Vísir - 04.09.1981, Side 9

Vísir - 04.09.1981, Side 9
Föstudagur 4. september 1981 9 Sala á gosdrykkjum með sakkarini eða cyklamaU er háð reglugerð t blaði yðar 31. ágúst á bls 13 erfrétt um bann á eins lltra Diet Pepsi-Cola og viðtal við Ragnar Birgisson forstjóra Sanitas h.f., sem Heilbrigöiseftirlit ríkisins gerireftirfarandi athugasemdir við og óskar að birtar verði i blaði yðar. Það er rangt að Heilbrigðis- eftirlit rikisins hafi bannað framleiðslu og sölu á eins litra Diet Pqisi-Cola. Hið sanna er, að um framleiöslu og sölu gos- drykkja sem í er bætt aukaefn- um og gervisykrunginum sakkarini eöa cyklamati, gildir reglugerð Heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins frá 26. mai' 1981 nr. 283 en samkvæmt henni skal hámarksstærð iláta vera 0.30 litrar. Þetta ætti for- stjóranúm að vera fullkunnugt um vegna þess þáttar sem hann átti að gerð reglugerðarinnar auk þess sem ráðuneytið hafn- aði siðan sérstakri beiðni Sani- tas h.f. um timabundna und- anþágu frá umræddu hámarks- ákvæði reglugeröarinnar. Sumir aldurshópar við- kvæmari en aðrir Að sjálfsögöu er ákvæðið um hámarksstærð Iláta til komið vegna meintrar skaðsemi cylkamats og sakkarins, þ.e.a.s. krabbameinshættu og hafi það fariö fram hjá ein- hverjum, gegna heilbrigðisyfir- völd m.a. þvi hlutverki lögum samkvæmt að setja reglur um notkun eða banna notkun hvers konar aukefna i matvæhim eða öðrum neysluvörum þannig aö eNileg neysla skaði ekki heilsu fólks. í þvf sambandi ber að taka sérstakt tiUit til þess að sumir aldurshópar eru viö- kvæmari en aðrir og ráða stund- um ekki sjálfir mataræði sinu eins og t.d. börn og gamalmenni eöa vegna sér þarfa eins og t.d. sykursjúkra. Neysluvenjur skipta og verulegu máli og er ástæða til að benda sérstaklega á neyslu- venjur barna og unglinga, sem nærastmikið ágosdrykkjum og sælgæti á meðan á skólagöngu stendur. Skiptir hér verulegu máli hvort drukknir eru gos- drykkir með eða án cyklamats eða sakkarfni sérstaklega ef siðarnefndu gosdrykkirnir eru alls ekki ætlaöir börnum eöa unglingum og hvenær gæta börn og unglingar hófs i gosdrykkja- þambi? Þannig hafa heilbrigðisyfir- völd við gerð reglna um notkun sakkarins og cyklamats i gos- drykki ákveöið leyfilegt há- marksmagn þessara efna ann- ars vegar fyrir almenna neyslu og hins vegar með sérstöku til- liti til sérþarfa sykursýkissjúk- linga. Hvað cyklamat varöar hefur Alþjóöa Staölaskrár- nefndin (Codex Alimentarius) lagt til að miðað verði við 0—4 mg/kg likamsþunga af efninu sem hámark leyfilegrar dags- neyslu (allowable dayly intake, ADD ef efnið er leyft til iWönd- unar matvæla eða annarra neysluvara. Hefur mið verið tekið af þessu viðákvörðun há- marksmagns cyklamats i gos- drykki sem ætlaöir eru til al- mennrar neyslu þ.e.a.s. mesta leyfilega magn er 200 mg/kg af gosdrykk. Hámarksmagn sakkarfns er 125 mg/kg af gos- drykk. Fullyrðingar um skað- leysi cyklamats rangar Skylt er að merkja umbúðir meö magni og tegund gervi- sykrungs auk þess sem sérstakt tillit er tekiö til sykursjúkra þannig að á umbúöir er skylt aö merkja ,,ekki ætlað sykursjúk- um”efsykrier blandaö saman viö gosdrykkina. Með sérstöku tilliti til sykur- sjúkra hefur ráðuneytið heimil- að fblöndun cyklamats I nær átt- földu ráðlögðu hámarksmagni eða 1600 mg/kg gosdrykks, sem þýðiriraun að drykkurinn getur ekki verið ætlaður öðrum en mjög sjúku fólkienda er I þessu tilviki einnig bannaö að blanda sykri saman við cyklamat i gos- drykki og skal merkja umbúðir sérstaklega „ætlaö sykursjúk- um” auk leyfilegs hámarks- magns cyklamats i mg/kg gos- drykks. Ekki er leyfilegt að blanda saman cyklamati og. sakkarini i gosdrykki. Af ofangreindu má sjá að full- yröingar fwstjóra Sanitas h.f. um skaðleysi cyklamats eru bæði rangar og villandiauk þess sem það er út I hött að ætla i þessu efni að vinsældir Diet Pepsi-Cola eða traust á hófsemi fólks í neyslu gosdrykkjarins ráði einhverju hér um. Eftir þvi sem næst verður komist munu gosdrykkjafram- leiöendur eingöngu ætla að nota cyklamat sem gervisætuefni en ekki sakkarin. Hvers eiga almennir neytendur að gjalda? Þá hefur það vakiö furðu Heil- brigöiseftirlits rikisins að fram- leiöendur viröast eingöngu ætla að framleiöa gosdrykki með iblöndun cyklamats i magni, sem eingöngu er ætlaö sykur- sjúkum þ.e.a.s. meö hámarks- iblöndun 1600 mg/kg gosdrykkj- ar þótt það sé i sjálfu sér mjög svo þakkarvert með tilliti til þessa sjúklingahóps. Fær stofn- unin ekki skilið hvernig þrir framleiðendur geta staðið að þessari framleiðslu rekstrar- lega séð fyrir ekki stærri mark- að en um er að ræða án þess að hún sé á nokkurn hátt að blanda sér i eitthvert gosdrykkjastriö. Hins vegar er eðlilegt aö spyrja, hvers þeir almennu neytendur eiga að gjalda sem lagt hafa trúnað á yfirlýsingar sumra um ágæti þessara drykkja til varn- ar tannskemmdum, offitu, há- þrýstingi, æöakölkun og jafnvel hjartasiagi, en eiga svo ekki kost á aö fá þessar guöaveigar? Merkingar bágbornar Umbúðarmerkingar öl- og gosdrykkjaframleiðenda hafa fram að þessu verið fremur bágbornar þrátt fyrir skýr ákvæöi i reglugerð nr. 250 frá 1976 þar um. M eð hliös jó n af þvi og sérstaklega vegna áður- nefndra nvrra reelna nr. Hrafn V. Friöriksson, dr. med. forstöðumaður HeíIbrigðíseftirlíts ríkis- ins hefur sent blaðinu meðfylgjandi grein til birtingar í tilefni fréttar Vísis um bann við sölu á eins lítra Diet Pepsi-Cola og ummæla forstjóra Sanitas um það mál. Fyrirsögn og millifyrir- sagnir eru blaðsins. 283/1981 um umbúðamerkingar á gosdrykkjum sem i er blandaö aukefnunum og gervisykrungn- um sakkariniog cyklamathefur Heilbrigðiseftirlit rikisins ný- verið rætt sérstaklega viö framleiðendur og/eöa sent þeim erindi þar að hltandi og þeir fengiö af hálfu stcfnunarinnar hæfilegan ablögunartima þann- ig að fullnægjandi umbúöa- merkingar verði teknar upp hjá flestum þeirra i byrjun nóvem- ber n.k. i siðasta lagi, samtímis sem eldri umbúöir/umbúða- merkingar verði smáttog smátt teknar úr notkun. Með hliösjón af framansögðu er e.t.v. einnig ástæða til að athuga hvort ekki sé timabært að settar séu sér- stakar reglur um framleiöslu, merkingu, dreifingu og sölu matvæla og annarra neysluvara sem ætlaðar eru sykursjúkum sérstaklega. Styöja endurreisn Hðlastaðar fyrir kirkjulega miðstöð á Norðurlandi Fjóröungsráð Norðlendinga styður þá tillögu, ab komið verði upp á Hðlastað kirkjulegri menn- ingarmiðstöö, segir i tillögu sem liggur fyrir Fjórðungsþingi Norð- lendinga, sem hófst á Húsavik i gaer. I tillögunni er jafnframt lögð áhersla á timamót i sögu Hóia á næsta ári og sé þvi vel við hæfi að hefja þá undirbúning að endur- reisn staðarins sem kirkjulegrar miðstöðvar fyrir Noröurland. G.S./Akureyri. Vilja efla héraðs- dömstólana í stað fyrírhugaðrar Iðgróttu í Reykjavík „Fjórðungsþingið leggur til við Alþingi, að frumvarp til lögréttulaga verði eigi að lögum. Þess i stað leggur þingið eindregið til við rikisstjórn og Alþingi að héraðsdómstólar landsins verði efldir með bættri aðstöðu og jafnframt auknu löglærðu starfsliði i samráði við hlutaðeigandi héraðs- dómara”, segir i tillögu fjórðungsráðs, sem kemur til afgreiðslu á Fjórð- ungsþingi Norðlendinga. breytni verði ekki til þess að greiðslu þeirra öruggari en nú er. hraða dómsmálum eða gera af- GS/Akureyri Mótmæla harðlega niður- skurði á starfsstyrkjum í frumvarpi til lögréttulaga er gert ráð fyrir nýju dómstigi, lögréttu, sem ætlað er að koma i staðhéraðs- dóms i flestum veiga- miklum málaflokkum. Á lögrettan að hafa að- setur i Reykjavik. 1 tillögu fjóröungsráðs er bent á, að með slikri tilfærslu i dóms- kerfinu muni draga verulega úr lögfræðilegri þjónustu utan Reykjavikursvæðisins, sem leiði af sér kostnaðarauka fyrir ibúa dreifbýlisins. Jafnframt kemur fram i tillögunni, að þessi ný- Sú ákvörðun stjórnar Fram- kvæmdastofunar rfkisins, að skerða starfsstyrk byggðasjóðs til iandshlutasamtaka sveitarfé- laga um fjórðung, er harðlega gagnrýnd I tillögu fjórðungsráðs, sem liggur fyrir Fjórðungsþingi Norðlendinga á Húsavik. t tillögunni er minnt á, að Fjórðungssamband Norðlendinga hafi alla tið, siðan greiðsla starfs- styrksins hófst, haft starfsmann i þjónustu sinni, sem unnib hefur að áætlunarverkefnum 1 sam- starfi við byggðadeild. Meö hlið- sjón af þvi telur ráðið óeðlilegt að niðurskurðurinn skuli ná jafnt til Sambandsins og þeirra lands- hlutasamtaka, sem ekki hafa not- að starfsstyrkinn með þessum hætti. „Það er þvi krafa Fjórð- ungsþingsins að þetta misrétti verði leiðrétt þegar”, segir f til- lögunni. GS/Akureyri

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.