Vísir - 21.09.1981, Blaðsíða 12

Vísir - 21.09.1981, Blaðsíða 12
Scarsdale-megrunarmatseðiilinn: Megrunarkurinn sem léttir Dig um brjú og hálft kíló á viku Flest erum viö þannig af Guöi gerö likamlega, aö viö veröum aö staldra viö ööru hvoru, hverfa frá kruöerfi og kræsingum og segja hingaö og ekki lengra. Sjaldnast er staldraö viö fyrr en tölurnar á vigtinni íbvigja sálinni og margföld björgunarbelti sitja föst um likamann miÖjan. Þá er þaö EMMIÐ stóra, megrun. Margþvælt orö sem I eyrum margra minnir á slendurteknar misheppnaöar aögerö- ir eöa tilraunir. En oröiö sem byrjar á EMM.. hljómar lika sem sig- urmars I eyrum þeirra sem voru staöfastir hér um áriö fræga, þeg- ar þeir köstuöu björgunarbeltunum út á hafsauga. Einn heimilisvinur fjölskyldusiöunnar leit inn og kvaö tlma vera kominn til aö koma á framfæri einum aldeilis frábærum bandarisk- um megrunarkúr, sem kenndur er viö SCARSDALE. A fingrum sér taldi heimilisvinurinn upp aöra „heimilisvini” sem sannreynt höföu kúrinn og árangurlnn væri hvorki meira né minna — þrjú og hálft kiló ... 3,5 kg á viku. Stórkostlegur árangur. Akváöum viö aö láta Scarsdale-matseöilinn koma I staö matseöils heimilisins þessa viku. Ekki leggjum viö mat á læknisfræöilegu hliö málsins, hverjir geti fylgt þessum megrunarmatseöli næstu tvær vikurnar og hverjir ekki, þaö mat veröur aö vera I höndum viökom- andi aöila og þeirra lækna. Fyrir þá sem eru tilbúnir lyftum viö tónsprotanum og sigurmars- inn hefur göngu sina — megrunarmatseðill næstu tvær vikur. Til þess aö sá árangur náist þarftu að fylgja matseölinum út i æsar og þú mátt engu breyta og helst engu sleppa. Þú mátt borða eins og þú vilt af þvi sem kúrnum tilheyrir þó án þess að þenja þig út. Boröaöu jafnan rólega og tyggöu vel. — Þú mátt drekka sykurlausa drykki, kaffi og te án mjólkur og sykurs. Ekkert áfengi. — Þaö sem kúrinn gerir er að hann breytir samsetningu fæöunnar þannig að brennsla eykst og verulega er gengiö á fituforða þinn. Venjuleg fæðusamsetning á Vesturlöndum er: 10-15% eggjahvituefni 40-45% fita 40-50% kolvetni. Meö matarkúrnum veröur samsetningin: 43% eggjahvituefni 22.5% fita 34.5% kolvetni. Það er þessi samsetning sem veldur hinum mikla árangri kúrsins. Nokkur undirstööuatriöi og grundvallarreglur verður þú að sætta þig viö áður en lengra er haldið. 1. Aöeins má neyta þess sem getið er I matarkúrnum. Þú skalt ekki blekkja þig meö þvi að boröa eitthvaö i staðinn fyrir þaö sem tilgreint er. 2. ltrekað og endurtekiö. Á- fengir drykkir eru alls ekki leyfðir. 3. Þaö eina sem má drekka er — kaffi — te — vatn og sykur- lausir drykkir. 4. Milli aðalmáltiða má aðeins boröa gulrætur. 5. 011 salöt eiga að vera án oliu, majones og hvers konar „dressing”. Aðeins má nota sitrónur og edik. 6. Grænmeti á að boröa án smjörs, smjörlikis og annarra fituefna. Gott er að nota sitrónu. 7. Allt kjöt á að vera magurt. Skera á burtu alla fitu, og af kjúklingum skal fjarlægja alla húð. 8. Vigtaðu þig á hverjum morgni áöur en þú klæðist og færð þér morgunmat — meö þvi blekkir þú þig ekki. 9. Þessum kúr er æskilegt að fylgja i Tvær vikur þá missir þú 7 — sjö kiló. Morgunveröur báðar vikurnar 1/2 g rapefruit 1 brauösneið, þriggja korna brauð eða soja- brauð, ristaö brauðsneiðin snædd án nokkurs áleggs eða fitu svart kaffi eða te (auövitaö sykurlaust). Mánudagur: Hádegi: Sneiðar af köldu kjöti, öll fita skorin i burtu. Má vera lamba-, svina- eða kjúklingakjöt. Tómatar skornir i sneiöar. Kaffi, te eða vatn. Kvöldveröur: Fiskur eða rækjur (eða humar) Soðið, grillað eða steikt án fitu, með sitrónu eða ediki. Blandað grænmetissalat Ein brauðsneið, ristuð (3 korna brauð eða sojabrauð) Grapefruit eða annar ávöxtur. Kaffi, te eða vatn. Þriöjudagur Hádegi: Avaxtasalat úr ferskum á- vöxtum eftir eigin vali. Kaffi, te eða vatn. Kvöldverður: Þurrsteikt, magurt nautakjöt gott aö kaupa gullash-kjöt og hakka það. Tómatar, grænt salat, selleri, 4 ólifur, agúrka. Kaffi te eða vatn. MIÐVIKUDAGUR Hádegi: Túnfiskur eöa lax (ef notað er úr dós á að skola vel úr vatni) Grænt salat, sitrónu- eöa ediks- dressing. Grapefruit eða melóna eða annar ávöxtur. Kaffi, te eða vatn. Kvöldverður: Sneiðar af steiktu lambakjöti, öll fita skorin burtu — grænt salat með tómötum, agúrku og selleri. Kaffi, te eða vatn. Fimmtudagur Hádegi: Tvö egg, matreidd eins og þú> vilt en án fitu. Kotasæla, tómat- ar. Ein brauösneiö, ristuö (3 korna eða soja) Kaffi, te eða vatn. Kvöldveröur: kjúklingur, steiktur eða grillaður öll húö fjarlægð. Spínat, grænn pipar, grænar baunir, ferskt eða frosið (fæst i SS) Kaffi, te eða vatn. Föstudagur Hádegi: Ostur eins og þú vilt Spinat, ein brauðsneið, sama brauö og fyrr. Kaffi, te eða vatn. Kvöldverður: Fiskur, salat úr fersku græn- meti. Ein brauösneið, ristuð (sömu brauðtegundir) Kaffi, te eða vatn. Laugardagur Hádegi: Avaxtasalat, ferskir ávextir sem fyrr. Kaffi, te eða vatn. Kvöldverður: Kjúklingur, steiktur eða grillaöur, öll húð fjarlægö. Tómatar og hvitkál. Grapefruit eöa annar ferskur ávöxtur. Kaffi, te eða vatn. Sunnudagur Hádegi: Kjúklingur, heitur eða kaldur — húð fjarlægð. Tómatar, gul- rætur, broccoli eða blómkál. Kaffi, te eða vatn. Kvöldverður: Steikt nautakjöt, öll fita fjar- lægð. Hvitkál, agúrkur, selleri og tómatar. Kaffi, te eða vatn. Þá er öll vikan komin, þetta er siöan endurtekið næstu viku og árangurinn veröur stórkostleg- ur ef ekki er útaf brugöið. En þar sem þessi matseðill kemur ekki fyrir augu lesenda fyrr en mánudagseftirmiðdag, en kúr- inn sjálfur hefst á mánudags- morgni, getið þið hafið kúrinn til dæmis á þriðjudagsmorgni og endað hann á mánudagskvöldi eöa frestað kúrnum um viku. Hvaö sem þiö geriö vonum við að vel gangi, og þætti okkur á- nægjulegt aö heyra um árang- urinn. —ÞB Gamlar gallabuxur orðnar að nýju pilsi. Gamlar gallabuxur: Hýlt plls Þegar gömlu gallabux- urnar eru komnar „úr móð", er stórsnjallt að klippa neðan af þeim og sauma nýtt pils. Byrjið á því að mæla gallabuxurnar, lengdina og f innið hvaða sidd á að vera á pilsinu. merkið með krít og klippið síðan neðan af skálmunum. Sprettið upp saumunum (innanfótar) bæði að aftan og framan, alveg að rennilás að framan. Þá er opið orðið V-laga, öfugt V reyndar. Leggið buxurnar sléttar á borð. Sprettið upp saumum á skálmabútunum, sem klipptir voru neðan af bux- unum. önnur skálmin notuð í framstykki á pilsið og hin í afturstykki. Nælið stykkin á buxurnar og sníðið bútana. Saumið siðan frá rennilás niður að faldi. Á mörgum saumavélum eru skrautspor, saum-sárið er síðan skreytt með ein- hverju slíku eftir smekk eiganda hins nýja pils. u ” ° ÞG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.