Pressan - 09.09.1988, Blaðsíða 14

Pressan - 09.09.1988, Blaðsíða 14
14 Föstudagur 9. september 1988 Betri heilsa mad góóum yftamínum og hollofnum Jtfi TÓfíÓ ÍTóró25eru 15 vítamín og 10 steinefni í réttum hlutföllum. Eitt hylki gefur fullan dag- skammt allra helstu vítamína og steinefna. Tóró 25 er e.t.v. besta fáanlega fjölvítamíniö, hvaö varðar verö og gæði. Hollar fjölómettaðar fitusýrur fyrir hjarta og æðakerfi. Ekkert annað lýsisþykkni á íslandi er jafn rfkt af omega-3 fitusýrum, þ.e. 50% innihald af EPA og DHA. Hylkin innihalda ekki A og D vftamfn. Gerið verðsamanburð. Ginseng (panax ginseng C.A. Meyer) af hæsta gæðaffokki frá Kóreu. Ginseng er m.a. notað til að styrkja mótstöðuafl líkam- ans gegn streitu og sjúkdóm- um. Gerið verðsamanburð. J/JÍ TÓRÓ HF Siöumúla 32. 108 Reykjavik. o 686964 UPPAHELGI Stööutákn ársins meðal uppa í Bretaveldi eru nýjustu BMW- bflarnir. Bílasali nokkur geröi bílakaupin enn meira spenn- andi fyrir átta ung hjónakorn meö því að afhenda bílana „meö stæl“. Fólkiö dvaldi eina helgi á lúxushóteli uppi í sveit og var haft ofan af fyrir því meö ýmsu móti — t.d. meö því að leyfa því að horfa á Karl prins leika póló, og ekki vantaði heldur mat og drykk af bestu gerð. Hápunktur helgarinnar var hins vegar af- hending bílanna ásamt kampa- vínsflösku á mann, en fyrir her- legheitin borgaði hvert par allt að 4,3 milljónum króna. SEXf GLERAUGHAGLÁMAR Þeir taka upp á ýmsu f henni Amerfku. Bandarfskir gler- augnasalar hafa t.d. kosið Sophiu Loren kynþokkafyllstu konu, sem notar gleraugu. Og hvað með kynþokkafyllsta manninn? Jú, þann titil hlaut enginn annar en hinn eini sanni Michael Caine. DEILT UM JAFNRÉTTISMÁL í KIRKJUNNI Það hefur mikið verið rifist um það í Bretlandi að undan- förnu hvort konur fái prests- vígslu. Þetta er óskaplega við- kvæmt mál fyrir marga og varð andvígi hópurinn t.d. alveg æfur, þegar Margrét Thatcher lét þau orð falla I fjölmiðlum að þessi starfsstétt ætti ekki að vera lokuð konum. Ekki minnkuðu heldur deilurnar um jafnréttis- málin, þegar stelpum var hleypt f kirkjukórinn í Sánkti Maríu- dómkirkjunni í Edinborg. Það þykir íhaldssömum öflum innan kirkjunnar fyrir neðan allar hellur, þar sem hingað til hefur einungis ungum drengjum hlotnast sá heiður að syngja við messur. Kórstjórinn í Edinborg segist hins vegar ákveðinn í að hafa stúlkurnar alltaf í minni- hluta og þær verði að hætta í kórnum um 13 ára aldur, eins og strákarnir, þó svo raddir þeirra breytist ekkert á þvi aldurs- skeiði. RAÐFÖT ÚR ÚÐABRÚSA Haldið ykkur fast! Vísinda- menn úti I hinum stóra heimi segja að um aldamótin muni konur nota sokka og baðföt, sem þær úða á sig úr brúsa. Einnig má búast við því að hægt verði að fá máltíðir, sem úðað er á diskinn, og skyrtuþvottur heyrir þá væntanlega sögunni til. Karlmenn geta þá nefnilega úðað skyrtunni á sig að morgni og þvegið hanaaf sérí sturtunni um kvöldið. Já, alltaf heyrir maður eitthvað nýtt. KÓNGAFÓLKIÐ FER HINA LEIDINA Meðlimirbresku konungsfjöl- skyldunnar dvelja mikið í Bal- moral-kastala, þegar þeir eru ekki að sinna skylduverkum. Þangað fór t.d. Sara Ferguson, eiginkona Andrews Bretaprins, eftir að hún varð léttari um daginn. Sérstakur læknir hefur það starf með höndum að fylgj- ast með heilsufari kóngafólks- ins á meðan það dvelst í kastal- anum og mætir daglega á stað- inn í þeim erindum. Það er 130 ára löng hefð fyrir þessu fyrir- komulagi, en samt þótti ensk- um fjölmiðlum ástæða til að fjalla dálítið um þennan lækni um daginn. Hann stundar nefni- lega svokallaðar óhefðbundnar lækningar og það fannst mönn- um afarmerkilegt þar sem þessi ákveöna fjölskylda átti í hlut. Það munu aðallega vera þau Ellasabet drottning og Karl prins, sem aðhyllast þess konar lækningar. KYNÓÐ KONA LÆKNAÐIST í BANKA Kona nokkur á Englandi var orðin svo vergjörn að hún neyddist til að leita læknis í von um aðstoð. Doktorinn komst að því, að konan hoppaði upp í rúm hjá hverjum rlkisbubbanum á fætur öðrum vegna þess að hún hræddist að verða blönk. Af þessum sökum var sú kynóða send I viðtal við bankastjóra, sem kenndi henni að halda rétt á spöðunum I fjármálum. Þegar konan sá, að hún gat séð fyrir sér sjálf, hætti hún að sofa hjá ríkum köllum og varð m.a.s. skotin I einum bláfá'tækum. Þeir sem þegar hafa fengið sér ELDHUS eru ekkert hissa að ELDHÚS hafi orðið fyrir valinu á Heimilissýningum í Laugardalshöll TVÖ ÁR í RÖÐ. Hófí valdi ELDHÚS í sína draumaíbúð ’87. Og nú völdu hljómlistarmennirnir Ragnhildur Gísladóttir og Jakob Magnússon ELDHÚS í Dvalarheimili sitt á Heimilissýningunni ’88. Sú eldhúsinnrétting er til sölu og má raða henni upp eftir smekk og aðstæðum. Viðmunum hafa opinn sýningarbás i verslun okkar að Grensásvegi um helgina. Opið laugardag frá 10-16 og sunnudag 14-18. Verið velkomin. ELDHÚS Grensásvegi 8 - Símar 84448 og 84414

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.