Pressan


Pressan - 07.09.1989, Qupperneq 8

Pressan - 07.09.1989, Qupperneq 8
8 Fimmtudagur 7. sept. 1989 Borgarstjórnarlcosningarnar: í óformlegum viðræðum minnihlutans i Reykjavik v«r gert ráð fyrir að Ingibjörq Sólrún Gisladóttir yrði borgarstioraefm sameiginlegs lista Alþýðuflokks, Al- þýðubandalags, Framsóknarfloklcs og Kvennalista. Ingibjörg Sólrún var um sex ára skeið borgarfulltrúi Kvennalista. Viðræðum minnihlutans var hætt i vor vegna deilna um skólastjórastöðu Sjafn- ar Sigurbjörnsdóttur. Nú er að þvi spurt hvort eitthvað verði af sameiginlegu framboði minnihlutans i Reykjavík. EFTIR PÁL VILHJÁLMSSON Tillagan um Ingibjörgu Sólrúnu sem borgarstjóraefni átti að tryggja að sameiginlegur listi minnihlutans yrði skýr mótleikur við framboð sjálfstæðismanna. Önnur hugmynd í viðræðum minnihlutans var að skipta átta efstu sætunum á sameig- inlegan lista þannig að hver flokkur fengi tvö sæti: Þessi skipting var til- laga alþýðubandalagsmanna, en í núverandi borgarstjórn á Alþýðu- bandalagið þrjá fulltrúa á meðan hinir þrír flokkarnir eiga einn full- trúa hver. Óformlegar viðræður minnihluta- flokkanna síðastliðinn vetur voru framhald af samvinnu sem flokk- arnir fjórir höfðu átt í borgarstjórn allt kjörtímabilið. Arlega komu flokkarnir sér saman um tillögu til fjárhagsáætlunar fyrir Reykjavíkur- borg þau þrjú ár sem liðin eru af kjörtímabilinu. Bjarni P. Magnússon, borgar- fulltrúi Alþýðuflokks, var eindreg- inn talsmaður sameiginlegs fram- boðs. Þann 8. mars var haft eftir Bjarna í Alþýðublaðinu að hann teldi eðlilegt að boðinn yrði fram einn sameiginlegur listi minnihlut- ans i kosningunum á næsta ári. Sjafnarmól Mánuði síðar afgreiddi Bjarni frekara samstarf minnihlutaflokk- anna í sjónvarpsviðtali. Hann lýsti því yfir að ekki væri hægt að eiga samvinnu við alþýðubandalags- menn. Ráðherra Alþýðubandalagsins, Svavar Gestsson, hafði auglýst skólastjórastöðuna í Ölduselsskóla lausa til umsóknar og þar með ætl- að sér að koma frá Sjöfn Sigur- björnsdóttur, settum skólastjóra, og gekk það eftir. Sjöfn er fyrrum borgarfulltrúi Alþýðuflokksins ogf fékk skólastjórastöðuna frá Birgi ísleifi Gunnarssyni á meðan hann var menntamálaráðherra, í trássi við vilja kennara og foreldrasam- taka ÖÍduselsskóla. í byrjun apríl var fundur í borgar- málaráði Alþýðuflokksins þar sem Sjafnarmál var rætt með hliðsjón af óformlegum viðræðum minnihluta- flokkanna í Reykjavík um sameigin- legt framboð. A fundinum gætti óánægju með starfsháttu Svavars legt framboð sín á milli, segir Ingi- björg Sólrún, voru þær fleiri sem voru á móti en hinar sem voru fylgj- andi. Ingibjörg Sólrún segir hugmynd- ina um að hún yrði borgarstjóraefni ekki hafa verið borna undir sig. „En ég hef heyrt þessa hugmynd nefnda." Áhrif ríkisstjórnarinnar Innan Alþýðubandalags og Al- þýðuflokks er að finna áköfustu stuðningsmenn sameiginlegs lista. Þegar flokkarnir mynduðu saman ríkisstjórn síðastliðið haust var það vatn á myllu þeirra sem vilja sam- eiginlegt framboð. A-flokkarnir telj- ast báðir til jafnaðarmannaflokka og á síðustu árum hefur þeirri skoð- un vaxið fylgi að flokkarnir gerðu betur í að leggja áherslu á það sem sameinaði þá og leggja gamlar vær- ingar til hliðar. Það er samt einatt stutt í þá heift sem einkenndi samskipti A-flokk- anna áratugum saman og er Sjafn- armálið skýrt dæmi um það. Þó Framsóknarflokkurinn sitji með A-flokkunum í ríkisstjórn veg- ur það ekki þungt þegar flokks- menn í Reykjavík velta fyrir sér sameiginlegu framboði. Olíkt A- flokkunum eru engar raddir um það í Framsóknarflokknum að flokkur- inn skuli efla samvinnuna á vinstri væng íslenskra stjórnmála. Fram- sóknarflokkur hefur kosið sér það hlutverk að vera nálægt miðju ís- Geta Reykvíkingar valið á milli Davíðs og Ingibjargar Sólrúnar í vor? • Alþýðuflokkurinn hefur ekki hafnað sameiginlegu framboði Bjarni P. er erlendis um þessar mundir og því tókst ekki að fá hans hlið á málinu. Út í HÖtt/# „Það var út í hött hjá Alþýðu- X,X,!*X,!*X\*XvX f lokknum að láta smámái á borð við þetta eyðileggja möguleikann á V.*.V.V«V. sameiginlegu framboði," segir Al- ' freð Þorsteinsson, fyrrum borgar- fulltrúi og formaður Framsóknarfé- lagsins í Reykjavík. Alfreð segir það borna von að um- ræðan um sameiginlegan lista verði hafa komið sér mjög á óvart. „Eg tekin upp aftur. Álit Alfreðs er að held þetta hafi verið fljótfærni hjá Sjafnarmálið hafi sýnt á hversu veik- Bjarna og ætla honum að hann sé um grunni samstarf minnihluta- tiíbúinn að endurskoða hug sinn til flokkanna standi. sameiginlegs framboðs," segir Krist- Innan Framsóknarflokksins voru í ín. Hún bætir við að samstarf minni- öndverðu uppi efasemdir um ágæti hlutans hafi verið það náið að „það sameiginlegs lista. Alfreð segir þurfi sterk rök til að bjóða ekki fram suma framsóknarmenn þeirrar saman". skoðunar að flokkurinn kunni að „Umræðan um sameiginlegt glata sérkennum sínum í samfloti framboð hætti eftir að Bjarni gaf út með öðrum flokkum. sína yfirlýsingu," segir Ingibjörg Einn af þrem borgarfulltrúum Al- Sólrún Gísladóttir, fyrrum borgar- þýðubandalagsins, Kristín Á. Ól- fulltrúi Kvennalistans. Þegar afsdóttir, segir viðbrögð Bjarna P. kvennalistakonur ræddu sameigin- MYNDIR EINAR ÓL. O.FL. • Sameiginlegt framboð nauðsyn- legt ef hnekkja á veldi Davíðs Gestssonar. Kristín Arnalds, skólastjóri Fjölbrautaskólans í Breiðholti og samstarfskona Sjafn- ar, lét þau orð falla að alþýðubanda- lagsfóíki væri í engu treystandi og ekki væri ástæða að eiga við það samstarf. Aðrir fundarmenn töldu Sjafnarmál ekki svo alvarlegt að samstarf við Alþýðubandalag skyldi útilokað. Að sögn Dóru Hafsteins- dóttur, sem á sæti í borgarmála- ráði, var engin samþykkt gerð um áframhaldandi viðræður minni- hlutaflokkanna. Orð Dóru eru staðfest af Bryndísi Kristjánsdóttur, sem einnig var á fundinum, og Stefán Friðfinns- son, varaformaður Alþýðuflokksfé- lags Reykjavíkur, kannast ekki við að nein stofnun flokksins hafi álykt- að um að viðræðum um minnihluta- samstarf skuli hætt. „Ef menn hafa einhvern áhuga á að hnekkja veldi Davíðs verður það ekki gert án sam- eiginlegs framboðs," er skoðun Stef- áns. „Það er Ijóst að Bjarni P. Magnús- son kom sér í erfiða aðstöðu með yf- irlýsingunni," segir Birgir Árnason, formaður Sambands ungra jafnað- armanna, „það var óheppilegt að taka þessa vendingu eftir að hafa beitt sér fyrir sameiginlegu fram- boði.“

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.