Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2001, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2001, Blaðsíða 9
Framleiðsluvörur taílenska fyrirtækisins Propagandist hafa vakið athygli á alþjóðlegum hönn- unarsýningum fyrir hugmyndaflug og sköpunargleði. um stjórnvöldum sem umtalsverðri stærð í hag- kerfinu. Ársvelta greinarinnar er talin vera um 50 milljarðar punda og hún veitir um 1,5 milljónum manns atvinnu. Í þessum tölum vegur auglýs- ingahönnun þyngst. Sambærilegar tölur fyrir breskan stáliðnað eru 3,6 milljarðar punda og 34.000 störf og í skipasmíðum 300 milljón pund og 20.000 störf (heimild: Blueprint, september 2000, bls. 53). Sköpunariðnaðurinn í Bretlandi hefur vaxið á sama tíma og hefðbundinn framleiðsluiðnaður landsins hefur dregist saman. Mörg hinna bresku hönnunarfyrirtækja sækja verkefni sín að miklu leyti til annarra landa. Vörur hannaðar af breskum hönnuðum eru oftar en ekki fram- leiddar í öðrum löndum Evrópu eða í fjarlægum heimshlutum. Nokkrar af þekktustu arkitekta- stofum Bretlands hafa lengi byggt afkomu sína á verkefnum í öðrum löndum. Ný samskiptatækni hefur skapað áður óþekkta möguleika í þessu sambandi. Senda má teikningar, þrívíddar- grunna og önnur tölvutæk hönnunargögn á augabragði til viðskiptamanna og verksmiðja í öðrum heimshlutum. Nálægð við framleiðendur, handverksmenn og markað er ekki lengur for- senda fyrir rekstri hönnunarfyrirtækja á tiltekn- um stað. Þannig getur hönnuður búsettur á Ís- landi unnið að verkefni þar sem verkkaupinn býr í Japan og framleiðandinn rekur fyrirtæki sitt á Ítalíu. Þó að þessi vinnuaðferð komi ekki í stað beinna samskipta í hönnunarferli fækkar hún fundum og ferðalögum sem getur skipt máli í fjárhagslegu tilliti. Ísland hefur ekki farið varhluta af þessari þró- un, þótt enn sé vart litið á hönnun sem alvöruat- vinnugrein hér á landi. Það hefur þótt standa hönnun hér á landi fyrir þrifum að heimamark- aður er stopull og framleiðsluiðnaður of veik- burða til að standa undir sjálfstæðri vöruhönnun. Sú staðreynd að markaður fyrir vinnu hönn- uða er í vaxandi mæli alþjóðlegur skapar sókn- arfæri hér á landi sem hönnuðir búsettir hér eru þegar farnir að nýta sér. Michael Young, fæddur árið 1966 í Bretlandi, er í hópi eftirsóttustu hönnuða sinnar kynslóðar. Á námsárunum vann hann hjá hönnuðinum Tom Dixon og 1994 kynnti hann fyrstu húsgagnalínu sína, Smarty Furniture, í París og Tókýó. Ári síð- ar stofnaði hann eigið hönnunarfyrirtæki, MY-022, í London og hlaut um líkt leyti þýsk hönnunarverðlaun, Talente 95. Síðan þá hefur vegur hans vaxið með hverju ári. Í hópi við- skiptamanna hans eru heimsþekkt fyrirtæki á borð við Cappellini, Magis, Rosenthal, Laurent Perrier Champagna, Sawaya & Moroni, E&Y, Eurolounge, Ritzenhoff og Christopher Farr. Michael Young hefur um nokkurra ára skeið ver- ið búsettur í Reykjavík ásamt eiginkonu sinni, Katrínu Pétursdóttur iðnhönnuði. Saman hafa þau unnið að ýmsum verkefnum, m.a. skart- gripalínunni S.M.A.K. Iceland, sem kynnt var á sýningunni 100% Design í fyrra á vegum fyr- irtækisins Twenty/TwentyOne. Hugmyndin fólst í að fá efnilega hönnuði af yngri kynslóðinni til þess að hanna skartgripi í nafni sameiginlegs ís- lensks vörumerkis. Á sýningunni í ár voru þau fengin til að hanna sýningarbás plastefnafyrir- tækisins DuPont Corian. Hugmyndin byggist á lýsandi veggeiningum gerðum úr framleiðsluefni Corian, sem lengi hefur verið notað í gegnheilar borðplötur og aðrar innréttingar. Eiginleiki Corian-efnisins til að hleypa í gegnum sig mis- munandi ljósmagni í hlutfalli við þykkt þess er dreginn fram með því að grafa mynstur í eining- arnar með aðstoð tölvuskurðartækni. Sigurður Gústafsson arkitekt hóf árið 1995 að þróa eigin hugmyndir um húsgagnahönnun sam- hliða rekstri eigin arkitektastofu í Reykjavík. Þessi aukabúgrein Sigurðar hefur nýlega borið ríkulegan ávöxt. Í seinasta mánuði hlaut hann eina æðstu viðurkenningu sem norrænum hönn- uði getur hlotnast, sænsku Bruno Mathsson verðlaunin, sem veitt eru einu sinni á ári. Stóllinn „Rauði baróninn“ sem Sigurður hannaði árið 1997 markaði upphaf að farsælu samstarfi hans og Sven Lundh hjá sænska húsgagnafyrirtækinu Källemo AB í Värnamo, sem framleitt hefur nokkra stóla Sigurðar. Meðal verka Sigurðar sem vakið hafa athygli eru stólarnir „Tango“, „Skyseat“, „Keflavík“ og „Take Off“, hillurnar „Skyscraper“ og „Window“ og lampinn „Take away“. Sigurður er fæddur og uppalinn á Akureyri og komst snemma í kynni við smíðar og handverk á verkstæði föður síns. Sjálfur segir hann form- skyn sitt og efniskennd hafa mótast í uppvexti, ekki síst vegna umhverfisins en bernskuheimilið var í næsta nágrenni skipasmíðastöðvar þar sem nóg var um brotajárn og leifar af gömlum bátum. Hér heima hefur Sigurður vakið athygli fyrir góðan árangur í samkeppnum arkitekta. Hann var einn þriggja verðlaunahafa í samkeppni Reykjavíkurborgar um hönnun skólabygginga í Borgarholtshverfum Grafarvogs árið 1995. Í framhaldi af keppninni var Sigurði falið að hanna Víkurskóla á grundvelli verðlaunatillögunnar og er byggingin á lokastigi. Tinna Gunnarsdóttir stundaði nám í þrívíðri hönnun í Bretlandi og framhaldsnám í iðnhönn- un í Mílanó. Hún hefur um skeið unnið að hönnun á diskamottum úr svörtu gúmmíi með útskorn- um mynstrum. Motturnar byggjast að nokkru leyti á gömlum íslenskum menningararfi þó að hráefnið sé nútímalegt. Þær fyrstu voru handskornar með mynstrum sem sótt voru í íslenskan laufabrauðsútskurð. Hugmyndin hefur síðan verið þróuð með fjölda- framleiðslu í huga í samvinnu við norska fyr- irtækið Casabel sem lætur framleiða motturnar á Indlandi. Aðlögunin að fjöldaframleiðslu hafði í för með sér frávik frá upphaflegri hugmynd, t.a.m. reyndist nauðsynlegt að einfalda mynstrið og vinna með kringlóttan skurð í stað beinna lína. Diskamotturnar eru væntanlegar á markað í haust. Þau þrjú dæmi sem hér hafa verið nefnd eru aðeins sýnishorn af þeirri grósku sem einkennir hönnun hér á landi um þessar mundir. Sá árang- ur sem náðst hefur að undanförnu vekur vonir um að sköpunariðnaður geti með tímanum orðið mikilvæg atvinnugrein hér á landi. Staða lands- ins býður upp á kjöraðstæður í þessu tilliti. Menningartengslin við hin Norðurlöndin gefa Ís- lendingum færi á að skilgreina verk sín í sam- hengi við skandinavíska hönnunarhefð sem við- urkennd er um allan heim. Ísland hefur það fram yfir hin Norðurlöndin að vera í greiðari tengslum við mikilvægustu miðstöðvar nútímans á sviði alþjóðaviðskipta, dægurmenningar og sköpunariðnaðar í London og New York. Umhverfið hér, óheft náttúruöflin, síbreytileg birtan og tengslin við upprunann í fornri verkmenningu þjóðarinnar höfðar sterkt til skapandi fólks sem hingað leitar í vaxandi mæli til skemmri eða lengri dvalar. Mjór er mik- ils vísir, alla slíka vaxtarsprota þarf að rækta og sjá til þess að fleiri líti dagsins ljós. Mikilvægt skref hefur verið stigið með stofnun hönnunardeildar við Listaháskóla Íslands. Öflug menntastofnun er mikilvæg forsenda fyrir vöxt og viðgang hönnunargreina sem vettvangur frjórrar fagumræðu, rannsókna og tilrauna. Annað brýnt verkefni er uppbygging Hönnunar- safns Íslands, sem auk þess að sinna skráningu og varðveislu á sviði íslenskrar hönnunarsögu getur gegnt lykilhlutverki í að kynna íslenskum almenningi og skólafólki það besta í hönnun heimsins, sem svo sannarlega er ekki vanþörf á. Hér á landi þyrfti sem fyrst að koma upp góðu safni alþjóðlegrar hönnunar. Það er unnt að gera fyrir lítið brot þeirrar upphæðar sem safn alþjóð- legrar myndlistar myndi kosta. ÖPUNARIÐNAÐUR gn 2001, hannaður af Michael Young og Katrínu Pétursdóttur. Höfundur er arkitekt og deildarstjóri byggingar- listardeildar Listasafns Reykjavíkur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. OKTÓBER 2001 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.