Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2001, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2001, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. FEBRÚAR 2001 7 Hann eins og fleiri vissi um þann mikla búskap sem verið hafði í Krýsuvík frá miðöldum og teygði sig alveg fram á tuttugustu öldina. Í Krýsuvík getum við bent á þrjá staði sem eru byggðir á miðöldum, Gömlu Krýsuvík niður við sjóinn; Krýsuvíkurbæjarstæðið, þar sem kirkj- an stendur nú; og Gestsstaði. Þegar Ögmund- arhraun rann, upp úr 1150, er talið að bærinn hafi flust á þann stað þar sem kirkjan stendur nú. Hraunið lagði undir sig Gömlu-Krýsuvíkina, bæði höfnina og bæinn, og staðnæmdist við kirkjuna. Þannig að þarna átti sér stað nokkurs konar Vestmannaeyjadrama á þessu sögulausa svæði, því Krýsvík og umhverfi hennar kemur tæpast fyrir í fornsögum okkar. Svo hafði faðir minn ákaflega gaman af því sem hafði verið skrifað um Krýsana, hann tók það svolítið inn á sig. Sömuleiðis hafði hann gaman af að lesa um Eirík í Vogsósum sem messaði í Krýsuvík og það fara miklar og kynngimagnaðar sögur af honum og tengslum hans við alls kyns forynjur og drauga. Þetta las faðir minn af áfergju. Ver- mannaleiðir lágu í gegnum Krýsuvíkina, og auð- vitað spruttu ótal draugasögur í kringum það. Hann er líka, eftir að hann eignast vinnuaðstöðu sína í Krýsuvík, mikið einn þarna og er í miklum tengslum við landið. Og við tunglið og nóttina. Út um glugga vinnustofu hans sér til þriggja vatna og hafsins, sem hefur vitanlega glatt sjó- manninn. Kannski er madonnan þess vegna persónugervingur þessa svæðis hjá honum.“ Er madonnan kristin, er þetta heilög guðs- móðir eða er þetta einhver allt önnur kona? ,,Sú ætti að vera með barnið í fanginu, en það er hún ekki! Þess vegna er ef til vill ekki alveg rétt að kalla hana madonnu, en hann gerði það og fólk hefur tekið það upp eftir honum því það er oft talað um Krýsuvíkurmadonnuna. En hún er örugglega í bland kristin.“ Heldur hún verndarhendi yfir Krýsuvík, er hún verndarvættur? ,,Nei, hún er leiðsögnin hans! Því þetta er al- farið hans heimur. Hann tekur þetta ekki ut- anfrá þetta kemur innanfrá. Þetta er persónu- gerving þessa sköpunarstarfs sem hann er kominn á bólakaf í þarna í Krýsuvíkinni.“ Blái karlinn, listamaðurinn ,,Hérna má sjá hinn aðalleikarann á móti madonnunni, en það er blái karlinn. Blái karlinn er listamaðurinn sjálfur, það segir sig sjálft. Blái liturinn greiptist inn í þennan mann á sjón- um. Himinn og haf. Hann ætlaði sér sjómennsk- una. Sveinn fæddist á Skálum á Langanesi árið 1925 en hann flytur þaðan sjö eða átta ára gam- all til Vestmanneyja og elst þar upp. Hann fer á sjóinn fjórtán ára gamall sem aðalfyrirvinna fjölskyldunnar. Móðir hans er einstæð móðir með níu börn. Blái karlinn er í einni höfuðmynd sýningarinnar sem heitir ,,Saga mín“ og er svona ný útfærsla á annarri mynd sem heitir ,,Myndabók málarans“. Í „Sögunni minni“ er blái karlinn í miðri mynd og hann birtist einnig í Geststaðavatni, en það er vatnið sem blasir við úr vinnustofunni í Krýsuvík. Í huga föður míns er Geststaðavatn andlit og það vantar ekkert upp á það segir hann. Stundum með augu og þegar hann málar augu í þessum bláu andlitum sínum þá eru augasteinarnir yfirleitt tveir eða jafnvel þrír. Það eru skýr merking þess að um andlit listamannsins er að ræða. Á sýningu sem við erum með í Sveinshúsi í Krýsuvík frá því í sumar erum við með sérstakar Geststaðavatns- myndir, hérna er einungis ein mynd sem fulltrúi fyrir Geststaðamyndirnar en hann málaði vatn- ið í fjölmörgum myndum.“ Er Geststaðavatn nálægt hylnum græna, Grænavatni, sem margir þekkja af ferðum sín- um til Krýsuvíkur? ,,Nær fjöllunum og nær vinnustofu föður míns er samskonar sprengigígur og Grænavatn og það er Geststaðavatn. Þegar horft er úr vinnustofunni þá sérðu það eins og hér á þessari mynd. Hérna er komið Huldukonuskip á vatnið og svo er hafið fyrir handan á milli Bæjarfells og Arnarfells. Hér eru tvær birtingarmyndir Huldunnar, annars vegar sem Madonna og hins vegar þegar hún tekur á sig mynd gallíons fíg- úrunnar í þessu skipi, sem er eins konar skip listamannsins. Hún er í stafni og þar af leiðandi kannski sú sem ræður för þessa skips þar sem stýrimaðurinn er aðþrengdur í stýrishúsinu. Hann telur sig kannski vera að sigla og stjórna ferðinni en nýtur leiðsagnar huldunnar og hún stjórnar. Þetta eru örlög sjómannsins.“ Þannig að sjómaðurinn og listamaðurinn eru tengdir sterkum böndum? ,,Þeir renna saman í eitt. Á þessari mynd sérðu þetta vel, listamaðurinn á bak við Ma- donnuna og hún með fiskinn í fanginu. Í bak- grunninum er síðan brot af umhverfi Krýsuvík- ur. Mér finnst þetta vera sáttargjörð listamannsins og sjómannsins. Þetta faðmlag. Síðan fara formin að breytast, hérna er eins og fígúrurnar hverfi í landið. Hér fer þetta að leys- ast upp, hún er orðin partur af landinu og það eru komnar svona smámyndir inn í myndina. Í framhaldi af þessu fóru myndformin að skreppa saman í smámyndir og litaflöturinn að stækka og taka meira til sín. Hér sjáum við hverabrekk- urnar og einstaka steina sem hafa þessar fígúr- ur innanborðs. Liturinn yfirtekur síðan smám saman þennan heim. Hann segir það sjálfur að við það að fara að skoða landið fyrir framan tærnar á sér, þá er jörðin bara myndir. Það þarf bara ekki annað en að taka stein og strika ramma og þá ert þú kominn með tilbúið lista- verk beint fyrir framan fætur þér.“ Allt verður að bláum lit ,,Smátt og smátt finnst honum hann vera bú- inn að tæma þennan fantasíuheim og þetta er afrakstur þrjátíu ára glímu sem við sjáum brot af hér á veggjunum. Hann hélt stóra sýningu á nýjustu fantasíumyndum sínum á Kjarvalsstöð- um árið 1989 og finnur það eftir sýninguna að það verður ekki farið lengra á þessari braut. Ég túlka það þannig að þá fari hann smám saman að jarða madonnuna, þegar hún er komin í út- afliggjandi stellingu í botninn á myndunum. Hún hverfur inn í litamynstrið og eftir það ríkir bara liturinn einn síðustu árin. Niðurstaðan verða þessar stóru þverstrokur, hann hættir að mála með pensli og fer að mála með breiðum spöðum. Þessar myndir eru gerðar af miklu ör- yggi og án nokkurra vífilengja. Hann spáði því sjálfur að það myndi taka fólk svona fimmtán ár að taka þetta í sátt, það tók það sama tíma að sætta sig við handanheiminn sagði hann. Þegar hann sýndi fólki þetta þá var oft viðkvæðið: Heyrðu Sveinn, átt þú ekki eitthvað með madonnunni, átt þú ekki einhverja gamla sjáv- armynd til að sýna mér?“ En þessar nýju myndir eru ekki síður skemmtilegar en þær gömlu þykir mér. ,,Í þessu litla herbergi hér reynum við að sýna þessa breytingu frá fantasíunni í Krýsuvík yfir í litaafstraktið, eins og hún birtist í olíu- pastelmyndum hans, klippimyndunum, olíu á pappír og jafnvel teikningum. Hann vann mikið í olíupastel og í þeim myndum er eins og hann sé í stöðugu samtali við sjálfan sig, því þá býr hann til jöfnum höndum fantasíu og afstrakt. Í teikni- möppunum hans liggja þessar myndir gjarnan hlið við hlið. Hérna er Krýsuvíkurmynd sem hann gerði þegar hann dvaldist um skeið í París og það sýnir að þessi heimur fylgdi honum hvert sem hann fór. Hann hafði gaman af að spila golf og fór í ferðir til útlanda meðal annars í því skyni að iðka golfið og alltaf tók hann teikni- blokk með sér gjarnan með svörtum pappír. Þegar þessar stílbreytingar voru að eiga sér stað átti hann í miklu og góðu samstarfi við Matthías Johannessen, og þeir bjuggu til heila bók þar sem hann myndskreytti með olíupasteli og vatnslit og Matthías handskrifaði ljóðin inn í myndirnar. Árið 1990 var haldin sýning á ann- arri myndaröð þeirra félaga, Sálmum á atóm- öld, og þær voru allar unnar í olíupastellitum. Síðustu árin var hann að glíma við þá löngun sína að myndsetja Passíusálma Hallgríms Pét- urssonar sem við sjáum hér. Hann gerði til- raunir sem í fyrstu byggðust á myndheimi hans í Krýsuvík, en síðan hugðist hann myndsetja Passíusálmana í litum, olíupastellitum eins og við sjáum hér. En þessu ætlunarverki sínu náði hann ekki að ljúka,“ segir Erlendur. Myndin Blátt þarna er einskonar óður til bláa litarins og hér er eins og himinn og haf renni saman í eitt.“ Gæti það verið lokaniðurstaðan á ferli mál- arans Sveins Björnssonar? ,,Já, við getum sagt það, blátt var einkenn- islitur hans. Hins vegar er það svo að þegar hann gerði sér grein fyrir því, undir lokin, að hann myndi ekki geta málað fleiri olíuverk í vinnustofuhúsi sínu í Krýsuvík, sökum veikinda sinna, þá tók hann til við að mála þessar litlu vatnslitamyndir heima hjá sér í Köldukinn. Þrátt fyrir öll átökin sem fylgdu því að skipta úr fantasíuheimi sínum í Krýsuvík yfir í lita- afstraktið, þá leitaði myndheimur hans í Krýsu- víkinni til hans á ný. Þar með var hringnum lok- að.“ Gult, blátt og rautt, 1995–96. Olía á striga, 160x200. Við Kleifarvatn, 1956. Olía á striga, 70x95. Huldufólk í Krýsuvík, 1960. Olía á striga, 95x110. Saga mín, 1975–85. Olía á striga, 160x200.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.