Vísir - 25.08.1981, Síða 8
vtsm
Þriðjudagur 25. ágúst 1981
utgefandi: Reykjaprent h.f.
Rilstjori: Ellert B. Schram.
'Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aðstoðarf réttastjóri: Kjartan Stefansson.
Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammen-
.drup, Árni Sigfússon, Friða Ástvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna
Birgisdóttir, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttir, Magdalena.
Schram, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir.‘
Blaðamaðurá Akureyri: Gísli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sig-
rfíundur Ó. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés-
son. Utlitsteiknun: Magnús Ölafsson, Þröstur Haraldsson, Safnvörður: Eirikur
Jónsson.
Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson
.Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611, 7 linur.
Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúla 8, símar 86611 og 82260.
Afgreiösla: Stakkholti 2-4, simi 86611.
Áskrif targjald kr. 80 á mánuði innanlands og verð i lausasölu
5 krónur eintakiö.
Vísir er prentaður i Blaðaprenti, Siðumúla 14.
Bættur rekstur Fríhafnar
AAikiI og góð umskipti hafa orð-
id í rekstri Fríhafnarinnar á
Keflavíkurflugvelli á síðustu
misserum. Eins og fram kom í
frétt Vísis í gær hefur dregið
stórlega úr vörurýrnun hjá fyrir-
tækinu og veltan aukist mjög þótt
starfsfólki hafi fækkað um þriðj-
ung. Loksins virðist þessi rekstur
vera að komast á heilbrigðan
grundvöll eftir margra ára ó-
stjórn og sukk.
Fyrir tveimur árum eða svo
hóf Vísir að birta fréttir af Fri-
hafnarsukkinu. Blaðið greindi
frá gífurlegri rýrnun. sem nam
mörgum prósentum af veltu og
þar með voru þó ekki öll kurl
komin til grafar því lagt var
aukagjald á eina áfengistegund
til að fela hluta af rýrnuninni.
Auk þess voru gjaldeyrisskil Fri-
hafnarinnar undir eðlilegum
mörkum og þannig mætti halda
áfram að nefna dæmi um þá
spillingu sem þarna grasseraði ó-
átalin.
Vísir byggði fréttir sínar á
traustum heimildum enda hafa
þær ekki verið bornar til baka af
ábyrgum aðilum. Hins vegar
brugðust sumir forvarsmanna
Fríhafnarinnar hinir verstu við
uppljóstrunum Vísis. Lýstu þeir
því yfir að ekki væri fótur fyrir
f réttum blaðsins og voru stóryrð-
in hvergi spöruð.
Ágrundvelli frétta Vísis ákvað
Benedikt Gröndal þáverandi ut-
anríkisráðherra, að láta fara
fram opinbera rannsókn á
rekstri Fríhafnarinnar. Sú rann-
sókn tók langan tíma og Vísir
mótmælti þvi að embætti lög-
reglustjóra á Keflavíkurf lugvelli
var falið að annast rannsóknina.
Ríkissaksóknara fannst frum-
rannsókn ófullnægjandi og lét
fara fram framhaldsrannsókn
sem tók marga mánuði. Við yfir-
heyrslur komu fram upplýsingat;
sem staðfestu enn frekar fréttir
Vísis. Hins vegar kom það mörg-
um á óvart, að eftir að rannsókn
lauk var aðeins gef in út ákæra á
hendur einum manni og hann
þannig gerður ábyrgur f yrir mis-
ferli, sem fjölmargir tóku þátt í.
Hitt skiptir þó mestu máli, að
allt þetta hafði það í för með sér
að stjórnvöld tóku á sig rögg og
ákváðu að koma lagi á rekstur-
inn. Rætt var um að bjóða rekst-
ur Fríhafnarinnar út á frjálsum
markaði að öllu leyti nema sölu á
áfengi og tóbaki, líkt og tíðkast í
fríhöfnum nálægra landa. Þessi
leið var þó ekki valin, heldur var
starfsmönnum falið að annast
reksturinn að mestu leyti og nýir
menn tóku við fjármálastjórn
fyrirtækisins. Síðan hefur stöð-
ugt dregið úr rýrnun og afkoma
Fríhafnarinnar batnað. Óhætt er
að f ullyrða, að þær upphæðir sem
áður hurfu úr rekstrinum með
ýmsum hætti skiptu milljónum á
ári. Ríkið hefur því síður en svo
tapað á því að hreinsa til í Frí-
höfninni, þótt sú hreingerning
hefði mátt vera rækilegri.
Þá hefur þjónusta við við-
skiptavini batnað mjög i Fríhöfn-
inni, afgreiðslufólk mun liprara
og þægilegra i viðmóti en áður og
fólk sem þarna fer um óttast ekki
lengur að verið sé að svindla á
því. Hins vegar er vonlaust að
bæta við fleiri vöruflokkum eða
auka úrval varnings i Fríhöfn-
inni meðan ekki fæst byggð ný
flugstöð. i versluninni eru óskap-
leg þrengsli á annatímum og fá
þá ekki allir tækifæri til að versla
sem vilja. Ragnar Arnalds fjár-
málaráðherra hirðir glaður gróð-
ann af Fríhöfninni, en hann má
ekki heyra á það minnst,að byggð
verði ný flugstöð. Ragnar Arn-
alds stórhækkar flugvallarskatt
af farþegum. sem um völlinn
fara en lætur sig engu varða þótt
starfsfólk þar verði að vinna í
hei Isuspil landi kofaræksnum
sem eru landi og þjóð til hábor-
innar skammar.
'^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^
1
I
i
VILMUNDARSUNIAR?
Það er kannski of fljótf að spá
þv i aö sumarið 1981 m uni verða
kennt við Alþýðublaðsmálið og
Vilmund Gylfason alþingis-
mann og fyrrvcrandi „sumar-
ritstjóra”, en ekki getur það tal-
ist fráleitt miðað við það sem á
undan cr gengið.
Og siðasta vika f fjöl-
miðlunarheiminum var engin
undantckning frá þeim á undan,
að blaöaheimur vor snérist aö
mestu um fyrrgreindan al-
þingismann og umsvif hans,
deilurnar á Alþýðublaðinu og
siðasten ekki sist hið nýja viku-
blað.sem Vilmundur og félagar
hans boðuðu að út kæmi i vik-
XS Nú eru það vitanlega talsverð
Sx tiðindi í okkar heldur fábreyti-
Sv lega fjölmiðlaheimi, aö nýtt
SxJ vikublað hefji göngu sina og út
w af fvrir sig ber að fagna sliku.
Sx> En það verður höfundur þessara
sSý lina að viðurkenna, að efni
þessa fyrsta tölublaðs Nýs
!XS Lands olli honum talsverðum
vonhrigðuin. Að sönnu var
!SS undirbúningstiminn að útkomu
blaðsins i knappasta lagi og
SSJ kannski hefði ekki komiö að sök,
w þótl útkoma fyrsta tölublaðsins
W hefði dregist eins og um eina
w viku — jafnvel lengur — og
\Ss menn notaö þann tima til þess
sSS að afla cfnis og kannski lika að
NS leggja nánar niður fyrir sér
NS hvernig blaðið skyldi líta út. En
!ÍS Vilmundur og hans menn eru I
NS miklum flýti og vilja ekki meö
jSs nokkru móti missa af imynduð-
að taka með i
0£ skevtinhalda áfram
Eins og við var að búast var
mestur hluti efnis Nýs Lands
helgaður þeim deilum sem upp
risu milli Vilmundar ritstjóra
og félaga hans við blaðstjórn og
raunar flokksstjórn Alþýðu-
flokksins — og seinast við Jón
Baldvin Hannibalsson ritstjóra
og ábyrgðarmann Alþýðublaðs-
ins. En nær ekkert nýtt kom
fram i útskýringum og greinum
aðstandenda Nýs Lands um þau
mál — nema ef vera skyldi að
prentuð var ræða sú sem Vil-
mundur flutti á Borgarfundi
þeirra Jóns Baldvins á dögun-
um og var það svosem ágætt út
af fyrirsig. En það vakti athygli
höfundar þessara lina, að i sið-
asta Helgarpósti er gerð eins-
konar úttekt á Vilmundi al-
þingismanni og leitað bæði til
meintra pólitiskra samherja
sem andstæðinga um mat
þeirra á manninum. Umsagnir
andstæðinga hans voru nokkuð i
samræmi við það, sem maður
átti von á — en af einhverjum
ástæðum leitaði Helgarpóstur-
inn ekki til neinna nafnkunnra
framsóknarmanna um álit
þeirra á alþingismanninum —
en það gæti hafa orðiö fróðleg
lesning — einkum ef t.d. ólafur
Jóhannesson utanrikisráðherra
hefði fengist til þess að leysa frá
skjóðunni.
Þaö var hinsvegar úttekt
fyrrum samritstjóra Vilmundar
á Alþýðublaðinu — Jóns Bald-
vins Hannibalssonar á sam-
starfsmanni sinum og flokks-
samherjar i pólitik fjalli um
hver annan opinberlega öðru-
visi en með hæfilegu hrósi —
mannkostimir og hæfileikarnir
eru rækilega tiundaðir en þess
yfirleitt ekki getið, sem mönn-
um kann aö þykja miður i fari
mannsins. Jón Baldvin fór ekki
að þessum sið og var það býsna
hressandi svo ekki sé meira
sagt og góð tilbreyting, hvort
heldur núJón Baldvin hefur rétt
fyrir sér eða ekki. En tilhlökk-
imarefni hlýtur það að vera, að
geta átt von á svona skeyta-
sendingum við og við og ansi
skyti það skökku við, ef lesend-
um Nýs lands gefst ekki kostur
á að lesa mat Vilmundar á fyrr-
um samritstjóra sinum i næsta
tölublaði.
Dómsmál
A mánudag i fyrri viku ræddi
Dagblaðiðvið Sr. Jón Bjarman
og vék klerkur þar m.a. að yfir-
heyrslunum yfir sakborningum
i svokölluðum Geirfinns og Guð-
mundarmálum og þeim stað-
hæfingum, að likamsmeiðing-
um heföi verið beitt til þess að
knyja fram játningar. Eins og
vænta mátti varð þetta viðtal
FJÖLMIÐLAR
SÍÐUSTU VIKU
Páll Heiöar
Jónsson
skrifar
tilefni til meiri skrifa i blaðinu
um þetta efni, leiðari birtist um
málið, rætt var við biskup,
dómsmálaráðherra og yfir-
fangavörð og um skeið var engu
likara en fyrrgreind sakamál
væru komin enn og aftur á dag-
skrá — iDu heilli.
Hér verður ekki farið út í þá
sálma að rifja upp tiltekin atvik
i rannsókn Geirfinnsmálsins
eða þá harmleiki, sem tengdust
þeim enda yfrið nóg verið um
það allt ritað og einhvernvegin
býðurritara þessara lina í grun,
að ýmsir þeir sem hæst höfðu og
mest skrifuðu um meinta spill-
ingu i dómskerfi okkar, kysu að
skrif þeirra væru gleymskunni
falin og þau hefðu aldrei verið
sett á blað og þaðan af siður
prentuð. Það væri engu að siður
verðugt verkefni fyrir dugmik-
inn fjölmiðlamann, að fletta
þeim ótal blaðadálkum, sem
sáu dagsins ljós á fyrri áratug
og gæti kannski þénað sem við-
vörun til þeirra, sem við frétta-
mennskuna fást að fara að öllu
með gát i framtiðinni.
Þó sakar ekki að minna á það,
að um ti'rna leit helst út fyrir aö
hér rikti andrúmsloft tortryggni
og hleypidóma og það i svo rik-
um mæli, að engu er likara en
að svokallað almenningsálit,
(sem að verulegu leyti var ekki
annað en fullyrðingar nokkuð
snjallra aróðursmanna) væri á
þeirri skoðun, að allt dómskerfi
þjóðarinnar væri handónýtt og
það sem verra var, spillt og rot-
ið og þá verandi yfirmaður þess,
Ólafur Jóhannesson vitorðs-
maður með glæpamönnum!
Sem betur fór gekk þetta gjöm-
þetta minnst hér, að engu var
h'kara en menn vildu upphefja
eftir að endurtaka sig en þvi er á Sx
þann ljóta leik aftur i fvrri viku.
Vonandi hafa menn lært það
af reynslunni, að fara varlega i
þessum sökum og ve’/a ekki að
vekja upp drauga að ástæðu-
lausu.
bróöur, sem vakti verulega at- _____________
hygli. Það er býsna sjaldgæft að ingaveður yfirog á vonandi ekki
Ný Biblia
Og s vona und ir lokin er rétt og
skylt að geta þess viðburðar i
fjölmiðlun liðinnar viku, sem
merkastur hlýtur að teljast, en
það var útkoma nýrrar Bibliu-
útgáfu, en hún var kynnt um
miðja vikuna.
Raunar hjó ritari þessara lina
eftir þvi að blöðunum bar ekki
allskostar saman um útgáfu-
kostnaðinn — á einum stað var
hann talinn nema 300milljónum
gamalla króna en á öðrum bara
200 milljónum. Raunar skiptir
það nú ekki öllu máli — ný
Bibliuútgáfa er það sem máli
skiptir. Og þau gleðitiöindi bár-
ust frá Kjarvalsstöðum, þegar
forseta vorum var afhent bókin,
að ki rk jum álaráðherrann
hyggðist beita sér fyrir þvi aö
söluskattur yrði ekki lagður á
Guðsorðið. Vonandi fær hann
þvi framgengt við samráðherra
sinn i hinum enda Arnarhvols!
Það er raunar erfitt að sjá
hvernig f jármálaráðherrann
getur annað en orðið við þessum
tilmælum, úr þvi að hann er ný-
búinn að fella niður vörugjald af
eldavélum, ryksugum og is-
skápum — jafnvel þótt frysti-
kistur skuli bera fyrrgreint
gjald!
Páll Heiðar Jónsson
I
|
I
1
!