Lesbók Morgunblaðsins - 17.08.2002, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 17.08.2002, Side 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. ÁGÚST 2002 V ORIÐ 1901 byrjuðu ung ný- gift hjón búskap á hálfu góðbýlinu Dagverðareyri í Glæsibæjarhreppi. Þau hétu Katrín Jóhannsdóttir, ættuð þaðan af bæ, og Haraldur Pálsson frá Brekku í Kaup- angssveit. Haraldur hafði numið orgelleik hjá Magnúsi Einarssyni org- anista á Akureyri og keypt af honum orgel. Hann kenndi svo allmörgum að leika á þetta hljóðfæri og organisti varð hann síðar við þrjár kirkjur í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Þá var Haraldur prýðissöngmaður og hafði mikla tenórrödd, enda var hann einn stofnenda söngfélagsins Heklu haustið 1899 – og raunar hinn eini utan Akureyrar. Katrín var einnig söngvin og tóku þau hjónin stundum lagið saman. Haraldur og Katrín bjuggu ellefu ár á Dag- verðareyri; á þeim árum fæddust þeim þrjú börn: Jóhann Ólafur, 19. ágúst 1902, Elísabet Pálína, 11. maí 1904, og Laufey Sigrún, 27. júlí 1907. Oft lék Haraldur á orgelið ef stundir gáfust frá bústörfum og einatt sungu hjónin bæði með, svo sem fyrr er getið. Ekki var Jó- hann sonur þeirra margra ára er foreldrar hans veittu því athygli að hann fylgdist grannt með hljóðfæraslættinum og söngnum. Í minningabrotum, dagsettum 17. febrúar 1951, segir hann svo: „Heyrði ég daglega föður minn syngja lögin og spila er voru í æfingu. Meðal þeirra var Bí,bí og blaka, úts. Sigfúsar Einarssonar í B- dúr. En þá skeði það einn daginn að ég spila það, án fyrirhafnar, í E-dúr með hljóðfærinu (harmonium); útsetningu sem var í engu lík karlakórsútsetningunni. Er þetta fyrsta sjálf- stæða raddsetning mín – frá sjö ára aldri. Eigi hef ég skrifað raddsetningu þessa en leikið hana oft, allt til þessa dags.“ Í orðum þessum er fólginn órækur vitn- isburður um tóneyra drengsins, næmi hans – og stálminni sem fylgdi honum ævina á enda. Og óðum lengdist svo efnisskrá hans. Þegar faðirinn skynjaði athygli og áhuga sonar síns fór hann að leiðbeina honum og ekki liðu mörg ár þar til drengurinn var farinn að spila eftir nótum. Vorið 1912 fluttist fjölskyldan að Ytri-Skjaldarvík þar sem hjónunum fæddist fjórða barnið, Árni Júlíus, 5. október 1915. Á Skjaldarvíkurárunum gekk Jóhann í barnaskóla og sóttist honum námið með ágæt- um. Sérstaka athygli vakti hversu fagra hönd hann skrifaði, enda varð hann listaskrifari er stundir liðu fram. Vorið 1917 flutti fjölskyldan síðan búferlum frá Skjaldarvík að Efri-Rauðalæk á Þela- mörk. Jóhann vann að búi foreldra sinna, eins og venja var unglinga í sveit á þeim tíma. Þegar hér var komið var hann búinn að ná all- mikilli leikni í nótnalestri þeirra orgelverka sem tiltæk voru, auk þess sem hann hafði til- einkað sér tónfræði með aðstoð föður síns. Og nú fóru að gerast undur og ævintýr: Fyrsta lagið sem varðveist hefur samdi Jóhann árið 1918. Það er frágengið á 18. degi aprílmán- aðar, einsöngslag við ljóð Stephans G. Steph- anssonar, Hver er alltof uppgefinn? Lagið það mátti bíða lengi síns vitjunartíma: Einar Sturluson frumflutti það loks í Ríkisútvarpinu 1959. Á næsta ári, 1919, samdi Jóhann svo 9 einsöngslög með píanóundirleik. Má þó nærri geta hversu örðugt honum hefur orðið að sinna tónsmíðum í strjálum strithléum hins daglega starfa. Er til þess tekið að hann hafi á tíðum skundað frá verkunum til bæjar til að skrifa niður þær laglínur sem þá voru að brjótast í höfði hans. Á því skeiði stóð hugur hans til að afla sér einhverrar menntunar – og horfði hann þá helst til Gagnfræðaskólans á Akureyri. Á þeirri tíð var ekki auðhlaupið að því fyrir efnalausa unglinga að afla sér tekna. Honum varð það þó happ í hendi að á árunum eftir 1920 var lagður þjóðvegur fram Þelamörkina og stóð vinna við hann vor og haust. Jóhann fékk vinnu við vegagerðina, auk þess sem hann var í kaupavinnu um sláttinn. Alltaf var hann þó eitthvað heima og lagði hönd að verki við heyskapinn. Veturinn 1919–20 sótti Jóhann 8 vikna und- irbúningsnámskeið hjá Kristjáni Sigurðssyni kennara á Dagverðareyri ásamt nokkrum öðrum ungmennum. Námskeið þetta var eink- um ætlað þeim er hugðu á nám við gagn- fræðaskóla. Eftir áramótin 1921-22 settist hann síðan í annan bekk Gagnfræðaskólans á Akureyri sem óreglulegur nemandi. Um vorið náði hann sæmilegu prófi og lauk svo gagn- fræðanámi með góðri einkunn vorið 1923. Næstu árin stundaði Jóhann ýmiss konar störf er til féllu; vegavinnu vor og haust og kaupavinnu yfir heyskapartíma sumarsins. Á veturna sinnti hann kennslu. Árið 1924 samdi Jóhann Ó. Haraldsson tvö einsöngslög með undirleik. Síðan virðist svo sem tónsmíðar hafi legið niðri næstu árin, eða allt fram til 1930. Katrín húsfreyja á Efri- Rauðalæk lést 24. júní 1927 eftir langvinn og erfið veikindi. Ári síðar hætti Haraldur bóndi hennar búskap, flutti að Ytri-Skjaldarvík og ól þar síðan aldur sinn til dánardægurs. Jó- hann sonur þeirra stundaði hins vegar vega- vinnu um vorið 1928, þá kaupavinnu yfir slátt- inn en flutti síðan til Akureyrar um haustið og byggði ekki sveitir lands eftir það. Í fyrrnefndum skrifum árið 1951 segir Jó- hann á þessa leið: „Faðir minn lék oft og söng fyrir gesti sína – en þess var oft óskað að ég syngi með, eða helst einn. En um 6-7 ára aldurinn tók ég að kenna verulegrar feimni í þessum efnum. Kom þar fljótlega að mér var mjög óljúft að syngja í áheyrn ókunnugra. Fór ég þá gjarn- an í felur ef svo bar undir. Heimafólkinu líkaði þetta miður, skildi eigi hverju þetta sætti og fékk ég jafnvel ávítur fyrir. En ég bar raunir mínar einn og gat eigi -eða vildi- opinberað tilfinningar mínar. Þá tók ég það ráð að hætta að syngja laglínuna, en söng alla jafna eftir 7-8 ára aldur einhverja aðra rödd með org- elinu, jafnvel oftast bassa. Gat þó eigi stillt mig um að grípa stundum í tenór í blönduðum kórlögum þar sem mér þótti sú rödd í mörg- um tilfellum fegurst. Var þetta að sumu leyti aðeins til að styrkja tónskynjun mína.“ Feimnin rjátlaðist þó af drengnum eftir því sem árin liðu – en hvorki söngröddin eft- irsótta né ást hans á raddsviði tenórsins. Jó- hann hafði mikla og góða tenórrödd og gekk til liðs við karlakórinn Geysi árið 1926. Vet- urinn 1927–28 var hann að mestu á Akureyri og söng þá fyrsta tenór í Geysi. Þá var Bene- dikt Elfar á Akureyri, kenndi þar söng og raddþjálfun. Jóhann var í tímum hjá Benedikt og kom svo fram sem einsöngvari á nemenda- tónleikum þar í bænum í apríllok ársins 1928. Það sama vor söng Jóhann tvísöng með Elfari á Akureyri. Um sumarið, nánar tiltekið 10. júní 1928, héldu þeir félagar síðan tónleika í Möðruvallakirkju og fluttu þar ein- og tví- söngslög. Annarrar tilsagnar naut Jóhann ekki í tónlist, að frátöldu 6 vikna námskeiði hjá Sigurði Birkis á árunum 1929-1930. En þrátt fyrir takmarkað nám þótti Jóhann prýð- is söngvaraefni – að ekki sé minnst á önnur afrek hans á tónlistarsviðinu þar sem einstök náttúrugáfa hans hefur fyllt í skólunarskörð- in. Árið 1929 kvæntist Jóhann svo unnustu sinni, Þorbjörgu Stefánsdóttur frá Skógum á Þelamörk. Bú reistu þau á Akureyri; fyrstu mánuði hjúskaparins innarlega í Hafnar- strætinu en síðan á Gilsbakkavegi 1. Þar fæddist þeim hjónum sonur 1. janúar 1930, Ingvi Rafn, sem verið hefur kunnugt nafn í akureyrsku sönglífi um áratuga skeið. En hjónabandssælan reyndist skammvinn. Konu sína missti Jóhann í árslok 1931. Hné hún fyr- ir ljá berklanna illræmdu sem á þessum árum felldu fjölmarga, einkum af yngri kynslóðinni. Jóhann fór ekki varhluta af hvíta dauða og bar menjar veikinnar ævilangt, þótt hann slyppi við aldurtila af völdum hennar. Í árs- byrjun 1933 vistaðist hann á Kristneshælið og dvaldi þar um eins og hálfs árs skeið. Veikin skerti líkamskrafta hans að ýmsu leyti; t.a.m. missti hann annað lungað og varð ekki samur söngmaður eftir. Þrátt fyrir það söng hann með karlakórnum Geysi og þótti hafa háa rödd og bjarta. Fyllti hann flokk Geysissöngv- ara allt til ársins 1941, á köflum sem ein- söngvari. En svo var berklunum um að kenna að söngferill hans varð risminni en vonir stóðu til. Og eftir söngför til Reykjavíkur 1941 lét Jóhann af söngferli sínum en einbeitti sér þess í stað að raddkennslu og þjálfun kór- félaga, að því ógleymdu að hann samdi lög fyrir þessa félaga sína. Er í lagasafni hans að finna ein tuttugu karlakórslög, í þeirra hópi nokkur hans kunnustu verka. Hvað fleygast hefur orðið litla lagið Sumar í sveitum við texta Friðgeirs H. Bergs. Það lag frumflutti karlakór Sauðárkróks á söngmóti Sambands norðlenskra karlakóra á Akureyri í maí- mánuði 1938 undir stjórn svila Jóhanns, tón- skáldsins Eyþórs Stefánssonar. Það lag, þótt stutt sé, sameinar margt það sem helst einkennir í fari tónskáldsins; „ljóð- rænu, formfegurð og ást til feðra- foldar og íslenskra sveita“. Næstu áratugina varð nafn Jóhanns Ó. Haraldssonar landskunnugt fyrir laga- smíðar – en í heima- byggðum ekki síður fyr- ir orgelleik við hinar ýmsu kirkjur í Eyja- firði og nærsveitum, hljóðfæraleik við leiksýningar og söngstjórn. Hann þótti með afbrigð- um lipur stjórnandi og náði ríkulegri uppskeru hjá söng- fólki sínu á skömmum tíma. Þá var hann einn stofnenda Tónlist- arfélags Akureyrar og ritari þess frá 1947 til dauðadags 1966. Árið 1934 var af- kastamikið í lífi Jó- hanns, en þá var hann nýlega kominn af Krist- neshælinu og hélt til hjá Kristínu móðursystur sinni í Ytri-Skjaldarvík. Þar var skáldanæði sem Jó- hann nýtti vel. Á því ári samdi hann m.a. ein 35 sönglög við ljóð Guðmundar Guðmundssonar skólaskálds, þar á meðal lög við ljóðaflokkana Söngva til Svönu og Vís- ur Sigrúnar. Og tryggð hélt hann við skólaskáldið fram eftir aldri: Ári síðar, 1935, samdi hann „Andante religioso“; 15 sönglög við ljóð Guðmundar, flest fyrir blandaðan kór a capella; án undirleiks. Þá samdi Jóhann all- mörg önnur lög fyrir blandaða kóra, jafnt með og án undirleiks, þar með talin sálmalög. Ótal- in eru enn orgelverk sem losa tuginn, auk nokkura píanóverka. Þá fékkst Jóhann einnig við útsetningar innlendra og erlendra laga í nokkrum mæli. Þrátt fyrir fjölskrúðugt tónlistarstarf nyrðra og afkastamikla tónsköpun varð þessi köllun Jóhanns honum ekki burðug tekjulind og lifibrauð sitt hafði hann jafnan af öðrum starfa. Er hann hafði jafnað sig að mestu eftir veikindin réðst hann til verslunarstarfa á Ak- ureyri, fyrst hjá Steingrími Seyðfjörð, síðar í bókaverslun Þorsteins Thorlaciusar. Síðar sinnti hann afgreiðslustörfum hjá dagblaðinu „Degi“ um tveggja ára skeið en gerðist að því búnu endurskoðandi hjá Kaupfélagi Eyfirð- inga og varð það starfsvettvangur hans til dauðadags. Árið 1946 kvæntist Jóhann öðru sinni. Síðari kona hans var María Kristjáns- dóttir og stóð heimili þeirra að Víðivöllum 8 á Akureyri. Jóhann Ólafur Haraldsson lést á Akureyri 7. febrúar 1966. Eftir hann látinn orti svili hans, Grétar Fells, meðal annars: Þökk fyrir ljúfu lögin, lifandi hjartaslögin í þínum svása söng hringi svo lengi’ yfir landið þín líkaböng. Hljóðnuð er hljómþýð tunga, hrundið er dagsins þunga, bíður þín heiðið blátt, fljúgðu nú, söngvasvanur, í sólarátt. Þrátt fyrir annasaman starfsferil á öðrum vettvangi var Jóhann Ó. Haraldsson allaf- kastamikið tónskáld. Verk hans losa hundr- aðið, nánar tiltekið er að finna 119 „opusnúm- er“ í eftirlátnum handritum hans. Af þeim hafa verið gefin út nokkur karlakórslög, auk nokkura sönglaga í heftum (1964 og 1965). Fæst verka Jóhanns Ó. Haraldssonar hafa ratað fyrir almenningssjónir og er því fagn- aðarefni að í tilefni stórafmælis hans, skuli lagaflokkurinn „Vísur Sigrúnar“ koma út í sérstöku sönglagahefti. En verðung væri það, nú á aldarafmæli þessa norðlenska söngva- svans, að opinberir aðilar stuðluðu að heildar- útgáfu laga hans. Leynist þar mörg skír perl- an sem vonandi á eftir að ná tóneyrum landsmanna er stundir líða. Fremur hljótt hefur verið um nafn Jóhanns Ólafs Haraldssonar í íslensku sönglífi síðari ár en hann hefði orðið hundrað ára 19. ágúst næstkomandi. Flest rúmlega hundrað laga hans hafa sjaldan eða aldrei heyrst hina síðari áratugi, eru enda fæst aðgengileg íslensku tónlistarfólki á prenti þótt eftir yrði leitað. Tónleikar verða í Ketilhúsinu á Akureyri á mánudaginn kl. 20.30 í tilefni af aldarafmæli Jóhanns. SÖNGVA- SVANUR Í SÓLARÁTT E F T I R Á R N A H A R A L D S S O N O G J Ó N B . G U Ð L A U G S S O N Jóhann Ó. Haraldsson Höfundar eru tónlistarmenn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.