Vísir - 29.08.1981, Síða 12
12
Laugardagur 29. ágúst 1981
VÍSIR
Jónatan Gar&arson skrifar:
BLACK UHURU
fremur
rokk
Þá er enn einu sinni að vænta
erlendrar heimsóknar á popp-
grundir okkar og er það breska
hljómsveitin Fall sem ætlar að
seðja hungraöa rokkgeggjara
að þessu sinni.
F’all er frá borg-
inni Manchester i norðurhluta
Bretlands eins og Any Trouble,
sem voru hér á ferð fyrir nokkr-
um mánuðum. bað er vonandi
aö Fall fái fleiri hljómleikagesti
en Any Trouble gerðu, þvi til
þess er jú leikurinn gerður aö
fólk komi að hlusta á meðlimina
leika tónlistina i eigin persónu.
Frá Manchester
Þaö er i rauninni undarlegt að
tvær hljómsveitir frá sömu borg
heimsæki okkur með nokkurra
mánaða millibili, þvi það eru
engin önnur tengsl milli þessara
heimsókna. Clive Gregson git-
arleikari Any Trouble tjáði
reyndar Helgarpoppinu að
margt væri likt með Islandi og
Manchester. Landslagið væri
svipað, hrjóstrugt og fjalllent,
en varla eru þessar hljómsveitir
að sækjast eftir náttúruskoðun
einni saman. Fall er i hópi
þeirra hljómsveita sem njóta
mikillar „neðanjarðar hylli”.
Hljómsveitin leikur hrátt rokk
með beinskeyttum textum. Það
má þó búast við að boðskapur
Fall komist illa til skila þvi
Mark E. Smith söngvari og for-
sprakki hljómsveitarinnar
syngur á mállýsku sem kennd
er vib Manchester. Mállyska
þessi þykir illskiljanleg i Eng-
landi hvað þá utan landsins. Það
er bara um að gera aö „fila”
músikina enda er það eitt af
boðorðum hljómsveitarinnar.
Tíö mannaskipti
Fall hefur gengið erfiðlega að
halda á mannskap og eru þeir
Mark E. Smith og Mark Riiey
þeir einu sem verið hafa i
hljómsveitinni frá upphafi, eða
frá áramótum 1976/77. Þeir
tveir eru þvi aðal málpipur
hljómsveitarinnar. Samkvæmt
öllu verður Fall skipuð Steve
Hanley (bassi, gitar, söngur),
bróður hans Paul Hanley
(trommur) og Craig Scanton
(gitar, pianó) auk þeirra Smith
og Riley, er hljómsveitin kemur
hingað til lands. Fyrir skömmu
mun þó Karl Burns, fyrsti
trommari Fall hafa hlaupið i
skarðið fyrir Paul Hanley, er
þljómsveitin var a ferð um Evr-
ópu.
Naflaskoðun
Af vinsældakosningum breska
poppritsins Zig Zag má glöggt
ráða að Fall njóta hylli þeirra
sem ekki hlusta á svokaliað
„skallapopp”. Hljómsveitin og
plötur hennar eru jafnan ofar-
lega á blaði i kosningum þessum
og á vinsældalistum „óháðu út-
gáfufyrirtækjanna”. Það er
Rough Trade útgáfan sem gefur
út plötur Fall en það fyrirtæki
mun vera stærsta óháða útgáfan
i Bretlandi um þessar mundir.
Með orðunum „óháðu útgáfu-
fyrirtæki” er átt við að þessi
fyrirtæki láta ekki dreiía plöt-
um sinum hjá risunum EMI,
CBS, WEA o.s.frv. Meðlimir
Fall segjast reyndar vera eins-
konar hryðjuverkamenn svo
vitnað sé i viðtal við Mark
Smith: „Staða the Fall er svip-
uð þeirri sem sá maður væri i
sem ritaði bók um það hve bæk-
ur eru ónauðsynlegar og það er
vægast sagt mjög óörugg
staða”. Fall er þvi i rauninni
mjög pólitisk hljómsveit og
segjast meðlimir hennar meðal
annars berjast gegn þeirri blóð-
mjólkun sem þeir telja útgáfu-
fyrirtækin stunda á listamönn-
um. Þeir gagnrýna ýmislegt
annað s.s. þjóðfélagslega stöðu
almennings i Bretlandi, stjórn-
arfarið og fleira.
Grófur hljómur
Fall hefur gefið út nokkrar
plötur ogi fyrstunni reyndu þeir
aö láta þær hljóma likt og tón-
leika sina. Hrár hljómur var
allsráðandi en með nýjustu plöt-
unni Slater hal'a þeir horfið
nokkuð frá þessári stefnu. Um
þetta segir Smith m.a. „Ég er
mjög hrifinn af hrárri vinnslu
og maður verður að leggja hart
að sér til að nl grófleikanum
fram. Nú virðast margar hljóm-
sveitir vera farnar að byggja á
grófa hljóminum og þess vegna
höfum við i rauninni horfið að-
eins af þeirri braut.”
Hljómsveitin Fall kemur til
með að leika á þremur tónleik-
um hér á landi og verða þeir
fyrstu á Hótel Borg miðviku-
daginn 9. september. Aðrir tón-
leikar Fall verða siðan 10. sept-
ember og að endingu heldur
hljómsveitin tónleika i Austur-
bæjarbiói laugardaginn 12.
september. bað er Fálkinn sem
stendur að hingað komu Fall og
fer forsala miða fram i verslun-
um Fálkans.
Það verður athyglisvert að
heyra hvernig Fall rokkið
hljómar á tónleikum.
— jg
Black Uhuru — Red
Island ILPS 9625
Black Uuru hefur verið spáð
miklum frama og menn tala
jafnvel um aö hljómsveitin
muni taka við þar sem Marley
lagöi niður reggaefánann mikla.
Slikir dómar eru ætið vafasamir
enda á timinn eftir aö leiða fram
foringja reggae listamanna, að
Marley föllnum. Þetta gefur
samt til kynna hversu góö plata
Red er. Robbie Shakespeare og
Sly Dunbar tryggja undirleikinn
og þar fara þaulreyndir kappar.
Þau Michael Pose, Puma og
Duckie Simpson sem skipa
Black Uhuru annast sönginn al-
geriega. „Jah” og ástandið i
Bretlandi eru a&alviðfangsefni
textanna og undrar það mann
ekki. Þetta eru jú tveir megin-
þættirnir í lifi breskra
biökkumanna sem aðhyllast
rasta trúnna. Textarnir komast
ekki i hálfkvisti við þaö besta
sem Marley gerði Lögin eru á-
gætlega saman sett og vinnur
platan mjög vel á viö hverja
hlustun.
7,5
Bob Dylan — Shotof Love
CBS 85 178
Við hverju búast menn af Dyl-
an eftir tvær hailelúja plötur
sem ekki féllu i góðan jaröveg?
Dylan hefur ekki alveg sagt
skilið við trúna en hann syngur
um þetta hugöarefni sitt á mun
betri hátt núna en áöur. Text-
arnir eru beinskeyttari og meiri
broddur i þeim heldur en ég
bjóst við. Dylan gagnrýnir t.d.
þá sem brugðust harðast við
trúarboðskap hans á síðustu
tveimur plötum i laginu Pro-
perty of Jesus. Perla plötunnar
er lagið Lenny Bruce en þar
syngur Dylan á einkar næman
hátt um meistara grínistanna,
manninn sem sá hiö fyndna við
lifiö og breyskleika mannanna
og varð aö þola fyrir það.
Hljóöfæraleikur er allur ein-
faldur og gó&ur og hafa lögin
verið leikin svotil beint inn.
Þessi plata Dylan cr skref uppá-
við eftir nokkra lægö.