Tíminn - 13.12.1969, Page 1
% SAMVINIWBANKINN í'
\ -7VTINN BANKI
<J5
v /■
Hækkun sölu-
skatts helm-
ingi meiri en
tollaiækkunin
f gær var sagt frá því hér í
blaðinu, og vitnaS til ræSu fjár-
málaráðherra, a3 hin fyrirhugaða
söluskattshækkun væri áætluð
tæpar 800 millj. kr. Þetta er ekki
rétt, heldur verður hún nálega
900 milljónir króna. Hlutur ríkis-
ins af hækkuninni verður um 800
millj., en afgangurinn mun renna
til bæjar- og sveitarfélaga.
Þá er komið í ljós, að tekju-
rýrnun ríkisins af tollalækkuninni
verður minni en gert er ráð fyrir
í greinargerð tollafrumvarpsins.
í útreikningum þar er reiknað með
að tollar lækki á öllum innflut-
um vörum, sem er á hinum svo-
nefnda EFTA-lista, hvort sem
þær koma frá EFTA-löndum eða
ekki! En frumv. gerir ráð fyrir að
tollar lækki aðeins á vörum, sem
koma frá EFTA-löndunum. Telja
má víst, að verulegur innflutning-
ur haldist á þessum vörum frá
öðrum löndum og verður greiddur
fullur tollur af þeim. Þá hlýtur
tollalækkunin á vélum að auka inn
flutning þeirra, en ekki er gert
ráð fyrir því í umræddum útreikn
ingi.
Líklegt má telja, að tekjumissir
ríkisins vegna tollalækkunarinnar
verði innan við 400 milljónir kr.
eða tæpur helmingur þess, sem
söluskattshækkun mun nema.
Grikkland |
sagði sig
úr Evrópu-
ráðinu i gær
11 ríki voru fylgjandi
brottvikningu Grikk-
lands, þar á meSal
ísland
NTB-París, föstudag.
Grikkland ákvað að segja sig
úr Evróþuráðinu. Ákvörðunina
tók Panayotis Pipinelis, utan-
ríkisráðherra grísku herfor-
Íngjastjórnarinnar, á fundi ráð-
herranefndar Evrópuráðsins j
París, þegar ljóst var að meiri
hluti aðildarrikjanna var ákveð
inn í að reka Grikkland úrN
Evrópuráðinu.
Torstein Nilsson, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, lagði fram
í upphafi fundarins, fyrir
hönd Svíþjóðar, Noregs og
Danmerkur, tillögu um, að
Grikkland skyldi rekið úr
Evrópuráðinu eins og ráðgjafa
þing ráðsins hefði íagt til. í
tillögunni segir, að Grikkland
Framhald á bls. 11
277. tbl. — Laugardagur 13. des. 1959. — 53. árg.
STJ0RNIN GAFST UPP
TK-Reykjavík, föstndag.
Strax við 1. mnræðu tolLskrá^-
frumvarpsins í neðri deitd í fýara
dag kröfðust þeir Þérarimn Þór-
arinsson og Lúðvík Jósepsson þess,
að stjómki félli frá þeirri fyrir-
ætlun að afgreiða þetta mfl fyrir
jóL heldnr vrði afgreiðdn þess
og söluskattsfmmvarpsins firesfetð
tfl franrhakLsþingsins. Sýndn þeir
Ríkisstjórnin gafst upp við að knýja þinghneykslið fram
og ákvað að fresta afgreiðslu á tollskrá og sðluskatti og
kveðja Alþingi saman 12. janúar til afgreiSslu mála
þróun hérlendis við aðild ís-
lands að EFTA, og gengur
samningurinn í gildi þegar ís-
land verður aðili að EFTA.
Ef Alþingi samþykkir aðild
að EFTA verður samningur
þessi Iagður fyrir þjóðþing
landanna til staðfestingar og
einnig verður sett sérstök lög-
gjöf hér um starfseeni sjóðs-
ins, að sögn viðskiptamálaráðu
neytisins.
viðskiptamálaráðherra, Christi'
an Mohr, sendiherra Noregs og
Gunr.ar Grandberg, sendilierra
Svíþjóðar, en þessir menn und
irrituðu samninginn.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá, tnunu Norðurlöndin
öll, fsland þar meðtalið, leggja
fram 1232 milljónir íslenzkra
króna til stofnunar sjóðs, sem
á að stuðla að tækni- og iðn-
EJ-Reykjavík, föstudag.
f dag var undirritaður í
Reykjavík samningurinn um
norræna iðnþróunarsjóðinn
fyrir íslands hönd, og var mynd
in tekin við það tækifæri
(Tímamynd — GE). Á mynd-
inni eru f. v.: Birger Kron-
mann, sendiherra Danmerkur,
Pentti Suomela, sendiherra
Finnlands, Gylfi Þ. Gíslason,
fram á, að ótUokað væri að srf-
greiða þessi mál á fáum Æigimii,
ásamt f járlögum og TTT1 in fiBiiM.
ef þau ættu að fá næga athngnn
í þinginu. Alþingi væri sýnd évirð
ing með því að gera kriflu utn
slíkt.
Þegar 1. umræða hófst am sölu
skattsfrumvarpið í gær, har HaU-
dór E. Sigurðsson fram sömu kröfu
og jafnframt létu 10 þingmenn
stjórnarandstöðunnar skxá sig á
mælendaskrá. Umræðum um sölu-
skattinn var þá frestað og málið
tekið út af dagskrá. Rétt á eftir
óskaði forsætisráðherra eftir við-
ræðum við formenn stjórnarand-
stöðuflokkanna um þinghaldið og
náðist þar samkomulag um að
kveðja þingið aftur saman 12. jan-
úar og fresta tollskránni og sölu
skattsfrv. þangað til.
Stjómin gafst þannig upp við
það að afgreiða þessi stórmál á
svo stuttum tíma, að það hefði
orðið hreint þinghneyksli.
Nánar verður sagt frá þessu
máli og ræðu Ólafs Jóhannesson-
ar utan dagski-ár á Alþingi í gær,
á öðrum stað í blaðinu.
Bls.13
Atvinnuleysið í Reykjavík vex dag frá degi:
En allir BÚR-togararnir
landa aflanum erlendis
KJ-Reykjavík, föstudag.
Það vekur athygli, að þegar
tala atvinnulausra í Reykja-
vík nálgast eitt þúsund,
þá skulu allir togarar Ðæjar-
útgerðar Reykjavíkur vera í
siglingum, annað hvort á leið
að landa erlendis, eða að
koma úr sölutúrum. Fjórir
togarar BIJR landa í Þýika-
landi i vikunni, en ekki er
hægt að segja að sölurnar
hafi verið neitv sérstakar, en
góðar þó.
Bæjarútgerðin á sem kunnugt
er fimm togara núna, og ætti það
að bæta atvinnuástandið töluvert.
ef þeir væru aLlir látnir landa
heima, og skapa aðgerðaflausum
hönrlurn verkefni. Það er stöðngt
talað um að það vanti togara í
skiptflota landsrmanna, og þá ekki
sízt til Reykjavikur Það eru
ski'iaðar nefndir ti! að sjá utr,
byggingu togara, og sendinefndir
fara utan til að skoða togara, því að
þeir eiga að leysa atvinnuimálin,
en svo lætur stærsta bæjarfélag
landsins togara sína landa erlend
is, á þeim tíma, sem kannski
mest er peninga þörf — fyrir jól-
in.
BÚR-togaramir, sem landað
erlendis þrisvar það sem af er vik
unni, og einn — sá stærsti — á að
landa í Þýzkalandi á morgun, og
verður það síðasta togaralöndun
íslenzks togara fyrir jólin.
BÚR-tosararnir sem landað
hsfa t Þýzkaiandi að undanförnu
eru: Hallveig Fróðadóttir 140 lest
ir, Ingólfur Arnarson 170 lestir og
Þorkell máni 209 lestir. Á morg-
un, laugardag á svo Þormóður
goði að landa í Þýzkalandi O'g Jón
Þorláksson er á heimleið, eftir
að hafa landað tvisvar úti. Aflinn
sem togararnir hafa landað og
eiga eftir að landa er ekki langt
frá pví að vera um eitt þúsund
lestir, og þarf víst ekki að spyrja
að því. að margur hefði verið feg-
inn að fá vinnu við vinwslu þess
fisks, auk þess sem ofckar ágæbu
fisksölumenn hefðu þá fengið enn
meira magn til að selja á erlend-
um mörkuðum.