Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.2001, Síða 15
vitrænna marka. Þótt hvergi sé grafið djúpt í
söguefnið er lesandinn snöggtum fróðari um
þessar slóðir þá hann leggur bókina frá sér og
hugsar trúlega með sér; svona ættu allar
kennslubækur í sögu- og landafræði að vera
skrifaðar! Enginn kafli of langur, sumir hrein-
ar örsögur, en flestir eiga þeir sameiginlegt að
kveikja í lesandanum svo honum hugnast að
fræðast meira. Í það heila borðleggjandi stað-
reyndir á léttu nótunum og í búningi blóðríks
ferlis. Þannig á að skapa áhuga og læða fróð-
leik að fólki frá vöggu til grafar; með brögðum
listar.
Kaflaheitin gefa góða hugmynd um innihald-
ið og skulu nokkur talin upp hér: „Sérkenni
Skánar, Leiðin yfir sundið, Borgarstjórinn í
Landskrona, Sérviska skánska aðalsins, Um
djánkan í Kågeröd … og prestinn á sama stað.
Landið milli sléttu og skógar. Um Absalon og
Stenhag. Klaustrið á miðdepli Skánar. Gleði
jómfrú Maríu í Brönnestad. Guðsmóðirin bros-
andi í Ignaberga, Skánski skæruhernaður-
inn“…
Gríp aðeins í einn kaflann: „Vä, hin brenn-
andi borg“ í lauslegri þýðingu.
… Eins dauði er annars brauð og spakmælið
getur ef svo ber undir einnig átt við um borgir.
Þegar lagður var grunnur að Kristianstad voru
ríkishlunnindin fyrir Vä afnumin, en hún var
rúma hálfa mílu frá þessari nýsköpun Krist-
jáns fjórða. Hin forna verslunarborg mest-
megins í rústum, eftir að Svíar undir forustu
Gústavs II Adolfs höfðu rænt, ruplað og lagt
eld að henni. Íbúar Vä voru skikkaðir til að
flytja til Kristianstad og landrýminu skipt á
milli bænda héraðsins, sem til endurgjalds
gáfu eftir engjalöndin sem Kristianstad var
reist á. Vä var ein af elstu borgum Skánar.
Skammt frá henni hafði fyrrum verið búið frá
járnöld og mögulegt að greina búsetuna allt
fram til tíundu aldar. Fyrsta borgin var byggð
við vað í ánni Vä, sem á þeim árum hefur verið
til muna mikilfenglegri, en seinna hefur
byggðin flust til svæðisins kringum kirkjuna
sem byggð var um 1170, svo og helgiklaustrið
sem þar var einnig til staðar. Nánasta hlið-
stæða borgarskipulagsins í Vä er Næstved á
Sjálandi.
Vä mun aldrei hafa verið rík og velmegandi
verslunarborg. Eins og Lundur hefur hún ver-
ið staðbundin miðja og viðskiptin bundin við
þetta takmarkaða landsvæði. Kannski hefur
myllurekstur verið tekjulind borgaranna.
Borgarinnsiglið með mylluhjóli gæti rennt
stoðum undir þá tilgátu. Staðsetningin hins
vegar opin og óvarin, þannig að hvað eftir ann-
að leið borgin fyrir eyðileggingu og bruna. Af
herforingjum sem skrifuðu sig á blöð þjáning-
arsögu Vä finnum við í sænskum sögubókum
jafn virt nöfn og Karl Knutsson (1442), Svante
Nilson Sture (1509), Karl hertoga (1569) og
Gústav II Adolf (1612). Algerust var eyðilegg-
ing hins síðastnefnda og óræk sönnun þess eru
ríkulegar brunaleifar sem fundist hafa við upp-
gröft. Á yfirborði jarðar er þannig ekki mikið
eftir af gamalli dýrð nema gamla helgiklaustr-
ið, sem heldur áfram að hrífa fyrir bygging-
arstílinn og kalkmálverkin. Lítið meira eftir af
kapellu heilagrar Geirþrúðar frá síðmiðöldum
en gaflarnir, en hún var reist þar sem leiðin frá
Åsum sker þjóðveginn. En í iðrum jarðar vitna
nokkrir þunnhvolfir kjallarar um, að á staðn-
um hefur verið eitthvað sem líkist borgar-
kjarna.
Hlutskipti borgara Vä þannig lengstum sí-
endurteknar eyðileggingar og erfið endurupp-
bygging. Ef til vill mögulegt fyrir þá að standa
enn á fæturna eftir hremmilega árás Gústavs
II Adolfs. Hins vegar sparaði Kristján fjórði
þeim ómakið …
Valdi þennan kafla vegna þess að hann
bregður upp skilvirkri mynd af hlutskipti
Skánverja um aldir áður en svæðið samein-
aðist Svíþjóð. En Skánn hefur alla tíð og er enn
alveg sérstakur hluti landsins með sín einkenni
og sérstakt málfar íbúanna. Þannig eimir af
þeim löngu horfna tíma er héraðið var sjálf-
stætt svæði innan Danaveldis með eigin lög og
þing, ennfremur sér í rústir af borgum og
kirkjum misvel varðveittum, allt frá elleftu öld.
Þótt einhverjum þyki það langsótt staðhæfing
er ýmislegt sameiginlegt í sögu Skánverja og
Íslendinga. Í báðum tilvikum um aldir undir
danskri krúnu og íbúarnir sóttu meira og
minna æðri menntun til Kaupmannahafnar, Ís-
lendingar þó öllu meira vegna einangrunar-
innar og lengstum ekki um annað að ræða.
Frá Skáni hefur komið margt af afreksfólki
sænsku þjóðarinnar og þá ekki síst í listum og
sumt, einkum á suðuroddanum, sótt listmennt-
un sína til Kaupmannahafnar frekar en Stokk-
hólms. Þegar skrifari var við nám á listaka-
demíunni í Kaupmannahöfn fyrir hálfri öld
voru til að mynda nokkrir Skánverjar hjá sama
prófessor og hann. Gerðu sér ferð með bátnum
yfir sundið á hverjum morgni og til baka síð-
degis til þess eins að teikna og mála fyrirsætur
og -sáta allan liðlangan daginn. Má næstum
líkja því við að ferðast með áætlunarbíl milli
Eyjafjalla og Reykjavíkur og til baka dags
daglega til að stunda nám í Listaháskóla Ís-
lands.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. OKTÓBER 2001 15
Í
NÝJU verkunum sínum heldur Roni
Horn áfram að velta fyrir sér mótsögn-
um í skynjun okkar þegar við upplifum
ýmislegt sem annað en það sem það er
og eins þegar við skynjum það sama á
mismunandi hátt. Um kyrrstöðu og
hreyfingu, hins fasta forms og þess sí-
breytilega, allt frá almennum fyrir-
brigðum náttúrunnar, s.s. straumi vatns og
skýjafari, til hins sértæka í svipbrigðum mann-
eskjunnar. Á sýningunni er að finna þrjár ljós-
myndaseríur og tvo skúlptúra auk hljóðverks.
Þetta er fyrri hluti tveggja sýninga Roni
Horn sem Dia gengst fyrir fram á mitt næsta
ár í sýningarsölum sínum í Chelsea-hverfi í
New York. Dia er vel þekkt sjálfstætt starf-
andi listastofnun í borginni sem býður lista-
mönnum að vinna sýningar sem fá að standa
uppi í nokkra mánuði í senn. Fyrri hluti sýn-
ingar Roni Horn lýkur 27. febrúar á næsta ári
en þá tekur seinni hlutinn við fram á mitt sum-
ar.
Hvað er hvað? Ljósmyndaverkið „Þetta er
ég, þetta ert þú“ (This is Me, This is You) er frá
1999–2000. Titillinn er tilvitnun í orð fyrirsætu
verkanna, ungrar stúlku, sem svaraði svohljóð-
andi spurningunni um það hver hún væri og
hverjir aðrir væru. Einlæg og grípandi svip-
brigði hennar koma fyrir á 96 ljósmyndum,
sem skipt er upp í tvo flokka. Myndirnar eru
teknar við ólíkar aðstæður og við sjáum sama
andlitið þreytt og glatt, ygglt og íhugult, með
uppsett og vel greitt hárið eða blautt af sundi.
Hvert portrett er öðru ólíkara en þegar verkin
á veggnum andspænis eru skoðuð verða þessar
fjölbreytilegu svipmyndir að smærri blæbrigð-
um hinna verkanna. Myndaraðirnar tvær
reynast næstum eins en þó ekki alveg.
Síbreytileg andlit Thames-ár birtast í röð 32
ljósmynda Roni Horn af rennsli árinnar í verk-
inu „Nokkrar Thames-ár“ (Some Thames) frá
síðasta ári. Þar má sjá litaskala vatnsins, allt
frá því hálfgegnsæja til þess djúpsvarta, og
þar á milli fínleg blæbrigð þess gráa, bláa,
græna, brúna og gula. Verkin eru hluti stærri
myndaraðar sem Horn hefur áður sýnt með
öðrum hætti í Whitney-safninu ásamt hugleið-
ingum sínum í textaformi um eðli árinnar og
hvað það sé við vatnið sem í senn heilli okkur
svo mjög og hræði.
Þarna standa ljósmyndirnar einar og sér og
áherslan er á hin ólíku litbrigði sem kölluð eru
fram í þessari frystingu hverfuls augnabliks
sem í raun er andsnúið eðli vatnsins.
Andstæðar öfgar þess gegnsæja við það
djúpsvarta eru dregnar fram í skúlptúrunum
tveimur „Án titils (Já)“ frá þessu ári. Í sitt
hvoru herberginu standa stórir ferhyrningar
með ávölum hornum. Annar er úr næstum
gegnsæju, þykku gleri en hinn úr gegnheilum
svörtum lit sama efnis. Á meðan gegnsætt og
fljótandi yfirborð glersins varpar frá sér um-
hverfinu í öðrum salnum, sogar þungi svörtu
andstæðu spegilmyndarinnar það til sín.
Í verkinu „Clowd og Cloun (Grátt)“ frá
þessu ári, leikur Horn sér að samruna tveggja
auðkennanlegra ímynda, trúðsins og skýsins.
Tvö fyrirbrigði sem við teljum okkur þekkja
jafn vel, en þó vill svo til að eitt þeirra á sér
ekkert fast form, er síbreytilegt, á meðan hitt
er ekki annað en táknmynd, yfirborðskennt
gervi svipt persónulegum einkennum. Í röð 28
ljósmynda hefur Horn endaskipti á ímyndun-
um með því að gefa síbreytilegu skýjafari fast
form í röð 14 ljósmynda en leitast að sama
skapi við að leysa upp alþekkta táknmynd
trúðsins, í jafnmörgum myndum, sem reynast
hreyfðar og þokukenndar. Máttur ímyndar-
innar er þó slíkur að augað er ekki í vafa um
hvað það er sem það nemur, hvort sem um er
að ræða hálfuppleysta trúðsmynd eða fast
form grárra skýja sem það stendur svo stað-
fastlega frammi fyrir, og þó er ekki.
Í bókabúð Dia er svo að finna hljóðverkið
Segjandi vatn (Saying Water), 75 mínútna
langa einræðu listakonunnar, verk frá þessu
ári ásamt fjölmörgum bókverkum hennar, þar
á meðal verkunum frá Íslandi.
Framsetning þessara í senn ljóðrænu og
rökrænu hugmynda er einbeitt og ríkuleg að
tilbrigðum. Leikur sýningin á allan skala
skynjunar okkar, allt frá augljósum breyting-
um ákveðinna fasta til smæstu blæbrigða sem
felast innan hvers þeirra.
Eitt par verka úr myndaröðinni Þetta er ég, þetta ert þú eftir Roni Horn, frá 1999–2000.
LEIKIÐ Á
SKALA
SKYNJUNAR
Sýning á verkum Roni Horn hefur verið opnuð í Dia-
listamiðstöðinni í New York. HULDA STEFÁNSDÓTTIR
skoðaði þessi nýju verk listakonunnar sem hér á landi
er kunnust fyrir ljósmyndir sínar og texta frá
fjölmörgum ferðum sínum um Ísland.
MYNDLIST
Árnastofnun: Handritasýning opin þri.-
fös. 14-16. Til 15.5.
Galleri@hlemmur.is: Hildur Bjarna-
dóttir. Til 4. nóv.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Þorfinnur
Sigurgeirsson. Til 28. okt.
Gallerí List, Skipholti 50: Elísabet Ás-
berg. Til 27. okt.
Gallerí Reykjavík: Vera Sörensen. Til
27. okt.
Gallerí Skugga: Hver með sínu nefi. Til
28. okt.
Gerðarsafn: Erla Þórarinsdóttir,
Hulda Hákon, Jón Óskar og Steingrím-
ur Eyfjörð. Til 4. nóv.
Hafnarborg: Jónína Guðnadóttir,
Kristján Pétur Guðnason. ListVerkun.
Til 12. nóv.
Hallgrímskirkja: Detel Aurand. Til 26.
okt.
i8, Klapparstíg 33: Kristján Davíðsson.
Rósa Sigrún Jónsdóttir. Til 27. okt.
Listasafn Akureyrar: Frumherjar í
byrjun 20. aldar. Til 4. nóv.
Listasafn ASÍ: Anna Eyjólfsdóttir. Til
4. nóv.
Listasafn Borgarness: Sigrid Østerby.
Til 2. nóv.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 14-17.
Listasafn Rvíkur – Ásmundarsafn:
Svipir lands og sagna. Til 10.2.
Listasafn Rvíkur – Hafnarhús: Erró.
Til 1.1. Einar M. Guðvarðarson og
Bjarne Lönnroos. Til 25. nóv.
Listasafn Rvíkur – Kjarvalsstaðir:
Austursalur: Jóhannes S. Kjarval. Til
31.5. Kristján Guðmundsson. Til 16.
nóv.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Helgi
Gíslason. Til 28. okt.
Listasalurinn Man: Fríða S. Kristins-
dóttir. Til 20. nóv.
Listhús Ófeigs: Bubbi, Guðbjörn Gunn-
arsson. Til 20. okt.
Nýlistasafnið: Listþingið Omdúrman.
Margmiðlaður Megas. Til 30. nóv.
Skaftfell, Seyðisfirði: Haustsýning
Skaftfells. Til 18. nóv.
Skálholtskirkja: Anna Torfad. og Þor-
gerður Sigurðard. Til 31. des.
Slunkaríki, Ísafirði: Vignir Jóhanns-
son. Til 28. okt.
Snegla listhús: Samsýning á verkum
Snegluhópsins. Til 10. nóv.
Stöðlakot: Margrét Margeirsdóttir. Til
28. okt.
Þjóðarbókhlaða: Kristín Reynisdóttir.
Til 3. nóv.
Þjóðmenningarhúsið: Landafundir og
ragnarök.
Þjóðskjalasafn Íslands: Skjöl Einars
Laxness. Til 1. des.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Salurinn: Samkórs Kópavogs. Kl. 16.
Sunnudagur
Hjallakirkja: Lenka Mátéová og Mar-
grét Bóasdóttir. Kl. 17.
Salurinn: Guðný Guðmundsdóttir, fiðla,
og Peter Máté, píanó. Kl. 20.
Dómkirkjan: Karlakórarnir Marie-
hamns Kvartetten (MK) og Nio sång-
are (NS). Kl. 20.30.
Miðvikudagur
Salurinn: Kvenleg skemmtidagskrá.
Kl. 20.
Föstudagur
Langholtskirkja: Karlakórinn Fóst-
bræður, karlakórarnir MK og NS. Kl.
19.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Syngjandi í rigningunni,
20., 26. okt. Blái hnötturinn, 21. okt.
Með fulla vasa af grjóti, 21. okt. Vatn
lífsins, 25. okt. Hver er hræddur við
Virginíu Woolf? 21., 25. okt.
Borgarleikhúsið: Blíðfinnur, frums. 20.
okt. 21. okt. Með vífið í lúkunum, 20., 26.
okt. Píkusögur, 25., 26. okt.
Íslenski dansflokkurinn: Ný íslensk
verk, frums. 25. okt. 26. okt.
Íslenska óperan: Töfraflautan, 20., 21.,
26. okt.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Englabörn,
20. okt.
Kaffileikhúsið: Veröldin er vasaklútur,
20., 23., 26. okt.
Leikfélag Mosfellsbæjar: Brúðkaup
Tony og Tinu. 21., 25. okt.
Möguleikhúsið: Skuggaleikur, 21., 22.,
26. okt. Lóma, 25. okt.
Leikfélag Akureyrar: Blessað barna-
lán, 20. okt.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U