Vísir - 29.08.1981, Qupperneq 23
Laugardagur 29. ágúst 1981
Sigauna-
lif
Jasper Smith,
sigauni i Eng*
landi, segir frá
Dagurinn byrjar kl. 7, þá vakna
ég i rúminu minu viö hliöina á
Priscillu konunni minni, eins og
ég hef gert i 33 ár. Ég borða aldrei
morgunmat. Þegar ég er kominn
á fætur rölti ég um húsvagna-
svæðið og kjafta við fólkið. Þrir
synir minir búa meö konum og
börnum á næsta stig. Við tölum
um svæðið, hversu lengi það fái
að vera i friöi og hvort við fáum
einhvern timann alvöru klósett.
Eins og stendur notum við kemisk
klósett. Einu sinni i viku förum
við i almenningsböð eða fyllum
gamalt baðker meö vatni.
rWEIMZ
verðlistinn fyrir haust- og vetrartísku 1981/82
kominn, verð kr. 35.- gjafalistinn fylgir.
Pantið símleiðis í síma 96-24132 eða
skriflega í pósthólf 78l/ 602 Akureyri
Nafn
Götuheiti
Póstnr. Staðarheiti.
Flesta daga keyri ég til annarra
vagnsvæða, þau eru 12 hér i Surr-
ey sem eru leyfð og um 20 óleyfi-
leg. Stjórnin er aö reyna að út-
rýma þeim. Sigaunar hafa i raun-
inni engan löglegan samastað,
þeir eru aðeins löglegir þegar
þeir eru á ferðinni.
Héraðsstjórnin borgar mér 36
pund á viku fyrir aö vera tengill
milli hennar og sigaunanna, en
það er erfitt starf. Mér er ekki
sýnd sú virðing sem forsvars-
maðurinn ætti að njóta, samt
reyni ég að sjá til þess að við njót-
um réttlætis. Ég hef verið fyrir
rétti ótal sinnum fyrir hönd
sigauna sem hafa gist á ólögleg-
um stöðum.
Sigaunalögin frá árinu 1968
breyttu mörgu til góðs. Héraðs-
stjórnir voru skyldaöar til að sjá
okkur fyrir vagnsvæöum, þó
margar þeirra létu biða eftir slik-
um svæðum. Stærsta svæðið sem
er ólöglegt er hér i Surrey, þar
eru 45 vagnar.
Ein þriggja dætra minna býr
skammt frá okkur, hún fór þang-
að með manninum sinum. Si-
gaunar gifta sig raunar ekki, þeir
bara búa saman. Ég hef aldrei
gifst konunni minni — þetta eru
okkar siðir, það er allt og sumt.
Suma daga leik ég golf. Á
kvöldin biður alltaf matur eftir
mér heima. Eftir kvöldmatinn
horfum við á sjónvarp eöa bara
syngjum og segjum sögur um-
hverfis eldinn. Eldar eru ólögleg-
ir en enginn skiptir sér af þeim ef
þeir eru litlir. En þaö sem mér
finnst mest gaman er að tala við
fólk —- sigaunum leiðist aldrei,
þeir hafa hvor annan að rabba
við. Þú finnur enga sigaunakonu
á taugapillum get ég sagt þér —
það eru bara konur sem eru alein-
ar allan daginn sem þurfa svo-
leiðis. Og við höfum alltaf tima til
að kjafta saman, enda eru fæst
okkar i fastri vinnu. 1 þessu
héraði er enga landbúnaðarvinnu
að fá, allt orðið vélvætt. Verk-
smiðjurnar vilja ekki ráða okkur
af þvi við búum i vögnum. Ég hef
25 pund á viku fyrir að sjá um
vagnsvæðið og svo tengil-launin.
Flestir aðrir hér eru á atvinnu-
leysisbótum.
örfá okkar búa enn til hluti úr
tré, t.d. þvottaklemmur, eins og i
gamla daga, en það gengur illa að
selja það, fólk vill hafa allt úr
plasti nú orðið. En bróðir minn
fer um og brýnir hnifa. Sum okk-
ar safna brotajárni og selja.
Yngsta dóttir min fer i skóla i
næsta þorpi og kann að lesa og
skrifa. Fæst okkar geta það. Mér
er alveg sama, ég er ekki viss
hvort menntun er einhvers virði.
Við þurfum ekki á sliku að halda
og ef enginn kann aö lesa og
skrifa þá getur heldur enginn búið
til atómsprengju. Og við þurfum
enga lækna, við björgum okkur
sjálf og erum engum háð. Við get-
um lika alltaf tekið saman pjögg-
ur okkar og farið — ég á ekki einn
einasta hlut sem ég gæti ekki selt
á morgun ef þess þyrfti.
Við erum kristin, flest okkar.
Ég varð kristinn mjög ungur,
pabbi var að lemja mig og ég bað
Jesús að hjálpa mér og hann kom.
Ég skildi það ekki. Jesús var
Sigauni lika skal ég segja þér,
hann var vanur að betla mat og
húsnæði alveg eins og við gerum.
(Þýtt úr The Sunday Times, Ms)
ADl'DAS I ÚRSUTUM .
Bikarkepprn K.S.Í.
Fram - Í.BV.
Laugardalsvöllur
á morgun sunnudag kl. 15.30
lið FRAM og Í.B.V. nota eingöngu Adidas íþróttafatnað
adidas
„Adidas liö“
Valur, íslandsmeistarar 1980
Fram, Bikarmeistarar 1980
Í.B.V., islandsmeistarar 1979
Akranes, meistaraflokkur
K.R., meistaraflokkur
Breiðablik, meistaraflokkur
Landslið íslands í knattspyrnu
auk fjölda annarra keppnisliða
leika á Adidas
knattspyrnuskóm.
Adidas vekur athygli á þeim f jöl-
breyttu iþróttavörum sem fyrirtækið
framleiðir
og notið hafa feikilégra vinsælda um allan
heim, jafnvel svo, að ekki hef ur verið hægt að
anna eftirspurn.
T.d. framleiðir Adidas 210 gerðir af iþrótta-
skóm — 270.000 pör á dag.
Auk þess allskonar íþróttabúninga, æflnga-
galla, sportfatnað, bolta, íþrótta- og æfinga-
töskur.
Adidas íþróttavörúr fást í nær öllum stærstu
iþróttavöruverslunum landsins.
adidas
Adidas og Vísir:
Undanfarna 14 mánuði hafa
Adidas og Dagbl. Visir
tilnefnt íþróttamann mánaðarins.
Þeir eru:
Arthúr Bogason, I.B.A.
Skúli Öskarsson, Ú.Í.A. tvisvar
Bjarni Friðriksson, Ármanni
Þorbergur Aðalsteinsson,
Víkingi
ólafur Benediktsson, Val
Ingiþór Jónsson, í.A.
Jón Sigurðsson, K.R.
Þórdís Gísladóttir, I.R.
Hannes Eyvindsson, G.R.
Oddur Sigurðsson, K.R.
Arnór Pétursson, i.F.R.
Sigurgeir T. Sigurðsson K.R.
Ragnar Olafsson, G.R.