Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2001, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2001, Blaðsíða 8
S ÝNINGAR á hönnun og arkitekt- úr hafa verið áberandi í helstu listasöfnum heims að undan- förnu. Á þessu ári voru settar upp samtímis í New York tvær yfirgripsmiklar sýningar um byggingarlist og hönnun arki- tektsins Mies van der Rohe á vegum Nútímalistasafnsins og Whitney-lista- safnsins. Á sama tíma var í aðalbyggingu Gugg- enheim-safnsins sýning á teikningum og líkönum bandaríska arkitektsins Franks Gehry. Aukinn áhuga listastofnana á hönnun og arkitektúr má skoða sem vísbendingu um að hefðbundin skil milli nytjalistar og hreinnar myndlistar séu á undanhaldi. Viðfangsefni safnsýninga er í vax- andi mæli sjónmenntir í víðasta skilningi þess orðs, samspil og tengsl ólíkra greina. Sýningar um hönnun eru vel til þess fallnar að vekja áhuga fólks á sjónlistum. Margt af því sem þar ber fyrir augu er kunnuglegt úr daglegu umhverfi, svo sem heimilistæki, húsgögn, skrautmunir og nytjahlutir. Líf fólks mótast í vaxandi mæli af hönnun í víðasta skilningi þess orðs. Það á ekki aðeins við um búsáhöld, tæki, húsgögn, bíla, byggingar og annað manngert umhverfi heldur einnig ímyndir fyrirtækja og einstaklinga, ásýnd skjámiðla og framsetningu hugmynda og upplýs- inga í rafrænu formi. Hönnun er að því leyti ólík myndlist að sýning á frumgerð verks er ekki hið endanlega takmark, heldur einn liður í löngu þróunarferli sem miðar að því að framleiða og selja tiltekna vöru eða þjónustu í hagnýtum tilgangi. Leiðin frá fyrstu hugmynd að söluhæfri framleiðsluvöru er lengri en flesta grunar. Þá eldskírn þurfa hönnunar- verk að ganga í gegnum áður en þau hljóta heið- urssæti á söfnum heimsins. Sú var raunin með þá hluti sem nefndir hafa verið til sögunnar sem klassísk hönnun 20. aldar, svo sem stóla Arne Jacobsen, Moka Express-könnu Bialettis eða Volkswagen-bjöllu Ferdinands Porsche. Það að markaðurinn er mótandi þáttur í allri hönnun hefur áhrif á framgang og kynningu nýrra hugmynda. Sýningar á hönnun geti bæði tekið á sig form listsýningar og vörukynningar. Áhugaverðasta framsetningin er þó oft hæfileg blanda af þessu tvennu. Nærtækt íslenskt dæmi er brautryðjandastarf húsgagnahönnuðarins og kaupmannsins Eyjólfs Pálssonar í Epal, sem í mörg ár hefur beitt sér fyrir framgangi hönn- unar hér á landi samhliða rekstri eigin fyrirtæk- is. Fyrr á þessu ári hlaut Eyjólfur virtustu hús- gagnaverðlaun Danmerkur, Møbelprisen, sem sjóður danska húsgagnaiðnaðarins veitir. Í greinargerð með verðlaunum segir að með þeim hljóti „einn fremsti og áhugasamasti kynnir danskrar húsgagnalistar erlendis verðskuldaða viðurkenningu fyrir óþreytandi starf sitt við að kynna dönsk gæðahúsgögn í heimalandi sínu um árabil. Eyjólfur hefur í meira en aldarfjórðung unnið ómetanlegt starf á Íslandi við að kynna framleiðslu danskra gæðahúsgagna og hönnun af staðfestu og áhuga sem jafnvel tímabundinn samdráttur í efnahagslífinu hefur ekki megnað að draga úr“. Annað dæmi þar sem nýsköpun og markaðssetning er fléttuð saman á farsælan hátt er hönnunarsýningin 100% Design í London sem haldin hefur verið á hverju hausti síðan árið 1995. Hún er nú af mörgum talin meðal helstu við- burða ársins í alþjóðlegum hönnunarheimi. Skipuleggjendum hennar hefur tekist að feta hinn vandrataða veg á milli sölumennsku og þess að stuðla að framgangi góðrar hönnunar. Lykill- inn að þessari farsælu blöndu er að stærð sýning- arinnar hefur frá upphafi verið takmörkuð og því unnt að gera strangar gæðakröfur til þeirra fyr- irtækja sem þátttöku óska. Þess hefur jafnframt verið gætt að jafnvægi sé milli virtra alþjóðlegra fyrirtækja og lítt þekktra grasrótarfyrirtækja. Ákveðinn hundraðshluti sýnenda á hverju hausti kynnir vöru sína í fyrsta sinn. Eitt dæmi um slíkt fyrirtæki er Propagandist Company Limited, sem kynnti framleiðslu sína í bás á 100% Design í fyrra. Það var stofnað árið 1994 Bangkok, Taí- landi, eftir að eigendur þess höfðu uppgötvað markað fyrir óhefðbundna nytjahluti og gjafa- vörur í heimalandi sínu. Síðan þá hefur fyrirtæk- ið vaxið úr engu og framleiðsluvörur þess eru nú í sölu og kynningu víða um heim. Hönnun fyrir- tækisins einkennist af hugarflugi og sköpunar- gleði, hvort sem um er að ræða glervörur, postu- lín, púða, baðvörur, glervörur eða bréfsefni. Sú hugmynd að listræn gæði, notagildi og söluhæfni séu óaðskiljanlegir þættir góðrar hönnunar hefur lengi verið leiðarljós í norrænni hönnun. Færri tengja slíka hugsun við Bretland, sem hefur mjög styrkt stöðu sína sem hönnunar- land á undanförnum árum. Bretar hafa lengi átt framúrskarandi menntastofnanir á þessu sviði, svo sem Royal College of Art og Architecture Association School of Architecture. Breskur „sköpunariðnaður“ hefur vaxið að umsvifum á undanförnum árum og er nú hampað af þarlend- ALÞJÓÐLEGUR SKÖ Sýningarbás fyrir efnafyrirtækið DuPont Corian á 100% Desig Stóllinn „Skyseat“ eftir Sigurð Gústafsson arkitekt. Sigurður hlaut nýverið sænsku Bruno Maths- son-verðlaunin fyrir verk sín á sviði húsgagnahönnunar. Útskorin diskamotta úr svörtu gúmmíi eftir Tinnu Gunnarsdóttur iðnhönnuð, framleidd á Indlandi fyrir norska fyrirtækið Casabel. e f t i r P É T U R H . Á R M A N N S S O N Líf fólks mótast í vaxandi mæli af hönnun í víðasta skiln- ingi þess orðs. Með nýrri samskiptatækni hefur hönnun sem atvinnugrein rofið tengsl sín við staðbundna fram- leiðslu og þróast yfir í alþjóðlegan sköpunariðnað. 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. OKTÓBER 2001

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.