tbúðin er um 125 fermetrar á tveimur hæðum og talin geyma 5—6 herbergi. Hún er afhent tilbúin. með frágengn- um göngusti'gum og bilastæðum. Verðið er 562—587 þúsund krónur og greiðast tiu prósent við útborg- un, en afgangurinn er á verð- tryggðu láni til 42ja ára og 1/2% vöxtum. Það eru átta ibúðir sem nú eru tilbúnar, en afhending hinna stendur fram i febrúar á næsta ári. Nú eru liðin um tiu ár siðan stjörn Verkamannabústaða kom saman til fyrsta fundar og hafa á þessum árum verið reistar 584 ibúðir i'Selja- og Hólahverfi. Haf- in er bygging 176 ibúða við Eiðs- granda og framundan um 200 ibúðir i Artúnsholti og Selás- hverfi. Þá hafa verið fest kaup á 14 þriggja herbergja ibúðum, sem tilbúnar verða fljótlega upp úr áramótum. Verkamannabústaðir i Reykja- vi"k hafa nylega tekið við umsjón með kaupum og sölu eldri ibúða sem byggðar hafaverið á félags- legum grundvelli, en þær munu vera um 2000 talsins i Reykjavik. 1 stjórn sitja nú sjömenn, Guð- jón Jónsson, formaður, Guð- mundur J. Guðmundsson, Gunn- ar Helgason, Hilmar Guðlaugs- son, Kristján Thorlacius, Páll R. Magnússon og Sigurður E. Guð- mundsson. Framkvæmdastjóri er RikharðurSteinbergsson. JB verðlaunahugmyndin í sogamýrl: Megináhersla lögð á útivist Arkitektarnir Ormar Þór Guð- mundsson og örnólfur Hall urðu hlutskarpastir i hugmyndasam- keppni um skipulag I Sogamýri. Hluti þeirþrjáti'u og fimm þúsund krónur f verðlaun. Um tillöguna segir i dómnefnd- aráliti að hún „leysi vel megin- þætti samkeppninnar, að fullgera á sannfærandi hátt jaðar byggð- arinnar við Gnoðavog, jafnframt þvi'sem haldið væri góðum mögu- leikum til útivistar”. Svæði það sem samkeppnin sneristum mótast af Gnoöavogi, Skeiðavogi, Miklubraut og endar i Steinahliðarlóðinni við Elliðavog. 1 verðlaunatillögunni er reiknað með samfelidri röð 3ja hæða húsa sunnan við Gnoðavogsbyggð, en mikil áhersla lögð á gott útivist- arsvæði. 1 austurhluta er gert ráð fyrir veitinga- og skemmtistað, dyrasyningum og fjölþættri starf- semi tengdri Steinahliðarsvæð- inu. Alls bárust tuttugu tillögur 1 samkeppnina. önnur og þriöju verðlaun hlutu annars vegar Finnur Björgvinsson og Hilmar ÞórBjörnsson sem nutu aðstoðar MogensLaurentzen og hinsvegar Guðni Pálsson og Halldór Guö- mundsson. Auk þess voru keyptar þrjár aðrar tillögur. Skipulagstillögurnar verða til synis i Réttarholtsskóla fram til 22. júlinæstkomandi. JB Haraldur Stefánsson opnaði nýlega gleraugnaverslun I Hafnarfiröi, nánár tiltekiö aö Reykjavíkurvegi 62. Verslunin er i rúmgóöu húsnæöi og þar fæst allt er lýtur aö gleraugnavörum. VÍSIR lallt undir einu þaki þú verslar í Byggin^vorudeild P ra^Seild þú færö allt á einn og sama kaupsamninginn/ skuldabréf og þú borgar allt niður i 20% SEM ÚTBORGUN, og eftirstöðvarnar færðu lánaðar allt að 9 MÁNUÐUM. Nú er að hrökkva eða stökkva, óvist er hvað þetta tilboð stendur lengi (okkur getur snúist hugur hvenær sem er). Þegar þú hefur reitt af hendi útborguniha og ritað nafn þitt undir KA UPSA MNINGINN, . kemur þú auðvitað við i MATVÖRUMARKAÐNUM ~ og birgir þig upp af ódýrum og góðum vörum. OPIÐ: FIMMTUDAGA i öllum deildum til kl. 22 FÖSTUDAGA Matvörumarkaöur, Rafdeild og Fatadeild Jón Loftsson hf. til kl.22 — aörar deildir til kl. 19 Hringbraut 121 LOKAÐLAUGARDAGA JIS □ auc ---- - uJUQQajj-j — ---JlJUQOJ Sc Simi 10600 THF507S MITSUBISHI Getum afgreitt strax hinar glæsilegu 20 manna fólksflutningabifreiðar frá MITSUBISHI. Mjög hagstætt verð. Hafið samband við sölumenn okkar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.