Tíminn - 13.12.1969, Síða 3
LATJGAKDAfJUR 13. desember 1969.
TIMINN
Tíð umferðarslys
í Reykjavík í gær
OÓ-Reykjavík, föstudag.
Þrjú umferSarslyis urðu í Rvík
í dag. í einu slysinu urðu tvö
börn fyrir sama bílnuim, en eikkert
slysanna er mjög alvarlegt.
Um kl. 18,30 varð kona fyrir
KVEIKT A
JÓLATRÉNU
í HAFNARFIRÐI
Kiveilkt verður á jiólatré þvi,
sem Fredriksberig í Danmörku hef
ur. gefið Hafnarfj arðarbæ, sunnu-
d'aginn 14. diesember kl. 16.00.
Jólatréð er staðsestt á Thors-
plani við Strandigötu.
Lúðrasveit Hafniarfjarðar undir
stjórn Hans Ploder leikur á und-
an athöfninni. Ambassador Dan-
merkur herra Birger Ove Kron-
man afhendir tréð. Dösnk konia bú
sett í Hafnarfirði, frú Lizzy Bald-
vinsson, mun tendra Ij'ósið. Bæjar
stjóri, Kristinn Ó. Guðtnundsson,
veitir trénu viðtöku, því neest
syngur karla'kórinn Þrestir, undir
stjórn Herberts H. Aigústssonar.
Kynnir verður Helgi J'ónsson,
fræðslustjóri.
Fyrstu um-
ræðu um EFTA
málið iokið
LL-Reykj'aivík, föstudag.
í dag var fyrstu umræðu um
EFTA-málið baldið áfram á Al-
þingi. Töluðu þar, áður en kvö'ld-
matarhlé var gefið þeir Björn
Jónsson, Bjarni Benediktsson, for
sætisráðherra og Lúðvík Jó'seps-
son og Sveinn Gaðimundsson. Varð
fyrstu umræðu lokið.
Héldu þeir tveir fyrrnefndu
langar ræður uim hagsæld EFTA-
ríkja, en Lúðvík mælti gegn
EFTA aðild.
Björn Jónsson mæilti eindregið
með EFTA aðild og kvað mót-
mæli verkalýðsfélaga m. a. vera
til komin vegna þess, að þekking
á málinu væri ekki næg.
Bjarni Benediktsson sagði, að
fá mál hefðu verið betur undirbú-
in en þetta mál, og hefðu þing-
menn haft eitt ár til athugunar á
því og algerlega þinglega að farið.
Sagði Bjarni, að vel gæti þó
komið til greina að gefa þing-
mönnum tæikifæri til að skoða
málin betur, ef þau yrðu afgreidd
nokkrum dögum fyrir 1. marz.
Ræddi ráðherra tengsl EFTA
og EBE. Sagði hann, að það mundi
taka a.m,k. 2—3 ár fyrir þau ríki,
sem nú sækja um aðild að komast
í EBE og væri óvíst hvort svo
snennma gæti orðið að aðild t.d.
Breta að EBE. EFTA ætti því
eftir að standa enn um nokkur ár.
Nefndi hann síðan ýmsan haig,
sem ísland hefði af aðildinni, t.d.
varðandi iðnþróunarsj'óðinn og
markaði.
Gagnrýndi ráðherra síðan nofck
ur atriði úr ræðum Ólafs Jóhann-
essonar og Lúðvíks Jósepssonar.
Eúðvík Jósepsson hrakti ýmis
ummiæli og öfugsnúning stað-
reynda, sem kom fram í ræðu ráð-
herrans.
bíl á Lsugavegi, móts vfð Ás.
Var hún á leið norður yfir götuna.
Var hún komin langleiðioa yfir,
þegar hún varð fyrir bfl sem var
á leið vestur, eða niður Lauga-
veginn. Hlaut konan höfuðáverka
og var fiutt á Slysavarðstofuna.
Bílstjórinn sagðist ekH. hafa séð
konuna fyrr en rétt áður en báll-
inn skall á henni, og konan mun
ekki hafa séð bflinn fyrr en um
seinan.
Um kl. 17,00 varð fullorðinn
maður fyrir bíl á Suðurlandsbraut
á móts við biðskýli strætisvagn-
anna við Múla. Bfllinn skemmdist
talsvert við áreksturinn, en mað-
urinn virtist hafa sloppið furðu-
vel. Var hann fluttur á Slysavarð
stofuna og þaðan heim til sín.
Skömmu síðar urðu tvö börn
fyrir bfl á Eskihlíð. Eru þetta
drengur og sfcúlka, fjögurra og sex
ára gömul. Bíllinn var á leið aust
ur EsHhlíð og bömin á leið suð-
ur yfir götuna þegar slysið varð.
Bílstjórinn sá börnin eHri fyrr
en of seint og tókst honum ekH að
stöðva bílinn og forða slysiuu og
urðu bæði börnin fyrir framenda
bflsins. Annað kastaðist til hægri
og féll á götuna. Að árekstrinum
afstöðnum lá hitt barnið við fram
enda bíisins vinstra megin og
sneri billinn þá þvert á götunni.
Bæði börnin voru flutt á Slysavarð
stofuna. En hvorugt harnanna mun
mikið slasað.
16. bók Jack Londons og ný bók eftir Anitru
Hnefaleikarinn og Silfurbeitið
FB-Reykjavík, föstudag,
Blaðinu hafa borizt tvær skáld-
sögur, sem komnar eru út hjá
ísafold. Þær eru Silfurbeltið eftir
norsku skáldkonuna Anitiru, og
Hnefaleikarinn eítir Jack London.
Anitra lætur söguna Silfurbelt-
ið gerast fyrir um síðustu alda-
mót. Fjölskyldurnar á Leifcvöllum
og Lindarbæ eru aðalpersónur sög-
unnar. Helgi í Lindarbæ er ný-
giftur en óhamingjusamur, og óveð
ursnótt eina yfirgefur hann bú-
garðinn í hálfgerðu óráði. Hvað
gerist um nóttina er bæði honum
og öðrurn óljóst og myrkri hulið.
En merkilegur gripur, silfurlbelti,
finnst í hesthúsinu daginn eftir
og kemur til með að verða örlaga-
valdur margra manna í Leifcvalla-
héraði.
Hnefaleikarinn er sextánda bók-
in í ritsafni Jacks London. Þessi
bók segir frá undrapiltinum Pat
Glendon', sem er uppalinn í frum-
skógum Kaliforníu. Faðir hans,
Glendon eldri, sem er gamall hnefa
leikameistari, vill að sonurinn. feti
í fótspor sín og verði heimsmeist-
ari í þessari íþrótt. Pat Glendon
Maðurinn sem
ekki var til
FB-Reykjavik, föstudaig.
Maðurinn sem ekki var til er
frásögn úr beimBstyrjöldinni síð-
ari, en bókin er nýútfcomin hjó
Prentsmiðju Jóns Helgasonar.
í kirkjugarði í litlu spænsbu
þorpi hivilir brezkur þegn. Hlauu
varð þjóð sinni að litJlu gaigni
meðan hann lifði, en látinu bj'arg
aði hanu þúsundum maunslífa.
Nótt eina vorið 1943 sigldi brezki
kafbáturinn Seraph neðansijávar
að spænsfcu ströndinni, við hafn-
arbæinn Huelva. 200 metra frá
landi kemur hann upp á yfiiborð-
ið. Nokkrir menn birtast á dekk-
inu, berandi lík af manni. Lík-
inu varpa þeir í sjóinn. Kafbátur-
inn hverfur. Daginn eftir berst
þýzku yfirhersstjóminni tilkynn-
ing um að fundizt hafi lík af
brezkum liðsforingja með mjög
mikilvæg leynis'kjöl varðandi inn-
rás bandamanna í Grikkland.
Fljótlega var farið að flytja þýzk
ar herdeildir frá Ítalíu til Grikk-
lands til varnar. Nokkru síðar
var innrás gerð á Sikiley án telj-
andi mótspyrnu.
er glæsilegur piltur og heljar-
menni að burðum, en eins og bam
í Hækjum og brellum þeirra, sem
standa fyrir hnefaleikakeppni. Pat
Glendon nær takmarki sínu og
varður heimsmeistari í hnefaleik-
um, en jafnframt lærist honum að
sjá fánýti og tilgangsleysi íþróttar
innar, þar sem hnefarétturinn og
miskunnarleysið eitt ræður.
Fótspor
fiskimannsins
FB-Reykjavík, föstudag.
Fótspor fiskimannsins er komin
út hjá Prentsmiðju Jóns Helgason
ar. Sagan er eftir Morris L. West.
Þessi bók Wests hlaut skjótt
meiri vinsældir en dæmi eru til
um skáldsögu á síðari árum. Nú
hefur hún verið kvikmynduð með
þeim árangri að myndin var kjör-
in bezta mynd ársins á kvikmynda
hátíðinni í Cannes. Aðalhlutverkin
eru líka í höndum snillinga eins
og Anthony Quinn, Vittorio de
Sica, sir John Gielgud og sir Laur
ence Olivier, að því er segir á
bókarkápu.
Áður hafa verið þýddar á ís-
lenzku tvær af sögum Morris
Wests, Babelstuminn og Málsvari
myrkrahöfðingjans.
GIINNA GERIST
BARNFÓSTRA
FB-Rieykjavík, föstudag.
Gunna gerist barnfóstra heitir
bók eftir Catherine Wooley, sem
komin er ú't hjá Stafafelli. Gunna
og Geirlflug hyggjast vinna sér
inn aukaskildinig fyrir jólin. Þær
velta fyrir sér, hvað þær eigi að
giera til þess, að reyna að fá störf,
sem barnfóstrur. Fyrst sýna fáar
mæður þeim traust, en að lokum
fær Gunna starf, og gtengur meira
að segja svo langt að hún stofn-
ar barnaiheimili heima hjá sér.
Hún kemst oft í þær aðstæður,
sem koma myndu fullorðnu fólki
úr jafnvægi, en hún er indœl
stúlka, óhrædd við að reyna
hæfileifea sína, og nœr líka ó-
væntum árangri. Sagan mun sjálf
sagt gleðja lesendur sína hér sem
annars staðar, einkanlega telpur
á alddnum 8 til 14 ára.
Eitt HúsiS, sem sýnt er.
(Tímaftiyrrd Genna r) i
SÝNING Á VERÐLAU N ATEIKNIN6UM
AMERÍSKRA ARKITEKTA
í dag hefst sýniinig á h.úsateikn-
imgum efitir bandarísfca arkitiekta
í húsakynmum Bygginigarþjónustu
Arkitektafélaigs ís'lands á Lauiga-
vegi 26. Samtímis hefst yfirlits-
sýning jrfir skipulaig borga fyrr
og nú, í Ameríkska bófcasafninu.
Angalangur - bók
fyrir yngstu
lesendurna
FB-Reykjavík, föstudag.
Inga Birna Jónsdóttir er höfund
ur bókarinnar Angalangur, sem
komin er út hjá ísafoldanprent-
smiðju. Teikningar í bóHna gerði
Silja Aðalsteinsdóttir. Bók þessi er
ætluð yngstu lesendunum. Hún
er með stóru letri, og sfereytt ein-
földum og skemmtilegum teikning
um í svörtu og rauðu.
í Bygginigaiþjiónustunni enu)
sýndar 34 teikninigiar að margs,
konar húsum, einlbýlishúsuim, rað- ,
húsum, sambýlishúsum oig báhýs-,
um. Er um að ræða verðlauna-,
teiknimgar, úr samkeppni, sem
bandaríska arkitektaféliagið efnir
til reglulega og er þetta í ellefta
sinn, sem samfceppni þessi er bald'
in-,
Á sýninigunni í Amierfska bófca-1
safninu, sem einnig er tekin sam-'
an af Aktitektafélaigi Bandaríkj- •
anna, er gefið yfinlit yfir þróun,
borgarskipulags á ýmsum tímum
og jafnframt sýnt það nýjasta á
því sviði.
Tímarit og bæfcur um byggingar
list mun liggja frammi á meðan á'
sýninigunni stendur.
Sýningin í Byggimgiarþjónnstu,
Arkitekt'afélagsins er opin kl. 13
til 18 virfca daga, til fimmltu-
dagsins 18. des'ember, en sýninig-'
in í Amieríska bókasafninu er opin >
H. 10—19 virka daga til jóla.
Jólagjöf
ársins
D y M O er alltaf
gagnleg gjöf.
Jólagjöfin, aftnælisgjöfin, gjöfin sem
notuð er allt árið. D Y M O leturtækið
er gjöf sem alltaf vekur gleði. Með
D Y M O komið þér reglu á hlutina á
heimilinu. Tilvalin gjöf fyrir hvem sem er
í fjölskyldunni. Þér þrykkið stöfum á sjáíf-
límandi D Y M O leturborða og merkið
siðan hvað sem yður sýnist.
Gefið öðrum D Y M O —
Gefið sjálfum yður D Y M O .
f VERÐ
V 385,-
m hf
REYKJAVÍK SKÓLAVÖRDUSTÍG 25
DYiVlÖ