Vísir - 13.10.1981, Blaðsíða 2

Vísir - 13.10.1981, Blaðsíða 2
2 Þriöjudagur 13. október 1981 v• Hvernig lýst þér á nýhafið þing? Geir Guögeirsson, mæiinga- maöur: Nokkuö vel. Ég vona, aö þeim takist betur upp i vetur en á siöasta þlngi. Vilhjáimur Kjartansson, bil- stjóri: Ég veit þaö bara ekki. Ekkert sérstaklega. Einar Guömundsson, sjómaöur: Ég get litiö sagt um þaö. er ný- kominn I land, en eitt er vist, aö ég er ekki hrifinn af öllu, sem þeir gera. Björgvin Friöriksson, rafvirki: Nú veit ég ekki. Ég held ég hafi enga skoöun á þvi. Heimir Jónasson, nemi: Þetta veröur eins og alltaf kjaftæöi út i gegn. VÍSIR „Mép bykír stunúum gaman aö gera hættulegar tilraunir í eldamennsku,” segir Guðmundur Gislason er einn þeirra manna, sem af og til hefur skotist inn á Alþingi en hefur þar ekki fasta setu. Hann er vara- þingmaður Framsóknarflokksins I Austurla ndsk jördæmi. Guðmundur býr á Stöövarfirði og hefurverið kaupfélagsstjóri þar i sjö ár. „Hvemig er að vera nokkurs konar lausráðinn þingmaður?” ,,Sé maður á annað borð i stjórnmálum, þá er það ómetan- legt að fá tækifæri til að fylgjast með gangi þjóðmála á þeim stað, þar sem ákvarðanataka fer fram og taka þátt i þvi starfi, þóttekki sé nema annað slagið. Almennir borgarar hafa tækifæri til að fylgjast með umræðum og af- greiðslu mála i þingsal, en sem þingmaður hefur maður tækifæri til að taka þátt i mótun og vinnslu hvers máls, sem aðallega fer fram i nefndum og þingflokks- starfi. Þetta þýðir, að þingmaður fylgist með ferli hvers máls frá upphafi til atkvæðagreiðslu.” „Er hart barist á þingi?” „Vitaskuld eru oft kröftugar umræður um mál, bæði milli flokka og innan flokka. Hins vegar eru innanflokkadeilur oftast leystar eins og kallað er á bak við tjöldin og oftast litur út fyrir að samflokksmenn séu já- bræður við afgreiðslu málanna i þingsal”. ,,Er auðvelt að koma máli i gegnum þingið?” Guðmundur Gíslason varapingmaður hugamálum sinum eða kjckdæm- isins.” Guömundur Gislason, varaþingmaöur og kaupfélagsstjóri a' Stöövarfiröi. „Fyrir varamann er það viss- um annmörkum háð, þar sem starfshættir þingsins gera ráð fyrir ákveðnu ferli, sem tekur nokkuð langan tlma, en yfirleitt er varamaður ekki á þingi nema hálfan mánuð í senn. Þvl er mjög áberandi að þeir noti form þing- sályktunartillögu eða fyrirspurna tilað vekja athygliá tilteknum á- „Hefur þú einhver sérstök á- hugamál sem þingmaður?” „Fyrst og fremst hef ég áhuga á ýmsum landsbyggðarmálefn- um, sérstaklega málum, sem varða jöfnun á aðstöðu þegnanna i hinum ýmsu byggðum. Ég hef h'ka lengi haft áhuga á æskulýðs- og iþróttamálum og umbótum i tryggingamálum Sem dæmi má nefna aukningu á bótamöguleik- um aðstandenda manna, sem farast við störf sin, þvi oft er á- takanlegt að horfa upp á heilu fjölskyldurnar riðlast af slikum sökum.” „Hvað gerir þingmaðurinn og kaupfélagsstjórinn i fritima sin- um?” „Ég reyni nú stundum að vera heima við og sinna fjölskyldunni, en ég er kvæntur og á þrjá syni. En vissulega tekur starfið, svo ekki sé talað um stjórnmála- vafstrið, mikinn tima. Annars á ég mörg áhugamál, mér þykir gaman að gera hættulegar til- raunir i eldamennsku og skrepp stundum á sjó á trillu með hand- færi eða á svartfuglaskyttiri. Skiðamennskunni helga ég nokk- urn tima.þannig að mér gengur vel að fylla út i sólarhringinn. Annars virðistmértakast aðgera flest annað en til stóð i upphafi, þvi að ég er kennaramenntaður.” —gb Friörik Sophusson Yllrlýslng Sverrls Sem alkunna er, iýsti Friörik Sophusson al- þingismaður þvl yfir á fundi þingmanna stjórnarandstööu Sjálf- stæöisflokksins fyrir skömmu, að hann hygöist gefa kost á sér í varafor- mauusembætti flokksins. Sverrir Hermaunsson Ekki sýndu fundarmenn mikil vtóbrögö viðþessari yfirlýsingu og raunar var ekki nema einn Jieirra, sem lét i sér heyra um máliö, það var Sverrir Hcrmannsson, sem stóð upp og kvaöst ætla aö lýsa því yfir, að hann gæfi EKKlkostá sér i embætti varaformanns. Ævar Kjartansson Ævarfékk starfið Tæpl var á þvi I Sand- koriii nýlega, að útvarps- ráð heföi greitt atkvæöi um umsækjendur um stööu dagskrárfulltráa hjá útvarpinu. Fékk Her- mann Kr. Jóhannesson f jögur atkvæöi. en Ævar Kjartansson þrjú. Báöir liöföu þeir starfaö viö rikisútvarpiö, Ævar sem afleysingaþulur og Her- manu sem ritstjóri sjón- varpsdagskrár. útvarps- stjóri hefur nú fellt sinn stóradóm f málinu og skipaö Ævar i starfiö... Vldeú-sðngur i sjónvarpi Sjónvarpsmenn hafa iöngum veriö býsna lunknir i valisinu á þeim lögum, sem leikin eru i iok dagskrár hverju sinni. Einhvcrn timaiiu, eftir afspyrnuleiöiulegan um- ræöuþátt þingmanna,spil- uöu þeir til dæmis: „R okkarn ir e r u þagnaöir...” Og nú siöast á laugardagskvöldið settu þeir undurbliðan video- söng á fóninn. 1 texta hans segir m.a./ „Þar er friður þar er ró, fjölskyldunni plantað níöur, fyrir framan video...” Þrælgott grin hjá sjón- varpiuu. 5% iDúanna I Víkurfréttum er stutt enfróölegt viötalviö ósk- ar Þórmundsson, ranu- sóknarlögreglumann i Kefla vík. í viðtalinu kem- ur glögglega fram, aö fiknicfnaueysla er oröin stórkostlegt vandamál þar syöra. Um þaö segir óskar: ,,í allt eru nú um ^irjú til fjögur hundruö aðilar á skrá”. Það gcrir hvorki meira né minna en 5% af Ibúum Kefiavikur. Þá kemur eiimig fram, aö neytcndurnir eru flest- ir á bilinu 18-25 ára, en nokkur dæmi eru um að unglingar allt niöur I 14 ára neyti óþverrans. Óskar Þórmundsson, rannsóknarlögreglu- maöur. FramDoös- raunlr Umraíðuhópur sá, sem starfaö hefur aö undan- förnu til aö kanna mögu- leikann á framboði kvenna til væntanlegra borgarstjórnakosninga er nú dottiun upp fyrir. Samkvæmt Neista, blaði „byltingarsinnaöra \ kommúnista" var hug-- myndin um kvennafram- boð fyrst sctt fram til aö „striða Alþýðubanda- lagsmönnum”. Sföan var stofnaöur umræöuhópur. Helga Sigurjónsdóttir sem fljótlega tók aö rffast eins og reiðir hanar. Var það vegna hugmynda Hclgu Sigurjónsdóttur, Helgu Kress og Helgu ólafsdóttur um „kvenna- menniugu”. Leystist hópurinn svo upp i miklu „forneinmelsi” og kennir Neisti Helgunum um allt. Segir blaðið Ijóst, að þær vonisttil aö gcta stofnað nýjan umræöuhóp, þegar þær eru lausar við Eylkingarliöiö... Helga Kress

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.