Tíminn - 13.12.1969, Blaðsíða 8
8
TIMINN
LAUGAKDAGUR 13. dcsember 1969.
0LGANDI BLÓÐ
eftir akureyrska stúlku, HÖNNU BRÁ
Saga Hönnu Brá er nútímasaga, ekki nein væmin
„kerlíngabók“, heldur djörf og spennandi, atburðarás
sögunnar er hröð frá upphafi til enda — og hefur
skáldið í brennipunkti lífssvið, er nær jafnt til yngri
sem eldri.
Þótt bókin sé skáldsaga, birtir hún nakin raunveru-
' leiba, gæti verið t. d. lífssaga mín eða þín.
Hafsteinn Þorvaldsson, formaður Ungmennafélags íslands-.
r
FRAMTIDARSKIPAN GET-
RAUNASTARFSEMINNAR
KAFLAHEITI BÓKARINNAR ERU ÞESSI:
f nótt verS ég koma, Fanney og Hulda, Að 19 árum liKnum, Fóm
á flótta, Barátta EIvu Dís, Hendur sem glata sál, Reiknings-
stdl, Rós og illgresi, Dofri, l'ilfinningar í.litum.
SKJALDBORG sf
Hafnarstræti 67 . Akureyri . Sími 1-10-24
©AUGIÝSINGASTOFAN
Yokohama snjóhjólbaröar
Með eða án nagla
Fljót og góð þjónusta
FÓLKSBÍLASTÖÐIN AKRANESI
Af tilefni greinar Alfreðs Þor-
steinssonar í Tímanum 7. des. sl.
vil ég taka fram eftirfarandi:
1. Skipting getraunaágóSans:
Varðandi ágóðann af getraunun
um skiptir það auðvitiað höfuð-
máli að honum sé varið til að
efJa og styrkja íþróttastarfið í
landinu á sem breiðustum grund
velli. 1 greinargerð stjórnar UMFÍ
kemur skýrt fram, að svo verði
ekki, meðan núverandi skipting á
áaóðanum, umfram sölulaun, er
við lýði. íþróttanefnd eða einhver
önnur samstarfsnefnd ÍSÍ og
UMFÍ ætti að vera sá aðili, sem
öll íþróttahreyfingin gæti treyst
til að ráðstafa þessum ágóðahluta
réttlátlega, og íþróttalögin eiga að
sfciðla að þvi. Þetta er meiginatrið
ið. Getraunaágóðinn er staðreynd
og það verður að komast að sam
komulagi um að verja honum sem
sanngjarnlegast. Það samkomulag
verður að nást í íþróttanefnd og
milli þeirra aðila, er að henni
standa.
2. Lagabrot og lagatúlkun:
Ég get ekki séð að það sé
deiluefni, hvort þessi lög hafi
verið brotin með heimildarlausri
getraunastarfsemi frá því á fyrra
ári og þangað til í vor. Lögin sjálf
eru ótvíræðasta vitnið um þetta,
og öll getrauna- og happdrættis-
starfsemi er háð opinberum leyf
um. Hins vegar hygg ég, að í
getraunavelgengni nútímans sé
hægt að sleppa öllum ásökunum
í því máli, ef það skerðir ekki
íþróttaheiður okkar.
Samkvæmt áðurnefndum lögum
er það íþróttanefnd og enginn ann
ar aðili, sem getur fengið leyfi
ríkisstjórnarinnar til getrauna-
starfsemi vegna íþrótta. Mér er
ekki kunnugt um, að nokkur
áhyrgur aðili innan íþróttahreyf
ingarinnar beri brigður á þetta.
Þótt íþróttanefnd hafi veitt nú-
verandi reksturaðilum getraun-
anna heimild til getraunareksturs
um takmarkaðan tíma til reynslu,
breytir það engu um einkarétt
íþróttanefndar.
3. Framtíðarlausn málsins
er höfuðvandinn:
Áform uin endurvakninigiu get-
raunanna hafa árum saman verið
á dagskrá hjá íþróttanefnd og
framkvæmdastjóri hennar Þor-
steinn Einarsson, íþróttafulltrúi
hefur gert athuganir og saman-
burð á getraunastarfseminni í
nágrannalöndunum og hugsanlegri
starfsemi hér.
Deilur um getraunaheimildina
s. 1. vor ættu að vera óþarfar, ef
samkomulag næst um framtíðar
lausn málsins.
UMFÍ og ÍSÍ hljóta að geta kom
ið sér saman um farsæla lausn
þessa máls hávaðalaust eins og
jafnan hefur tekizt um sameigin
leg mál. Samstarf UMFÍ og ÍSÍ
hefur ætíð verið gott eins og vera
ber meðal samherja, og þannig
verður það líka að vera málstað
ur íþróttanna vegna.
4. Hlutverk ungmenna-
félaganna:
Ungmennafélögin hafa borið
íþróttirnar í dreifbýlinu uppi fyrr 1
og síðar og hafa alið upp mikið af '
góðu íþróttafólki. Eins og flestum '
mun og kunnugt, er þó einnig unn
ið að fjölmörgum menningartmál
um öðrum en íþróttum innan ung ,
mennafélaganna. Oft hefur verið
of hljótt um það margþætta
íþróttastarf, sem farið hefur fram
á vegum ungmennaféalganna viðs
vegar um landið. Þar hefur þó
margt áunnizt, þrátt fyrir erfiðar
aðstæður. Höfuðtakmark iþrótta
starfsins, eru svo landsmót UMFÍ '
sem haldin haía verið þriðja hvert
ár. Undirbúningur að þeim mót
um er mjög umfangsmikill og tíma
frekur og stendur stöðugt yfir
milli landsmótanna. Oft hefur ver .
ið um það rætt, að hafa þessi mót
tíðari, en slíkt hefur ekki verið
talið æskilegt vegna margháttaðrá
erfiðleika í framkvæmd en þo
fyrst og fremst kostnaðarins vegna
og nauimra fjárráða ungmennafé- '
lagshreyfingarinnar. Því hefúr
etóki orðið atf því að hafa
mótin tíðari en lögð áherzla á að
standa þannig að málum, að þau
gætu orðið aö jafn glæsilegum
hátíðum og raun ber vitni.
Að endingu þetta:
Ég ætla ekki að standa í per-
sónulegum illdeilum við einstaka
menn um þessi mál ef hjá því
verður komizt, en treysti því, að
blöð og bláðamenn muni veita nú-
verandi stjórn UMFÍ aðstoð við
að efla starfsemi ungmennafélag-
anna á sem flestum sviðum.
Hafsteinn Þorvaldsson.
RAFSUÐUTÆKI
HANDHÆG OG ÓDÝR
Þyngd 18 kg.
Sjóða vír 2,5—3,0—3,25 mm
Kærkomin jólagjöf handa
lagtækum mönnum.
S M Y R I L L
Ármúla 7. Sími 84450.
Bílasala
Matthíasar
STIGAHÚS GÓLFTEPPI
HÚSEIGENDAFÉLÖG
Bílasala — Bílaskipti
Úrval vörubifreiða
Bílar gegn skuldabréfum
BÍLASALA MATTHÍASAR
Höfðatúni 2.
Símar 24540 og 24541
í janúar og febrúar er rétti tíminn til þess að
teppaleggja stigahús, stærri gólffleti og ganga, þá
er bezt að fá hagstæða skilmála í stór verk.
LeitiS tilboða strax og gerið samanburð á núver-
andi ræstingarkostnaði. — ÞAÐ BORGAR SIG.
ÁLAFOSS H.F. - Þingholtsstræti 2. Sími 22090.
---------:--------
Hann brag&ast vel
BRAGÐAUKINN
frá
j*r
MONU
BREIÐHOLTSKJÖR I
NÝ GLÆSILEG KJÖRBÚÐ
r',: i,-,.-
ARNARBAKKA 4-6 BREIÐHOLTSHVERFI I
Allar fáanlegar nýlenduvörur og kjötvörur
í fjölbreyttu úrvali. Rúmgóð bílastæði.
Áherzla lögð á vörugæði og fyrsta flokks þjónustu. |
Komið og reynið viðskiptin. Opið til
kt. 10 í kvöld.