Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.2002, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 16. NÓVEMBER 2002 15
MYNDLIST
Gallerí Skuggi:
Efri hæð: Rósa Sigrún Jónsdóttir. Kjall-
ari: Stella Sigurgeirsdóttir. Til 16. nóv.
Gallerí Sævars Karls:
Hildur Ásgeirsdóttir. Til 16. nóv.
Hafnarborg:
Norræni skartgripaþríæringurinn.
Handverk og hönnun - Samsýningin
Spor. Til 9. nóv.
Hönnunarsafn Íslands:
Óli Jóhann Ásmundsson. Til 12. okt.
i8, Klapparstíg 33:
Sigurður Guðmundsson. Undir stigan-
um: Þuríður Sigurðardóttir. Til 17. okt.
Listasafn Akureyrar:
Hraun-ís-skógur. Til 2. nóv.
Listasafn ASÍ:
Anna Þóra Karlsdóttir. Til 26. okt.
Listasafn Einars Jónssonar:
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Listasafn Íslands:
Íslensk myndlist 1980-2000. Til 16. nóv.
Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn:
Listin meðal fólksins. Til 20.5.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: And-
litsmyndir og afstraksjónir. Til 5. okt.
Listasalurinn Man: Endurminninga-
myndir Jóhannes Geirs. Til 26. okt.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg:
Gunnsteinn Gíslason. Til 19. okt.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur:
August Sander. Til 26. okt.
Mokkakaffi: Jóhanna Ólafsdóttir og Spi-
ros Misokilis. Til 19. okt.
Norræna húsið:
Veiðimenn í útnorðri. Til 2. nóv.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B :
Samsýning: Magnús Pálsson, Eric And-
ersen & Wolfgang Müller. Til 12. okt.
Skaftfell, menningarmiðstöð:
Samsýningin Hringsjá. Til 26. okt.
Undirheimar, Álafosskvos:
Sjö listakonur. Til 2. nóv.
Þjóðarbókhlaða:
Halldór Laxness. Til 23.3.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Landafundir. Skáld mánað-
arins: Einar í Eydölum. Íslandsmynd í
mótun - áfangar í kortagerð.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Borgarleikhúsið:
Slagverkshópurinn Benda. Kl. 15:15.
Háteigskirkja:
Tónleikar til styrktar orgeli. Kl. 14-
17.30.
Sunnudagur
Hafnarborg:
Tríó Reykjavíkur - Mozart að mestu. Kl.
20.
Salurinn: Camerarctica. Kl. 20.
Hjallakirkja:
Douglas A. Brotchie. Kl. 17. Kammer-
kórinn Vox Gaudiae og Kammerkór
Nýja tónlistarskólans. Kl. 20.
Mánudagur
Salurinn:
Útgáfutónleikar - Kristinn Sigmundsson
og Jónas Ingimundarson. Kl. 20.
Miðvikudagur
Norræna húsið:
Lín Wei, fiðla og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, píanó. Kl. 12.30.
Salurinn:
Þorsteinn Gauti Sigurðsson. Kl. 20.
Íslenska óperan:
Halla Margrét Árnadóttir og Napólí-
sveitin. Kl. 20.
Föstudagur
Háskólabíó: SÍ. Sálin hans Jóns míns.
Einl. Una Sveinbjarnardóttir. Stj. Bern-
harður Wilkinson.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið:
Með fulla vasa af grjóti, lau., mið. Jón
Oddur og Jón Bjarni, sun. Halti Billi.
sun., fim., fös. Viktoría og Georg, lau.
Karíus og Baktus, sun. Veislan. fös.
Borgarleikhúsið: Sölumaður deyr, sun.,
fös. Honk! sun. Með vífið í lúkunum, lau.,
fim. Jón og Hólmfríður, lau., fim., fös.
Muggur - Kómedíuleikhúsið, sun. Róm-
eó og Júlía, frums. mið. Herpingur og
Hinn fullkomni maður, lau.
Íslenska óperan:
Rakarinn í Sevilla, lau., sun.
Loftkastalinn: Benedikt búálfur, sun.
Iðnó: Hin smyrjandi jómfrú, mið. Beygl-
ur, lau., fim., fös.
Vesturport: Kvetch, lau., sun., fös.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Grettissaga,
lau. Sellófon, sun., þrið., mið., fös.
Nemendaleikhúsið: Skýfall, lau.
Leikfélag Mosfellssveitar:
Beðið eftir Go.com air, lau., fös.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
listasögu eins og safnið metur hana. Í
tengslum við sýninguna hafa öll verkin í
eigu safnsins frá þessum tíma verið skráð í
stafrænan gagnagrunn safnsins. Unnið er
að skráningu allrar safneignar Listasafns
Íslands á stafrænt form, en skráning á
þessu tímabili er eiginlega næsta stóra
skrefið á eftir gagnagrunninum um það
mikla safn af verkum eftir Gunnlaug Schev-
ing sem safnið á,“ segir Ólafur og bendir á
að uppbygging gagnagrunns um safneignina
hafi það að markmiði að virkja gesti safns-
ins og gera þá að upplýstum áhorfendum
listarinnar. „Hugmyndin er sú að sýning-
argesturinn geti nálgast í gagnagrunninum
ítarefni um verkið sem hann er að skoða og
listamanninn á bak við það. Í framtíðinni
verður þar hægt að fletta upp öllum verkum
safnsins, ásamt skýringum og greiningum á
verkunum, auk upplýsinga um listamennina.
Þetta er upphafið að því sem koma skal, en í
framtíðinni er stefnan að koma þessum upp-
lýsingum í aðgengilegra form.“
Ólafur segir að lokum að viðamikl
fræðsludagskrá hafi verið skipulögð í kring-
um sýninguna. „Safnið mun bjóða upp á
vikulega leiðsögn á þriðjudögum og á laug-
ardögum verður sérstök barnadagskrá. Þá
verður á sunnudögum efnt til leiðsagnar
undir heitinu „samtal við listaverk“, en þar
munu listamennirnir sjálfir fjalla um verk
sín á sýningunni. Auk fyrirlestrar Auðar
Ólafsdóttur 21. nóvember um ævidag nýja
málverksins verður efnt til málþings laug-
ardaginn 23. nóvember með þátttöku ís-
lenskra listamanna. Þar verður fjallað um
þætti á borð við alþjóðavæðingu og stöðu ís-
lenskrar myndlistar í því samhengi. Lagt
verður út af sýningunni að nokkru leyti í
þeim umræðum,“ segir Ólafur Kvaran. Sýn-
ingin Íslensk myndist 1980–2000 verður
opnuð í dag og stendur til 15. janúar 2003.
Halldór Ásgeirsson, Norðurljósabarinn, 2001:
Vatnið, hin afar mikilvæga náttúruauðlind er
ræður lífi og vexti á jörðinni er frumverkfærið í
verki Halldórs Norðurljósabarnum. Nafn verks-
ins vísar beint til náttúrufyrirbærisins, en verk-
ið er einnig bein skírskotun í félagslegan þátt í
lífi mannsins, barinn og diskótekið.
Sara Björnsdóttir, hluti innsetningarinnar
Fljúgandi diska I, II og III, 2001: Verkið er þrí-
þætt. Fyrstu tveir hlutarnir samanstanda af
myndbandi og hljóði þar sem marglitum disk-
um er þeytt einum af öðrum á hvítan vegg, og
þriðji hlutinn er djúpur hægindastóll, en á
hann hafa brotin sem sjást á myndbandinu
verið límd. Ofbeldi og sársauki, en um leið
ómótstæðilegt og lokkandi yfirborð skraut-
legra lita hægindastólsins eru hrópandi and-
stæður sem áhorfandinn finnur.
heida@mbl.is
RJÓÐUR/Clear-cut eru titlar sýningar
Önnu Þóru Karlsdóttur sem nú stendur yfir í
Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Anna Þóra
hefur um árabil unnið með íslenska ull sam-
kvæmt hefðbundnum aðferðum og sýnt verk
sín hérlendis og erlendis.
Einhverntíma var reynt að þýða enska
orðið installation sem rjóður, tilraun sem
ekki festi rætur og hér er án efa átt við hefð-
bundna merkingu orðsins rjóður. Merking
enska orðsins clear-cut er aftur önnur, eða
eitthvað sem er ótvírætt, hreint og beint og
þar er kannski átt við niðurskurðarmeðferð
mannanna á rjóðrum náttúrunnar, auk þess
að orðið minnir á enska orðið clearing, rjóð-
ur.
Á efri hæð sýnir Anna Þóra voðir sem má
líkja við værðarvoðir. Þær eru bæði í sauða-
litum, þykkar með sterkri áferð og stafar af
þeim mikil hlýja og aðrar eru litsterkar.
Þrjár voðir eru í skærum litum þar sem
plastþræðir eins og þeir sem notaðir eru í
kartöflupoka hafa verið ofnir saman við hvíta
ull. Í efnisnotkun Önnu Þóru og texta sem
Guðlaugur Valgarðsson hefur ritað í litla en
fallega sýningarskrá kemur fram að listakon-
an er náttúruverndarsinnuð, kannski má hér
lesa það úr að leitin að jafnvægi sé ein leiðin
í átt að því að virða náttúruna, jafnólík efni
og ull og plast vinna hér saman og skapa
nýja heild, plastið er endurnýtt á frumlegan
hátt. Heildaryfirbragð verkanna er létt og
svífandi og það má skynja leik og leit lista-
konunnar við sköpun þeirra, leikur sem kem-
ur fram í mismunandi áferð og efnistökum.
Formleysi þeirra gerir þau laus við stífni eða
afturhaldssemi, þau búa yfir hlýleika og
kímni.
Í Gryfju hanga svo níu holir ullarsívaln-
ingar í lausu lofti og eru nefndir bolir. Einnig
hér er gefið í skyn skjól, vernd sú sem nátt-
úran hefur upp á að bjóða. Sumir minna á
mannhæðarháa vettlinga eða ullarpúpur í
mannsstærð, ennfremur skapa sívalningarnir
sjálfstæð fyrirbæri, boli í merkingunni búkar.
Hráefnið sem listakonan vinnur með býður
upp á marga úrvinnslumöguleika jafnt í
handverki sem í myndlist, mörg verka henn-
ar á árum áður hafa verið gerð innan ramma
handverks og hönnunar. Önnur framsetning
verkanna myndi jafnvel geta breytt hlutverki
þeirra, breytt þeim í lítil teppi, veggteppi,
vagnteppi, klæðnað eða eitthvað enn annað.
Þessi eiginleiki gerir þau einmitt lifandi og
frjó.
Með framsetningu þessara verka hefur
Anna Þóra skapað heildstæða sýningu sem
ætti að vekja áhuga listunnenda jafnt sem
áhugafólks um íslenskt handverk. Hún minn-
ir á ríkidæmið umhverfis okkur, íslenska
náttúru og afurðir hennar sem er okkur og
afkomendum okkar brunnur um ókomin ár,
hvað sem öllum virkjunum líður.
MYNDLIST
Listasafn ASÍ, Ásmundarsalur
við Freyjugötu
Til 17. nóvember. Sýningin er opin
þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14 - 18.
RJÓÐUR, BLÖNDUÐ TÆKNI,
ANNA ÞÓRA KARLSDÓTTIR
Ragna Sigurðardóttir
Bolir, verk Önnu Þóru Karlsdóttur í Listasafni
ASÍ við Freyjugötu.
Í faðmi
náttúr-
unnar
GRADUALE nobili hefur á þeim tveimur
árum sem liðin eru frá stofnun hans skipað sér
í fremstu röð íslenskra kóra. Kórinn hefur
jafnframt vakið verðskuldaða at-
hygli á erlendri grund. Tuttugu
og fjórar stúlkur og konur á aldr-
inum sautján til tuttugu og fimm
ára syngja í þessum eðalkór, en
allar eiga þær fortíð í Graduale-
kór Langholtskirkju og flestar
eru þær einnig í öðru tónlistar-
námi.
Það þarf ekkert að fjölyrða um
gæði þessa kórs. Stelpurnar eru í
einu orði sagt stórkostlegar.
Söngurinn er agaður og dýna-
mískur og umfram allt sérdeilis
músíkalskur. Eins og á fyrri tón-
leikum þeirra, var það hrein unun
að hlusta á þær í Háteigskirkju á
sunnudaginn. Jón Stefánsson hef-
ur unnið þrekvirki við að ná fram
þessum fallega og tæra kórhljómi og aga stúlk-
urnar í heilsteyptan flokk; - jafnvægi milli
radda er sérstaklega gott; nákvæmni í söngn-
um einstök og ; - ja, hvað skal segja: allt með
sykri og rjóma.
Það sem olli hins vegar vonbrigðum á tón-
leikunum á sunnudaginn, var hve stór hluti
efnisskrárinnar voru lög sem kórinn hefur
sungið oft áður á tónleikum sínum. Vissulega
var þar nýtt efni, eins og Zwei beter eftir Arvo
Pärt, þar sem maður heyrði ómstríða hlið tón-
skáldsins sem helst hefur notið vinsælda fyrir
að leiða ómblíðu aftur inni í samtímatónlist.
Frábært verk og vel sungið. Ave maria eftir
Holst var annað nýtt verk á efnisskránni; - þar
sungust stúlkurnar á í tveimur fjögurra radda
kórum; - ekkert mál, - mjög vel gert. Unni-
bahia eftir kórstjórann kunna Robert Sund var
líka nýtt, og líka frísklegt, skemmtilegt og
ákaflega vel sungið.
Ég held að nánast allt annað á þessum tón-
leikum hafi ég heyrt kórinn syngja áður, og
sumt oftar en einu sinni. Snjalla
lagið hennar Báru Grímsdóttur,
Ég vil lofa eina þá, við gamalt ís-
lenskt helgikvæði var toppurinn;
- kórinn fór listilega vel með
þennan rytmíska smell Báru.
En nú er kominn tími til að
dengja og brýna Graduale nobili
til dáða. Svona frábær kór þarf
verkefni við hæfi, ný, ögrandi og
skapandi verkefni sem sýna kór-
inn stöðugt í nýju ljósi. Hæfileik-
arnir og getan eru til staðar, og
metnaðurinn er örugglega þarna
líka. Ekki spillir að kórinn hefur
á að skipa framúrskarandi ein-
söngsröddum. Þær eru hver ann-
arri betri. Þó má ég til með að
nefna sérstaklega Dóru Stein-
unni Ármannsdóttur, sem er komin með
hljómmikla og þétta mezzórödd, - jafnvel
kontra-alt. Einstaklega falleg rödd sem á von-
andi eftir að hljóma oft og mikið, með kórnum
jafnt sem annars staðar.
Tónleikar Graduale nobili í Háteigskirkju
vor í stuttu máli yndislegir. Gagnrýnandi sakn-
aði þó sáran fleiri bitastæðra og nýrra verk-
efna á efnisskránni.
Sykur og rjómi
en kryddið vantar
TÓNLIST
Háteigskirkja
Stúlknakórinn Graduale nobili söng íslensk og er-
lend lög; Kjartan Valdemarsson og Gunnar Hrafns-
son léku með í nokkrum laganna, en stjórnandi var
Jón Stefánsson.
KÓRSÖNGUR
Bergþóra Jónsdóttir
Jón Stefánsson