Vísir


Vísir - 10.09.1981, Qupperneq 5

Vísir - 10.09.1981, Qupperneq 5
New York- búar strand í lyftum og lestum, beg- ar rafmagn- ið bilaði Hundrub þúsunda New York- búa urðu að þramma heim úr vinnu í Manhattan i gærkvöldi, eftir að rafmagnið fór af í bilun. Sprenging varð i neðanjarðar- járnbrautarstöð og rofnaði raf- straumurinn, svo að rafmagns- laust var i f jóra og hálfa klukku- stund. — Hundruð manna sátu allan þann tima fastir i lyftum, þar sem þær höfðu stöðvast vegna rafmagnsleysis. Nóbelsverðlauna- haflnn genglnn í hjónaband MaireadCorrigan.sem ásamt stallsystur sinni hlaut friðar- verðlaun Nobels 1976 fyrir stofnun friðarhreyfingarinnar á N-Irlandi, gekk i vikunni I hjónaband með mági sínum, Jackie Maguire, og fór vigslan fram i' kyrrþey. Friðarhreyfing þeirra Mairead og Betty Williams spratt upp úr átakanlegu slysi, þegar þrjú börn önnu Maguire, systur Maireads, fórust. Þau urðu fyrir flóttabifreið IRA- manna, sem breskir hermann eltu og skutu á. Móðurinni, önnu, varð svo mikið um, að hún beið aldrei bætur á sálu sinni, og fyrirfór sér i janúar siðasta vetur. — Mairead tók við eftirlifandi börnum hennar og Jackie Maguire, en þau eru tvö. Um Betty Williams er það að segja, að þær stallsystur héldu fyrst i stað áfram starfi i friðar- hreyfingunni eftir úthlutun Nó- belslaunanna og hafði Mairead lýst þvi yfir, að verðlaunin mundu renna i sjóði hreyfingar- innar. Siðan kom upp misklið og lauk svo, að Williams flutti al- farið frá N-lrlandi til Banda- rikjanna og hafði með sér sinn hluta verðlaunanna. Hefur ekki Mairead Corrigan borið á henni siðan. Mairead Corrigan var meðal sex Nóbelsverðlaunahafa (friðarverðlauna), sem skrifuðu Brezhnev á dögunu áskorunar- bréf, þar sem mælst var til þess, að Sakharov yrði leyft að snúa heim aftur til Moskvu úr útlegð- inni i Gorky. Skálmðld St jórnarhermenn Uganda drápu 18 manns, þegar þeir i þrjá daga (siðustu helgi) fóru hamför- um i þorpinu Wakiso vestur af Kampala. — I hópi hinna myrtu var 10 ára telpa, sem hermenn- irnir höfðu áður hópnauðgað. Þorpsbúar segja, að hermenn- irnir hafi farið á mánudag eftir að þeir höfðu nauðgað nokkrum þorpskonum, svalað drápsfýsn sinni á karlmönnum og þá þar á meöal 65 ára gömlum sóknar- prestinum, sem þeir skutu, þegar hann teymdi mjólkurkú sina á leiö i haga. Fólkið á þessum slóöum hafði komið frá sér fréttum strax á sunnudag af þvi,að stjórnarher- menn gengju þar um myrðandi. Fréttamenn komust þó ekki á staðinn fyrr en i gær, þvi að lög- reglan varnaði mönnum vegarins í uganda vegna hættunnar. ; Þorpsbúar segjd, að djöful- gangurinn hafi býrjað á föstu- dagskvöld, þegar tveir her- mannahópar skiptust á skotum eftir einhverja innbyrðis misklið. Þar á eftir gengu hermennirnir hús úr húsi skjótandi á allt kvikt. Æði oft hafa borist fréttir af gripdeildum og morðárásum stjórnarhermanna á óbreytta borgara og varnarlitla i Uganda. Siðast um mánaðarnótin sló i skotbardaga milli lögreglu og hermannahóps, sem fór ráns- hendi um eitt ibúðahverfi i höfuð- borginni, Kampala. Milton Obote, forseti Uganda, hefur heitið þvi að binda endi á þessa skálmöld, en allt frá þvi að herlið Tansaniu, sem hrakti Idi Amin úr landi 1979, sneri heim frá Uganda i júni, hefur lögleysan rikt. Þannig getur New York litið út aö kvöldlagi — Pegar nun nytur ratmagns vio. Rétt undir sólsetur komst raf- magnið á aftur. Lögreglan segir, aö ekki hafi samt borið á grip- deildum og ryskingum, eins og siðast þegar borgin myrkvaðist i rafmagnsleysi, sem var i júli 1977, en þá var ekki rafstraumi hleypt á aftur fyrr en daginn eftir. Edison-fyrirtækið, sem annast raforkusölu til borgarinnar, segir að rafmagnsleysið hafi snert 50 þúsund kaupendur i Suður-Man- hattan. En þeir voru lika flestir i fjölbýlishúsum og verslunarhús- næði, svo að fleiri urðu fyrir barð- inu á rafmagnsbiluninni. Eldur kom upp eftir sprenging- una i neðanjarðarjárnbrautar- stöðinni, og tók það slökkviliðið tvær stundir að ráða niðurlögum hans. í ljós þykirkomið, að þarna i hafi ekki veriö um ikveikju af mannavöldum aö ræða. Fjöldi neöanjarðarlesta stöðvaðist niðri i göngunum og margir máttu dúsa þar niöri, þar til rafmagnið kom aftur. Slökkvi- lið og lögregla bjargaði um 300 manns út úr stöðvuðum lyftum. A hverju götuhorni tóku lögreglu- menn sér stöðu til að stjóma um- ferðinni, eftir að slokknaði á götu- vitum, en i neðra Manhattan gekk bilaumferðin samt hægar en hjá fótgangandi. Brugga prinsessunni hanaráð Iranskur kaupmaður i Los Angeles hefur verið ákærður um að bjóða 250 þúsund dollara til höfuðs Ashraf prinsessu, tvibura- systur íranskeisara heitins. Mohammad AliAlikhani, sem á og rekur sjónvarpstækjaverslun i útjaðri Los Angeles, er sagður hafa fært i tal við einn viðskipta- vina verslunarinnar, hvort mögu- leiki væri á þvi að fá prinsessuna ráöna af dögum. 250 þúsund Eining færir sig upp á skaftið Fyrri hluta fyrsta landsþings Einingar, samtaka óháðra verka- lýösfélaga i' Póllandi, lýkur í dag og var ekki aö sjá neinn bilbug á þingfulltrúum, þrátt fyrir skammardemburnar,sem yfir þá hafa dunið frá kommúnistafor- ystunni, bæði i Moskvu og Varsjá. Yfirvöld i Varsjá saka Einingu um að hlutast i málefni annarra austantjaldslanda (með stuðn- ingsyfirlýsingunni við verka- menn annarra kommúnista- landa) og Moskva segir, aö lands- þingið sé samkoma gagnbylt- ingarsinna, andsósialiskra. Eining hefur hvatt verkafólk annarra austantjaldsrikja til þess að stofna verkalýössamtök, óháð kommúnistaflokknum. Samtökin hafa einnig skoraö á landsstjórn- ina að efna til þjóðaratkvæðis um hlutdeild verkalýðs I stjórnun fyrirtækja. Og nd liggur fyrir ályktunartillaga um að skora á stjórnvöld aö efna til frjálsra þingkosninga, þar sem öllum sé frjálst að bjóða fram, en ekki bara þeim, sem kommúnista- flokkurinn leggur blessun sina yfir. Siðari hluti landsþingsins hefst 26. september og er búist við þvi, að þingsetar sem eru fulltrúar nær 10 milljón Pólverja, gerist jafnvel enn djarfmæltari þá. A dagskrá veröa þá efnahagsmál, félagsmál og kosning forystu- manna. dollarar væru i boði fyrir þann, New York, en á sér einnig heimili sem það vildi taka að sér. i Santa Barbara (112 km norð- Prinsessan dvelur lengstum i vestur af Los Angeles). adidas ^ Adidas Osló kuldajakkar Stæröir: 46-54 Litir: Svart, dökkblátt Verö 494,- Adidas Schulsport Stæröir: 33-46 Litur Blátt Adidas frottefróöraöir jakkar Litir: Blátt — vinrautt — blátt/rautt Stæröir: 140-176 Verö 356,- Stæröir: 46-54 Verö 386.- Stæröir: 36-47 Verö 309.- Adidas Indoor Super Litur: Hvitt/ blátt rautt Verö: 189 Póstsendum.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.