Vísir - 14.10.1981, Page 5
Miðvikudagur 14. október 1981
5
VÍSIR
Schmidl teflir
I sjúkraiegunni
Kanslarlnn fékk gangráð vegna truflana á hjartslættl
Helmut Schmidt, kanslari V-
Þýskalands, gekk undir skurðað-
gerð i gær, þar sem settur var
gangráður i brjóst honum til þess
að stýra hjartslættinum. — Er
vonast til þess að hann geti snúiö
aftur til starfa strax i næstu viku.
Aðgerðin tók ekki nema
klukkustund og var gerð á her-
spitala nærri Koblens. Segja
læknarnir, aö hún hafi tekist vel.
Læknisskoðun hefur leitt i ljós, að
hjartsláttur hins 62 ára gamla
kanslara var óreglulegur, en
gangráðurinn (á stærð við eld-
spýtustokk) stillir hjartsláttinn af
með rafstraumi.
Schmidt sem gegnt hefur kansl-
araembættinu i sjö og hálft ár, sat
að tafli með kanselráðinu, Man-
fred Lahnstein, siðasta hálftim-
ann, áður en hann lagðist á skurð-
arborðið, og hringdi svo sjálfur i
eiginkonu sina, Loki, eftir að-
gerðina, til þess að tilkynna
henni, að allt hefði gengið vel.
Um siðustu helgi var hann við
jarðarför Sadats forseta i Kairó,
en var sagður hafa kvefast i
ferðalaginu.
Schmidt mun gegna einhverj-
um embættisverkum sinum úr
sjúkrahúsinu, en að öðru leyti
mun Hans-Dietrich Genscher, ut-
anrikisráðherra, verða staðgeng-
ill hans. Til þess að stytta sér
stundir i legunni hefur hann óskað
eftir þvi að fá uppgefna leikina i
einvigisskákum þeirra Karpovs
og Korchnois til þess að tefla
skákir þeirra upp.
Hvort skyldi það vera hjartað að
angra kanslarann á þessari
mynd, eða hcimsvandamálin ...
eða bara leikjaröð i skák við
kanselráðið
Walesa tiinefndur
til friðarverðlauna
Norska Nobelsnefndin tilkynnir
i dag, hver hljóta muni friðar-
verðlaun Nóbels þetta árið, en
meðal tilnefndra er Lech Walesa,
leiðtogi „Einingar” i Póllandi.
Hafa aldrei fyrr verið jafn-
margir tilnefndir eða alls 86, en
þeirra á meðal eru Carrington
lávarður og Mugabe, forstætis-
ráðherra Zimbabwe, sænski af-
vopnunarráðherrann, Alva Myr-
dal og Jimmy Carter, fyrrum
Bandarikjaforseti. Einnig var
Hjálpræðisherinn tilnefndur og
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna, en verðlaunin hafa
stundum verið veitt samtökum
eða stofnunum.
Norska Nóbelsnefndin hefur
venjulegast ekki látið uppi nöfn
tilnefndra, en rauf að þessu sinni
þá hefð.
Nú eru 80 ár liðin frá þvi að
verðlaunin voru veitt i fyrsta
sinni. Veröa þau hærri i ár en
nokkru sinni áður, eða 1,7
milljónir króna. Afhending þeirra
fer fram 10. desember, en þá er
dánarafmæli Alfreds Nobels,
eðlisfræðingsins, sem fann upp
dinamitið og lagði grundvöllinn
að Nóbelslaununum með erfða-
skrá sinni.
Willoch tók
við í dag
Hin nýja minnihlutastjórn
Noregs tekur við ráðuneytum sin-
um i dag undir forsæti Kaare
Willoch, leiðtoga Hægriflokksins,
sem i kosningunum i siðasta
mánuði hlaut sitt mesta fylgi frá
þvi 1921, eða 54 þingmenn kjörna.
Rikisstjórn fyrstu konunnar,
sem vermir forsætisráðherrastól
Norðmanna, Gro Harlem Brundt-
land, sagði formlega af sér á
sunnudaginn. Verkamannaflokk-
ur hennar verður áfram stærsti
þingflokkurinn með 65 þingfull-
trúa.
Hinir 36 fulltrúar stórþingsins
skiptast millí Miðflokksins,
Kristilegra demókrata, frjáls-
lyndra og hægri flokka, sem
styðja stjórn Willochs með hlut-
leysi.
SvennStray, hinn nýi utanrikis-
ráöherra, lét eftir sér hafa i viö-
tali við Reuter-fréttastofuna, aö
hin nýja stjórn væri ráðin i að
halda nánum tengslum við
bandalagsrikin i NATO, en þó um
leið góðum grannskap viö Sovét-
rikin.
Stray sagði það skoðun sina, að
Noregur, sem i þjóðaratkvæði
fyrir tiu árum hafnaði aðild að
Efnahagsbandalaginu, ætti að fá
áheyrnaraðild á stefnumótandi
vettvangi innan EBE.
SKálmöld Guatemaia
Tuttugu og sjö manns íundust
myrtir i Guatemala á siðasta sól-
arhring, en um þrjú þúsund
mannshafa látið lifið i hinni póli-
tisku skálmöld, sem rikt hefur i
Guatemala þetta árið.
1 bænum Peten höfðu niu menn
verið sóttir inn á heimili sin,
dregnir út fyrir og skotnir niður
með vélbyssum. Þrettán fundust
skotnir til bana i Quichehéraði,
þair sem stjórnarhermenn hafa
marga hildina háð við skæruliöa
vinstrimanna. Fimm fundust
myrtir I höfuöborginni.
Allt eru þetta fórnardýr i næt-
, urstriði þvi, sem háð er milli
öfgafullra hægrimanna og skæru-
liða vinstri aflanna.
Walesa ásamt dóttur sinni á heimili þeirra I Gdansk
Mubarak fær yfir-
gnæfandl fylgi
Hoshni Mubarak tekur við
embætti Egyptalandsforseta i
dag og er við þvi búist, að hann
muni heita þvi, að egypska
stjórnin munufylgja áfram sömu
friðarstefnunni og fyrirrennari
hans, Anwar Sadat.
Talningin eftir þjóðaratkvæða-
greiösluna i gær er það langt
komin, að ljóst þykir, að hinn 53
ára gamli varaforseti muni hljóta
yfirgnæfandi meirihluta stuðn-
ings þjóöarinnar. — Kairó-blaðið
„Al-Ahran” greindi i morgun frá
tiu bæjum á Nilarsvæðinu, þar
sem Mubarak hafði fengið 100%
atkvæða.
Oryggissveitir landsins halda á
meðan áfram leit sinni að hryðju-
verkamönnum heittrúa mú-
hammeðsmanna, en úr þeirra
hópi voru morðingjar Sadats
forseta. Eftir klukkustundar
skotbardaga við Giza-piramidana
(skammt frá Kairó) i gær tóku
hermenn fimm hryðjuverkamenn
til fanga. Tveggja þeirra hefur
verið leitað eftir átök i bænum
Asyut i siöustu viku.
Tvær sprengjur sprungu á
Kairóflugvelli i gær.
Sportveiði-
menn
haglabyssur
Einhleypur verð frá kr. 1.400.-
Tvíhleypur verð frá kr. 4.600.-
Gæsaskot og rjúpnaskot
/ mjog
miklu
úrvali
Á
Póstsendum
SPORTVAL
J v/Hlemmtorg
Símar 14390 og 26690