Pressan - 01.02.1990, Blaðsíða 5

Pressan - 01.02.1990, Blaðsíða 5
5 • ' • Fimmtudagur 1. febr. 1990 Eigandi gjaldþrota fyrirtækis grœðir milljónir á lóðaúthlutun — án áhœttu: LÖGLEGT LÖDABRASK A krepputimum hljóta þetta að teljast óbatasöm viðskipti. Verktakar stoffna fyrirtæki með lógmarksstofnfé og fá tveimur mánuðum siðar úthlutað eftir- sóttri lóð undir f jölbýlishús i Grafarvogi. Þeir hafa sjálfir ekki bolmagn til að nýta lóðina og fá þvi annað verktakafyrirtæki til þess — en hirða sjálfir hluta ágóðans. Aðrar tegundir lóðabrasks eru bannaðar á jörðum sem borgin úthlutar, en þarna hafa útsjónarsamir kaupsýslumenn krækt sér i milljónir króna án nokkurrar eigin áhættu. EFTIR ÖDDU STEINU BJÖRNSDÓTTUR - MYNDIR EINAR ÓLASON 1 1 ) j J Byggingarfyrirtækið Geithamrar hf. var stofnað þann 23. júní 1988. Stofnfé var 100 þúsund krónur og aðaleigandi var Sveinn Úlfarsson, einn af eigendum fyrirtækisins BOR hf., byggingar og ráðgjöf. Tæpum tveimur mánuðum eftir að Geit- hamrar voru stofnaðir, nánar tiltek- ið þann 16. ágúst, var byggingarfyr- irtækinu úthlutað lóðinni Veghús- um 21—25 í Grafarvogi. Gatnagerð- argjöldin voru rúmlega þrjár millj- ónir. í janúar 1989 fór BOR hf. fram á gjaldþrotaskipti. Skuldar millgónir vegna söluskatts Það vekur athygli að nýstofnað byggingarfyrirtæki eins og Geit- hamrar skuli strax fá úthlutað stórri lóð í Grafarvogi, einkum þar sem hlutafé fyrirtækisins var aðeins 100 þúsund krónur og aðaleigandi átti annað fyrirtæki sem var nærri gjaldþroti og skuldaði milljónir til hins opinbera, meðal annars vegna söluskatts samkvæmt upplýsingum frá borgarfógeta. Það vekur enn frekar athygli að fyrirtækið Geithamrar hf. sér ekki sjálft um byggingarframkvæmdir í Veghúsum, heldur gerir byggingar- samning við Magnús Kristinsson verktaka. Magnús sér um að byggja íbúðirnar og selja þær, en Geithamr- ar hf. fá hluta söluágóðans. Sam- kvæmt upplýsingum fasteignasöl- unnar sem sér um þessi viðskipti skipta menn eingöngu við Magnús þó skráðir eigendur lóðarinnar séu aðrir. Engin óhætta — bara gróði Þetta þýðir í raun að eigendur Geithamra hf. fá úthlutað lóð, láta aðra byggja fyrir sig og taka enga áhættu, en hirða svo hluta ágóðans af íbúðasölunni. Hér er alls um 24 íbúðir að ræða og samkvæmt upp- lýsingum fasteignasölunnar sem selur þessar íbúðir er þegar búið að selja flestar íbúðanna, sem verða til- búnar í mars. Samkvæmt reglum við lóðaút- hlutun er óheimilt að selja bygging- arrétt á lóðum Reykjavíkurborgar eða selja húseign fyrr en hún er fok- held. Því væri ólöglegt í tilvikum sem þessu að selja undirverktaka lóðina. Kerfið býður hins vegar upp á misnotkun þar sem byggingarlóð- ir sem þessi eru eftirsóttar og færri fá en sækja um. Því geta lóðarhafar samið við verktaka um að byggja og taka á sig alla áhættu af því og hirt hluta gróðans. Sveinn Úlfarsson, aðaleigandi Geithamra hf., segir þetta fyrir- komulag mjög algengt, en vill þó ekki nefna önnur dæmi. „Ef við- komandi undirverktaki sér sér fært að byggja með þessum skilmálum, þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu.” Sveinn segir að við lóðaúthlutun hafi ekki verið komið á hreint hvernig að byggingu yrði staðið og aðstandendur Geithamra hafi velt því fyrir sér hvort þeir hefðu bol- magn til að byggja. Síðan var ákveð- ið að fara þessa leið. Að sögn Sveins hafa Geithamrar ekki staðið í öðr- um byggingarframkvæmdum, en fyrirtækið keypti hins vegar veit- ingahúsið Sælkerann og rekur hann nú. „Ekki alvöru verktakafyrirtæki" Gunnar Birgisson, formaður Verk- takasambands íslands, kannast ekki við að þetta fyrirkomulag sé al- gengt og telur þetta óeðlilegt, enda sé hér um brask að ræða. Fram- kvæmdastjóri verktakasambands- ins, Pálmi Kristinsson, segist ekki kannast við að þetta sé algengt enda séu nýstofnuð fyrirtæki með 100 þúsund króna hlutafé ekki al- vöru verktakafyrirtæki. „Ég ætla að vona að þetta sé ekki algengt. Auð- vitað er eitthvað um þetta, en það eru þá aðrir en alvöru verktakafyr- irtæki." Pálmi telur óeðlilegt af hálfu borgaryfirvalda að beina út- hlutunum í þennan farveg. „Það hlýtur að vekja furðu ef yfirvöld eru að úthluta hlutfallslega miklu magni af lóðum til fyrirtækja sem eru rétt orðin til og til aðila sem eru með annan rekstur og eru beinltnis í braski." Pálmi bendir á að oft geti verið erfitt fyrir sveitarstjórnir að átta sig á hve langa lífdaga menn eiga sem verktakar og segist hafa álitið að þróun mála við lóðaúthlutanir í Reykjavík væri hægt og bítandi í rétta átt á undanförnum árum. Elcki spurt um f jórhag við úthlutun lóða Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri borgarverkfræðings, segir ekki gengið eftir fjárhagsáætlunum manna við úthlutun lóða nema ein- hver vafi leiki á um að menn hafi fjárhagslegt bolmagn til að byggja. Ágúst segist engar upplýsingar hafá um þetta tiltekna mál og vill ekki tjá sig um það, en bendir á að ekki sé heimilt að selja byggingarrétt sem borgarráð hafi úthlutað án sam- þykkis borgarráðs. Ágúst færðist undan því að leggja mat á fram- kvæmd sem þessa og sagði að hún væri matsatriði og færi eftir því hvernig á málum væri haldið. Skipta persónuleg tengsl móli? Fastar reglur um lóðaúthlutun fjölbýlishúsa eru ekki til hjá Reykja- víkurborg. Þegar umsækjendur eru margir er þvi matsatriði embættis- manna og borgarráðs hver hlýtur lóðina. Aðilar í byggingargeiranum hafa haldið því fram að persónuleg tengsl við yfirmenn borgarinnar væru þar þung á metum. Sveinn Úlfarsson var spurður að því hvort hann teldi að tengsl hans við háttsetta menn hjá Reykjavíkur- borg hefðu haft áhrif á úthlutun til hans. Hann svaraði: „ Nei, ég ætla að vona að það hafi ekkert með það að gera, enda eru það ekki einstakir embættismenn sem ákveða það.“ BOR gjaldþrota — kröfur um 60 milljónir En hvers vegna var stofnað nýtt fyrirtæki til þess að sækja um lóð við Veghús, þegar sami aðili átti hlut í öðru byggingarfyrirtæki, BOR hf.? Sveinn segir að eigendur BOR hafi ekki lengur haft áhuga á að vinna saman. „Fyrirtækið var komið fjár- hagslega á hnén og samstarfið var brostið." Stuttu eftir téða lóðarúthlutun til Geithamra hf. fóru eigendur BOR hf. fram á gjaldþrotaskipti og úr- skurður um gjaldþrot var kveðinn upp um mitt sumar 1989. Kröfur í þrotabúið nema um 60 milljónum króna. Samkvæmt upplýsingum frá borgarfógeta eru veð fyrir hluta skuldanna, en ljóst þykir að pening- ar fást ekki upp í þessar kröfur. Stærsti kröfuhafi er tollstjóri með kröfur upp á 20 milljónir. Eigendur BOR hf. voru persónu- lega ábyrgir fyrir einhverjum skuld- anna samkvæmt upplýsingum frá borgarfógeta. Með því að fá úthlut- að lóð og láta undirverktaka um að byggja á henni má reikna með að Sveinn Úlfarsson geti aflétt ein- hverju af þessum ábyrgðum. Ábyrgð borgaryfirvalda Úthlutun lóða fyrir stórhýsi er hagsmunamál byggingarverktaka. Á undanförnum árum hefur verið mikið framboð á byggingarlóðum hjá Reykjavíkurborg en um góðar lóðir eru yfirleitt margir umsækj- endur. Eftir því sem næst verður komist gilda engar ákveðnar reglur af hálfu borgarinnar um það hverjir fái slíkar lóðir heldur er það háð mati embættismanna og borgarfull- trúa. Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri borgarverkfræðings, staðfesti að fleiri hefðu sótt um fjölbýlishúsalóð- ir í Veghúsahverfinu en fengu og samkvæmt heimildum PRESSUNN- AR var einn umsækjenda Magnús Kristinsson, undirverktaki á lóðinni í Veghúsum 21—25. Samkvæmt úthlutunarreglum er sem fyrr segir bannað að selja bygg- ingarrétt á lóðum fyrr en bygging þar er fokheld. Það sýnir að lóða- brask af því tagi sem hér hefur verið lýst stríðir gegn yfirlýstri stefnu borgaryfirvalda. Það krefst því svara af hálfu borgarinnar hvers vegna embættismenn og borgarfull- trúar bjóða slíku heim með því að úthluta góðum byggingarlóðum til aðila sem ekki hafa bolmagn til að byggja sjálfir og ganga framhjá öðr- um byggingarverktökum sem geta sýnt fram á að þeir geti byggt stór hús — sjálfir. ff EKKI EINS OG BAfAf^EM1 en RAÐGERT ER ff Davíö Oddsson borgarstjóri um byggingarframkvœmdir í Veghúsum 21—25 PRESSAN innti Davíð Odda- son borgarstjóra álits á tilhög- un byggingarframkvæmda í Veghúsum 21—25. Hann sagð- lat ekki kannast við þetta mál en væri það rétt, þá væri þetta ekki í samræmi við það sem borgaryfirvöld gerðu ráð fyrir. „Slík aðferð er fjarri því að vera í samræmi við það sem menn gera ráð fyrir. Ef Sveinn hefur staðfest slíkt, þá myndi það náttúrulega um leið leiða til þess að við aðrar lóðaúthlutanir væri þetta einmitt atriði sem væri tekíð tillit til þegar ákveðið er hvort menn fái lóðir á nýja leik eða ekki. Framhjá slíkum hlutum getur borgin reyndar aldrei komist. Það er nú því miður svo f byggingar- iðnaði okkar að það gengur upp og ofan. Fyrirtæki sem hefur gert einn hlut góðan getur lent í vand- ræðum í næsta verki. í sjálfu sér er þetta ekki brot á neinum reglum, en á hinn bóginn myndu menn að sjálísögðu líta til slíkra þátta við framhaldsúthlut- anir." Davíð seglst ekki kannast við önnur tilfelli sem þetta og seg- ir að borgaryfirvöldum hafi ekki verið kunnugt um fjár- hagsaðstæður Sveins Úlfars- sonar við úthlutun. „Hann hafði gert hér allmarga góða hluti, þessi verktaki. Til að mynda gekk hann frá húsurn við Skóiavörðustíg og stóð sig vel þar, þannig að sem slíkum mátti vel treysta honum til þess. Það var ekki uppvíst við þessar aðstæður að hann stæði svo tæpt fjárhags- lega." — En hvaða reglur eru um út- hlutanir? „Þar fara menn mest eftir því hvort um er að ræða þokkalega reynda byggingarmeistara. Þegar nýir menn eru teknir inn, þá eru það kannski menn sem hafa staðið við sitt i minni verkum, En það eru engar fastmótaðar reglur, það er ekki hægt að hafa slíkar reglur." Borgarstjóri seglr fjárhag byggingarmeistaranna yfir- leitt ekki skoðaðan, nema við- „Engar reglur gilda um úthlut- anir," segir Davíð Oddsson borgarstjóri. komandi meistari hafí verið með verk fyrir borgina sem hafa farið illa. Ef um er að ræða verk á vegum borgarinnar, svo sem brúarbyggingar eða skóla, þá sé fjárhagurinn skoðaður þar sem stöðvun á slikum byggingarframkvæmdum geti verið mjög óþægileg fyrir borgina.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.