Pressan - 07.09.1989, Síða 27
Fimmtudagur 7. sept. 1989
27
sjonvarp
FIMHITUDAGUR
7. september
Stöð tvö kl. 22.05
FUGLARNIR ★ ★★V2
(The Birds)
Bresk hryllingsmynd
Leikstjóri: Alfred Hitchcock
Aöalhlutverk: Rod Taylor, Jessica
Tandy, Suzanne Pleshette og Tippi
Hedren
Hér er komin ein af klassískum
myndum meistara hrollvekjunnar
og jafnframt eins mesta snillings
kvikmyndasögunnar. Söguþráður-
inn er á þá leið að hópur fugla gerir
af ókunnum ástæðum árásir á íbúa
Bodega-flóa í Kaliforníu. Svo sann-
arlega óvenjulegt efni en Hitchcock
vinnur snilldarlega úr því og tækni-
vinnan i sambandi við fuglaatriðin
er einstök, m.a er raunverulegur
fjöldi fuglanna ekki nærri eins mik-
ill og áhorfandinn sér, allt hug-
kvæmni leikstjórans að þakka. Fugl-
arnir eru alls ekki við hæfi barna og
þeirra sem eru viðkvæmir fyrir
hryllingi.
Stöð tvö kl. 00.30
ÆRSLADRAUGURINN
W-k-k'A
(Poltergeist II)
Bandarísk hryllingsmynd
Leikstjóri: Brian Gibson
Aöalhlutverk: JoBeth Williams,
Craig T. Nelson, Heather O’Rourke
og Oliver Robins
Rétt eins og með flestar framhalds-
myndir er þessi ekki nærri eins góð
og fyrsta myndin. En hvað um það,
í myndinni verður sama fjölskyldan
og í fyrstu myndinni fyrir barðinu á
einhverjum ærslaverum úr öðrum
víddum, náttúrulega með tilheyr-
andi tæknibrellum og látum. Bönn-
uð börnum.
FÖSTUDAGUR
8. september
Stöðtvö kl. 21.10
STR0KUBÖRN
(Runners)
Bresk bíómynd
Leikstjóri: Charles Sturridge
Aðalhlutverk: James Fox, Kate
Hardie, Jane Asher og Eileen
O'Brien
Rakel er ellefu ára og einn daginn
finnst hjólið hennar eitt og yfirgefið
en hún hvergi sjáanleg. Mikil leit er
gerð að telpunni en ekki finnst hún.
Að lokum er móðir hennar orðin
sannfærð um að hún sjái dóttur sína
aldrei á lífi en faðirinn telur sig geta
endurheimt hana. Bönnuð börnum.
Ríkissjónvarpið kl. 23.00
KAMELÍUFRÚIN
(Camille)
Bresk sjónvarpsmynd
Leikstjóri: Desmond Davis
Aðalhlutverk: Greta Scacchi, Colin
Firth, John Gielgud og Ben Kingsley
Myndin er byggð á hinni sígildu
sögu eftir Alexandre Dumas. Sagan
er á þá leið að ung kona verður yfir
sig ástfangin af manni af góðum ætt-
um. Föður mannsins líkar það ekki
og tekur því til sinna ráða, þó hann
viti ekki að konan er fársjúk. Það
var víst gerð önnur mynd hér á ár-
um áður eftir þessari sömu sögu en
þá lék Gréta Garbó aðalhlutverkið.
Sú mynd er talin mun betri og þessi
ekki nema í meðallagi.
Stöð tvö kl. 23.25
EDDIE MURPHY
SJÁLFUR **
(Eddie Murphy Raw)
Bandarísk brandaramynd
Leikstjóri: Robert Townsend
Aðalhlutverk: Eddie Murphy (hver
annar!!)
Þá er þessi glæsti grínari einn á svið-
inu og segir brandara, sem eru æði
misjafnir að gæðum. Hann nær sér
best á strik þegar hann er að gera
grín að Bill Cosby og Richard Pryor.
En klámbrandararnir fara stundum
yfir markið. Enda er myndin strang-
lega bönnuð börnum.
Stöð tvö kl. 1.00
ATTICA-FANGELSIÐ
(Attica)
Bandarísk spennumynd
Leikstjóri: Marvin J. Chomsky
Aðalhlutverk: Charles Durning,
George Grizzard, Anthony Zerbe og
Morgan Freeman
Eins og titillinn gefur til kynna ger-
ist myndin í fangelsi. Það er staðsett
í New York og þangað hefur verið
hrúgað í eitt búr hundruðum stór-
hættulegra glæpamanna. Þeir setja
fram kröfur um bættan aðbúnað en
þeim er lítið sinnt. Við það fýkur í
kappana og hefst sú alblóðugasta
fangauppreisn sem sögur fara af,
enda þurfti að kalla á herinn til að
berja hana niður.
Stranglega bönnuð börnum.
LAUGARDAGUR
9. september
Stöð tvö kl. 13.30
G0LFSVEINAR
(Caddyshack)
Bandarísk gamanmynd
Leikstjóri: Harold Ramis
Aðalhlutverk: Chevy Chase, Bill
Murray og Rodney Dangerfield
Myndin gerist á golfvellinum í Graf-
arholti og fylgjumst við með ríkis-
stjórninni fara í golf snemma á laug-
ardagsmorgni. Þá getur nú ýmislegt
skondið gerst, t.d. er atriðið þegar
Denni púttar með sandgryfjujárn-
inu óborganlegt!!! Þetta var nú bara
smáútúrsnúningur, ensamtsemáð-
ur spennandi myndefni. Alvöru-
myndin fjallar að hluta til um mold-
vörpu sem gerir allt vitlaust á golf-
velli nokkrum og stríð Bills Murray
við hana, sem er æði fyndið á köfl-
um. Chevy Chase og Rodney Dang-
erfield standa sig einnig ágætlega.
Þess má geta að framhaldsmyndin
er eins og skugginn af þessari.
Ríkissjónvarpið kl. 21.20
KAFBÁTURINN ★ ★★V2
(Das Boot)
Þýsk stríðsmynd
Leikstjóri: Wolfgang Petersen
Aðalhlutverk: Jurgen Prochnow,
Herbert Grövemeyer og Klaus
Wennemann
Stórkostleg kvikmynd um áhöfn
kafbátsins U-96, sem er sendur í
leynilega sendiför. Þeir fá aldeilis að
finna fyrir því Hitlersdrengirnir
þar um borð og lenda í allskonar
hrakningum. Rosaleg spenna og
raunsæisleg frásögn einkenna þessa
miklu mynd. Á morgun, sunnudag,
verður sýnd heimildakvikmynd um
gerð myndarinnar. Hún er örugg-
lega ekki síður fróðleg.
Stöð tvö kl. 21.45
AULINN ★★,/2
(The Jerk)
Bandarísk gamanmynd
Leikstjóri: Carl Reiner
Aðalhlutverk: Steve Martin, Berna-
dette Peters, Catlin Adams
og Jackie Mason
Aulinn (Steve Martin í sínu fyrsta
stóra hlutverki) er alinn upp hjá
negrafjölskyldu í Mississippi. Dag
einn kemst hann að því að húðlitur
hans er ekki í samræmi við fjöl-
skylduna og það sem verra er; hann
verður aldrei svartur! Hann er al-
gerlega taktlaus og blúsinn gerir
hann dapran. Því heldur hann út í
hinn stóra heim til þess að „meika”
það. Það fer nú á ýmsa lund. — Aul-
inn á víst sína góðu spretti en dettur
svo niður þess á milli.
Rikissjónvarpið kl. 23.45
NÁTTFARI
(The Night Stalker)
Bandarísk spennugrínmynd
Leikstjóri: John L. Moxey
Aðalhlutverk: Darren McGavin,
Carol Lynley, Simon Oakland og
Claude Akins
Blaðamaður í Los Angeles leggur líf
sitt í hættu við að rannsaka morð-
mál. Þar af leiðandi er myndin ekki
við hæfi barna.
Stöð tvö kl. 00.10
J0E KIDD ★★
Bandarískur vestri
Leikstjóri: John Sturges
Aðalhlutverk: Clint Eastwood, Ro-
bert Duvall og John Saxon
Saxon leikur hér baráttuglaðan ná-
unga sem hyggst ná landi sínu og
annarra Suður-Ameríkubræðra
sinna aftur. Þetta veldur ugg og
áhyggjum hjá landeiganda nokkr-
um, sem ræður Joe Kidd (Eastwood)
til að skakka leikinn. Ofsahasar og
byssugelt eru vanalega það sem ein-
kennir myndir sem Eastwood kem-
ur nálægt og þessi er engin undan-
tekning.
SUNNUDAGUR
10. september
Stöð tvö kl. 23.35
KISULÓRUR ★★
(What's new Pussycat)
Bandarísk grínmynd
Leikstjóri: Clive Donner
Aðalhlutverk: Peter O’Toole, Peter
Sellers, Woody Allen, Ursula And-
ress og Romy Schneider
Peter O’Toole leikur hér tískublaðs-
útgefanda sem nýtur svo mikillar
kvenhylli að hann veit ekki í hvorn
fótinn hann á að stíga. Vinur hans
ráðleggur honum að fara til sálfræð-
ings, en þar reynist vera maðkur í
mysunni. Samkvæmt leikurunum
sem eru í þessari mynd ætti hún að
vera bomba en stjörnugjöfin segir
annað.
dagbókin
hennar
Ég er farin að hafa svo rosalegar
áhyggjur af stjórnmálaástandinu.
Skólinn er nefnilega að byrja og við
fáum sama íslenskukennarann, sem
alltaf er að láta mann skrifa ritgerðir
um þjóðmálaumræðuna.
Það þýðir þess vegna ekkert ann-
að en pæla soldið í þessu með Borg-
araflokkinn og allt það, því það er
einmitt svoleiðis jukk sem kennar-
inn vill að við tökum fyrir — þó það
hafi ekki baun í bala að gera með ís-
lensku. Mömmu finnst þetta samt
voða sniðugt, en hún er nú líka með
pólitísku veikina á hæsta stigi, eins
og pabbi segir. Amma á Einimeln-
um segir hins vegar að mamma sé
með þingmann í maganum og að
pabbi skuli aldeilis passa sig, þegar
þingkonurnar í Kvennalistanum
standi loksins upp úr volgum stólun-
um og hleypi mömmu að. Þá verði
nú hjónabandið fljótlega korslúttað,
því þessir þingmenn séu í svo sjúk-
legu hjásofelsi og framhjáhaldi að
það sé næstum eins og á sjálfri Stöð
2. En það er víst önnur saga. ..
Mér liði mun betur, ef það væri
einhver smáglæta í þessum tangó
þarna í stjórninni. Ég fatta til dæmis
ekki af hverju Borgarakallarnir eru
eitthvert númer. Amma segir að
flokkurinn sé gjörsamlega „elegans-
laus“ eftir að sendiherradóttirin
hætti að stjórna honum og að hún
þekki ekki sálu ofanjarðar, sem ætli
að kjósa hann næst. (Ég hef ömmu
sko grunaða um að hafa svikið bláa
litinn síðast, en hún neitar að trúa
mér fyrir því og segist ætla að taka
sín kosningaeinkamál í gröfina.) En
köllunum í ríkisstjórninni finnst
ekkert skipta máli þó Borgararnir
hafi engin atkvæði í landinu fyrst
þeir hafa atkvæði á Alþingi. Þannig
geta þeir nefnilega reddað sér tíma
til að gefa fólkinu alls konar barna-
bótaauka og erfiðleikalán og svo-
leiðis áður en næstu kosningar
verða. Þá verða allir kjósendurnir
svo ofsa glaðir að þeir lofa sömu
köllunum að stjórna áfram.
Annars er amma (sem er minn
helsti ráðgjafi í þessum pólitísku
pælingum fyrir skólann, því hún er
ekta hlutlaus sjálfstæðismaður)
næstum viss um að Davíð borgó
ætli að ryðjast til valda í Sjálfstæðis-
flokknum. Hún er ekki enn búin að
fyrirgefa honum þetta með ráðhús-
ið og risastóri hundurinn hans eyði-
leggur alveg fyrir henni Ægisíðu-
göngutúrana, því það er alltaf verið
að viðra hann þar og hún er að
deyja úr hundahræðslu. En maður-
inn bræddi hana alveg um daginn,
þegar hann fékk sér hjólastól.
Ömmu fannst svo meiriháttar að
þessi elegant sjentilmaður skyldi
„rísíkera" að krumpa silkijakkafötin
sín með því að sitja samankraminn
í stólnum í heilan dag til að kynnast
lífi fatlaðra. Hún sagðist m.a.s. næst-
um tilbúin að fara í úthringingar fyr-
ir hann í kosningunum!
En ég er eiginlega engu nær um
þessa pólitík. . .