Vísir - 22.10.1981, Qupperneq 1
Fimmtudagur 22. október 1981/ 240. tbt. 71. árg.
Vigdis Finnbogadóttir forseti islands og ólafur Noregskonungur ganga til veisl-
unnar í gærkvöldi. Á hæla forsetans kemur Sonja krónprinsessa. (Vísism. GVA)
NorOmenn
störhrifnir
af Vigdísi
Ölafur Noregskonungur hélt Vigdisi Finnboga-
dóttur forseta veislu i konungshöllinni i gær-
kvöldi. Á borðum var norskt elgsdýrskjöt sem
aðalréttur. Þjóðhöfðingjarnir héldu ræður i veisl-
unni sem þótti takast með miklum ágætum. For-
setanum hefur verið vel fagnað i Noregi og heim-
sóknin vekur mikla athygli.
Oslóborg mun bjóða Vigdisi
Finnbogadóttur til hádegis-
verðar i ráðhúsi borgarinnar i
dag. 1 morgun skoðaði hún
Vikingasafnið á Bygdö og
Heine-Onstad listasafnið á
Hövikodden en um þessar
mundir sýna þar nokkrir
islenskir listamenn. Meðan það
fór fram átti ólafur Jóhannes-
son utanrikisráðherra viöræður
viö utanrikisráðherra Noregs.
Siödegis verður móttaka fyrir
tslendinga búsetta i Noregi á
Grand Hotel en i kvöld heldur
rikisstjórn Noregs veislu i
Akershus-kastala til heiðurs
forseta Islands.
Sjá fréttir og myndir frá
heimsókninni i opnu.
ÖLVAflUR STAL BlL
0G GJÖREYfllLAGÐI
Öiglaður utanbæjarmaöur, sem
leiö átti um Grettisgötu I gær,
varð skyndilega gripinn mikilli
löngun til aö bregða sér i ökuferö
ogtóktil þess traustataki bifreið,
sem var i gangi fyrir utan bif-
reiðaverkstæði.
Hélt hann sem leið lá á móti
umferðinni vestur Grettisgötu, en
komst ekki langt. Greip hann þá
til þess ráðs að bakka til baka
niður á Snorrabraut og gaf siðan
allt i botn, þar til hann kom að
næsta horni. Þar náði hann ekki
beygjunni og lenti utan i húsvegg,
en hélt samt ótrauður áfram.
Komst hann inn á Bergþórugötu,
en endaði uppi á gangstétt og festi
bifreiðina þar á milli ljósastaurs
og rafmagnskassa. Er hún talin
ónýt eftir útreið þessa.
Heldur minnkaði kjarkur
kappans, þviaðhann tók á rás og
hljóp i felur, en fannst fljótlega
falinnbak við þvottavél i kjallara
nálægs húss.
L
Enn eftir aö ákveða verð á síld tii frystingar:
ANNAÐHVORT UEGRA VERB
EBA BATARNIR STÖBVAST”
- segir Hjalti Einarsson framkvæmdastjóri SH
Blikur eru á lofti um að síldveiðif lotinn stöðvist,þegar búið verður að veiða ríf-
lega helming síldarkvótans.vegna ágreinings um verð á síid til frystingar.
Samningar hafa aðeins verið gerðir um sölu á um 170 þúsund tunnum af saltsíld en
það samsvarar um 23 þúsund tonnum af síld upp úr sjó. Hins vegar er leyfilegt að
veiða um 43 þúsund tonn á þessari vertíð.
Enn hefur ekki tekist sam-
komulag um verð á sild til
frystingar, og var verðákvöröun
visaö til yfirnefndar Verölags-
ráös á mánudaginn. Mikiö ber á
milli seljenda og kaupenda og
fyrr i haust lögðu kaupendur
fram áætlanir, miðaö viö
óbreytt verö á frystri sfld i
Evrópumynt. Miöað við þær,
þyrftihráefnisverðað lækka um
15% frá þvi, sem var á siðustu
vertiö, en eins og kunnugt er,
var ákveðin 30% hækkun á
sildarveröi til söltunar. Á und-
anförnum árum hefur sama
verð veriö á sild til frystingar og
söltunar.
Litlar sem engar horfur eru
nú á frekari söltun á saltsild og
fullvist má telja, að sildarsöltun
verði stöövuð strax og búið er að
salta upp i samninga.
„Það hefur ekkert veriö fryst
!■
til útflutnings ennþá og þaö er
gjörsamlega útilokað að kaupa
á þvi verði, sem ákveðið var til
söltunar”, sagði Hjalti Einars-
son, framkvæmdastjóri Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna,
i samtali við Visi. „Annaöhvort
verður aö ákveöa lægra verö til
frystingar eöa bátarnir
stöövast, þegar búið er aö veiða
upp i söltun”.
Þá hafa frystihúsamenn i
Vestmannaeyjum ákveðiö. sam-
kvæmt heimildum Visis að taka
ekki á móti neinni sild til
frystingar aö svo stöddu.
Nú er búið að salta i um það
bil 60 þúsund tunnur og reiknaö
er með þvi að fyllt verði upp i
samninga eftir um það bil hálf-
an mánuö. Búist er viö, aö um
þrjú þúsund tonn af sild fari 1
beitu, en óvist er eins og málin
standa nú, hvort þau 17 þúsund
tonn, sem eftir standa af
kvótanum, veröi veidd á þessari
vertiö.