Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.2001, Page 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. NÓVEMBER 2001 15
FRAMKVÆMDIR við sjóminjasafnið áHúsavík hófust 1990 og nú sér fyrirendann á þeim þótt veruleg vinna séenn eftir við textagerð og fleira. Guðni
Halldórsson, forstöðumaður Safnahússins,
segist stefna að því að opna sjóminjasafnið í
vetur; öðrum hvorum megin við áramótin.
Gengið er til sjóminjasafnsins úr Safnahús-
inu um tengigang.
Á aðalhæð sjóminjasafnsins eru fimm
bátar, þ.á m. Hrafninn, annað víkingaskipið,
sem Norðmenn gáfu okkur 1974 til minningar
um ellefu hundrað ára byggð í landinu. Hinir
bátarnir og aðrir fjórir úti voru smíðaðir af
helztu bátasmiðum á Húsavík; Júlíusi Sigfús-
syni, Jóhanni Sigvaldasyni, Baldri Pálssyni
og Hilmari Valdimarssyni. Úti er líka beit-
ingaskúr og þar hjá hvalbein til minja um
rekhvalinn.
Á aðalhæð sjóminjasafnsins má líka lesa
kort af fiskimiðum á Skjálfanda og annað,
sem sýnir nytjar af reka, sel og fugli.
Sýndar eru myndir frá fiskvinnslu og verk-
un á ýmsum tímum og af húsvískum bátum
og skipum frá 20. öld. Meiningin er að koma
upp tölvuvæddri skipaskrá, þar sem gestir
geta kallað fram myndir og upplýsingar af
bátum og skipum. Loks er þarna lítill salur til
fyrirlestrahalds og fjölmiðlunar.
Á efri hæðinni, sem aðeins nær yfir hluta
hússins, eru minjar um veiðiskap, sem stund-
aður var við Skjálfanda. Þarna eru veiðarfæri
og sýning brotin upp með bátamódelum.
Stefnuskrá sjóminjasafnsins blasir við gest-
um, þegar gengið er inn og út: „að safna,
skrá, varðveita og sýna muni, myndir og
gögn, sem tengjast sjósókn og sjávarnytjum
við Skjálfanda og á nærliggjandi svæðum.
Tilgangurinn er að fólk nú og síðar skilji bet-
ur, hvernig forfeðurnir lifðu af því sem sjór-
inn gaf og hversu stóran þátt sjávarnytjar
hér um slóðir hafa átt í því að tryggja afkomu
fólks.“
Nauðsynlegt að halda forskotinu
„Ég er núna að endurbyggja gamla slát-
urhús Kaupfélags Þingeyinga og draumurinn
er að opna þar næsta vor,“ segir Ásbjörn
Björgvinsson, forstöðumaður Hvalamiðstöðv-
arinnar. Safnið er núna á efri hæð Verbúða-
hússins, þar sem það hefur verið síðan 1998,
en árið þar áður byrjaði það á hótelinu.
Auk upplýsinga um hvali í máli og myndum
hanga þrjár beinagrindur uppi í Hvala-
miðstöðinni; hrefnugrind, háhyrningsgrind og
grind úr norðsnjáldra, sem strandaði við
Ólafsvíkurenni 1999.
Safnið á nú þrjár beinagrindur til viðbótar,
sem eru komnar í hús og verða settar saman í
haust. Þetta eru búrhvalsgrind úr Stein-
grímsfirði, af hval, sem nefndur var Kjálk-
arýr, hnúfubakskálfur, sem var dreginn í land
úr Grímsey, og hrefnukálfur. Svo á safnið
höfrung, sem er „í hreinsun inni í sveit“.
Þá er ónefnt kjálkabeinið, sem fannst í
Keflavík í Fjörðum. Öskulagasérfræðingar
gizka á að mannvistarleifar, sem beinið fannst
í, séu frá 11 til 12. öld. Ásbjörn segir menn
sammála um að beinið sé úr skíðishval. Sumir
vilja meina að það sé úr íslandssléttbak, en
aðrir gæla við þá hugmynd að það sé úr grá-
hval eða sandlægju og yrði það þá öðru sinni,
sem minjar um sandlægju finnast í Atlants-
hafi. Áður hafa fundizt slík bein í Hollandi.
Þess má geta að Jón Guðmundsson lærði
teiknaði 1640 sandlægju við Ísland.
Ásbjörn segir að það sé mikilvægt fyrir
byggðarlagið að menn haldi því forskoti sem
þeir hafa í hvalaskoðun á Íslandi. Sjálfur er
hann á förum til Brasilíu, en þangað er hann
boðinn á alþjóðlega ráðstefnu um hvala-
skoðun á 21. öldinni. Þetta er fjórða hvala-
skoðunarráðstefnan, sem hann sækir, en
hann segir menn í útlöndum forvitna um gang
mála á Íslandi, þar sem vöxturinn í hvala-
skoðun sé mestur í heiminum meðan stjórn-
völd slái úr og í um áframhald hvalveiða.
Bátar húsvískra skipasmiða á gólfi sjóminjasafnsins.
Guðni Halldórsson á veiðarfæralofti sjóminjasafnsins.
Morgunblaðið/Hafþór
Ásbjörn Björgvinsson við gamla sláturhúsið sem nú er
verið að breyta fyrir hvalasafnið.
Á sýningunni í hvalamiðstöðinni.
SÖFNIN Á HÚSAVÍK
STÆKKA VIÐ SIG
Komandi vetur verður viðburða-
ríkur í safnamálum á Húsavík.
Þá verður opnað sjóminjasafn
við Safnahúsið og undir vorið
flytur Hvalamiðstöðin vænt-
anlega í nýtt húsnæði.
MYNDLIST
Árnastofnun: Handritasýning opin
þri.–fös. 14–16. Til 15.5.
Galleri@hlemmur.is: Hildur Bjarna-
dóttir. Til 4. nóv.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Elín G. Jó-
hannsdóttir. Til 18. nóv.
Gallerí Reykjavík: Guðmundur Björg-
vinsson. Til 21. nóv. Helga Unnarsdótt-
ir leirkerasmiður. Til 10. nóv.
Gallerí Skugga: Sara Björnsdóttir. Til
25. nóv.
Gerðarsafn: Erla Þórarinsdóttir,
Hulda Hákon, Jón Óskar og Steingrím-
ur Eyfjörð. Til 4. nóv.
Gerðuberg: Þórunn Sveinsdóttir. Til
17. nóv.
Hafnarborg: Jónína Guðnadóttir,
Kristján Pétur Guðnason. Til 12. nóv.
Handverk og hönnun, Aðalstræti 12:
Ljóslifandi. Til 4. nóv.
i8, Klapparstíg 33: Roni Horn. Til 12.1.
Listasafn Akureyrar: Frumherjar í
byrjun 20. aldar. Til 4. nóv.
Listasafn ASÍ: Anna Eyjólfsdóttir. Til
4. nóv.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Gunnlaugur Schev-
ing. Til 9. des.
Listasafn Rvíkur – Ásmundarsafn:
Svipir lands og sagna. Til 10.2.
Listasafn Rvíkur – Hafnarhús: Erró.
Til 1.1. Einar Már Guðvarðarson og
Bjarne Lönnroos. Til 25. nóv.
Listasafn Rvíkur – Kjarvalsstaðir: Jó-
hannes S. Kjarval. Til 31.5. Kristján
Guðmundsson. Til 16. nóv.
Listasalurinn Man: Guðbjörg Hákonar-
dóttir, Gugga. Til 11. nóv.
Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi:
Dýrfinna Torfadóttir. Til 11. nóv.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Þrjár
skólasystur. Til 21. nóv.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Samsýn-
ing 17 ljósmyndara. Til 13. des.
Norræna húsið: Ævintýrasýning. Til 9.
des.
Nýlistasafnið: Listþingið Omdúrman:
Margmiðlaður Megas. Til 30. nóv.
Skaftfell, Seyðisfirði: Haustsýning
Skaftfells. Til 18. nóv.
Skálholtskirkja: Anna Torfad. og Þor-
gerður Sigurðard. Til 31. des.
Slunkaríki, Ísafirði: Kristinn E.
Hrafnsson. Til 18. nóv.
Snegla, listhús: Samsýning Sneglu-
hópsins. Til 10. nóv.
Stöðlakot: Dominique Ambroise. Til
18. nóv.
Þjóðarbókhlaða: Kristín Reynisdóttir.
Til 3. nóv.
Þjóðmenningarhúsið: Landafundir og
ragnarök.
Þjóðskjalasafn Íslands: Skjöl Einars
Laxness. Til 1. des.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Dómkirkjan: Marteinn H. Friðriksson
orgelleikari. Kl. 17.
Háskólabíó: Karlakórinn Heimir og
Álftagerðisbræður. Kl. 16.
Sunnudagur
Dómkirkjan: Tónlistarfólk úr nágrenni
kirkjunnar. Kl. 20.30.
Hjallakirkja, Kópavogi: Minningatón-
leikar. Kl. 17.
Langholtskirkja: Kammerkór Suður-
lands. Kl. 17.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Vatn lífsins, 3., 4., 8. nóv.
Blái hnötturinn, 4. nóv. Hver er hrædd-
ur við Virginíu Woolf? 3., 4., 8., 9. nóv.
Borgarleikhúsið: Blíðfinnur, 3., 4., nóv.
Með vífið í lúkunum, 3. nóv. Dauða-
dansinn, 3., 8. nóv. Beðið eftir Godot, 4.
nóv.
Íslenski dansflokkurinn: Da, Plan B,
Milli heima, 3., 9. nóv.
Íslenska óperan: Töfraflautan, 3., 9.
nóv.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Englabörn, 9.
nóv.
Kaffileikhúsið: Veröldin er vasaklútur,
3., 6. nóv.
Möguleikhúsið: Skuggaleikur, 6. nóv.
Lóma, 3., 7. nóv.
Nemendaleikhúsið: Túskildingsóper-
an, 3., 5., 7., 8. nóv.
Leikfélag Akureyrar: Blessað barna-
lán, 3., 8., 9. nóv.
Leikfélag Mosfellsbæjar: Brúðkaup
Tony og Tinu, 3. nóv.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U