Vísir - 22.10.1981, Qupperneq 12
12
r
VÍSIR
Fimmtudagur 22. október 1981
Dökkblár silki matadorbúningur frá Spáni.
ir skinu.
HAUSTSYNENG
HJÁ BÁRU
Tískusýningar hafa verift
meðal vinsælustu skcmmtiát-
rifta á skemmtunum út um borg
og bý i nokkur ár.
Umsjónarmaöur fjölskyldu- og
heimilissföunnar man þá tfma,
er slfkar upákomur sem tísku-
syningar voru sjaldgæf fyrir-
bæri I bæjarlifinu og þdtti
trðindum sæta þegar tfsku-
sýning var sett á sviö. Ein
þeirra kvcnna, sem hiklaust má
telja scm brautryöjanda tisku-
sýninga á tslandi, er Bára
Sigurjónsdóttir, eigandi
verslunarinnar Hjá Báru.
Undanfarin ár hcfur Bára
kynnt vor- og hausttfskuna I
verslun sinni viö Hverfisgötu
meö tiskusýningum þar, en út af
þeirri venju var brugöiö nú I
haust meö glæsilegri tisku-
sýningu i Súlnasal Hótel Sögu.
„Ég hef gert fatainnkaup frá
Bandarikjunum I líklega 20 ár
og hefur verið ánægjulcgt aö
fylgjast með þvi, hvaö banda-
rfskri fatahönnun heíur fleygt
frám siöustu árin,” sagöi Bára
Sigúrjónsdóttir i stuttu spjalli
viö blaöamann Vlsis. „Varöandi
þessa haustsýningu á Hótel
Sögu, þá var sérstaklega keypt
inn fyrir hana. Undanfarin ár
hef ég haldið sýningarnar I
versluninni en nd iangaði m ig til
aö gefa fleirum tækifæri tii aö
Sjá og skofta það nýjasta frá
Bandarikjunum og þvf varö
Hótel Saga fyrir valinu. Hvaö
verður svo í framtfðinni er óráö-
ið”.
Yfirbragö hausttiskunnar er
rómantískt. pffur, blúndur perl-
Hjónin Bára Sigurjónsdóttir og Pétur Guöjónsson.
Kjóll kjólanna, brúöarkjóllinn. Brúöguminn klæddur i kjól og hvitt
frá Herrahúsinu. Visismyndir /G.V.A.
ur og gullþræðir skreyta silki,
chiffon og taftefni. Buxnasctt,
stuttir og siöir samkvæmis-
kjólar og að ógleymdum glæsi-
legum brúöarkjól á sýningunni
báru banda riskum tískufröm-
uöum gott vitni. „Viö sluttum
alltaf hverri tiskusýningu meö
kjól kjólanna, brúöarkjólnum
sagöi Bára. ,,A þessari sýningu
var brúðarkjóllinn ,,beige”litur
eöa kampavinslitur og samlitur
hattui- nteö. Brúöarvöndur var
úr þurrkuöum blómum, fagur-
lega skreyttur vöndur af Binna I
Blömum og ávöxtum. Brúðar-
meyjarnar þrjár. sem fylgdu
brúöarparinu voru allar I ljós-
bleikum kjólupi, báru þær sam-
litar sólhlifar og litla blóma-
vendi samskonar og brúðurin.
Brúöarkjóllinn er sem sagt
punkturinn yfir i-iö á hverri
sýningu. Margar tfsku-
sýningarnar hcf ég séð víöa um
heimog staöið aö nokkrum sjálf
og verö ég aö segja aö fólkiö
sem vann meö mér aö þessari
sýningu, sýningarfólkiö,
kynnirinn og þeir sem unnu
blómaskreytingarnar, allt þetta
fólk er á heimsmælikvaröa,
vinnur sín störf eins og færasta
fólk erlendis. Þau geröu sitt til
aö gera sýninguna sem glæsi-
legasta”. Auk þess sem
gestum gafst kostur aö sjá
nýjustu tlsku frá Banda-
ríkjunum á umræddri sýningu
var einnig sýndur „antik”-
fatnaöur úr einkacign þeirra
hjónanna Báru Sicuriónsdóttur
og Péturs Guðjónssonar. Voru
þaö fornir þjóöbúningar, meöal
annars frá Spáni, -Persiu og
Kfna, búningar úr eöalefnum,
gullofnu silki og purpurarauöu
flaueli, sem minntu á löngu liöin
ævintýri. Myndir Gunnars V.
Andréssonar, Ijósmyndara
Vfsis, hér á siöunni, gefa örlitiö
sýnishorri um ævintýrablæ
sýningarinnar, fornan og nýjan.
—ÞG
Stuttir samkvæmiskjólar f „beige” litum og einn svartur meö
lurex-þræöi, „litli svarti kjóllinn”, sem alltaf er nauösynlegur yfir
vetrarmánuöina.
Þórunn
Gestsdóttir
Tveír glæsilegir siöir samkvæmiskjólar.