Vísir - 22.10.1981, Side 19
Fimmtudagur 22. október 1981 VISIR 19
NORÐLENDINGAR
SKEMMTA SÉR
Atthagakvöldin á Hótel Loftleiðum halda
áfram og á föstudags- og laugardagskvöldið i sið-
ustu viku komu Norðlendingar saman, sér tii
skemmtunar.
Menn snæddu fram eftir kvöldi, og skemmti-
atriði dundu yfir hvert á fætur öðru. Gamanvisur
voru fluttar af Birgi Marinóssyni og konu hans,
leynigestur kvöldsins, Halldór Blöndal alþingis-
maður, lét móðan mása, og Ingimar Eydal, hinn
góðkunni stjórnaði skemmtuninni með glæsi-
brag.
Mikiö f jölmenni var á Norðlendingamótinu á Hótel Loftleiðum um síðustu helgi og
skemmtu menn sér konunglega.
óli Valdimarsson hjá Kjötiðnaðarstöð KEA sá um
að matreitt væri á réttan hátt fyrir Norðlendingana,
og þótti Ingimar sérstök ástæða til þess að þakka hon-
um þann þáttinn. Annars sá Ingimar sjálfur um melt-
ingarmússík, meðan á borðhaldi stóð.
Leynigesturinn, Halldór Blöndal fékk sér snúning og þótti takast vel til jafnt á
dansgólfinu, sem í vísnaflutningi.
k Að
n mái
m síc
V
Örfáir franskir til í
tuskið á mánudögum
Aöeins 1% franskra karlmanna treysta sér til ástarleikja á
mánudögum, samkvæmt könnun sem gerð var i Paris á
síðasta ári. Frakkar eru þekktir fyrir að skemmta sér vel
um helgar og var það talin helsta skýringin á ,,áhuga- A
L leysi" franskra karlmanna á mánudögum. Æ
Norðlendingar eiga sinn stóra þátt í að ullariðnaður
hefur skapaðaf sér ágætan klæðnað, en sýningardöm-
ur sáu umaðkoma þeim boðskaptil skila.