Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.2002, Qupperneq 12

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.2002, Qupperneq 12
R OTTERDAM, menningarborg Evrópu 2001, flaggaði með tveim ásum hollenzkrar listar úr fortíð á hinu mikla safni Boijmans van Beuningen á árinu. Þeim Hieronymus Bosch (f. í Hertogenbosch um 1450, d. á sama stað 1516) og Pieter Bruegel eldri (f. í þorpinu Bruegel í nágrenni Breda 1528/30, d. í Brüssel 1569), og í báðum tilvikum var leitast við að bregða upp nýju og skýrari ljósi á list þeirra. Þannig einungis sýndar teikningar fengnar víðs vegar að úr heiminum eftir Bruegel, en hvað Bosch snerti var um að ræða yfirgripsmestu yfirlitssýningu á verkum hans sem haldin hefur verið og marg- ur til efs um að nokkru sinni verði endurtekin. Hið síðastnefnda annars búið að endurtaka svo oft um margar stórsýningar síðustu áratuga, að fullyrðingin er orðin nokkuð tuggukennd er svo er komið, má hér vísa til sígilds orðtækis; aldrei segja aldrei. Hins vegar er það alveg rétt að ekki er hægt að flytja andrúm milli staða og safna frekar en sólskin inn í hús í skjólum. Ennfremur afar erfitt er að endurtaka viða- miklar sýningar á perlum heimslistarinnar margra hluta vegna, meginástæðan gífurlegur kostnaður og vaxandi tregða safna við að lána meistarverk liðinna alda, áhættuþættirnir stöðugt fleiri í háskalegum heimi. Og þótt þetta hafi verð einstæð sýning söknuðu menn nokkurra lykilverka, þótt þau væru svo nálæg sem í Madrid og Lissabon. Hins vegar mátti sjá eftirgerðir þeirra, en eftirgerðir mynda Bosch var útbreitt fyrirbæri og saga út af fyrir sig. Þrátt fyrir stífa síðmóderníska umræðu á undangengnum áratugum sem nær í höfuð- dráttum vart lengra en til sjálfs módernism- ans, hvort sem hann er skilinn og meðtekinn sem afmarkað listhugtak frá liðinni öld, eða af eldri toga, eru mun eldri gildi engan veginn úr- elt. Arfleifð er menning, eins og Thomas Mann orðaði það, vel að merkja. Öllum sem miða upphaf samtímalistar við lok sjöunda áratug- arins, með áhugasvið sem nær varla út fyrir túnfótinn heima þannig hollt að gera sér grein fyrir því, að sjálfan bakgrunn yfirraunsæisins eða hjástílsins má helst rekja til tímaskeiðs sem menn nefna iðulega myrkar miðaldir. Er raunar af enn eldri toga, eins konar meðfædd og inngróin kennd fyrir hinu óræða í tilverunni sem fært er í sjónrænan búning. Sýndarveruleiki, heimur sem fer útaf spor- inu, er afar vinsælt fyrirbæri í kvikmyndum nútímans, sækir ekki svo lítinn skyldleika til hugsýna miðaldamálara, drauma og ofskynj- ana. Á Bosch-sýningunni mátti til hliðar sjá ýmis áhrif myndheims hans í tímans rás, þetta var ekki einungis ferðalag 84 kílómetra frá átt- högum hans til Rotterdam, heldur áfram til nú- tímans og þar koma þær vinkonur Eva og Adela jafnvel við sögu! Og fljótlega eftir að sýningunni lauk var önnur opnuð á sama stað sem tók fyrir áhrifin í stærra samhengi, sem og sýn samtíðarlistamanna á myndheim snillings- ins. Hinn markaði myndstíll yfirraunsæi eða hjá- stefna (surrealismi) síðustu aldar, sótti þannig mikið til fortíðar og fékk aukið vægi í ljósi óró- legra og fjarstæðukenndra tíma, markvissrar dýrkunar hins óræða, fáránleikans sem og óhefts spuna hugarflugsins. Stílbrögðin og höf- uðpaurar þeirra aldrei sýnilegri en á síðustu árum né í annan tíma meira í sviðsljósinu. Leiðarstef þeirra mikið til holdlegar kenndir; fýsnir, girndir og þrár, sækir jafnt í duldir og grótesku kynlífsins; smiðju Sade markgreifa og kenningar Sigmundar Freuds. Í upphafi ársins lauk þannig mikilli sýningu á Tate mod- ern, Desire Unbond, (Óheftar þrár), sem tók fyrir súrrealista síðustu aldar og föng þeirra. Verður enduropnuð á Metropolitan safninu í New York 6. febrúar og stendur til 12. maí. Í sjálfu sér má rekja yfirraunsæi langt aftur í tímann, sér stað í myndheimi Egypta, vegg- myndum frá Pompei og ekki síður austur- BOSCH OG BRUEGEL Tveir ásar hollenskrar listar voru í sviðsljósinu í Rotter- dam á liðnu ári, þeir Hier- onymus Bosch (1450–1516) og Pieter Bruegel eldri (1528/30–1569). Marka mikilvæga þróun frá síðmið- öldum til endurreisnar og skýrt dæmi þess að blóðrík list er alltaf fersk. Báðir frá fyrstu tíð í miklu uppáhaldi hjá BRAGA ÁSGEIRSSYNI sem hermir hér eitt og annað af málarafurstunum. Málverk Hieronym- usar Boschs eru svo stór, flókin og margþætt að litla þýðingu hefur að birta nema hluta úr þeim. Pieter Bruegel, Hinar sjö ódyggðir, Ira, 1557 koparstunga, Uffizi Flórenz. Pieter Bruegel, Gullgerð- armaðurinn 1558, kop- arstunga. 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 26. JANÚAR 2002

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.