Lesbók Morgunblaðsins - 15.12.2001, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 15.12.2001, Side 7
myndir Sigfúsar, sem notaðar eru til að ná fram þrívíddaráhrifum, og myndatökur hans frá Þingvöllum, Vestfjörðum, af þéttbýlisstöð- um og yfirlitsmyndir hans frá Reykjavík. Það er þó ekki fyrr en upp úr 1890 sem segja má að sprenging verði í stéttinni, enda fjölgar ljósmyndurum gífurlega á þessu tímabili. „Ég tel að fjölgunin tengist meðal annars vaxandi þéttbýlismyndun, því það er varla til það þorp þar sem ekki starfar ljósmyndari, eða ljós- myndarar, á þessum tíma.“ Á þessum árum lækkar kostnaðurinn við myndatöku líka tölu- vert og í kjölfarið verður algengara að fólk láti taka af sér myndir. Á árunum um 1900 er stað- an síðan orðin sú að flestir landsmanna hafa tyllt sér fyrir framan myndavélina. „Þarna er orðið algengt að fólk láti taka portrettmyndir af fjölskyldunni, jafnvel efnaminna fólk. Ljós- myndarar starfa orðið það víða um landið og séríslensk fyrirbæri, eins og myndir af fólki fyrir framan bæinn sinn, verða áberandi. Þá er einnig algengt að menn, og jafnvel konur, láti mynda sig uppáklædd á hestbaki. Myndatakan er samt mikill viðburður og fólk klæðist sínu fínasta pússi fyrir myndavélina, enda er hinn almenni Íslendingur ekki myndaður oft á æv- inni.“ Inga Lára bætir við að fermingar- og brúðkaupsmyndir fari síðan að gera vart við sig upp úr 1900 og með því verði ljósmyndin fastur þáttur í þessum lykilviðburðum í lífinu. Persónuleikinn ráðandi Á þriðja áratugnum verða greinileg kyn- slóðaskipti í stéttinni og nýir ljósmyndarar koma fram. Inga Lára nefnir sem dæmi þau Sigríði Zoëga, Jón Kaldal, Ólaf Magnússon og Loft Guðmundsson. Hún segir vissa breytingu verða á frágangi mynda með komu nýliðanna. „Allt frá 1850 og fram til 1920 eru vísitmynd- ir algengasta stærðin.“ En vísitmyndirnar draga nafn sitt af vísitkortum, eins konar nafn- spjöldum, sem myndirnar gátu komið í staðinn fyrir. „Um 1860 bættist síðan kabinetstærðin við þótt vísitmyndirnar hafi enn verið vinsæl- astar.“ Þessum nýju ljósmyndurum fylgdu hins vegar vissar breytingar og þeir marka sér sérstöðu með öðruvísi frágangi. Inga Lára seg- ir almyndir, þar sem manneskjan er mynduð í fullri stærð, þannig hafa vikið fyrir nærmynd- um sem síðar hafi snúist upp í að festa per- sónuleika viðfangsefnisins á mynd. „Þessir ljósmyndarar verða ráðandi fram yf- ir tímabilið sem bókin nær yfir. Loftur var með vinsælustu ljósmyndastofuna í Reykjavík. Hann var líka mikill markaðsmaður, en ljós- myndastofur voru, og eru, misvinsælar og náðu að markaðssetja sig misvel,“ útskýrir Inga Lára. Á þessu síðasta skeiði verður einnig sú breyting að fyrirtæki, stofnanir, blöð og tíma- rit fara að nýta sér þjónustu ljósmyndaranna. „Forsetaembættið þurfti ljósmyndara þegar það var stofnað og gegndi Vigfús Sigurgeirs- son því embætti meðan hans naut við og sonur hans Gunnar Geir tók síðan við. Rafmagns- veita Reykjavíkur og Reykjavíkurborg voru líka farin að vera með sérstakan ljósmyndara, Sigurhans Vignir. Það sama má segja um Leikfélag Reykjavíkur, sem var eiginlega með Loft Guðmundsson sem fastan ljósmyndara frá 1920. Þetta voru gríðarlega bjartsýnir tímar og það var alls konar sérhæfing í gangi. Menn voru að setja á fót fínni verslanir og fyrirtæki sem þurfti að „dokumentera“.“ Inga Lára nefnir m.a. Pétur Brynjólfsson, sem starfaði í Reykjavík frá 1904, og tók mikið af myndum af nýjum fyrirtækjum. „Við getum nefnt sem dæmi Sláturfélag Suðurlands og syrpu af myndum sem Pétur tók af berklahælinu á Víf- ilsstöðum 1912, fyrir skýrslu um spítalann.“ Myndir birtust þá líka í formi auglýsinga og í kynningarritum eins og Islands Næringsliv – kynningariti um íslensk fyrirtæki og verslanir. Þar sést hluti af myndum Péturs, og þá birti tímaritið Óðinn, mánaðarblað með myndum, syrpu af myndum úr öllum deildum Thomsens- verslunar, ásamt grein um verslunina svo dæmi séu nefnd. Portettmyndirnar voru þó lengst framan af algengustu myndirnar og flestir atvinnuljós- myndarar höfðu lífsviðurværi sitt af slíkri vinnu. Póstkortaframleiðsla opnaði þó markað fyrir staða- og útimyndir, en í flestum tilfellum voru slíkar myndir eins konar aukabúgrein fyrir ljósmyndarana. Ekki kynbundin iðngrein Á árunum eftir 1920 koma handhægar 35 mm vélar á markað og fylgir komu þeirra ný gerð mynda, auk þess sem áhugaljósmyndarar eiga nú hægar um vik með að sinna þessu hugðarefni sínu. Myndir þeirra segir Inga Lára einkennast af aukinni nálægð við við- fangsefnið. „Þetta verða eins konar skyndimyndir þar sem fyrirsæturnar eru afslappaðri að sjá.“ Hún nefnir Guðbjart Ásgeirsson sem einn af athyglisverðari áhugaljósmyndurum. „Hann markar sér ákveðna sérstöðu í því að hann er sá sem hefur tekið hvað flestar, og bestar, myndir af íslenskum sjávarútvegi. Guðbjartur starfaði sem kokkur um borð í skipum og hefur skilið eftir sig stórkostlegar myndir frá þeim tíma sem eiga sér enga hliðstæðu.“ Að sögn Ingu Láru eru myndasöfn margra áhugaljósmyndara frá þessum tíma þannig áhugaverðustu söfnin, en sum þeirra hafa ver- ið gefin Þjóðminjasafninu og byggðasöfnum úti á landi. Starf ljósmyndarans virðist ekki síður hafa höfðað til kvenna en karla og iðngreinin var því aldrei kynbundin. „Auðvitað þóttu ljósmyndir fínar og ljósmyndarar kannski líka. Það var ákveðinn ljómi yfir starfinu. Þetta var atvinna sem konur gátu verið þekktar fyrir að stunda, því þetta var þrifaleg vinna. Þessu fylgdi þó að sjálfsögðu ákveðinn stofnkostnaður, þannig að framan af sjáum við ekki neinar alþýðustúlkur í faginu heldur eru það gjarnan faktorsdætur eða konur sem tengjast embættismannastétt- inni.“ Inga Lára nefnir Nicoline Weywadt, fyrsta kvenljósmyndarann sem kemur til starfa árið 1872 á Djúpavogi, en hún var dóttir Niels Weywadt, faktorsins á Djúpavogi. Anna Klausen og Margrét Möller störfuðu þá á Eskifirði og fyrir Margréti var til að mynda byggð sérstök myndastofa sem var viðbygging við verslunarhús föður hennar. Gunnhild Thor- steinsson hafði þá einnig ljósmyndunina að at- vinnu hér í Reykjavík á árunum eftir aldamót og telst hún í hópi þeirra sem gerðu út á póst- kortin. Varðveislan fólki mishliðholl Bókin Ljósmyndarar á Íslandi hefur verið lengi í smíðum og ljóst er að tíminn hefur unnið með verkinu. Að sögn Ingu Láru voru líka lengi ný nöfn að bætast í hóp þeirra sem vitað var um og kveðst hún í raun ekki útiloka að enn fleiri kunni að bætast í hópinn. Verk margra hafa þó farið forgörðum. Margir ljósmyndarar störfuðu til að mynda á Austurlandi á árunum við aldamót, enda mikið blómatímabil í aust- firskri sögu. Varðveislan á ljósmyndaarfinum er hins vegar nokkuð mismunandi og segir Inga Lára Seyðfirðinga til dæmis seint bíða þess bætur hve lítið hefur varðveist úr safni Eyjólfs Jónssonar, sem starfrækti ljósmynda- stofu í bænum í ein fimmtíu ár. Sem frekari dæmi um hve varðveislan er mishliðholl mönnum nefnir hún síðan þrjá ljós- myndara sem eru í nokkru uppáhaldi hjá henni: „Ég gæti í raun nefnt marga þar sem ég er svolítið hrifin af þeim öllum,“ segir Inga Lára og nefnir svo þau Sigfús Eymundsson, Pétur Brynjólfsson og Gunnhild Thorsteinsson. „Sigfús tekur allar þessar atburða- og staða- myndir, á meðan Pétur „dokumenterar“ sam- félagsuppbygginguna auk þess sem hann er mjög góður portrettljósmyndari og kemur með nýja strauma inn þar. Gunnhild er síðan líka voðalega fínn ljósmyndari, en á henni sést best hvað varðveislan er mishliðholl fólki. Það er slæmt hversu lítið af plötusafni hennar hef- ur varðveist, og þess vegna skiptir líka hver mynda hennar mun meira máli til þess að hægt sé að ná heildstæðri mynd af vinnu hennar. Ís- lendingar hafa því miður verið allt of iðnir við að henda og eru í raun ennþá að henda alveg gengdarlaust. Það er nefnilega ekki nóg að menn taki myndirnar, það verður að tryggja varðveislu þeirra líka.“ Morgunblaðið/Þorkell Flestir íslensku atvinnuljósmyndaranna höfðu lífsviðurværi sitt af portrett-myndatökum, segir Inga Lára Baldvinsdóttir, en um aldamótin 1900 höfðu flestir Íslendingar verið festir á mynd. Ljósmynd/Pétur Brynjólfsson Innan úr eldhúsi Vífilsstaðaspítala 1912. Myndina tók ́Pétur fyrir skýrslu um spítalann. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 15. DESEMBER 2001 7 Klassík Djass Raftónlist Heimstónlist Danstónlist Reggí Rokk Klassík Djass Raftónlist Heimstónlist Danstónlist Reggí Rokk Verið velkomin í notalega verslun okkar á Skólavörðustíg 15 Opið til kl. 22 öll kvöld til jóla Halldór Hauksson, fyrrv. útvarpsstjóri Klassíkur FM, aðstoðar viðskiptavini okkar. Öll íslenska útgáfan á góðu verði Sendum í póstkröfu um land allt. Skólavörðustíg 15, sími 511 56 56 12tonar@12tonar.is Taraf de Haidouks - Band of Gypsies Nýjasti diskur sígaunahljómsveitarinnar stórkostlegu sem kemur á Listahátíð næsta vor. Jacques Loussier Trio - Baroque Favorites Enn ein snilldin frá meistaranum. Djassútsetningar á verkum Handels, Albinonis, Pacelbels, Marais o.fl. Oscar Peterson - Ballads Inniheldur fegurstu perlur Oscars. Við minnum einnig á hinn sívinsæla jóladisk hans. Jussi Björling - Till Havs Ó helga nótt og sænsku lögin í flutningi besta söngvara síðustu aldar. Í NEÐANMÁLSPISTLI í Lesbók Morgun- blaðsins 1. des. sl. var athyglisverð umfjöllun um samskipti Ríkisútvarpsins og Sinfóníu- hljómsveitar Íslands. Í upphafi pistilsins seg- ir að „Ríkisútvarpið greiði[r] 25% af rekstr- arkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en er þó með öllu áhrifalaust um rekstur hennar (skáletrun mín). Síðan er lagt út af þessu áhrifaleysi Ríkisútvarpsins með ýmsum hætti. En þarna er reginmisskilningur á ferð- inni sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Ríkisútvarpið hefur frá upphafi haft afger- andi aðkomu að Sinfóníuhljómsveitinni, enda var hún um hríð beinlínis rekin sem útvarps- hljómsveit. Núgildandi lög um hljómsveitina eru frá 1982. Samkvæmt þeim skiptist kostn- aður við rekstur sveitarinnar þannig að rík- issjóður greiðir 56%, Ríkisútvarpið 25%, borgarsjóður Reykjavíkur 18% og bæjar- sjóður Seltjarnarness 1%. Yfir Sinfóníu- hljómsveitinni er fimm manna stjórn og er hún tilnefnd af þeim sem standa undir sveit- inni í samræmi við ofangreind hlutföll. Þann- ig tilnefnir ríkið tvo menn í stjórn (mennta- málaráðherra annan, sem er formaður, og fjármálaráðherra hinn), Ríkisútvarpið einn, sömuleiðis Reykjavíkurborg, en fimmti stjórnarmanna er fulltrúi starfsmannafélags hljómsveitarinnar. Af þessu sést að Ríkisútvarpið hefur beina aðild að rekstri Sinfóníuhljómsveitarinnar enda hefur samstarf Sinfóníuhljómsveitar- innar og Ríkisútvarpsins verið með ágætum í hálfa öld og verður svo vonandi áfram. Þorkell Helgason, formaður stjórnar Sin- fóníuhljómsveitar Íslands. ATHUGASEMD

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.