Vísir - 25.08.1981, Page 1
VEGABREF SIGURÐAR
GILTI í EINN DAG
„Sendiráðið i Bretlandi fékk
bréf frá Sigurði Þór Sigurðssyni
i vor, þar sem hann óskaði eftir
þvi aö hann fengi vegabréf, þvi
hann ætlaði að gefa sig fram við
islensk yfirvöld. Að svo stöddu
var ekkert gert, en siðar hafði
Sigurður samband simleiðis og
20. ágúst var heimilað að jgefa út
bráöabirgðavegabréf, sem ein-
ungis gildir i einn dag", sagði
Gunnar Snorri Gunnarsson full-
trúi i Utanrikisráðuneytinu, um
ferðir Siguröar Þórs Sigurðs-
sonar, strokufangans frá Vestre
fangelsinu.
Að sögn Gunnars Snorra var
þvi bráðabirgðavegabréfið sér-
staklega gefið út fyrir ferðina
frá Bretlandi til tslands kvöldið
sem hann kom, hinn 20. ágúst,
og aðstandendur hans hér
greiddu miðann hjá Flugleiðum
i Reykjavik. „Það er þvi aug-
ljóst að islensk yfirvöld vissu
nákvæmlega um ferðir Sigurðar
Þórs”, sagði Gunnar Snorri.
Hins vegar munhafa fundist á
Sigurði Þór, eitthvað af fikni-
efnum, er hann kom til Kefla-
vikur. Hann gaf sig ekki fram
við vegabréfsskoðun á Kefla-
vikurflugvelli.
Svo virðist vera sem dóms-
málaráðuneytið hafi ekki séð
svo um að sérstaklega væri tek-
ið á móti Sigurði Þór, en Þor-
steinn Jónsson fulltrúi i dóms-
- gaf sig
ekki fram
viö toii-
gæsluna
málaráðuneytinu, vildi ekki
staðfesta við Visi i morgun að
dómsmálaráðuneytið hafi haft
nákvæmar upplýsingar um
hvenær Sigurður Þór kæmi til
landsins.
— AS
„Hvar finn ég vatn?” spurði hann, breskur fararstjóri á vegum BritishSchool Exploring Society, sem stöðvaði ferð Visismanna um
hálendiö á dögunum. Hann var með 30 unglinga á sinum snærum og haföi hópurinn verið vatnslaus I tvo daga. VIsism.GVA
„Valn, vatn... Hvar linn ég vatn?”
Taining hófst klukkan 9 i morgun.
Biskupskiðr:
Talið I
morgun
Um hádegisbilið i dag átti að
vera ljóst.hver verður næsti bisk-
up Islands. Talning hinna 148
kjörseðla i annarri umferð hófst i
morgun klukkan niu og átti að
ljúka skömmu fyrir hádegi.
Kosningin stendur á milli sr.
ðlafs Skúlasonar og sr. Péturs
Sigurgeirssonar, þar sem þriðji
aðili kjörseðilsins, sr. Arngrimur
Jónsson, hefur óskað eftir að fá að
sitja hjá, en þessir þrir urðu efstir
eftir fyrri umferð.
Sá er sigrar mun taka við af sr.
Sigurbirni Einarssyni 1. október
næstkomandi. — JB
Hún slapp
frá Yorkshlre-
morðingjanum
- Slá mannlll
bls. 18-19
„Vatn, vatn, hvar get ég
fundið vatn”, spurði breskur
fararstjóri úr British School
Exploring Society, sem VIsis-
menn óku fram á á leið sinni úr
Hvannalindum á dögunum, en
þar hafa dvalið á annað hundrað
manns við rannsóknarstörf, aö
undanförnu eins og kunnugt er
af fréttum.
Visismenn fóru i Hvanna-
lindir og náðu þar tali af leið-
angursstjóra Bretanna Brian
Needham, þar sem hann sagði
•meðal annars að heimsókn
sýslumanns Norður-Múlasýslu
og félaga fyrir skömmu hefði
verið góðra gjalda verð, en rök
þeirra fyrir þvi að hætta yrði við
ferðina á Vatnajökul hefðu verið
mjög ófullnægjandi. „Það var
erfitt að hætta við ferðina, sem
var ár i undirbúningi”, sagði
hann, „en við tókum þá
ákvörðun vegna þess, að við er-
um gestir á Islandi og viljum
fyrir alla muni vera samvinnu-
þýðir við islensk stjórnvöld”.
A leiðinni úr Hvannalindum
stöðvaði ferð Visismanna
maður einn til að spyrja, hvar
hann gæti fundið vatn! Kom
uppúr kafinu, að maöurinn var
fararstjóri á vegum British
School og var með 30 unglinga á
sinum snærum á leið á tveimur
jafnfljótum frá Hvannalindum
til Mývatns. Hópurinn haföi
verið matarlaus i tvo daga, þvi
ekkert vatn hafði fundist, en
maturinn er allur þurrkaður.
Heldur var hópurinn þreytu-
legur að sjá og tveir liðsmanna
voru veikir og sagði einn þátt-
takenda, aö leiðangurinn allur
væri illa skipulagður og svo
virtist, sem stjórnendur vissu
litið, hvað þeir væru að gera.
Sjá nánar bls. 14—15.
— KÞ