Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2001, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. OKTÓBER 2001 5
ögrandi og það jafnvel þegar listamennirnir
vinna í hefðbundna miðla, s.s. málararnir John
Currin, Sean Landers og Rita Ackermann.
Meðal annarra listamanna sem þar sýna eru
ljósmyndarinn og Turner-verðlaunahafinn
Wolfgang Tillmans, Matthew Ritchie og Andr-
ea Zittel. Galleríið fer einnig með verk úr dán-
arbúi Felix Gonzales-Torres. Fyrsta sýning
haustsins verður á verkum ljósmyndarans
John Coplans og þar á eftir fylgir John Currin.
5. Metro Pictures, 519 W. 24. stræti
Eins og allflest galleríin í Chelsea sýnir
Metro Pictures verk samtímalistamanna en
flestir listamannanna sem þar eru til húsa eru
bandarískir. Meðal annarra eru Cindy Sher-
man, Tony Oursler, Mike Kelley og Martin
Kippenberger. Þann 15. september verður
opnuð sýning á teikingum og skúlptúrum Gary
Simmons.
6. Barbara Gladstone,
515 W. 24. stræti
Galleríið leggur ríka áherslu á vídeó- og kvik-
myndaverk og ljósmyndir. Barbara Gladstone
er t.d. framleiðandi að Cremaster kvikmyndum
Matthew Barneys og verkum Shirin Neshat.
Meðal annarra listamanna sem þar sýna eru
Vito Acconci, Jan Dibbets, Gary Hill, Anish
Kapoor, Sarah Lukas, Mario Merz, Richard
Prince, Rosmarie Trockel og James Turrell.
Frá 7. til 29. september gengst galleríið fyrir
samsýningu á verkum Stephan Balkenhol, An-
ish Kapoor og Rosmarie Trokel.
7. Dia-listamiðstöðin, 548 W. 22. stræti
Dia-listamiðstöðin er stofnun sem rekin er
með styrkjum frá einstaklingum og opinberum
aðilum og var sett á laggirnar fyrir 20 árum.
Markmiðið var að styðja við bakið á listamönn-
um sem unnu að varanlegum umhverfislista-
verkum og kostnaðarsömum og stórum inn-
setningum – listamönnum sem stóru listasöfnin
virtu oftast að vettugi. Þar má nefna Walter de
Maria, Donald Judd, Joseph Beuys, John
Chamberlain, Robert Irwin og Richard Serra.
Dia gegnir sérstöðu í Chelsea. Fyrir það
fyrsta var stofnunin í fararbroddi endurnýjun-
ar hverfisins þegar safnið var vígt árið 1988 og
nokkur ár liðu þar til listgalleríin fóru einnig að
hugsa sér til hreyfings.
Í annan stað er starfsemi stofnunarinnar
mjög víðtæk og fer fram á fjölmörgum stöðum í
Bandaríkjunum. Dia átti t.d. þátt í því á sínum
tíma að koma á fót listamiðstöð á búgarði Judds
í Marfa í Texas. Dia hefur undir sínum vernd-
arvæng fjölda umhverfisverka og innsetninga á
borð við Eldingarvöll de Maria og jarðvegs-
herbergið hans á Wooster stræti í SoHo. Þá
hefur Dia nýverið ákveðið að styrkja lista-
manninn James Turrell til að ljúka áratuga-
löngu og metnaðarfullu verkefni sínu við mótun
eldgígsins Roden Crater í Arizona.
Nú lýkur senn 100 milljón dollara fjáröflun-
arherferð Dia sem hófst árið 1995 og miðaði að
því að efla enn starfsemi stofnunarinnar.
Dia á stórt safn verka eftir listamennina
Beuys, de Maria, Judd, Dan Flavin, Andy War-
hol, Agnes Martin, Robert Ryman og Blinky
Palermo sem fundinn verður varanlegur sama-
staður í risavöxnu listasafn Dia sem opnað
verður í Beacon við Hudson-á í New York-fylki
næsta vor.
Á síðasta ári voru unnið að breytingum á
húsnæði Dia í Chelsea. Bandaríski listamaður-
inn Jorge Pardo hannaði nýja bókaverslun þar
og anddyri.
Sýningar safnsins eru gerðar sérstaklega
fyrir sali þess og geta staðið í allt að því ár. Nú
er uppi í miðstöðinni vídeóinnsetning Diönu
Arbus. Þá er nýlokið árslangri samsýningu
Rodney Graham og Bruce Nauman, og sýningu
á verkum breska Op-art málarans Bridget Ri-
ley.
Þann 12. september verður opnuð samsýn-
ing Jorge Pardo og ítalska skúlptúristans Gil-
berto Zorio. Síðar í september verður opnuð
sýning á málverkum Alfred Jensens en báðar
þessar sýningar standa til 16. júní á næsta ári.
Þann 17. október opnar fyrri hluti sýningar á
nýjum verkum Roni Horn en síðari hluti sýn-
ingarinnar tekur við af þeim fyrri í febrúarlok
og stendur fram á sumarið 2002. Í september
verða sýndar kvikmyndir og myndbandsverk
undir berum himni á þaki safnsins; verk eftir
Döru Birnbaum, Dan Graham og Ernie Gehr.
Þá verður sett upp japanskt Noh-leikhús en
umgjörð þess er eftir japanska ljósmyndarann
Hiroshi Sugimoto og belgíska listakonan
Chantal Akerman flytur nýlegan gjörning sinn.
Í bókabúð Dia má nálgast mikið safn fagbóka
og tímarita um myndlist. Þar eru líka haldnir
ljóðaupplestrar úr verkum samtímaljóðskálda
og fyrirlestrar um myndlist og menningu dags-
ins í dag.
8. Matthew Marks, 522 W. 22. stræti
og 523 W. 24. stræti
Vídeóinnsetningar hafa verið nokkuð áber-
andi hjá galleríinu síðustu misseri en Matthew
Marks sýnir allra handa verk samtímalista-
manna í tveimur sýningarsölum gallerísins í
Chelsea. Galleríið selur einnig verk úr dán-
arbúum Ellsworth Kelly og Willem de Koon-
ing. Meðal listamanna sem þar sýna eru Peter
Fischli og David Weiss, Lucian Freud, Kath-
arina Fritsch, Nan Goldin, Andreas Gursky,
Roni Horn, Gary Hume, Brice Marden, Sam
Taylor-Wood, Terry Winters, Tony Smith og
Inez van Lamsweerde sem einnig er þekkt fyr-
ir tískuljósmyndir sínar. Inez stýrði sumarsýn-
ingu gallerísins ásamt samstarfsmanni sínum
Vinoodh Matadin þar sem m.a. mátti sjá nýtt
tónlistarmyndband Bjarkar, „Hulinn staður“,
sem jafnframt er fyrsta myndbandsverk Inez
og Vinoodh.
9. Marianne Boesky,
535 W. 22. stræti
Eins og ljóst má vera af ofangreindum upp-
talningum þá hefur ljósmyndin skipað sér fast-
an sess á meðal annara listmiðla í sýningarsöl-
um borgarinnar. Í sumar opnaði Marianne
Boesky ljósmyndmiðstöð sem starfar innan vé-
banda gallerísins og kennt er við Kennedy-
Boesky. Í tengslum við þessa nýju starfsemi
gekkst galleríið fyrir sýningu á ljósmyndum
ýmissra listamanna sem þekktir eru fyrir verk í
öðrum miðlum, m.a. Robert Gober, Damien
Hirst, Rachel Whiteread og Lisa Yuskavage.
Yuskavage er á meðal listamanna gallerísins,
sem og Sarah Sze og Takashi Murakami.
Fyrsta sýning haustsins verður á verkum Kev-
in Appel og opnar í septemberlok.
10. Printed Matter,
Inc. 535 W. 22. stræti
Bókabúðin og fjölfeldi-, hljóð- og bókverka-
útgáfan Printed Matter er á jarðhæð sömu
byggingar og gallerí Boesky. Þar er að finna
verk fleiri en fjögur þúsund alþjóðlegra lista-
manna og meira en 13 þúsund bókatitla. Nýver-
ið var þar t.d. stillt fram sýningarskrá frá sam-
sýningu Lawrence Weiners, Þórs Vigfússonar,
Kristins Hrafnssonar og Kristjáns Guðmunds-
sonar í Ásmundarsal sl. sumar.
11. 303 Gallerí, 525 W. 22. stræti
Galleríið leggur áherslu á verk yngri kyn-
slóðar listamanna sem eru að ávinna sér nafn.
Meðal þeirra sem þar eru kynntir og hafa notið
árangurs erfiðisins má nefna Doug Aitken,
Thomas Demand, Karen Kilimnik, Sue Will-
iams og systurnar Jane og Louise Wilson. Þann
15. september verður opnuð sýning á verkum
Rodney Graham.
12. D’Amelio Terras, 525 W. 22. stræti
Fyrsta sýning haustsins verður á verkum
Joe Scanlan, hillu-smíðandi listamanni sem hef-
ur rekið eigin verslun í Brooklyn frá 1989 en
þann 4. september vígir hann eftirlíkingu þess-
arar verslunarinnar í galleríinu. Aðrir lista-
menns sem sýna verk sín hjá D’Amelio Terras
eru m.a. Robert Gober, Yayoi Kusama, Polly
Apfelbaum, Rika Nouguchi og Karin Sander.
13. Paula Cooper, 534 W. 21. stræti
Galleríið leggur nokkra áherslu á verk lista-
manna sem kenndir eru við stefnu minimalism-
ans. Þar má finna fjölbreytilegar sýningar
listamanna s.s. Carl Andre, Celeste Boursier-
Mougenot, Sophie Calle, Dan Flavin, Wayne
Gonzales, Donald Judd, Yayoi Kusama, Zoe
Leonard, Sherrie Levine, Sol LeWitt og Andr-
eas Serano. Auk sýninga gallerísins sem skipt
er út á nokkra vikna fresti rekur Cooper sýn-
ingarsal í húsi hinum megin götunnar þar sem
alla jafna er að finna verk nokkurra þekktustu
umbjóðenda hennar.
14. Tanya Bonakdar, 521 W. 21. stræti
Bonakdar kynnir verk Ólafs Elíassonar í
borginni en síðasta sýning Ólafs hjá galleríinu
var haldin sl. desember.
Meðal annarra listamanna sem þar sýna eru
Ernesto Neto, Thomas Scheibitz, Michael Elm-
green og Ingar Dragset, Sabine Hornig og Ter-
esa Hubbard og Alexander Birchler. Þann 6.
september verður opnuð sýning á verkum
Söndru Cinto.
15. Gavin Brown’s enterprise,
Corp., 436 W. 15. stræti
Stemmningin hjá Gavin Brown minnir mig
svolítið á Kaffibarinn. Herra Brown rekur líka
bar við hlið sýningarsalar síns á 15. stræti þar
sem lýsingin undir gegnsæjum gólfflísunum
blikkar í takt við tónlistina í anda dansgólfa 8.
áratugarins. Þess vegna er líka alltaf hálf súr,
en þó ekki sjarmalaus, reykingalykt í gallerí-
inu. Og sýningarnar ýmist afslappaðar og góð-
ar eða tilgerðarlega „smart“, allt eftir því í
hvernig skapi herra Brown er. Haustið lofar
góðu. Þann 8. september verður opnuð samsýn-
ing Oliver Payne og Nick Relph og sýning
Aleksöndru Mir. Þann 13. október opnar svo
sýning á nýjum málverkum Elisabeth Payton
sem hingað til hefur sótt innblástur til breskra
popphljómsveita og konungsfjölskyldunnar.
Opnunartími gallería í borginni er ýmist frá
10 eða 11 fyrir hádegi til klukkan 6 á kvöldin,
frá þriðjudegi til laugardags, en lokað er á
sunnudögum og mánudögum.
Bókaverslun Dia-listamiðstöðvarinnar hefur tekið umskiptum eftir forskrift listamannsins Jorge
Pardo sem á heiðurinn af marglitu flísaverki og freskum á veggjunum.
Innan við sýningarsali Gagosian blasir við sjón sem maður tengir frekar við ferðaskrifstofur eða
verðbréfamiðlun en myndlistargallerí. Og hvers vegna ætti sala á samtímamyndlist ekki að vera
eins og hver önnur viðskipti?
Matthew Marks-gallerí á 22. götu. Aðalsmerki gallerísins er ljósmyndir og vídeóinnsetningar.
Fátt bendir til þeirrar gróskumiklu gallerístarfsemi sem rekin er í Vestur-Chelsea og t.d. er starf-
semi á borð við bílaverkstæði og partasölur þar mun sýnilegri.