Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2001, Side 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. OKTÓBER 2001
R
EGLA íslenskra góðtemplara
sem stofnuð var 1884 lét mikið
að sér kveða í lok 19. aldar og á
fyrstu áratugum þeirrar 20.
Margt afbragð karla og kvenna
lét þar til sín taka. Í hugann
koma: Þórður Thoroddsen,
Pétur Zophaníasson, Indriði
Einarsson, Kristinn Stefánsson, Jón Ólafsson,
Bergþóra Jóhannsdóttir, Jóhann Ögmundur
Oddsson, Sigurbjörn Á. Gíslason, Björn Þor-
láksson, Jón Árnason, Pétur Sigurðsson,
Brynleifur Tóbíasson og Sigurður Eiríksson
og eru þá ekki allir taldir sem lögðu hönd á
plóginn undir hjálmi reglunnar. Á fyrsta tug
20. aldarinnar átti regla góðtemplara sér
blómaskeið og kom til leiðar breytingum á
hugarfari og smekk þjóðarinnar en einnig á
löggjöf hennar. Gerbreytt viðhorf og upp-
stokkað þjóðlíf kalla nú á önnur vinnubrögð af
hálfu þeirra sem telja ástæðu til að vara þjóð-
ina, einkum hina ungu, við hættum og afsiðun
sem fylgir stjórnlausri vímuefnanotkun. Stór-
stúkan hefur nú verið lögð niður í sinni fyrri
mynd en í hennar stað hafa verið mynduð
bindindissamtökin I.O.G.T. Þetta mun hafa átt
sér stað í nóvember árið 2000 í þann mund er
Björn Jónsson prófastur lét af starfi sem stór-
templar. Formaður hinna nýju samtaka er
Helgi Seljan fyrrverandi alþingismaður. Þeg-
ar góðtemplarar voru í mestri sókn gengu
fram fyrir skjöldu sem erindrekar margir hæf-
ir og hugumstórir menn. Meðal þeirra var Sig-
urður Eiríksson en hann náði miklum árangri
sem regluboði og gaf mikið af sjálfum sér til að
svo mætti verða. Verður nú sagt frá lífi og
starfi Sigurðar.
Ölkær í meira lagi framan af ævi
Sigurður Eiríksson var framan af tuttug-
ustu öldinni þjóðkunnur fyrir vasklega fram-
göngu sína á vegum Stórstúku Íslands. Hann
gekk í þjónustu templara árið 1897 og helgaði
málstað þeirra næstu 20 ár ævi sinnar. Sig-
urður Eiríksson fæddist að Ólafsvöllum í Ár-
nessýslu árið 1857 og óx þar úr grasi hjá góð-
um foreldrum en missti ungur föður sinn Eirík
Eiríksson frá Reykjum á Skeiðum. Móðir Sig-
urðar hét Guðlaug Sigurðardóttir og var frá
Votumýri einnig í Skeiðahreppi. Ungur lagði
Sigurður land undir fót og hélt ásamt Eiríki
bróður sínum til Eyrarbakka og tók að sækja
þar sjó. Hann þótti dugandi sjómaður og varð
með tímanum formaður. Kona ein merk á Eyr-
arbakka sagði við mig „Margt gott er sagt um
Sigurð en það vill gleymast að geta um sjó-
mennsku hans en hún var honum til sóma ekki
síður en annað sem til verður talið“. Á þessum
árum, síðustu tugum nítjándu aldarinnar, var
mikil og vaxandi óregla í sjávarplássunum á
ströndinni og áfengisneysla var langt úr hófi.
Þetta kom hart niður á mörgum heimilum sem
voru lítt aflögufær og urðu því illa úti í þessum
hörmungum. Sigurður var á þessum árum öl-
kær í meira lagi og átti það til að drekka ótæpi-
lega. Samtímis hlóðst á heimilið ómegð og hef-
ur þá stundum verið þröngt í búi hjá Svanhildi
konu Sigurðar en hún var fædd á Bakkanum,
dóttir Sigurðar Teitssonar bónda og hafnsögu-
manns. Þar kom að Sigurður sá sitt óvænna og
stakk við fótum. Sagan segir að dag einn hafi
hann beðið Svanhildi um sparifötin sín því
hann ætlaði sér að ganga í stúku þá um kvöld-
ið. Svanhildur mun hafa litið til hans augum
vantrúar og ekki fór hún með manni sínum á
fundinn. Hér urðu þó kaflaskil; upp frá þessu
áttu markmið bindindismanna hug Sigurðar
og hann gekk í þjónustuhreyfingar þeirra sem
erindreki. Hann snerist þegar til fylgis við
bannmenn og má af því skilja að honum, sem
mörgum öðrum, hefur þótt mælirinn fullur og
róttækra aðgerða þörf. Svo fór að þjóðþingið
samþykkti aðflutningsbann og alla sölu
áfengra drykkja í landinu. Var svo að sjá sem
þessi ákvörðun ætti fljótlega almennu fylgi að
fagna og þótti mönnum annar og betri bragur
komast á í mannlífi Íslendinga. Menn verða á
okkar tíð að sjá þessi mál í því ljósi, að ofneysla
áfengis var orðin þjóðarböl og mörgum til hins
mesta vansa. Voru þetta miklu alvarlegri og
umfangsmeiri tíðindi en þau fíkniefnadæmi
sem nú valda svo miklum titringi og öllum má
vera það ljóst að áfengi er enn á vorum dögum
langversti skaðvaldurinn í flokki vímuefna.
Bindindi fyrir einstaklinginn,
bannlög fyrir þjóðina
Sigurður gekk í þjónustu stórstúkunnar ár-
ið 1897 og starfaði á vegum hennar langleiðina
fram undir 1920. Í stuttu máli þá vann hann
stórvirki fyrir hönd templara og hugsjóna
þeirra; ferðaðist um allt Ísland og gekk form-
lega frá stofnun fjölda bindindisfélaga. Áhugi
hans var óslökkvandi og óbilandi. Varla er of-
sagt að eldmóður hafi einkennt framgöngu
Sigurðar á þessum árum. Séra Kristinn Stef-
ánsson fyrrverandi stórtemplar ritaði stuttan
þátt um Sigurð og segir meðal annars: „Á
þessum árum fór Sigurður um land allt. Hann
var á sífelldu ferðalagi bæði vetur og sumar,
kom í hverja sveit og hafði ávallt sama boð-
skapinn að flytja: Bindindi fyrir einstakling-
inn; bannlög fyrir þjóðina. Árangurinn af
starfi Sigurðar var glæsilegur. Ber hann æg-
ishjálm yfir alla regluboða sem stórstúkan hef-
ur haft í þjónustu sinni.“ Sigurður var á þess-
um árum þekktur um land allt og þótt mörgum
væri í nöp við boðendur bindindis og gerðu óp
að þeim var hann víðast hvar aufúsugestur;
þótti bæði fróður og viðræðugóður. Það sem af
Sigurði segir sýnir að hann, líkt og Jón Ólafs-
son ritsjóri og fleiri góðir samherjar, leit á
hreyfingu templara sem almennt siðbótarafl
og sá fyrir sér hinn upprétta Íslending vand-
aðan til orðs og æðis og
lausan við helsi vímuþrælk-
unar. Vitað er, að Sigurður
beitti sér á ferðum sínum
um landið, jafnframt bind-
indisboðun, fyrir stofnun
sjómannafélaga, minnugur
ára sinna við sjósókn á
Eyrarbakka. Ennfremur
brýndi Sigurður fyrir
mönnum að fara betur með
dýrin sín og hraus honum
hugur við því að sjá hversu
hjartalaus var meðferð
manna á hrossum víða um
land.
Sigurður fluttist til
Reykjavíkur með fjöl-
skyldu sína í lok nítjándu
aldar í þann mund er hann
gekk til liðs við góðtempl-
ara. Kom hann upp húsi og
bjuggu þau börnum sínum
hið besta heimili Svanhild-
ur og hann. Hvíldi margt á
konunni enda hún ein um
heimilisstjórn þegar Sig-
urður var á ferðum sínum
um landið. Er ljóst að
Svanhildur átti ekki smáan
hlut í velgengni Sigurðar á
þessum árum þegar hann
ásamt öðrum mætum borg-
urum stórjók áhrif bindind-
is- og bannmanna á Íslandi.
Er við brugðið skyldu-
rækni og iðjusemi Svan-
hildar; vék hún til hliðar
allri sérplægni en gaf sig
til fulls að kærleiksríkri
umsjá barna sinna og ann-
ars heimilisfólks. Stöku sinnum sást hún
bregða yfir sig sjali og ganga ofan í alþing-
ishús að hlýða á mál þingmanna. Öllum heim-
ildum ber saman um , að Svanhildur hafi verið
afbragðs manneskja en hún lést um aldur fram
úr lungnasjúkdómi 1918.
Nam orgelleik á fullorðinsárum
Sigurður hafði hlotið þá barnafræðslu sem
uppi var höfð um miðbik nítjándu aldar en um
frekari skólagöngu var ekki að ræða. Á Eyr-
arbakkaárunum eignaðist hann smám saman
dálítið bókasafn og hann varð sér úti um
kennslu í orgelleik hjá Sigfúsi Einarssyni eftir
því sem ég kemst næst en síðar hjá Jónasi
Helgasyni dómkirkjuorganista. Varð hann
með tímanum gjaldgengur organisti og lék við
þjónustur bæði í Arnarbælis- og Eyrarbakka-
kirkjum. Einnig söng hann stundum í kórum
og þótti hafa fagra bassarödd. Eftir að sest var
að í Reykjavík tók Sigurður að segja fólki til í
hljóðfæraleik og söng meðfram boðunarstarf-
inu fyrir hönd stórstúkunnar. Þegar hann er
sæmdur orðu konungs árið 1912 er hann á
skjalinu frá kansillíinu titlaður organisti. Þess
má geta til gamans að þeir Eiríkur afi Sig-
urðar og langafi hans Eiríkur Vigfússon voru
báðir sæmdir konungsorðum vegna fyrir-
myndar í búnaði og farsældar í opinberum
störfum.
SIGURÐUR
EIRÍKSSON
REGLUBOÐI
Sigurður Eiríksson
e f t i r E m i l A l s
Æviþát tur
IS THAT all?“ heyrði ég eitt sinn amer-ískan ferðamann segja þegar hann varloksins búinn að finna hið þekkta mál-verk, Mónu Lísu, á Louvre-safninu í
París. Þessi spurning hefur orðið mér
minnisstæð.
Kannski segir ofangreind spurning eitt-
hvað um samband listaverks og móttak-
anda þess. Reginmuninn sem er á LIST-
NEYTANDA og LISTNJÓTANDA.
Listneytandinn hefur kannski heyrt af
frægð listaverks, heimsfrægð kannski og
vill að verkið taki sig með trompi, sannfæri
sig, heilli sig upp úr skónum, strax.
Listnjótandinn hins vegar getur að ein-
hverju marki LESIÐ verkið.
Hvað þýðir það? Hann hefur einhverja
grunnþekkingu á öðrum verkum, á hefð-
inni, eiginleikum listarinnar og umfram
allt, hann hefur einhverja lágmarksþjálfun,
áhorf hans er ekki passíft heldur virkt;
hann segir við listaverkið: Ég ætla að lesa
þig, vonandi heillarðu mig eða kveikir að
minnsta kosti skapandi hugsanir, unað
skapandi hugsana, nautn skapandi hugsana
en það er jafnmikið undir mér komið og
þér.
Godot er kannski eins og Móna Lísa; ein-
hver sem les eða sér verkið í fyrsta skipti
gæti spurt eins og ameríski túristinn: „Is
that all?“ Allir hafa heyrt eitthvað um
Godot, þetta er eitt þekktasta leikverk frá
síðustu öld, erkileikritið frá eftirstríðs-
árunum um miðbik hennar.
Lausleg athugun á Netinu, hinum raf-
ræna flóamarkaði okkar tíma, leiðir í ljós
að þar er vísað á Samuel Beckett 1.880.390
sinnum, Beðið eftir Godot 905.386 sinnum.
Þessi sakleysislegi leiktexti hefur getið af
sér ótrúlegan textaflaum. Fleiri magist-
ersritgerðir og doktorsritgerðir en tölu
verður á komið, auk alls hins. Og hér er ég
að bæta nokkrum orðum í þennan svelg.
Það er forvitnilegt að íhuga stuttlega af
hverju þetta leikverk er svona lífseigt, af
hverju það er nú þegar orðið klassískt, sí-
gilt.
Í fyrsta lagi er í því einhver kjarni sem
aldrei verður brotinn eða hlutaður sundur
til skilnings. Það býr yfir gátum sem verða
aldrei ráðnar til fulls en virðast eigi að síð-
ur nægilega forvitnilegar og sammann-
legar til þess að freista nýrra kynslóða. Ef
svo væri ekki, þá hefðu menn fyrir löngu
hætt að pæla í þessu verki og þá væru ekki
milljón vísanir í það á Netinu.
Önnur byrjun á skýringu gæti legið í því
að þetta er í raun afar formstrangt verk en
jafnframt galopið fyrir túlkunum og lestri.
Nákvæmt með afbrigðum (sbr. alkunnar
leiklýsingar eins og í öllum leikverkum
Becketts), stílknappt og músíkalskt.
Tími, rými og atburðarás, allt er þetta
strangt eins og klassísk leiklistarfræði
segja til um; einn staður, stuttur tími (einn
dagur í fyrra þætti og daginn eftir í þeim
síðari), heildstæður þráður. Vladimir og
Estragon eru að leita að Godot en í stað
þess að fara stað úr stað (eins og í vega-
mynd, road-movie) til að svipast um eftir
honum, þá hafa þeir fundið staðinn, rétta
staðinn. Leitin breytist þar með í bið. Tím-
NESTI Í TÓMU HÚSI
Samuel Beckett (1906–1989).
Beðið eftir Godot er mest um fjallaða leikrit 20. ald-
arinnar en þó hefur engum tekist að brjóta kjarna
þess til mergjar. Samuel Beckett gaf engar leiðbein-
ingar og tók sinn skilning á verkinu með sér í gröfina.
e f t i r S i g u r ð P á l s s o n