Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.2002, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 23. FEBRÚAR 2002 7
Við stóðum í kaldri birtu börn,
er borin varstu út í kistu.
Að baki var hin tæra tjörn,
sem tárin föllnu lengi gistu.
Og kirkjan sem er kennd við dóm,
hún klukknahljóð til grafar sendi.
Þau fylgdu síðan hjartans hljóm,
sem hryndi lauf úr blómavendi.
Hve krossinn óx við kulsæl tré,
svo kröftugt tákn um líf og dauða.
Og upp hvert fallið fótspor sté,
sem festi blöð á krossinn auða.
Í líksins bíl var ljóstært gler,
þar lá þín kista í hvítum skugga.
Og síðan hana hugur sér,
er hvílir kuldaskin í glugga.
Við stóðum börn í birtu köld,
er borin út var dómþung kista.
Þótt meir en hálf sé horfin öld,
mitt hjarta fylgir enn því missta.
VIÐ DÓM-
KIRKJUNA
Höfundur er rithöfundur.
INGIMAR ERLENDUR SIGURÐSSON
1
hann sem fór til hægri
mætti kuðungi hjá skeljum
í rúmsævi tímans merktum
hitti til vinstri þráðafans
sílin undir gatkletti syntu
í hafstrauma ljósi sólar
svifmjúk kom marglyttan
siglið út í stjörnugeim
hjá honum sem ykkur sér
lendið þið heldur aldrei
á leiðarenda
upphafs til endis rásar
innan sem utan löndum
varð svarið
2
í hundrað skrefa lengd hæðafaðms
svifu bylgjuþræðir og punktablik
sem mistur frá vinstri að miðju
undir skýfláka siglingu tungls
augnaferð að velkunnu hafi
sem hvítt féll með soghljóði
í svart sigti fjöruborðsins
augnaferð aftur að því ókunna
hvað séð var er verður
skiptir máli
hvernig séð var er verður
skiptir höfuðmáli
3
bládjúp stráð ljósdeplum
umvafið mýkt bólstra
langir taumar liðast
yfir myrk heimkynni þarans
horf ei aðeins til himins
þú reyna skalt einnig
að rata um eigin alhimna
mannveran teygir sig stutt
vill hlusta eftir hvelli
sjá barnið brosa
með kinn að knettinum
V. ÞORBERG BERGSSON
MINNINGIN HUGLEIDD
Höfundur er myndlistarmaður og skáld.
SÁ MUN SJÁ
(Lag: Yfir fornum frægðar ströndum.)
Sunnan báran boð þér flutti,
blessuð Reykjavík.
Land þitt fannst – og forsjón dagsins.
Fann þig auðnan rík.
Yfirgaf norsk hetja hafsins
heimsins iðu-torg.
Bær varð Ingólfs Arnarsonar
Íslands höfuðborg.
Frúin Hallveig Fróðadóttir
farsæl móðir var.
Fyrstu landnáms heiðrum hjónin.
Helgum minningar.
Víkur búa verkin hafin
vel þau skila sér.
Nýrri þús-öld grundvöll gefur
Guð vor, – hann sem er.
PÉTUR SIGURGEIRSSON
MEÐ FORNLEIFAR AF FRUMGERÐ BORGARINNAR
Höfundur er biskup.
BLESSUÐ REYKJAVÍK