Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.04.2002, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 06.04.2002, Qupperneq 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. APRÍL 2002 BANDARÍSKI rithöfundurinn Robert James Waller sem sló í gegn með skáldsögunni Bridges of Madison County (Brýrnar í Madison sýslu) sendir á næstu vikum frá sér skáldsöguna A Tho- usand Country Roads (Þúsund sveitavegir). Er þar um að ræða nokkurs konar framhald skáld- sögunnar vinsælu sem út kom fyr- ir réttum tíu árum og lýsti kynn- um förumannsins Robert Kincaid og Francescu Johnson, giftri konu á búgarði í Iowa-fylki. Í nýju skáldsögunni er tekinn upp þráðurinn í tilveru persón- anna sem báðar lifa í minning- unni um hið ástríðufulla samband sem örlögin bundu enda á. Les- endur fyrri bókarinnar og áhorf- endur samnefndrar kvikmyndar með Meryl Streep og Clint Eastwood í aðalhlutverki munu eflaust taka síðbúnu framhaldinu fagnandi. Ævi Indiru Gandhi Í byrjun árs kom út ný ævisaga eftir Katherine Frank sem nefnist Indira Gandhi: The Life of Indira Nehru Gandhi (Líf Indiru Nehru Gandhi). Þar fjallar höfund- urinn um líf og tilveru þessa fyrrum for- sætisráðherra Indlands og leiðtoga stærsta lýðveldis heims. Ævisagan er byggð á mikilli úr- vinnslu heimilda um einkalíf Gandhi, samband hennar við föð- ur sinn og ferlið sem hún fór í gegnum áður en hún tók þá ákvörðun að gerast forsætisráð- herra. Í umsögnum um ævisög- una kemur fram að þar sé fjallað um líf Gandhi á einkar yfirveg- aðan hátt, og hún birt sem merk- ur leiðtogi sem þó var ekki laus við galla, líkt og ljóst þótti af ger- ræðislegum stjórnarháttum undir lok stjórnartíðar hennar. Indiara Gandhi var sem kunnugt er myrt árið 1984 af lífverði sínum. Höfundurinn, Catherine Frank, hefur áður sent frá sér vandaðar ævisögur m.a. um Emily Brontë og Lucie Duff Gordon. Merk ljósmyndabók Í nýliðnum mánuði kom út ljós- myndabókin Another Vietnam: Pictures of the War from the Oth- er Side (Önnur Vítetnam: Stríðs- ljósmyndir frá hinni hliðinni) í rit- stjórn Tim Page, Christopher Riley og Douglas Niven. Þar er að finna myndir sem teknar voru af norður-víetnömsk- um ljósmyndurum í Víetnamstríð- inu og koma margar hverjar í fyrsta sinn fyrir sjónir almenn- ings. Í bókinni eru 180 svart- hvítar ljósmyndir sem sýna aðrar hliðar á stríðinu en almennt hafa sést í vestrænni umfjöllun. Köfl- um er skipt niður eftir höfundum ljósmyndanna, sem jafnframt skrifa nokkur orð um sjónarmið sín eða reynslu af stríðinu. Sam- kvæmt umsögn í vikuriti banda- rískra útgefenda spanna ljós- myndirnar allt frá „uppstilltum“ myndum sem teknar eru með ákveðinn boðskap í huga, til til- viljunarkenndra eða listrænna ljósmynda sem sýna óvæntar og áður huldar hliðar stríðsins. Að- alritstjóri bókarinnar, Tim Page var sjálfur fréttaljósmyndari í Ví- etnam stríðinu og er textinn og umsagnir við myndirnar byggður á viðtölum sem Page tók við hina norður-víetnömsku starfsbræður sína. ERLENDAR BÆKUR Enn um ást í Madison-sýslu Indira Gandhi ISkáldsagan er umtalaðasta bókmenntagrein sam-tímans. Meginástæðan er vafalítið sterk markaðs- staða en skáldsagan hefur líka verið í örri þróun og þannig oft gefið tilefni til umræðna. Lengi fram eftir síðustu öld virtist skáldsagan vera að þróast í mjög sérviskulegar áttir. Tilraunaglaðir höfundar virtust á góðri leið með að króa hana af í innstu kimum. Nýsagan franska var kannski eins konar enda- punktur og útgönguleiðirnar sem hún bauð upp á ekki margar. En upp úr því opnast skáldsagna- formið upp á gátt. Tilraunirnar halda áfram en í stað þess að leita inn á við taka höfundar að færa út eða jafnvel afmá mörk formsins. Nú er svo komið að skáldsagan líkist einna helst dagblaði þar sem les- andinn má eiga von á öllu, stiklað er á aðskiljanleg- ustu efnum, „allt frá skammtafræði til framleiðslu á járnnöglum“, eins og þýski rithöfundurinn W.G. Se- bald bendir á í viðtali hér í Lesbókinni í dag, og text- inn getur verið jafnt í þurrum fréttastíl sem upp- höfnum rómantískum anda. Að mörgu leyti minnir skáldsagan nú á stiklutexta Netsins þar sem öllu æg- ir saman og engin boð eða bönn eru í gildi. Kannski hefur skáldsagan aldrei gengið lengra í því að finna heildarlausn, heildarlausn fyrir sjálfa sig jafnt sem einstaklinga, fyrirtæki, og heiminn. IIW.G. Sebald er einn af þeim höfundum sem hafaá undanförnum árum nýtt sér ólík frásagn- arform í skáldsögum sínum, svo sem ferðasöguna, sjálfsævisöguna og sagnfræðina. Einnig hefur hann notað ljósmyndir með afar sérstökum hætti til þess að opna formið enn frekar, brjóta upp hina línulegu frásögn textans og bæta við hann. Hann heldur því fram að ný skáldverk verði að þróast lengra því hið hefðbundna skáldsagnaform er of takmarkandi. Hann segist alltaf vera að grafa upp undarlega hluti sem kannski komi sér að notum og kannski ekki. „Ég leyfi mér að fylgja hugdettum mínum eftir, því reynslan hefur kennt mér að þannig kemst mað- ur að fróðleik sem skipulögð leit hefði aldrei leitt í ljós. Tilviljunin er oft svo afdrifarík og maður verð- ur að treysta eðlisávísuninni.“ IIIFyrir skömmu kom út í íslenskri þýðingu Guð-björns Sigurmundssonar bók eftir ítalska rithöf- undinn Italo Calvino er nefnist Herra Palomar en hún kom út á frummálinu árið 1983. Í þeirri bók „leikur“ Calvino á skáldsagnaformið með skemmti- legum hætti. Í raun er bókin í grunninn greinasafn um menningarrýni. Calvino les í ýmis fyrirbæri eins og öldur á strönd, líf í dýragarði og húsgarði, borg- ina, matarinnkaup o.s.frv. En til þess að bæta nýrri vídd við þessar greinar og ljá bókinni jafnframt annað form en fræðiritsins lætur hann sjón- arhornið vera Herra Palomars, venjulegs manns sem er „dálítið nærsýnn, utan við sig og innhverfur“ en finnur hjá sér þörf til að rýna í hversdagslega hluti eins og væru þeir furður veraldar. Fyrir vikið breytist bókin í skáldsögu sem hefur nákvæma bygg- ingu fræðiritsins, eins og útskýrt er í lok bókar, en fjallar um það eilífa viðfangsefni skáldsögunnar hvernig heimurinn er alltaf fyrst og fremst hugar- heimur hvers einstaks manns. NEÐANMÁLS A LLT vafstrið í Bretum kring- um sitt kóngafólk er kynd- ugt í augum lýðræðissinna og mætti meira um það segja en hér er rúm fyrir. Konungsfjölskyldan hefur lært þá lexíu að sorgin er ekki einkamál hennar. Þegar Díana prinsessa fórst lá fjölskyldan undir ámæli fjölmiðla fyrir meint tilfinninga- leysi þar sem hún kom ekki út á meðal almenn- ings til að skoða blómvandahauginn við garðs- hliðið. Þjóðrembulegir fréttaskýrendur töluðu um að þar kippti þeim í Habsborgarakynið og al- menningur heimtaði að guðirnir deildu sorginni. Núna er strax farið í fjölmiðla og Karl prins flutti aðdáunarverð minningarorð um ömmu sína í sjónvarpi innan tveggja daga frá andláti hennar. Þegar drottingarmóðirin lést sl. laugardag barst fréttin þegar klukkan var langt gengin í fjögur síðdegis. Fyrir blöðin var úr vöndu að ráða þar sem sunnudagsútgáfan fer í prentun upp úr kvöldmat, en andlátið útheimti a.m.k. for- síðu, leiðara og minningargrein. Eitt af því við- kunnanlega við bresk blöð er sá háttur að birta aðeins eina, vandaða minningargrein um mikils- verða einstaklinga daginn eftir að andlátsfréttin berst. Eitthvað annað en sú taumlausa mærð sem hér er flíkað þegar börn og foreldrar senda opin bréf yfir móðuna miklu og almennum les- anda líður eins og hann sé að hnýsast í einkamál. Ritstjóri Times lýsti því í viðtali á CNN að laugardagurinn fyrir páska hefði verið ann- asamur, en sem betur fer hefði blaðið þann hátt á að eiga tilbúnar minningargreinar um þá stafnbúa samfélagsins sem hallir væru úr heimi. Vandinn hefði verið sá að minningargreinin um drottningarmóðurina var orðin of gömul og sá sem skrifaði hana löngu genginn til feðra sinna og einnig sá sem hefði uppfært greinina fyrir áratug. Málinu hefði þó verið bjargað og blaðið komist í prentun. Sjónvarpsþulir voru komnir í svört föt fáein- um klukkustundum eftir að fréttist um andlátið, og karlmenn báru svört hálsbindi. (Blair var kominn með slifsið hálftíma eftir andlátið!) Sum dagblöð gagnrýndu BBC harðlega fyrir skort á virðingu þegar dróst úr hömlu að fréttaþulirnir hengdu svarta hálstauið á sig og að í einum fréttatexta skyldi talað um hina látnu sem „gamla konu“, rétt eins og ellin væri dónaleg. Það er vandlifað fyrir ríkisfjölmiðil á samkeppn- ismarkaði. Þegar Georg V lést á sínum tíma var engu sjónvarpi til að dreifa en BBC útvarpið lék sorgartónlist svo dögum skipti með þeim afleið- ingum að þunglyndi varð þjóðfélagsböl. News of the World fór illa út úr tímasetningu dauðsfallsins. Í nóvember hafði blaðið boðað umfjöllun um frægan fótboltakappa og hjúskap- arbrot hans. Eftir þessu var tekið enda líklegt að blaðið hefði krækt í stórfisk. Fórnarlamb fréttarinnar krafðist lögbanns. Ekki minnkaði athyglin við það úr því viðkom- andi vildi punga út tugþúsundum punda í mála- ferli. Lögbannskröfunni var hnekkt í mars, blaðið mátti birta framhjáhaldssögurnar. Jafnskjótt varð uppvíst hver maðurinn var og kom í ljós að hann var bara fyrirliði smáliðs og þótti þá engum mikið til koma. News of the World boðaði samt birtingu sorasögunnar nk. sunnudag, enda búið að leggja í ómældan kostn- að og fagna sigri í málaferlum. Ritstjórinn sagði það skyldu sína að draga þá niður sem hefðu komið sér svo fyrir að geta hreykt sér yfir aðra! (Svona skinhelgi er ekki óþekkt hér á landi). En þá tók almættið í taumana og burtkallaði þann stafnbúa sem allir dáðu. Þar með dó líka fréttin af framhjáhaldi fótboltasparkarans. Drottningarmóðirin er kannski seinasti með- limur konungsfjölskyldunnar sem enginn gagn- rýndi, menn elskuðu hana og dáðu og þótti bara sætt ef dagleg nautn hennar af gindrykkju keyrði úr hófi, en það kann reyndar að stafa af umburðalyndi Breta gagnvart ölvun. FJÖLMIÐLAR Vandinn hefði verið sá að minningargreinin um drottn- ingarmóðurina var orðin of gömul og sá sem skrifaði hana löngu genginn til feðra sinna og einnig sá sem hefði uppfært greinina fyrir áratug. Á R N I I B S E N KÓNGAFÓLK OG FJÖLMIÐLAR AÐRAR mikið lesnar bækur í bernsku voru bækur Enid Blyton. Mér vitanlega kemur orðið „lund- leiður“ hvergi fyrir í íslensku ritmáli nema í þýðingum Sigríðar Thor- lacius á Ævintýrabókunum. Hvet ég lesendur þessa dálks eindregið til að auka útbreiðslu þess, þvílíkt fyr- irtaksorð sem þetta er. Almennt voru þýðingar Sigríðar og annarra á miklu gullaldarmáli, þó að einstaka sinnum rugluðust Jonni og Júlli í Fimmbókunum saman, enda afar líkir á myndum í bókunum. [...] Aðdáendur bóka Enid Blyton hafa sjálfsagt velt fyrir sér hvílíkt dálæti konan hafði á nöfnunum Jonni, Anna, Finnur og Dísa. Það er þó ekki alls kostar rétt. Þó að Jonni og Anna séu bæði í Ævintýrabókunum og Fimmbókunum og Finnur og Dísa í Ævintýrabókunum og Dularfullu- bókinum heita þau alls ekki sömu nöfnum á ensku. Jonninn í Æv- intýrabókunum heitir Jack en sá í Fimmbókunum heitir Dick. Anna heitir Lucy-Ann í Ævintýrabókunum en Anne í Fimmbókunum. Dísa í Ævintýrabókunum heitir Dinah en í Dularfullubókunum heitir Dísan Daisy. Finnur í Ævintýrabókunum heitir Philip en sá í Dularfullubók- unum heitir Frederick Algernon Trotteville, oftast kallaður „Fatty“. Í íslensku þýðingunni heitir hann fyrst Friðrik Finnur (í Dularfulla húsbrun- anum) en síðan Finnur Algernon og er alltaf kallaður bara Finnur en ekki uppnefndur „feiti“. Þetta getur skapað skrítið andrúmsloft í bók- unum þar sem Finnur hefur mikla áráttu til að klæða sig í hvers konar dulargervi og leika á hin börnin, enda efnilegur leynilögreglumaður (og hvar væru þeir án dulargervis?). Félagar hans þykjast þó iðulega þekkja hann og ávarpa galókunnugt fólk með nafni Finns. Þegar maður var lítill fannst manni fólk óþarflega hörundsárt við að vera kallað Finn- ur, jafnvel bálreitt. Og það löngu áður en Finnur Ingólfsson var orð- inn frægur. Þegar haft er í huga að á frummálinu er Finnur „Fatty“ eru viðbrögðin skiljanlegri. Ármann Jakobsson Múrinn www.murinn.is Morgunblaðið/Einar Falur Brot. JONNI, ANNA, FINNUR OG DÍSA

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.