Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2001, Síða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. FEBRÚAR 2001
MYNDLIST
Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýn-
ing, þri.-fös. kl. 14-16. Til 15. maí.
Galleri@hlemmur.is: Magnús Sigurð-
arson. Til 4. mars.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Magnús
Þorgrímsson. Til 18. feb.
Gallerí Sævars Karls: Pétur Halldórs-
son. Til 15. feb.
Gerðarsafn: Ljósmyndasýning Ljós-
myndarafélags Íslands og BLÍ. Til 11.
feb.
Gerðuberg: Eggert Magnússon næfisti.
Til 18. feb.
Hafnarborg: Sveinn Björnsson. Rut
Rebekka Sigurjónsdóttir. Til 26. feb.
Hallgrímskirkja: Kristín Gunnlaugs-
dóttir. Til 19. feb.
Íslensk grafík: Frumherjar í grafík. Til
25. feb.
Kringlan: Ljósmyndir frá menningar-
árinu. Til 14. feb.
Listasafn Akureyrar: Margmiðlunar-
sýningin DETOX. Til 2. mars.
Listasafn ASÍ: Hlynur Helgason. Til 17.
feb.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug-
ardaga og sunnudaga, kl. 14-17.
Listasafn Íslands: Gerhard Richter,
Rúrí og Jón Stefánsson. Til 18. feb.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundar-
safn: Páll Guðmundsson og Ásmundur
Sveinsson. Til 29. apr.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús:
Höggmyndir Roberts Dell í útiportinu.
Til 20. mars. Frásagnarmálverkið. Verk
frá 1961-1999: Valerio Adami, Peter
Klasen, Jacques Monory, Hervé Tél-
emaque, Bernard Rancillac og Erró.
Sófamálverkið. Til 25. mars.
Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir:
Gullpensillinn – samsýning 14 lista-
manna. Til 24. mars. Austursalur: Jó-
hannes S. Kjarval.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Grófar-
húsi.: Ljósmyndasýning Nökkva Elías-
sonar og Brian Sweeney. Til 1. mars.
Norræna húsið: Sex norrænir ljós-
myndarar.Til 18. mars. Teikningar J.P.
Gregoriussen, arkitekts. Til 12. feb.
Nýlistasafnið: Samræður við safneign.
Til 18. feb.
Stöðlakot: Jón A. Steinólfsson. Til 18.
feb.
Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.-
umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Langholtskirkja: Myrkir músíkdagar:
Blásarasveit Reykjavíkur. Kl. 20.
Árbæjarkirkja: Kór Átthagafélags
Strandamanna, Húnakórinn og
Árnesingakórinn. Kl. 17.
Breiðholtskirkja: Jörg E. Sonderman
orgelleikari. Kl. 17.
Sunnudagur
Neskirkja: Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna. Kl. 17.
Salurinn, Kópavogi: Helga Bryndís
Magnúsdóttir, píanóleikari. Kl. 20.
Fimmtudagur
Háskólabíó: Myrkir músíkdagar. Sin-
fóníuhljómsveit Íslands. Einleikari:
Helga Þórarinsdóttir. Kl. 19.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Antígóna, fös. 17. febr.
Horfðu reiður um öxl, lau. 10., sun. 11.,
fim. 15., fös. 16. feb. Blái hnötturinn, sun.
11. feb. Með fulla vasa af grjóti, mið. 14.
febr. Ástkonur Picassos, lau. 10., sun. 11.
feb. Já, hamingjan, lau. 10., fös. 16. feb.
Borgarleikhúsið: Skáldanótt, lau. 10.,
fös. 16. febr. Móglí, sun. 11. febr.
Loftkastalinn: Sjeikspír eins og hann
leggur sig, lau. 10., sun. 11., fös. 16. febr.
Iðnó: Sniglaveislan, fös. 16. febr.
Íslenska óperan: La Boheme, frums.
fös. 16. febr.
Möguleikhúsið: Lóma, sun. 11. febr.
Völuspá, sun. 11. febr. Snuðra og Tuðra,
þrið. 13. febr. Langafi prakkari, fim. 15.
febr.
Leikfélag Akureyrar: Sniglaveislan,
lau. 10., fös. 16. febr.
Kaffileikhúsið: Háaloft, lau. 10. febr.
Eva, þrið. 13., fim. 15., fös. 16. febr.
Ásgarður: Snúður og Snælda. Gamlar
perlur, sun. 11., mið. 14. febr.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega eða í tölvu-
pósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum merkt-
ar: Morgunblaðið, menning/listir,
Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
569-1222. Netfang: menning@mbl.is.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
Á EFNISSKRÁ tónleikanna, sem hefjast kl.
20 í kvöld, eru verk eftir þá Þórarin Jóns-
son, Pál Pampichler Pálsson, Einar Jónsson,
Tryggva M. Baldvinsson og Oliver Kentish.
Blásarasveit Reykjavíkur var stofnuð í
upphafi árs 1999 af nokkrum áhugamönnum
um nýja tónlist fyrir blásara og voru fyrstu
tónleikar hennar á Myrkum músíkdögum
1999. Markmið sveitarinnar er að sögn
stjórnandans, Kjartans Óskarssonar, „að
koma saman einu sinni til tvisvar á ári og
spila eitthvað sem ekki er spilað annars, ís-
lenska jafnt sem erlenda tónlist, sem ekki er
á færi þeirra annars ágætu hljómsveita sem
starfa hér. Við höfum á stefnuskránni að
panta ný verk og efla þannig nýsköpun á
sviði blásaratónlistar. Við reynum að flytja
a.m.k. eitt nýtt verk á hverjum tónleikum.“
„Þetta er líka hugsað til þess að vekja at-
hygli á blásarasveitartónlist, en blásara-
sveitir hafa löngum verið olnbogabörn í
menningarlífinu,“ segir Tryggvi. „Blásara-
sveitin er fyrir það fólk sem hefur áhuga á
að takast á við verkefni sem krefjast ein-
hvers meira en menn spila dags daglega í
lúðrasveitunum,“ bætir Kjartan við.
Í Blásarasveitinni eru nú hátt í 60 manns
og er hún skipuð þeim nemendum sem
lengst eru komnir með blásaranám, tónlist-
arkennurum og öðrum. Sveitin æfir ekki
reglulega en fyrir hverja tónleika tekur hún
góða skorpu og æfir upp nýja efnisskrá á
tveimur vikum eða 6–7 æfingum, að sögn
Kjartans.
„Borgarstjórafanfare“
Þórarins Jónssonar
Tónleikarnir í kvöld hefjast með Fanfare
eftir Þórarin Jónsson. Það er jafnframt
langelsta verkið, samið fyrir um sextíu árum
í Þýskalandi, þar sem Þórarinn var þá bú-
settur. Í efnisskrá segir frá því er Þórarinn
frétti af því að Bjarni Benediktsson hefði
verið kjörinn borgarstjóri árið 1940 hefði
hann samið Fanfare og langað að tileinka
Bjarna. Úr því hafi hins vegar ekki orðið.
Við kjör Gunnars Thoroddsen til borgar-
stjóra 1947 mun Þórarinn hafa velt fyrir sér
að tileinka honum verkið en úr því varð
heldur ekki. „En í huga Þórarins var þetta
„borgarstjórafanfari“. Lúðrasveit Reykja-
víkur flutti verkið einu sinni á Austurvelli,
en hvenær það var er óljóst,“ segir enn-
fremur í efnisskránni.
Fyrra verkið sem frumflutt verður í kvöld
er Preludio Sinfonico eftir Pál Pampichler
Pálsson, samið á vormánuðum 1999 og til-
einkað vini Páls, dr. Alfons Summer. „Verk-
ið ber höfundi sínum skýr einkenni, hlaðið
leiftrandi hrynjandi, miklum innri krafti og
síðast en ekki síst er það frábærlega skrifað
fyrir blásarasveit,“ segir í efnisskrá.
Um leitina að sjálfum sér
Einnig verður frumflutt verkið Moto
Perpetuo sem Einar Jónsson samdi sérstak-
lega fyrir Blásarasveit Reykjavíkur. Einar
er básúnuleikari en hefur á síðustu árum
snúið sér í auknum mæli að tónsmíðum. Um
verkið og bakgrunn þess ritar hann í efnis-
skrá: „Hver er ég? Sá sem leitar mun e.t.v.
finna ef hann leitar nógu lengi, en hvað mun
hann svo finna að lokum? Er manni eitthvað
svo mikils virði að maður eyði í það ævinni?
Moto Perpetuo gæti á íslensku útlagst ein-
hvern veginn svona: „stöðugt á hreyfingu“,
„stöðugt á fartinni“. Það er táknmynd þess
sem leitar, þess sem leitar en finnur aldrei
neitt. Það er táknmynd þess sem leitar og
finnur eitthvað, en þá er ekki víst að það sé
lengur það sem hann leitaði að. Breytist
ekki allt og skiptir um mynd? Það sem mað-
ur leitaði einu sinni að er ekki endilega það
sama í dag, þegar maður finnur það, ef mað-
ur þá finnur það á annað borð. Moto Perp-
etuo er um leitina að sjálfum sér...“
Í verki sínu, 2 hugtök, gerir Tryggvi M.
Baldvinsson tilraun til að nálgast tvö hugtök
úr eðlisfræðinni, massa (M) og hitastig (T).
„Í M-þættinum birtist sveitin sem þykkfljót-
andi massi, stundum mjúkur viðkomu, en
öðrum stundum hvass og kaldur. Í upphafi
leitar öll hreyfing niður á við en tekur svo
stefnuna upp er líður á kaflann. Í T-kafl-
anum færumst við úr miklum froststillum í
seiðandi funhita. Í upphafi er tónefnið
myndað að mestu leyti úr „köldum“ tón-
bilum: tvíundum, ferundum og fimmundum
en eftir asahláku tekur við „hlýtt“ tónefni að
mestu mótað af þríundum og sexundum,“
segir Tryggvi. Verkið samdi hann í tilefni af
sjötíu ára afmæli Lúðrasveitarinnar Svans
og var það frumflutt á vortónleikum hennar
í Háskólabíói 1. apríl á síðasta ári. Tryggvi
segir að fleiri hugtök séu væntanleg og nú
þegar hafi hann tvo kafla á teikniborðinu.
Eftir hlé verður flutt Myrkraverk eftir
Oliver Kentish en það samdi hann árið 1983
fyrir Roar Kvam og Norðurlandaferð
kammerblásarasveitar Tónlistarskólans á
Akureyri. Í efnisskrá kemur fram að verkið
byggist á tveimur hugmyndum, annars veg-
ar sex tóna röð sem birtist á 48 mismunandi
vegu og hins vegar þjóðlaginu Ebbadætra-
kvæði. Titillinn Myrkraverk mun vísa til
hins grimmlynda innihalds þjóðkvæðisins og
þeirrar staðreyndar að verkið er skrifað á
mestu skammdegismánuðum ársins. Eftir að
Blásarasveit Reykjavíkur ákvað að taka
verkið til flutnings endurskoðaði höfundur-
inn það, bætti við slagverki og gerði nokkrar
aðrar smávægilegar breytingar.
Nýju verkin endurflutt
Að loknu Myrkraverki verða verkin tvö
sem frumflutt voru fyrir hlé, Preludio Sin-
fonico og Moto Perpetuo, endurflutt. „Okkur
finnst rétt að fólk fái að heyra frumflutn-
ingsverkin flutt aftur. Það mæltist mjög vel
fyrir á fyrstu tónleikum sveitarinnar fyrir
tveimur árum þegar við frumfluttum verk
eftir Tryggva og fluttum það svo aftur í lok
tónleikanna. Maður fær svolítið aðra sýn á
verkin með þessu móti,“ segir Kjartan.
Síðast á efnisskránni er svo Postludium
eftir Tryggva M. Baldvinsson en það var
samið í tilefni af kristnihátíð á Þingvöllum
sl. sumar og markaði endapunkt hátíðar-
messunnar sem þar fór fram. Að sögn
Tryggva er efnið sótt í Intrödu fyrir kór,
blásara og slagverk sem flutt var í upphafi
áðurnefndrar messu og er í raun útdráttur
úr því verki.
Tónleikarnir í Langholtskirkju hefjast kl.
20 í kvöld.
BLÁSARASVEIT REYKJAVÍKUR Í LANGHOLTSKIRKJU Á MYRKUM MÚSÍKDÖGUM
NÝSKÖPUN Á
SVIÐI BLÁSARA-
TÓNLISTAR EFLD
Morgunblaðið/Ásdís
Kjartan Óskarsson, stjórnandi Blásarasveitar Reykjavíkur, og Tryggvi M. Baldvinsson tónskáld.
Tvö ný verk verða frumflutt á tónleikum Blásarasveitar
Reykjavíkur á Myrkum músíkdögum í Langholtskirkju í
kvöld. MARGRÉT SVEINBJÖRNSDÓTTIR kynnti sér
efnisskrá tónleikanna og ræddi við forsprakka sveit-
arinnar, stjórnandann Kjartan Óskarsson og tón-
skáldið Tryggva M. Baldvinsson.