Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.2001, Qupperneq 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. DESEMBER 2001
Á
RIÐ 2001 sýndi fram á að
„framtíðin er ekki það sem
hún eitt sinn var“. Ferðin,
sem Stanley heitinn Kubr-
ick sendi manneskjuna í,
frá upphafinu til okkar árs,
í Ódysseifskviðu sinni var
ekki án fyrirheits en henni
lauk þar sem hún hófst. Í kvikmyndum ársins
2001 varð ekki eðlisbreyting frá kvikmyndum
ársins 2000, 1999, 1949 eða 1929; viðfangsefnin
eru í grunninn óbreytt. En merkja má nokkrar
stigsbreytingar í meðferð viðfangsefnanna,
ekki ár frá ári, heldur á nokkurra ára tímabili.
Þær helgast annars vegar af breyttum tækni-
möguleikum þess sem hægt er að sýna og hins
vegar af breyttum samfélagsviðhorfum til
þess sem má sýna.
Allt er núna hægt að sýna
í afþreyingarmyndinni, svokölluðu, ekki síst
þeirri amerísku. Og því er það sýnt: Hausar
skúrkanna splundrast og sindrast um tjaldið,
líkamar eru teygðir og togaðir, umhverfi,
menn og skepnur skapaðar úr gerviefnum
tölvunnar, tilbúinn heimur verður til á filmu
sem getur verið eins og okkar eða gjörólíkur
okkar en lýtur lögmálum þess guðs kvik-
myndanna sem brellumeistarinn er. Stafrænu
tölvubrellutækninni eru engin takmörk sett. Í
fyrsta sinn í kvikmyndasögunni er höfund-
urinn almáttugur skapari: Hann getur blandað
saman teiknuðu myndefni og lifandi leikurum
og náttúrulegu umhverfi án þess að nokkur
samskeyti greinist. Hann getur flutt löngu
látna leikara úr gömlu myndefni, skipað þeim í
nýtt myndefni við hlið þeirra sem nú starfa,
látið lífs og liðna tala saman og ganga saman
svo móðan mikla er upp numin á tjaldinu. Einu
spurningarnar sem eftir standa eru siðferð-
islegar og efnislegar: Í þágu hvers konar sögu
er þetta allt sýnt? Oftar en ekki engrar. Tíma-
mótin eru: Hringadróttinssaga.
Allt má núna sýna
í erótísku bíómyndinni, ekki síst þeirri
frönsku. Nú, þegar tölvutæknibrellurnar hafa
burt numið takmarkanir mannslíkamans, að
stórum hluta í þágu ofbeldislýsinga, í þágu
dauðans, hafa ríkjandi samfélagsviðhorf num-
ið burt takmarkanir ritskoðunar, að stórum
hluta í þágu kynlífslýsinga, í þágu lífsins. Allt
okkar samfélag er auðvitað löðrandi í kynlífs-
væðingu, allt frá fatatísku og tónlistar-
myndböndum fyrir unglinga til vaxandi um-
burðarlyndis gagnvart klámi fyrir fullorðna;
það síðarnefnda virðist reyndar ekki ná til
meirihluta borgarstjórnar í Reykjavík. Frelsi
kvikmyndahöfunda til að sýna kynlíf umbúða-
og feimnislaust ef þeir svo kjósa er sem næst
algjört. Frelsi fullorðinna áhorfenda til að sjá
það, ef þeir svo kjósa, er þar með virt. Reistur
limur nálgast opið skaut eða opið skaut nálg-
ast reistan lim, munnmök, fullnæging: Allt
þetta er nú sýnt í myndum gerðum af listræn-
um metnaði, en auðvitað mismunandi getu, í
almennum kvikmyndahúsum (Idioterne,
Baise-moi, Romance X, A ma soeur! o.m.fl.).
Einokun klámmynda á opinskáum kynlífslýs-
ingum hefur verið aflétt.
En, vel að merkja, bæði innrás tölvu-
tæknibrellnanna og afnám ritskoðunar á kyn-
lífslýsingum geta ekki komið í staðinn fyrir
það, sem þær að sumu leyti hyggjast leysa af
hólmi, þ.e. ímyndunarafl áhorfandans. Veldur
hver á heldur.
Allt er enn ekki sýnt
á Íslandi af þeirri miklu fjölbreytni sem
blómstrar í alþjóðlegri kvikmyndagerð. Aftur
og aftur og í síauknum þægindum getum við
séð amerísku afþreyingarmyndina, sem
reyndar stendur sjaldnast undir nafni. Meðal
þeirra sem það gerðu á árinu voru The Others,
The Gift, Meet the Parents, The Wonder
Boys, Traffic, The Contender, A.I. og Shrek.
En allt of sjaldan fáum við tækifæri til að sjá
hina myndina, þá sem er ofurlítið öðruvísi, vel-
ur öðruvísi efni og öðruvísi nálgun, og er ekki
upprunnin í endurvinnslu Hollywoodveldisins.
Þeim tækifærum sem við höfum haft hefur
bæði fækkað og fjölgað á árinu, sem er að
kveðja: Kvikmyndahátíð lifir enn, en hefur
minna svigrúm, kvikmyndaklúbburinn Fil-
mundur hefur heldur styrkst, sýningar Kvik-
myndasafns Íslands í Bæjarbíói hafa bæst við,
en einstökum tilþrifum í almennum kvik-
myndahúsum hefur ekki fjölgað. En margar af
skemmtilegustu og/eða eftirminnilegustu
myndum ársins 2001 hafa ekki verið Holly-
woodmyndir: Sú sænska Tillsammans, sú
danska Italiensk for begyndere, þær bresku
Billy Elliot og Sexy Beast, þær frönsku Amél-
ie og Baise-moi, sú fjölþjóðlega Moulin Rouge,
þær bandarísku Memento, The Man Who
Wasn’t There, Requiem For a Dream og
Storytelling, svo nokkur dæmi séu tekin.
Allt er núna sýnt
af íslenskum kvikmyndum, sem gerðar eru í
landinu. Þær voru fleiri árið 2001 en virðast
kann í fljótu bragði. Tvær frumsýningar af
„hefðbundnu“ tagi segja ekki alla söguna – á
hinni athyglisverðu en misjöfnu Villiljós, sem
fimm leikstjórar af yngri kynslóð gerðu eftir
handriti Huldars Breiðfjörð, og á mjög fram-
bærilegri kvikmynd Ágústs Guðmundssonar
eftir skáldsögunni Mávahlátri. Hin ódýra staf-
ræna tökutækni veitir æ fleirum sem vilja
gera bíómyndir færi á að gera það án þess að
fara lóðrétt á hausinn (Lalli Johns, Gæsapartí,
Í faðmi hafsins, Ham). Þessi breyting markar
mjög trúlega tímamót í kvikmyndasögu okkar
þótt þau séu tæplega um garð gengin. Á næstu
mánuðum og árum munum við sjá betur
hverju „stafræna byltingin“ mun í raun bylta.
Hún gefur stóraukna möguleika; enn höfum
við ekki séð að ráði hvernig þeir nýtast.
Þá mun koma á daginn hvort framtíðin verð-
ur áfram „ekki það sem hún eitt sinn var“ eða
hvort „framtíðin er ekki ósvipuð samtíðinni,
aðeins lengri“.
Allt er hægt, allt er sýnt,
en hvað er þetta allt?
En, vel að merkja, hvorki
innrás tölvutæknibrellnanna
né afnám ritskoðunar á kyn-
lífslýsingum geta komið í stað-
inn fyrir það, sem þær að
sumu leyti hyggjast leysa af
hólmi, þ.e. ímyndunarafl
áhorfandans. Veldur hver á
heldur.
verk“, en án þeirrar dirfsku hefði verið eftir
litlu að slæðast á sýningunni sem heild. Það
var sérstök ánægja að verða vitni að því
hvernig íslenskur listamaður á þátt í því að
víkka út og þróa sögu málverksins með þeim
hætti sem Hreinn gerði þar. Framlag hans
ber ljóslega vitni um hversu óljós mörkin á
milli ólíkra listsviða eru orðin í samtímanum
og nauðsyn þess að halda listrænni orðræðu á
lofti án þess að henni sé sniðinn of þröngur
stakkur ákveðinna aðferða eða tjáning-
armiðla.
Það er eftirtektarvert að frami Hreins á er-
lendri grundu á undanförnum misserum – en
hann vann t.d. einnig hin virtu Ars Fennica
verðlaun á fyrra ári – er ekki síst tengdur
þeim stuðningi sem hann hefur notið um ára-
bil frá hollenska ríkinu, en stefna yfirvalda
þar hefur verið sú að styðja markvisst þá
listamenn sem fram úr skara til þátttöku í
hinum alþjóðlega listheimi. Sú viðurkenning
sem Hreini hefur hlotnast er að sjálfsögðu af-
rakstur þeirrar stefnu.
Sömuleiðis er vert að minnast opnunar
Errósafns Listasafns Reykjavíkur, en Erró
hefur alið allan sinn starfsaldur erlendis og
sem slíkur verið verðugur fulltrúi íslenskra
samtímalista á alþjóðavettvangi um langt
skeið. Þótt list hans beri þess glöggt merki að
hafa sprottið úr því þjóðfélagslega umróti
sem átti sér stað á sjöunda og áttunda ára-
tugnum er hún enn í dag veigamikill þáttur
ákveðinnar listhreyfingar sem setti ótvírætt
mark sitt á listræna orðræðu síðari hluta tutt-
ugustu aldar í tengslum við þjóðfélags-
umræðu. Erró hefur alla tíð verið mjög al-
þjóðlegur í viðhorfum sínum og vali á
viðfangsefnum og vonandi verður „heim-
koma“ hans til þess að ítreka nauðsyn þess að
íslenskum listamönnum sé í ríkari mæli gert
kleift að vera hluti af hreyfiafli alþjóðlegra
lista og móta þann umheim sem Ísland er að-
ili að, ekki síður en aðrar þjóðir.
Íslendingnum Ólafi Elíassyni hefur, eins og
Erró á sínum tíma, tekist að hasla sér völl er-
lendis með áhrifaríkum hætti að undanförnu,
ekki síst á þessu ári. Enn sem komið er höf-
um við þó ekki fengið að njóta stórrar sýn-
ingar á verkum hans hér á landi og er það
umhugsunarefni að íslensku listasöfnin skuli
ekki enn hafa komið upp yfirlitssýningu á
verkum hans eins og nú þegar hefur verið
gert erlendis. Í samtali við Morgunblaðið nú í
haust benti Ólafur á að velgengni sín hvað
sýningartækifæri varðar væri ekki síst afar
gott dæmi um framsækna markaðssetningu
lista í hinum alþjóðlega listheimi, hvort held-
ur sem sú markaðssetning á sér stað í gegn-
um opinberar stofnanir eða einkagallerí – og
sömuleiðis að við hér á landi þyrftum að læra
að nýta okkur þann alþjóðlega grundvöll til
að koma íslenskri listsköpun upp úr kreppu
einangrunar. Af umsögn hans má ljóst vera
að mikið þarf að breytast hér á landi til þess
að þeir listamenn sem eitthvað kveður að fái
tækifæri til að sýna sig og sanna utan land-
steinanna.
Þá er tæpast hægt að líta framhjá framlagi
Íslendinga til alþjóðlegra samtímalista á Fen-
eyjatvíæringnum sl. vor. Þar tók Finnbogi
Pétursson þátt og var það mál manna að verk
hans hefði fallið einstaklega vel inn í and-
rúmsloft tvíæringsins og verið framlag sem
Ísland var fullsæmt af. Framkvæmd þátttök-
unnar var þó nokkuð umdeild og afhjúpaði vel
veikleika íslensks myndlistarumhverfis sem
löngu er tímabært að taka til endurskoðunar.
Það væri athyglisvert að sjá hvað íslenskir
myndlistarmenn eru færir um í alþjóðlegu
samhengi ef fagmannlega væri staðið að upp-
lýsingamiðlun og kynningu t.d. í gegnum
samtímalistastofnun hér á landi. Stofnun af
því tagi gæti mótað markvissa stefnu og hald-
ið utan um alla þá þræði sem að sam-
tímalistum lúta svo að því fjármagni sem til
er að dreifa sé varið á sem áhrifaríkastan
máta fyrir þá íslensku myndlistarmenn sem
skara fram úr. Ef fjárstreymið til listanna á
sér stað í gegnum slíka stofnun má auk þess
gera ráð fyrir að það geti verkað hvetjandi
bæði á listasöfnin hér á landi, sem og á einka-
rekinn gallerírekstur, varðandi listræna dóm-
greind, frumkvæði og hugvitssemi í sýning-
arhaldi.
Líta má til þess fordæmis sem við höfum
úr tónlistarheiminum hvað Björk snertir.
Staða hennar erlendis hefur beint sviðsljósinu
að öðrum íslenskum tónlistarmönnum, virkað
afar hvetjandi á tónlistarlífið hér og orðið til
þess að greiða götu íslenskra tónlistarmanna
utan landsteinanna. Hið sama gæti gerst í
myndlistarheiminum ef góður íslenskur lista-
maður fær þau tækifæri sem hann þarf til að
koma sér áfram. Svo virðist sem sú jafn-
aðarstefna sem myndlistarmenn hafa sjálfir
rekið hér á landi um árabil hafi ekki skilað til-
ætluðum árangri og ef til vill er kominn tími
til að hverfa frá henni og láta óháða aðila
velja markvisst þá fulltrúa sem möguleika
eiga í víðara samhengi.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
„Það væri athyglisvert að sjá hvað íslenskir myndlistarmenn eru færir um í alþjóðlegu samhengi ef fagmannlega væri
staðið að upplýsingamiðlun og kynningu t.d. í gegnum samtímalistastofnun hér á landi.“
fbi@mbl.is ath@mbl.is
K v i k m y n d i r
Á r n i Þ ó r a r i n s s o n