Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2001, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. FEBRÚAR 2001
S
KAMMT frá Pisa er gríðarstórt
stöðuvatn. Við vesturbakkann
er lítið þorp og í miðri húsa-
þyrpingunni stendur turn. Af
honum dregur staðurinn nafn:
Torre del Lago. Á lognkyrrum
sumarkvöldum má heyra
óperutónlist berast yfir vatnið
frá sviði sem slegið hefur verið upp við báta-
lægið; í grasinu suða engisprettur og einstaka
fugl flýgur úr sefi. Hér undi Giacomo Puccini
sér á sumrin, við veiðar að degi en tónsmíðar
um nætur. Villa hans stendur eins og hann
skildi við hana; á fornlegu píanóinu liggja óp-
erur sem vöknuðu fyrst til lífsins í þessu húsi:
La Bohème, Tosca, Maddama Butterfly ...
Torre del Lago
Puccini kom til Torre del Lago í fyrsta sinn
árið 1884, 26 ára að aldri. Þá var það afskekkt
fiskiþorp, að því er virtist á hjara veraldar.
Íbúarnir stunduðu veiðar í vatninu og á kvöld-
in komu þeir saman á hrörlegri krá og gerðu
sér glaðan dag. Puccini var heimsmaður fram í
fingurgóma en engu að síður hélt Torre del
Lago honum föngnum. Hann settist að í þorp-
inu árið 1891 og fannst hann hafa fundið parad-
ís á jörðu. „Hér hef ég fundið einveruna og
friðinn sem er mér nauðsynlegur til þess að
geta samið,“ sagði hann í bréfi.
Í Torre del Lago komst Puccini fljótt í
félagsskap heimamanna og fyrr en varði bætt-
ust fleiri listamenn í hópinn. Hann átti það til
að bjóða öllum af þorpskránni heim til sín og
þar var drukkið, spilað og skeggrætt fram
undir morgun. Á meðan félagarnir skemmtu
sér hélt Puccini áfram tónsmíðum eins og ekk-
ert hefði í skorist. Það var sem félagsskap-
urinn hefði hvetjandi áhrif á hann; í það
minnsta kviknuðu fjölmargar góðar hugmynd-
ir að La Bohème einmitt við þessar aðstæður.
Le Villi og Edgar
Puccini hafði lokið við þrjár óperur áður en
hann hóf að semja La Bohème. Þar komu tveir
stærstu útgefendur tónlistar á Ítalíu mjög við
sögu, þeir Ricordi og Sonzogno. Sonzogno
efndi árlega til keppni um óperu í einum þætti.
Þegar hún var fyrst haldin árið 1883 tók Pucc-
ini þátt í henni, þá nýskriðinn úr skóla. Hann
sendi inn óperuna Le Villi, Dísirnar, en hafði
ekki erindi sem erfiði. Sigurvegararnir tveir
eru löngu gleymdir en Le Villi átti lengri líf-
daga auðið. Með góðra manna hjálp kom Pucc-
ini óperunni á framfæri við keppinaut Sonz-
ognos, Ricordi, sem tók verkið til sýningar, þó
eftir gagngerar endurbætur. Óperunni var
skipt í tvo þætti sem tengdust með hljómsveit-
armillispili. Óperan vakti mikla athygli og
undruðust margir að hún skyldi ekki hafa unn-
ið til fyrstu verðlauna.
Textann að Le Villi samdi Ferdinando Font-
ana. Þeir Puccini tóku þegar að semja nýja óp-
eru að undirlagi Ricordis. Hún var fjögur ár í
smíðum og hlaut nafnið Edgar. Öndvert við Le
Villi var Edgar þunglamalegt verk og undir
sterkum áhrifum frá þýskri rómantík. Óperan
þótti misheppnuð og hvarf af fjölunum eftir
þrjár sýningar. Útlitið virtist æði svart fyrir
Puccini. Ricordi stappaði þá í hann stálinu og
hvatti hann til að halda áfram.
Meðan Edgar var í smíðum átti Puccini í ást-
arsambandi við gifta tveggja barna móður,
Elvíru Gemignani. Þegar upp komst sagði hún
skilið við mann sinn og skyndilega átti Puccini
fyrir fjölskyldu að sjá. Fjárhagsáhyggjurnar
voru þrúgandi og jukust til muna eftir hörmu-
legar viðtökur á Edgar. Hann var enn leitandi í
stíl sínum. Um þessar mundir stóð Verdi á há-
tindi frægðar sinnar og í Þýskalandi réð
Wagner lögum og lofum á óperusviðinu. Báðir
leituðu þessir jöfrar fanga í bókmenntum og
sögu þjóðar sinnar, jafnvel goðafræði. Ung
tónskáld á Ítalíu urðu að finna sér annars kon-
ar viðfangsefni til að finna tónlist sinni nýjan
farveg. Ný stefna ruddi sér til rúms í bók-
menntum á Ítalíu síðari hluta 19. aldar. Hún
nefndist verismo og byggðist á raunsæi. Mark-
SÖNGURINN,
TURNINN OG VATNIÐ
UM PUCCINI OG TILURÐ LA BOHÈME Íslenska óperan frumsýnir
La Bohème eftir Giacomo
Puccini næstkomandi
föstudag. Af því tilefni
fjallar GUNNSTEINN
ÓLAFSSON um
höfundinn og verkið.
Ljósmynd/Guðmundur IngólfssonFrá æfingu á La Bohème í Íslensku óperunni.
Ljósmynd/Guðmundur Ingólfsson
Auður Gunnarsdóttir og Kolbeinn Ketilsson sem Mímí og Rúdolfó í Íslensku óperunni.