Pressan - 01.02.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 1. febr. 1990
IPRESSU
MOLAR
I yrir skömmu opnaöi Baldur
Brjánsson fasteignasölu í miðbæn-
um. Baldur er kannski kunnastur
sem töframaður en um nokkurt
skeið sá hann um rekstur Hótels
Borgar fyrir Ólaf Laufdal. í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins er birt
auglýsing frá fyrirtæki Baldurs, Fyr-
irtækjamiðstöðinni hf., þar sem
meðal annarra fyrirtækja er auglýst
til sölu útvarpsstöð. Margir lögðu
saman tvo og tvo og þóttust vissir
um að Baldur væri enn í vinnu hjá
Ólafi Laufdal og útvarpsstöðin væri
Aðalstöðin. Þær getgátur munu þó
ekki réttar. Við heyrum að umrædd
útvarpsstöð sé hluti Sigurðar
Garðarssonar í útvarpsstöðinni
Effemm, en eins og menn muna
hefur Sigurður verið afkastamikill í
kaupum og sölu á ýmsum fyrirtækj-
um í borginni, til dæmis Hressing-
arskálanum og Ferðamiðstöð-
inni Veröld ...
■ apríl eða maí verður úthlutað á
þriðja hundrað íbúðum i verka-
mannabústöðum í Grafarvogi. Út-
hlutendur verða að vanda valið því
að þegar hafa borist eitt þúsund
umsóknir, sem þýðir að þrír til fjór-
ir sækja um hverja íbúð ...
"m þessar mundir er verið að
fjalla um klámkæruna á Stöð 2 í
Sakadómi Reykjavíkur, en það
hafa fleiri sjónvarpsstöðvar verið
kærðar fyrir að bera klám á borð
fyrir áhorfendur. Fyrir skömmu
voru t.d. tvær stöðvar í Frakklandi
sektaðar rækilega af þessum sök-
um. Einkastöðin La Cinq varð að
borga heilar fimmtíu milljónir fyr-
ir að sýna of djarfa mynd klukkan
hálffimm um eftirmiðdag. Og önnur
stöð varð að greiða fimmtíu og
fimm milljónir króna fyrir að
sýna fjórum sinnum á skjánum
klukkan hálfníu að kvöldi bæði kyn-
líf og ofbeldi. Sjónvarpsstöðvarnar
voru dæmdar fyrir að hafa brotið
lög, sem sett voru til að vernda börn
og unglinga. Þeim er hins vegar
heimilt að sýna svokallaðar bláar
myndir seint á kvöldin, þegar börn
eiga að vera sofnuð. Yfirvöld hafa
þá afstöðu að fullorðið fólk geti
sjálft valið og hafnað slíku sjón-
varpsefni.. .
■ vikunni hringdi Halldór Jóns-
son og kvartaði undan þjónustunni
í bílaumboðinu hjá Ingvari Helga-
syni. Halidór vantaði kúplingsdisk í
bíl sinn sem er af gerðinni Datsun
Nissan. Ódýrasti kúplingsdiskurinn
sem Halldór gat fengið annars stað-
ar kostaði 1.800 krónur, en í umboð-
inu kostaði varahluturinn 3.200
krónur.
Umræddur bíll er fluttur inn not-
aður frá Ameríku og til þess að
losna við að rífa hann í sundur þurfti
varahlutanúmer framleiðanda.
Halldór hringdi þá í umboðið hjá
Ingvari Helgasyni. Að sögn Halldórs
var honum neitað um varahluta-
númerið, auk þess sem starfsmað-
ur umboðsins hafi verið hinn dóna-
legasti og skellt að lokum á Halldór.
Pressan fékk staðfest hjá Ingvari
Helgasyni að þeir gæfu aldrei upp
varahlutanúmer. Guðjón Björns-
son í umboðinu vildi ekki fallast á
að þetta væri slæm þjónusta, en hélt
því fram að aðrar nákvæmar upp-
lýsingar um bílinn dygðu yfirleitt til
þess að hægt væri að kaupa í hann
hluti á öruggari hátt. Þar við bætist
að Ingvar Helgason hefur ekki
áhuga á að bianda sér inn í vara-
hlutasölu þriðja aðila. Hann kann-
aðist við tiltekið mál, sagði mann-
inn hafa verið æstan, en neitar því
að starfsmaður umboðsins hafi
komið dónalega fram ...
t
veir strákar sem brugðu sér út
úr bíl sínum við Hafnarhúsið til að
pissa sl. mánudagskvöld, um sama
leyti og Víkingasveitin lagði til at-
lögu við byssumanninn eins og
frægt er orðið, urðu heldur betur
fyrir barðinu á vöskum Víkinga-
sveitarmönnum. Var þeim stillt upp
við bílinn með hendur á þaki að am-
erískum-'sið, þreifað á þeim hátt og
lágt og bíllinn fínkembdur í leit að
skotvopnum. Að því loknu fengu
þeir að aka brott, reynslunni rík-
A.HANSEN • VEITINGAHÚSIÐ í FIRÐINUM • A.HANSEN • RÓMAÐ FYRIR VEITINGAR
Veitingahúsið í Firðinum
.. .nœrenþiggnmar!
í febrúar og mars bjóðum
við spennandi máltíð á
aðeins 795 kr. Val eftir vild.
Forréttur
• Súpa dagsins.
• Reyktur lax með eggjahrœru.
Aðalréttur
• Omeletta með þremur
mismunandi fyllingum.
• Pasta Fortelini með
sveppum, skinku og fleski.
• Soðinn saltfiskur með
spínatsósu.
• Vínarsnitsel með
pönnusteiktum kartöflum.
Kaffi
í dag er ekki meira mál að skella sér
suður í Fjörð í A.HANSEN úr miðbæ Reykjavíkur
en upp í Breiðholt eða Árbæ.
MiHUÐA
VEITINGAHÚS
í rúmgóðum og vinalegum
veitingcisal á neðri hæð
leggjum við metnað okkar í
lipra og þægilega þjónustu
á öllum veitingum. í nýjum
sérréttaseðli er að finna ótal céd< jK dad'ti
spennandi og girnilega rétti.
Salirmr a efn hæðinm eru
tilvaldir fyrir smærri og
stærri kaffi- og matarfundi,
hádegisklíkur í leit að næði
og árshátíðir klúbba og félaga
F&GMENNSKAÍ
Nú þegar fermingarnar
nálgast, er rétt að hafa í
huga fjölbreytta veislu-
þjónustu okkar í húsinu
og utan þess.
HELGARTILBOÐ
• Reykþurrkuð gæsabringa
með Waldorfsalati.
• Kjötseyði „Julienne“.
• Sítrónu sorbet.
• Turnbauti með sveppum
og bakaðri kartöflu.
• /s JUelba“.
Verð samtals 2.450 kr.
M ©AGSINS ÖNN
Það er heitt á könnunni
allan daginn og kakóið
okkar yljar ekki síður en
kaffið.
A.HANSEN
Vesturgötu 4 (gegnt Strandgötu) s. 651130
LÍF
OG FJÖR
„Pöbbinn“ á efri hæðinni
er vinsæll samkomustaður
á hverju kvöldi. Frá
fimmtudagskvöldi til
sunnudagskvölds er
sprelllifandi tónlist og
stemningin ólýsanleg!
A.HANSEN • NOTALEGT UMHVERFI • A.HANSEN • ALHLIÐA VEITINGAHÚS • A.HANSEN
er þjónusta sem gerir fjármálastjórum, gjaldkerum og
landsbankans sendimönnum fyrirtéekja lífið léttara. Með þvi að tengja
tölvu fyrirtækisins við BOÐLÍNUNA opnar fyrirtækið í raun sína eigin bankaafgreiðslu sem opin er
frá kl. 8:00-19:00 alla virka daga. Með BOÐLÍNUNNI er hægt að millifæra af eigin reikningi á hvaða
reikning sem er í hvaða banka sem er, og greiða þannig t.d. alla gíróseðla, víxla, skuldabréf og laun
án þess að fara í banka. Jafnframt á fyrirtækið aðgang að fjölbreyttum upplýsingum um stöðu
sína í bankanum og ýmiskonar annarri þjónustu. Hugaðu strax að BOÐLÍNU Landsbankans
og mánaðamótin verða léttari. Allar nánari upplýs-
ingar fást í bæklingi sem liggur frammi í næsta Landsbanka.
1
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna