Lesbók Morgunblaðsins - 06.04.2002, Síða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. APRÍL 2002 9
ætíð skilyrt því umhverfi og þeim
tíma sem við lifum á.
Þekkingarsköpun og framfarir á
sviði vísinda eru þar af leiðandi eitt
þeirra viðfangsefna sem Ólafur hefur
fengist við. „Ég hef áhuga á líftækni
og vil rannsaka alla hvernig hægt sé
að tengja uppgötvanir í líftækni við
listina. Í raun hef ég áhuga á öllum
sviðum tækni og menningar og þess
vegna kýs ég að vinna bæði með arki-
tektum, verkfræðingum, heimspek-
ingum og sagnfræðingum. Þessu
tengist hugtak sem ég velti mikið fyr-
ir mér um þessar mundir, en það er
sannleikurinn. Hvernig verður sann-
leikurinn til. Hvernig er sagan búin
til. Hvað er sögulegur veruleiki.
Hvernig er hægt að búa til Sögu og
þekkingu þegar sannleikur og raun-
veruleiki er síbreytilegur og afstæð-
ur. Eru svokallaðar staðreyndir ekki
alltaf túlkaðar staðreyndir. Ég hef
unnið með sagnfræðingnum Israël
Rosenfield, að þessum vangaveltum
um staðreyndirnar og minnið í verk-
inu Uppbygging minnisins, (La
construction de la mémoire, 2002) þar
sem goðsagan á bak við byggingu og
höfund Eiffelturnsins er afhjúpuð.
Luc Steels, gervigreindarsérfræð-
ingur, hefur unnið með mér að verk-
inu um augað, (Horfðu í kassann!) þar
sem ég er m.a. að velta fyrir mér
hvernig vit verður til, hvernig þekk-
ing byggist upp. Luc Steels er for-
stjóri Sony Computer Science Lab-
oratory í París sem sérhæfir sig í
rannsóknum á sviði hugbúnaðar og
gervigreindar og það var rannsókn-
arstofa hans sem stóð að baki gervi-
heilanum sem settur var í vélhundinn
fræga sem Sony setti á markað fyrir
rúmlega ári“ útskýrir Ólafur.
Í verkinu Horfðu í kassann! (2002),
tekst Ólafur á við samruna líftækn-
innar, nýjustu þróunar í hugbúnaði,
og listarinnar og kitlar þar með út-
ópískan draum vestrænnar menning-
ar um samruna vísinda og lista. Til-
vist verksins byggist á þátttöku
sýningargesta. Hver og einn getur
horft inn í gat á svörtum kassa sem
hefur að geyma myndavél og hugbún-
að sem skannar auga áhorfandans.
Forritið fær upplýsingar um lithimnu
einstaklingsins og út frá þeim upplýs-
ingum myndar „umboðsmaður“ hljóð,
sem eru í raun orð sem forritinu þykir
passa við hvert einstakt auga, 7–8 orð
eru mynduð út frá hverju auga. Þetta
eru orð sem tilheyra engu sérstöku
tungumáli og má segja að tölvan
skapi á þennan hátt nýtt tungumál
með þeim þúsundum orða sem hún
myndar meðan á sýningunni stendur.
Hvert orð er í raun eins og leynikóði
eða dulmálslykill sem tölvuheilinn
hefur samið út frá lithimnu hvers og
eins. Um leið og þetta gerist er mynd
af viðkomandi auga varpað upp á
vegg hinumegin í salnum.
Verkið Horfðu í kassann er marg-
slungið verk þar sem margir þræðir
listsögu og tækni tengjast. Uppbygg-
ing verksins vísar aftur til myrkur-
húss Leonardo da Vincis (camera
obscura), bæði í uppsetningu (gatið
sem horft er í gegnum) og útfærslu
(myndinni sem er varpað á vegginn
hinumegin). Myrkurhúsið var á sín-
um tíma allt í senn, myndlíking um
sjónina, tæknileg skýring á starfsemi
augans og tæki til að búa til myndir.
Myrkurhús Ólafs býr hinsvegar bæði
til myndir og orð.
Hér er það augað sjálft sem er efni-
viður verksins og sjálfstæður hvati að
sköpun orðsins. Auga 21. aldarinnar
er enn þessi fullkomni líffræðilegi
hringur sem endurreisnarmenn köll-
uðu konung líffæranna og var tákn
sólarinnar, en það er ekki lengur líf-
fræðileg gáta Leonardos, Ödipusar-
auga súrrealistanna, eða stjúpmóður-
auga Odile Redons, sem er
umfjöllunarefni, heldur hátækniaug-
að þar sem lithimnan er viðfangið.
Lithimnan er eitt af séreinkennum
einstaklings sem engum tveim er eins
gefin. Tölvugreining lithimnunnar
býður uppá framtíðarmöguleika við
persónustaðfestingu, eins og ljós-
myndin gerði á síðari hluta nítjándu
aldar og fingrafarið á þeirri tuttug-
ustu. Hér er það líffæri áhorfandans
sem er orðið að viðfangsefni. Verkið
varpar honum inn í framtíð sem
tæknilega er þegar orðinn hluti af
okkar samtíð.
Þekkingarflæði samtímans, orð-
ræða, tækni, efnis, rýmis og skynj-
unar, með tilvísun í vísindi og heim-
speki gerir verk Ólafs afar heillandi.
Sjálfur lýsir hann því þannig að hin
þverfaglega orðræða sem hefur verið
að þróast á allra síðustu árum hafi
opnað nýjar leiðir til listsköpunar,
„við getum sagt að það sé tíðarandinn
sem hafi opnað möguleika til að skapa
nýtt innihald.“. Hann segist geta far-
ið inn á nánast hvaða þekkingarsvið
sem er og fundið viðfangsefni sem
veki áhuga hans og skarist við það
sem hann er að fást við í list sinni.
„Ég get farið inn á svið byggingarlist-
ar og séð þar viðfangsefni í mótun
sem vekja áhuga minn. Fyrir 15 árum
var það deconstructivisminn, nú eru
það nýjar rýmisskilgreiningar sem ég
hef áhuga á. Ég hef kynnst arkitekt-
um sem hafa sömu áhugamál og ég og
mikið af því sem ég er að gera skarast
á við þeirra svið og öfugt. Ég held að
það séu sameiginleg viðfangsefni í
gangi á ólíkum sviðum rannsókna og
tækni, en það er erfitt að skilgreina
þetta eins og er. Hlutirnir gerast
kannski ekki samtímis, heldur koma
sumar nýjungar fyrr fram í ein-
stökum greinum og síðar í öðrum. Nú
eru framfarirnar mestar á sviði hug-
búnaðar og líftækni, auðvitað er þetta
afar flókið ferli sem er algerlega ófyr-
irsjánlegt og erfitt að lýsa á einfaldan
hátt. Stórtækustu framfarirnar er að
finna á því sviði þar sem gervigreind
og líftækni mætast. Þetta er okkar
samtími sem skapar þá menningu
sem við lifum og hrærumst í. Auðvit-
að á þetta bara við um vestræna
menningu, annars staðar er þróunin
allt önnur og það væri mikið glappa-
skot að halda því fram að við séum að
upplifa og framkvæma það eina rétta.
Þess vegna er sjálfsathugunin svo
mikilvæg. Allir verða að að minsta
kosti að velta fyrir sér þeim mögu-
leika að spyrja sjálfan sig, skoða eigin
sjónarhorn og taka afstöðu til um-
hverfisins,“ segir Ólafur að lokum.
Sýningu Ólafs Elíassonar í Musée
d’art moderne de la ville de Paris lýk-
ur 12. maí. Upplýsingar er að finna á
www.paris-france.org/musees.
LFAN SIG SJÁ …
LAVAFLOOR, 2002.
Höfundur er listfræðingur.
Á SAMA tíma og einkasýning Ólafs
Elíassonar stendur yfir á Nútíma-
listasafninu í París er Ólafur með
stórt verk sem ber nafnið Your spi-
ral view á samsýningu í Fondation
Beyeler í Basel í Sviss.
Beyeler-safnið er í glæsilegri
byggingu Renzo Piano í yfirlæt-
islausu úthverfi borgarinnar, á
þeim punkti sem sveit og borg mæt-
ast. Safnið hefur þá sérstöðu að
vera byggt eins og skrín utan um
óvenjulega heildstætt einkasafn
listsalans Ernst Beyeler. Bygg-
ingin, gluggar og lýsing voru gerð
með fyrirfram ákveðin verk í huga,
eins og umbúðir utan um verkin.
Náttúrunni var hleypt inn með víð-
áttumiklum glerveggjum og miklu
ljósflæði, þannig að list, náttúra og
arkitektúr renna saman á und-
urfagran hátt á þessum annars
hlutlausa stað. Safnið nýtur mikilla
vinsælda meðal almennings og list-
unnenda víða að úr Evrópu.
Stefna safnstjórans er að skapa
tengsl áhorfenda og verka í frjóu
samspili samtímalista við módern-
isma, en nokkur lykilverk módern-
ismans er að finna á safninu, þar á
meðal vatnaliljufleka Monets frá
1917–20.
Á sýningunni, sem ber nafnið
Claude Monet … fram til tölvuim-
pressjónisma, hefur verið safnað
saman yfir fjörutíu meist-
araverkum Monets, með áherslu á
síðari verk hans. Hlutverk sýning-
arinnar er að sýna tengsl Monets
við óhlutbundna málaralist eft-
irstríðsáranna, einkum ameríska
skólann sem varð fyrir miklum
áhrifum frá ljóðrænni náttúrusýn
Monets. Einnig er leitast við að
tengja listsögu 20. aldarinnar við
samtímann í formi tölvulistar sem
byggist fyrst og fremst á litum og
ljósi. Innsetning Ólafs, Your spiral
view, er miðpunktur hinna nýju
verka og er verkið sett upp í Monet-
sal safnsins þar sem ytra og innra
rými renna saman og vatnaliljur
Monets kallast á við vatnaliljutjörn í
garðinum fyrir utan.
Verk Ólafs er samsett úr marg-
hyrndum stálspeglum sem mynda
göng í formi kviksjár, og hefur gerð
verksins tekið um það bil ár. „Þetta
er mikið verk og flókið í uppsetn-
ingu, og þurfti að sérhanna spegl-
ana í Danmörku,“ sagði Ólafur þeg-
ar hann var spurður um verkið.
Verkið býður upp á endurkast ljóss-
ins, margbrotna spegilmynd þeirra
sem fara um og kallast á við vatna-
liljur Monets í stórbrotnu samspili
ljósbrots og tíma.
Sýningin er opin frá 28. mars til
4. ágúst. Upplýsingar er að finna á
www.beyeler.com.
VERK ÓLAFS Á SAMSÝNINGU Í
BEYELER-SAFNINU Í BASEL
YOUR SPIRAL VIEW, 2002
St·l, 800 x 320 x 320 cm
Morgunblaðið/Marc Domage
Morgunblaðið/Marc Domage
Ljósmynd frá Fondation Beyeler