Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.2001, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. OKTÓBER 2001
O
MDÚRMAN: Marg-
miðlaður Megas í Nýló
er yfirskrift sýningar
eða listþings Nýlista-
safnsins helgað Meg-
asi, Magnúsi Þór Jóns-
syni. Þingið hefst í dag
klukkan fimm, og
stendur út nóvember.
Þinginu er ætlað að gefa innsýn í heim Meg-
asar, vinnubrögð og höfundarverk – „þaulunn-
ið, frjótt, djarft, heiðarlegt, beitt og óvægið“
eins og segir í fréttatilkynningu Nýlistasafns-
ins. Megas hefur um árabil verið einn sérsta-
kasti listamaður landsins – ekki alltaf viður-
kenndur að verðleikum, en sannur hvort sem
hann hefur dregið upp ásýnd tónlistarmanns-
ins, rithöfundarins eða myndlistarmannsins. Á
Degi íslenskrar tungu á síðasta ári hlaut hann
verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, og þar með
opinbera viðurkenningu á list sinni og framlagi
til tungumálsins.
Listþingið um Megas verður lifandi og
sprækt allan sýningartímann, með tónleikum,
málþingi, hljómorðakvöldi, kvikmyndasýning-
um og spjallkvöldum. Þátttakendur í þinginu
verða fjölmargir og koma úr ýmsum greinum
lista. Í SÚM-salnum verður sýning á verkum
listamanna sem hafa haft áhrif á Megas, en það
er Þorvaldur Þorsteinsson, myndlistarmaður
og rithöfundur, sem sér um þá sýningu.
Í forsal miðhæðar verða myndverk og textar
Megasar til sýnis, en í Gryfju verður ýmislegt
annað úr handraða Megasar dregið fram í
dagsljósið. Jóhann Ludwig Torfason og Hall-
dór Baldursson myndlistarmenn sjá um þá
sýningu. Í kaffistofu Nýlistasafnsins verður
starfrækt netkaffi, þar sem hægt verður að
skoða efni um Megas. Þar verður til sýnis ým-
islegt úr fórum listamannsins og stiklur frá
ferli hans.
Lifandi list í tali og tónum
meðan á þinginu stendur
Meðal þeirra viðburða sem efnt verður til
verða tvennir stærri tónleikar og nokkur minni
tónlistarkvöld. 31. október verður hljómorða-
kvöldið, þar sem bandarískir gestir og Íslend-
ingar flytja texta, ljóð og tónlist eftir Megas.
Málþing um höfundarverk skáldsins verður
haldið 10. nóvember. Megas mun að sjálfsögðu
taka þátt í uppákomum á listþinginu og koma
fram meðal annars á tónleikum og á rabb-
kvöldi.
Fjöldi annarra lifandi viðburða verður á list-
þinginu um Megas, og verða þeir auglýstir
nánar þegar nær þeim dregur. Nýlistasafnið
er sem fyrr segir vettvangur Megasarþings-
ins, en samstarfsaðili þess er vefritið Kistan,
en Menningarborgarsjóður og menntamála-
ráðuneytið styrkja verkefnið. Framkvæmda-
nefnd listþingsins skipa Geir Svansson, Hjálm-
ar Sveinsson, Eiríkur Guðmundsson, Jón
Hallur Stefánsson, Stefán Ingólfsson, Guð-
mundur Oddur Magnússon og Ósk Vilhjálms-
dóttir. Í tilefni listþingsins gefur Edda – miðl-
un út bók um Megas í ritstjórn Hjálmars
Sveinssonar og Geirs Svanssonar, en Nýlista-
safnið og Kistan standa einnig að útgáfu bók-
arinnar.
Megas segist hafa verið sýningargripur
meira og minna alla ævi en að honum hafi alltaf
þótt það tvíbent að vera í sviðsljósinu. „Ég vil
helst ekki vera til sýnis nema þegar ég er að
vinna. En þeir sem standa að þessu eru búnir
að tína til ansi margt sem ég hef verið að gera
um dagana og er búinn að gleyma, og það verð-
ur gott fyrir mig að rifja það upp. Maður hefur
verið að dunda sér við ýmislegt sem annað-
hvort leiddi eitthvert eða ekkert, og þarna er
þessu öllu safnað saman.“ Megas segist sjálfur
hafa verið nokkuð laus við undirbúning þingins
að öðru leyti en því að láta af hendi efni til sýn-
ingarinnar. „Sumt af þessu áleit ég reyndar
ekki til sýningar, en þeir verða að vega það og
meta. Jú, þetta er í sjálfu sér sýning á mér –
ekki endilega á verkum vegna gæða þeirra –
þetta er púsluspil.“ Megas tekur dræmt undir
að sýningin sýni á honum margar hliðar.
„Þetta er nú kannski frekar sönnun þess að á
mér er bara ein hlið og hún er náttúrulega 360
gráður.“ Og þar með er það orðið hálfkjánalegt
að spyrja Megas að því hverja af hliðum sínum
hann kunni best við. „Ætli maður sé ekki alltaf
að leita að hliðinni sem maður vill sjá, en er
ekki til, en maður er nú bara eins og maður
er.“
Megas er nýbúinn að ljúka við upptökur á
plötu sem kemur út á næstu dögum. Með hon-
um leika þar Kristinn Árnason og Guðlaugur
Óttarsson gítarleikarar, Gunnar Hrafnsson
bassaleikari, Birgir Baldursson trommuleikari
og Kjartan Hákonarson trompetleikari úr
Jagúar. „Þetta er bara „rock ’n’ roll“, tekið upp
í september 2001. Svo er þarna með mér líka
Sara Guðmundsdóttir, firnamikil söngkona –
miklu betri en hún taldi sig vera – og svo eru
þarna líka Hilmar Örn Hilmarsson og Valgeir
Sigurðsson. Valgeir er framleiðslustjóri og
pródúsent og hann sá um að halda þessum hópi
saman, og samstarfið gekk eins og hugur
manns og gott betur.“
Tíminn er allur í einum punkti
Megas segir að lögin á plötunni séu bæði ný
og gömul. „Ég er nú á því að ef ævafornt lag
passar inn í konseptið sem farið er að myndast,
þá eigi það að vera með. Tíminn er allur í ein-
um punkti eins og þú veist.“ Megas segir að
konseptið eða hugmyndin að plötunni eigi sér
rætur í tveimur fyrri plötum. „Ég hugsa mér
að platan Til hamingju með fallið sé fyrsti hlut-
inn af trílógíu; platan Fláa veröld sé annar
hlutinn og þessi sá þriðji.“ Það er ekki komið
nafn á plötuna, og segir Megas að hefðarinnar
vegna verði enn um sinn launung á því.
Megas segist ekki vita mikið um bókina um
hann sem kemur út í tengslum við þingið í Ný-
listasafninu. „Jú, hún er þó að einhverju leyti
byggð á ansi löngu og viðamiklu spjalli okkar
Jóns Halls Stefánssonar sem hann notaði að
nokkru leyti í þáttaröð í Útvarpinu. Ætli ég sé
ekki jafnspenntur og þú að sjá þessa bók. Bók-
in er hönnuð af Harra, sem hannaði bókina
hennar Rósku fyrir tveimur árum, þannig að
það eru horfur á að hún verði að minnsta kosti
meistarastykki í hönnun.“
Sívinnandi og sískrifandi
Sem fyrr segir stendur þingið í Nýlistasafn-
inu til nóvemberloka. Þeir sem vilja öðlast nán-
ari kynni af Megasi og verkum hans geta leitað
á heimasíðu Kistunnar, www.kistan.is, en þar
er að finna nánari upplýsingar um þingið og
dagskrá þess. Á síðunni er einnig að finna
texta eftir Megas, meðal annars eina af smá-
sögum Plaisir d’Amour, og umfjöllun annarra
um verk hans og sýninguna í Nýlistasafninu. Í
umfjöllun um þingið segir penni Kistunnar:
„Þegar verk Megasar er skoðað, hvort sem
er í bundnu eða lausu máli eða myndlist, hlýtur
magnið að vekja athygli; maðurinn er sívinn-
andi, sískrifandi. Það væri í sjálfu sér ekki saga
til næsta bæjar, nema vegna þess hvað gæðin
eru mikil. Þetta á auðvitað einkum við í söng-
textunum, hans aðal list, þar sem ekki er hægt
að jafna honum við nokkurn annan en Bob Dyl-
an. Á höfundarverki beggja er ekki snöggan
blett að finna, ekki þegar á heildina er litið -
allt er á sínum stað í einstakri lífslistarmósaík.
Prósi og myndlist Megasar eru minna
þekktir, kannski nær óþekktir, þættir í höf-
undarverkinu. Þegar grannt er skoðað eru
báðir ómissandi þræðir í listaverkinu Megas,
þótt hvorugur hafa fengið viðurkenningu en
yfrið af óvæginni gagnrýni. Enda eflaust hægt
að benda á hnökkra og galla út frá fínum og
góðum stöðlum. Hér er á ferðinni ekta pönk,
sögulega meðvitað (ef það er ekki mótsögn),
persónulegt, ófjötrað og andfasískt.“
„MAÐUR ER NÚ BARA
EINS OG MAÐUR ER“
Nýlistasafnið og vefritið Kistan efna til sýningar
og þings um Megas. Nýlistasafnið efnir til marg-
víslegra viðburða meðan á þinginu stendur.
BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR segir frá þinginu og
ræðir við Megas um það hvernig það er að vera
til sýnis, um nýja plötu og bók.
Morgunblaðið/Einar Falur
Megasi verður margmiðlað í Nýlistasafninu næsta mánuðinn.
begga@mbl.is
LISTAMENNIRNIR Jónína Guðnadóttir og
Kristján Pétur Guðnason opna sýningarnar
Hringrás vatnsins og Speglar í neðri sölum
Hafnarborgar, Apótekinu og Sverrissal í
dag kl. 15.
Jónína sýnir í Apótekinu og heitir sýn-
ingin Hringrás vatnsins. Hún hefur haldið
fjölda einkasýninga og verið virkur þátt-
takandi í íslensku myndlistarlífi undafarna
áratugi. Á sýningunni eru myndverk unnin
í leir, steinsteypu, gler og önnur þau efni
sem listformið krefst. Sýningin er unnin
útfrá þeim hugleiðingum að allt sem við
látum frá okkur skili sér til baka og hafni í
viðkvæmri og brothættri hringrás.
Kristján Pétur sýnir ljósmyndir í Sverr-
issal á sýningunni Speglum. Þetta er fyrsta
einkasýning Kristjáns en hann hefur áður
tekið þátt í nokkrum samsýningum. Á sýn-
ingunni eru rúmlega tuttugu ljósmyndir
sem sýna spegilmyndir úr náttúru og um-
hverfi, teknar á sl. 14 mánuðum. Kristján
hefur starfað við ljósmyndun í 30 ár og
fengist talsvert við listaverkatökur fyrir
einstaklinga og söfn auk þess að starf-
rækja ljósmyndavinnustofu og skyldan
rekstur.
Sýningarnar standa til 5. nóvember og
eru opnar alla daga nema þriðjudaga kl.
11-17.
Vatn og speglar
Úr seríunni Hringrás.